Morgunblaðið - 25.03.1990, Síða 12

Morgunblaðið - 25.03.1990, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARZ 1990 KORFUSKOR KOM2VIR APTUR Verð kr. 1.495, Litir: Svart - hvítt og fl. Stærðir: 36-42 Ath: Lítil númer 5% stadgreidsluafsláttur — Póstsendum samdagurs. væÆ VELTUSUNDf 1 21212 _____ KRINGI4N Domus Medica s^^iz1 s. 18519' STOLGOÐ FERMINGARGJÖF! - ótrúlega fjölbreyttir stillimöguleikar - hægt að velja um mjúk eða hörð hjól -alullaráklæði í mörgum litum -5áraábyrgð Tn_BOÐSVER® -.10300 B íl\ A \ lítt Npnv STEINAR SMIÐJUVEGI 2-200 KÓPAVOGI-SÍMI 9146600 J hC maður hafði óskað eftir og forsetar Alþingis samþykkt að leggja til. í fjárlagafrumvarpinu segir: „Kostn- aður vegna umboðsmanns hækkar allmikið en þó er ekki orðið að ósk- um embættisins um fjölgun starfs- manna og aukið framlag. Þess má og geta að mikill óbeinn kostnaður hlýst af starfi umboðsmanns Al- þingis vegna mikillar vinnu í ráðu- neytum og stofnunum við að svara erindum og vinna upplýsingar sem hann óskar eftir.“ Umdeild lækkun fjárveitingar Vegna þessara ummæla áréttar umboðsmaður sérstaklega í skýrslu sinni, að ekki var um að ræða beiðni um neina fjöigun starfs- manna umfram það, sem forsetar Alþingis höfðu ákveðið í samræmi við 14. grein laga um umboðsmann Alþingis. „Þá taldi ég og tel enn, að afstaða til Alþingis með þeim hætti, sem fram kemur í ofan- greindum ummælum í fjárlaga- frumvarpinu, hljóti að vera alþingis- mönnum nokkurt umhugsunar- efni,“ segir umboðsmaður og vitnar síðan til bréfs sem hann ritaði for- setum Alþingis. Þar segir hann að ofangreind athugasemd í fjárlaga- frumvarpinu hljóti að véra skýring- in á því hvers vegna fjárveiting er lækkuð í fjárlagafrumvarpinu mið- að við tillögur umboðsmanns Al- þingiS og forseta þingsins. „Sú skýring verður ekki skilin öruvísi en svo, að nauðsynlegt sé að setja starfi umboðsmanns takmörk." Hann bendir síðan á að hlutverk umboðsmanns sé ákveðið í lögum og þar kveðið á um störf hans og starfshætti. „Ég tel að hvorki umboðsmaður Alþingis né Alþingi geti unað við það, að handhafar stjórnsýsluvalds taki fram fyrir hendur Alþingis," segir hann. „Við þessu er ekkert annað að segja, en að vitaskuld var ljóst að embættið hlyti að kosta fé. Þarna vinna bestu og virtustu lögfræðing- ar að málum. Og ef ráðuneytin ráða ekki við þau erindi sem til þeirra koma, þá er ekki annað að gera en sjá til þess að það sé til starfskraft- 0bunkttnu^. fan9a f uV°nun frá *** 'nu við Skóín'n9arhús~ I SVar við hn-A ye9na þes v°rðustíg ' hefði svariAðn' sinni um afðiekkisU hann ur til að sinna þeim. Ég4rúi ekki öðru en að íjármálaráðherra skilji eðli þessa embættis. Ráðuneytin verða auðvitað að virða þann rétt borgaranna að fá sín mál leiðrétt ef ástæða er til,“ segir Guðrún Helgadóttir um athugasemdina í fjárlagafrumvarpinu. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra segir sannarlega hafa komið í ljós hve þörfin fyrir umboðsmann Alþingis er mikil. „En ég er ekki frá því að þetta starf eigi eftir að þróast og taka á sig endanlega mynd. Það er auðvit- að alltaf spurning hvað umboðs- maður Alþingis á að ganga langt í að kveða upp úrskurði. Hann á fyrst og fremst að leggja mikla áherslu á að fá málum hraðað í gegnum kerfið og huga að hvort ráðuneyti og opinberar stofnanir séu vakandi og sinni erindum. Hann á síður að gerast dómari í málum.“ Steingrímur segir upp og ofan hvernig stjórnkerfið tekur umboðs- manni. „Ég veit að sumum finnst umboðsmaður of aðfinnslusamur um atriði sem honum komi í raun ekki við. Og sumum finnst afar mikil skriffinnska við að sinna er- indum hans. — En ég hef engar kvartanir undan umboðsmanni Alþingis. Við svörum yfirleitt fljótt 1 . -•-# Metsölubloð á hveijum degi! VILT ÞÚLÆRA NUDD? Sjúkranuddarafélag íslands veitir þér upplýsingar og að- stoð við að komast í nám í viðurkenndum sjúkranuddskól- um erlendis. Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir lán til námsins. Að námi loknu færð þú löggildingu sem sjúkra- nuddari og réttindi til víðtækrar nuddstarfsemi. Uppiýsingar veita: Bóthildur Hauksdóttir Erlingur Arthúrsson Eveline Denner Haraldsson Harpa Harðardóttir Hilke Hubert Vilhjálmur I. Árnason Wolfgang Roling Selfossi ísafirði Hellu Reykjavík Reykjavík Akureyri Hveragerði SJÚKRANUDDARAFÉLAG ÍSLANDS, Pósthólf 1782, 121 Reykjavík. s. 98-2 20 78 s. 94-44 48 s. 98-7 51 46 s.91-2 05 60 s.91-1 36 80 s. 96-2 56 16 s. 98-3 42 01 erindum til okkar og það hefur ekki valdið okkur neinum vandræð- um. Það er helst að það hafi komið í okkar hlut að knýja á önnur ráðu- neyti að svara bréfum hans.“ Vantar almennar reglur um stjórnsýsluna Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri í dómsmálaráðuneytinu segir reynsluna af umboðsmanni almennt góða. „Þó að auðvitað geti verið ágreiningur um einstök mál, þá tei ég að það hafi verið mikið gagn af starfi umboðsmanns það sem af er.“ Nokkrar deilur urðu á síðasta ári um álit umboðsmanns Alþingis varðandi meðferð dómsmálaráðu- neytis og barnavemdaryfirvalda í málum út af forsjá barna. Barna- verndarráð brást hart við álitinu og sendi fjölmiðlum greinargerð til birtingar. Mikil bréfaskipti urðu i kjölfarið og fundahöld. Barnavemd- arráð hefur hins vegar eftir þetta farið varlega í að afhenda dóms- málaráðuneytinu öll gögn sem ráðu- neytið telur sig þurfa til __ að úr- skurða í forsjármálum. I fljótu bragði virðist hins vegar eðlilegra að Barnaverndarráð bregðist vel við, þar sem ráðið hefur nú skýrari línur að fengnu áliti umboðsmanns. HVITUR ASPAS Eigum til afgreiðslu strax fullan góm (1200 kassa) af hvítum, afhýddum aspas. Hver kassi inniheldur 6 dósir, hver ca 2 kg. Framleiðsluland er Perú. Verð í Banda- ríkjadölum er 32.95 pr kassi FAS (fritt að skipshlið) í New York. Sýnishorn send ef óskað er. Vinsamlegast hafið samband við J.F. Braun & Sons, Inc., 265 Post Avenue, Westbury, New York 11590, sími 901-516-997- 2200, fax 901-516-997-2478, telex +6852147.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.