Morgunblaðið - 25.03.1990, Síða 6

Morgunblaðið - 25.03.1990, Síða 6
6 FRÉTTIR/INNUENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARZ 1990 Morgunblaðið/Sigurgeir Um borð í Lóðsinum að lokinni velheppnaðri björgun, f.v.: Ágúst Bergsson skipstjóri, Sigurður Elíasson og Gísli Einarsson. Á litlu myndinni sést er Lóðsinn kemur til hafiiar í Vestmanneyjum með fxmm skipverja af Sjöstjörnunni. Ólýsanlega gleðilegt að bjarga mönnum V estmannaeyj u m. ÁHÖFN hafiisögu- og björgunarbátsins Lóðsins í Vestmannaeyjum vakti athygli fyrir snör viðbrögð og vaska framgöngu við björgun skipveija af Sjöstjörnunni, sem fórst sl. þriðjudag. Það fer yfirleitt ekki mikið fyrir starfi áhafnar Lóðsins og eflaust gera fáir sér grein fyrir hversu mikið starf hún innir af hendi. Áhöftiin er ávallt í viðbragðsstöðu, því á öllum tímum sólarhrings koma útköll. Oft- ast eru þessi útköll vegna hafhsögustarfa en einnig vegna aðstoðar við skip og báta sem eiga í einhveijum erfiðleikum á hafi úti eða leit og björgun. Lóðsinn hefur reynst mikið happafley, síðan hann kom til Eyja árið 1961. Talsverður styrr stóð um það þegar bæjaryfirvöld ákváðu að ráðast í smíði hans. Margir töldu að verið væri að smíða allt of stórt skip og Vest- manneyingar hefðu ekkert við svo stórt skip að gera sem hafnsögu- bát. En menn hafa greinílega ver- ið framsýnir enda hefur Lóðsinn verið meira en hafnsögubátur í Eyjum. Hann hefur verið eina björgunarskipið sem ætíð er stað- sett við suðurströndina, þar sem stór floti er ávallt á veiðum. Vinnu- svæði Lóðsins nær frá Homafirði til Reykjaness og á öllu þessu svæði hefur báturinn farið í marga leiðangra og suma ansi slarksama. Öruggur bátur Í fastri áhöfn Lóðsins eru tveir menn en auk þess fara aðrir starfs- menn Vestmannaeyjahafnar með í ferðir skipsins ef á þarf að halda. Morgunblaðið kom við hjá áhöfn Lóðsins í vikunni til að kynnast því starfi sem hún innir af hendi. Þeir voru tveir um borð, Ágúst Bergsson, skipstjóri, og Gísli Ein- arsson, sem er þriðji maðurinn í áhöfn bátsins, en hann leysir skip- stjórann og vélstjórann af í þeirra fríum. „Það er með ólíkindum hvað er búið að þvælast á þessum bát í allskonar veðrum. Oft hefur það verið ansi sukksamt en báturinn hefur mikla sjóhæfni. Við erum búnir að sullast út í vitlausum veðr- um og oft þurfum við að skálka allar hurðir því hann er eins og hálfgerður kafbátur. Það er bara allt á svarta kafi nema stýrishúsið. En þetta er öruggur bátur og ég held að það sé hægt að bjóða hon- um nánast allt,“ sagði Ágúst Bergsson skipstjórj um Lóðsinn. Fjölbreytt verkefiii Þeir sögðu að verkefnin, sem þeir hefðu sinnt, gegnum árin, væru margvísleg. „Við höfum til dæmis farið með ferðamenn í skoð- unarferðir og verið í flutningum með sauðfé milli Eyjanna, auk allra skyldustarfanna. Talsvert höfum við gert af því að sækja áhafnir skipa hér út fyrir, ef þau liafa verið á leið í siglingu og einhveijir hafa farið í siglingafrí. Við höfum sótt sjúka menn um borð í skip, farið með kafara til starfa á hafi úti auk þess sem við höfum oft dregið vélarvana skip og báta. Daglega erum við svo að snúast hér í kringum höfnina. Fara með lóðsinn út í skip og sækja hann og aðstoða skipin við að snúa í höfninni. Þá aðstoðum við, við dýpkun hafnarinnar og drögum sandprammana út fyrir þar sem hleypt er úr þeim,“ sögðu þeir fé- lagar. Sem dæmi um starfsemi Lóðsins tóku þeir að báturinn hefði farið í 600 ferðir á síðasta ári, við hin ýmsu störf. Þar af voru hreinar björgunarferðir á bilinu 20 til 30. Tvo báta drógu þeir af strandstað og unnu við slökkvistörf á hafi úti í einum. Björgun áhafiiar Sjöstjörnunnar Um leit og björgun áhafnar Sjö- stjörnunnar sögðu þeir að kallið í þá leit hefði komið mjög snöggt. „Við þurftum að fara af stað í hvelli þegar neyðarmerkið fór að heyrast, til þess að reyna að miða það út, en við höfum tæki til þess hér um borð. Sigurður Elíasson, hafnarvörður, fór með í ferðina, því við höfðum ekki tíma til að hafa upp á þriðja manninum í áhöfninni, vélstjóranum Sveini Halldórssyni, en hann var farinn af stað heim í mat,“ sögðu þeir. „Þegar við komum í Faxa fengum við ákaflega sterkt merki frá neyð- arsendinum, en það varaði ekki nema í örfáar sekúndur. Við náð- um miðinu og trúðum alltaf að það væri rétta stefnan þó svo að merk- ið dytti út skömmu eftir þetta í þó nokkra stund. Það var svo ein- kennilegt hvað þessi stefna greip okkur og við héldum henni þó svo stöðin væri að rokka af og til með stefnuna. Þegar við svo sáum gúm- bátinn skaust hann annað kastið upp á öldutoppana en hvarf þess á milli. Okkur létti síðan óskaplega við að sjá að einhver mannskapur var í honum,“ sagði Ágúst. „Þetta er okkar starf ‘ Þeir sögðu að þegar þeir legðu af stað í leit i vitlausu veðri þá væri enginn beygur í mönnum. Þetta væri bara þeirra starf og bátnum treystu þeir í flestan sjó. „Það er helst að maður fái ein- hvern kipp þegar vitlaust veður er og síminn hringir hjá manni um hánótt. Þá læðist alltaf að manni einhver beygur um að nú hafi eitt- hvað komið fyrir og maður fær svona kipp í magann. Þegar maður er aftur á móti kominn af stað þá hugsar maður ekki um annað en að gera sitt besta og koma til hjálp- ar ef þess er nokkur kostur," sagði Ágúst. Þeir sögðu það ólýsanlega gleði- tilfinningu að geta bjargað mönn- um úr sjávarháska. Menn væru taugaspenntir ifteðan þeir væru á leið til hjálpar og ef björgun tæk- ist þá væri það afskaplegur léttir og fagnaðartilfmning sem fyllti menn. „Maður þekkir það sjálfur að vera bjargað úr sjávarháska og getur svo auðveldlega sett sig í spor þeirra manna sem í háska eru staddir. Tilfinningin að vera bjarg- að er ólýsanleg og þegar maður þekkir þá tilfínningu og lendir síðan í því að bjarga mönnum þá getur maður ekki lýst því hvernig manni líður," sagði Gísli. Gísli lenti eitt sinn í sjávarháska og var bjargað ásamt öllum skipsfélögum sínum er Bergur VE sökk á Kollu- ál 1963. — Grímur 177.000 manns á kjörskrá í vor ALLS verða um 180.235 manns á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 26. maí næstkomandi samkvæmt kjörskrárstofiium sem Hagstofan hefur unnið. Endanleg tala manna á kjörskrá verður að líkindum um 177.000. Kjósendur á kjörskrá nú verða um 8.000 fleiri, eða 5% fleiri en í síðustu sveitarsljómakosningum 1986 sem er mun minni fjölgun en milli kosningannan 1982 og 1986. Þá fjölgaði kjósend- um um 13,7%, eða 20.000 manns. Mesta fjölgun kjósenda á kjör- skrá hefur orðið á höfuðborg- arsvæðinu eða 8% frá því í síðustu kosningum. Mest hefur fjölgað í Bessastaðahrepp um 26%, 20% í Mosfellsbæ og 19% í Kjalarneshrepp. 104.274 manns eru á kjörskrá í Reykjavík, miðað við 94.996 í síðustu kosningum, þar af 53.691 kona og 50.583 karlar. Af öðrum sveitarfélögum þar fjölgun hefur orðið á mönnum á kjör- skrá eru Suðurnes með 5% fjölgun, þar af 10% í Grindavík, en á Norður- landi eystra, Austurlandi og Suður- landi hefur mönnum á kjörskrá fjölg- að um 1% frá síðustu kosningum. Umtalsverð fækkun hefur orðið á mönnum á kjörskrá nokkurra sveit- arfélaga frá því er síðast var kosið til sveitarstjórna. Þannig hefur mönnum á kjörskrá fækkað um 11% í Flateyrarhreppi og um 10% í Suður- eyrarhreppi, en alls hefur kjósendum á kjörskrá á Vestfjörðum fækkað um 5% frá því í síðustu kosningum. 16.400 manns, eða um 9% af áætlaðri tölu manna á kjörskrá fær nú að kjósa í fyrsta sinn vegna ald- urs. Kosningarétt til sveitarstjórna eiga allir sem eru 18 ára þegar kosn- ing fer fram, eru íslenskir ríkis- borgarar og eiga lögheimili á ís- landi. Ennfremur eiga danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkis- borgarar kosningarétt sem átt hafa lögheimili á íslandi í þijú ár miðað við 1. desember næstan fyrir kjör- dag. Þá eiga danskir ríkisborgarar kosningarétt sem dveljast hér og voru búsettir á íslandi 6. mars 1946 eða á síðustu tíu árum þar á undan. 1.523 menn með lögheimili er- lendis 1. desember 1989 og 851 ríkisborgari annarra ríkja á Norður- löndum búsettur á íslandi eiga kosn- ingarétt í sveitarstjórnarkosningun- um í vor. Hættir sem fram- kvæmdastjóri SFR GUNNAR Gunnarsson, framkvæmdastjóri Starfsmannafélags ríkis- stofiiana, hefur óskað eftir lausn frá störfum frá 1. apríl að telja og hefur stjórn félagsins fallist á það. Gunnar hefur verið framkvæmda- stjóri félagsins síðastliðin 15 ár. Ibréfi Gunnars til stjórnar SFR af þessu tilefni, segir hann að vel sé við hæfi að hann skilji við félagið á þeim tímamótum þegar átök séu um forustu þess og starfs- hætti undanfarandi ár, en hann hafi hafið störf hjá félaginu 1. apríl 1975 á átakafundi sem stofnað hafi verið til á sömu forsendum og nú. Aðalfundur SFR verður á fimmtudaginn kemur og verður þar kosið um tvö framboð til formanns og stjórnar, en Sigríður Kristins- dóttir, sjúkraliði, hefur boðið sig fram til formanns gegn Einari Ól- afssyni, sem verið hefur formaður félagsins í rúm 20 ár. „Ef svo færi að hér yrðu for- mannaskipti lít ég svo á að það sé lang heiðarlegast og eðlilegast af mér að hætta. Ég hef starfað með Einari allan þennan tíma. Nú verð- ur hann fyrir gagnrýni og ef hún verður til þess að hér verða einhver umskipti held ég að það sé eðlileg- ast að þeir sem við taka sitji ekki uppi með lík í lestinni,“ sagði Gunn- ar í samtali við Morgunblaðið. Kelduhverfi: Fé á húsi síðan í janúar Hraunbrún, Kelduhverfí. í KELDUHVERFI hefur veturinn verið frekar snjóléttur, eða þar til í þessari viku, en þá snjóaði töluvert á tveimur sólarhringum. Síðan má ekki koma smá gola, þá verðíir ófært um leið, því að sumsstaðar á leiðinni til Húsavíkur eru komnir snjóruðningar sem eru um eða yfir tveir metrar. Þetta hefur þau áhrif að fólk getur kannski ekki brugðið sér bæjarleið nákvæmlega daginn sem það ætlaði sér í upp- hafi heldur verður að sæta lagi þegar vegurinn er ruddur. Skólahald féll alveg niður á fimmtudag og á föstudag mættu ekki nema sum börnin vegna þess að enn var ófært heim á þá bæi sem lengra eru frá þjóðvegin- um. í svona tíðarfari getur verið gott að hafa snjósleðana og hafa menn gjarnan notað þá til að koma sér á milli staða. Sauðfjárbændur hafa þurft að hafa fé sitt á húsi síðan í janúar eða lengur sökum þess að snjór hefur verið yfir öllu. Rúningur fjár- ins er víða vel á veg kominn eða jafnvel lokið. Enginn óhöpp hafa orðið í fiskeldinu vegna veðurs. En oft þarf að eyða þónokkrum tíma í að bijóta ís á Lónunum þar sem ísno starfar, því annars getur ísspöngin farið af stað í næsta hvas- sviðri og skemmt flotkvíarnar en það hefur sem betur fer ekki gerst. Inga Rænd í stórverslun KONA var rænd handtösku sinni í Grundarkjöri við Eddufell um miðjan dag á föstudag, innan um fjölda fólks. Þjófurinn komst und- an óséður og er ófundinn. Eg var að teygja mig í hillu eftir kexpakka og þegar ég sneri mér við til að láta pakkann í inn- kaupavagninn var veskið horfið úr vagninum," sagði konan, sem fyrir stuldinum varð, í samtali við Morg- unblaðið. Að hennar sögn var mjög margt fólk í búðinni og bað hún aðra viðskiptavini þegar að litast um eftir , þjófinum, en það bar engan árangur. í veskinu voru skilríki, lyklar, peningar ag ýmsir fleiri munir. .Veskið er nokkuð stórt, svart á lit og hálfmánalaga. Á því er lítið gyllt merki með stöfunum FB. Kynni veskið að finnast er finnandinn beð- inn að snúa sér til Rannsóknarlög- reglunnar, Grundarkjara eða eig- anda veskisins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.