Morgunblaðið - 25.03.1990, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 25.03.1990, Qupperneq 13
0H( íOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 25. -MARZ 1-990 u Sigríður Ingvarsdóttir formaður Barnaverndarráðs segir að ráðið afli sér nú m.a. upplýsinga um til- högun þessara mála í öðrum lönd- um. „Þetta álit segir að aðilar máls eigi ríkan aðgang að gögnunum. Dómsmáiaráðuneytið sem er úr- skurðaraðili hlýtur því að þurfa að veita aðilanum rúman rétt. Það bindur því hendur barnaverndar- yfirvalda meira sem hafa hins vegar þá skyldu að bregðast ekki trúnaði og gæta þagnarskyldu samkvæmt barnaverndarlögunum." Sigríður segir jafnframt aðspurð að vissulega hljóti Barnaverndarráð að hlíta beiðni æðra stjórnvalds í þessum efnum. „Við myndum að sjálfsögðu hlíta ákvörðun mennta- málaráðuneytisins sem fer með yfirstjórn þessara mála. Gagnvart dómsmálaráðuneytinu erum við einungis sérfræðingar og um- sagnaraðili í málefnum barna,“ segir Sigríður. Þetta mál er ef til vill eitt dæmi um nauðsyn á stjórnsýslulögum og lögum um upplýsingaskyldu stjórn- valda, en hér á landi hafa ekki DÆMI úr málabunkanum AF HEILDARLAUNA- GREIÐSLUM manns var haldið eftir samtals 79,28% til greiðslu barns- meðlaga og staðgreiðslu skatta. Umboðsmaður var þeirrar skoðunar, að með hliðsjón af lagastefnu sem fram kæmi í tilgreindum lögum, hefði átt að haga innheimtu meðlaga að kröfu Innheimtustofnunar sveitarfélaga þannig, að kaupgreiðandi héldi ekki eftir meira en samtals 75% af heildarlaunagreiðslu til lúkningar meðlagi, útsvari, tekjuskatti og eignarskatti. Umboðsmaður tók undir þá skoðun félagsmáláráðu- neytisins, að ástæða væri til að setja ákvæði í lög eða reglugerð um Inn- heimtustofnun um hámark þess hluta launa, sem kaupgreiðanda væri skylt að halda eftir af launum til greiðslu meðlaga. Enn- fremur taldi umboðsmaður til greina koma að fela Innheimtustofnun að ákveða fjárhæðir í einstök- um tilvikum á grundvelli sérstakra tilgreindra sjón- armiða, sem þó tækju mið af hámarkinu. Ákvæði af þessu tagi taldi umboðs- maður betur til þess fallin að tryggja jafnræði í stjórn- sýslu og réttindi einstakl- inga en óheft mat stjórn- valda. verið sett lög, sem geyma almennar reglur um málsmeðferð í stjórnsýsl- unni. Slík lög er hins vegar í gildi á hinum Norðurlöndunum. Þegar frumvarp til laga um umboðsmann var lagt fram á þingi 1986-1987 var samhliða lagt fram fmmvarp til stjórnsýslulaga. Það náði hins vegar ekki fram að ganga, þrátt fyrir að allir þeir sem höfðu kynnt sér málið ítarlega teldu nauðsynlegt að slík lög tækju gildi samtímis. Fyrir áramót ritaði umboðsmaður Alþingis bréf til forsætisráðherra þar sem sem hann hvetur til þess að frumvarp til stjórnsýslulaga verði á ný lagt fyrir Alþingi. í svarbréfi upplýsti forsætisráðherra að nefnd á hans vegum ynni að gerð frumvarpa að stjórnsýslulög- um og lögum um upplýsingaskyldu stjórnvalda. Jón Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, er formaður nefndarinnar. Nefndin var skipuð í fyrravor, og hafði þá einnig það hlutverk að endurskoða stjórnar- ráðslögin og fór tími hennar í þau fram til síðustu áramóta. „Við höf- um síðan verið að skoða þetta síðustu vikur og mánuði og von- umst til að geta sýnt einhver drög fljótlega. En það er of snemmt að segja til um það,“ segir Jón Sveins- son. Nefndin stefnir að því að leggja drög fram í apríl og taka síðan málið aftur upp næsta haust með það að markmiði að lög öðlist gildi um næstu áramót, eða um vorið 1991. Eins og gefur að skilja myndu lögin fela í sér reglur um aðgang almennings að gögnum sem eru til varðveislu hjá stjórnsýsl- unni, bæði hjá ríki og sveitarfélög- um, og hugsanlega fyrirtækjum í eigu þessara aðila. Þarna yrðu ennfremur til staðar meginreglur um málsmeðferð og ýmsar vanhæf- isreglur. Nú eru engar reglur til um þetta, þótt búið sé að lögfesta í öllum nágrannalöndunum. Umboðsmanni tekið hátíðlega Einn þeirra sem fylgst hafa með fyrstu sporum umboðsmanns Al- þingis er Hans Gammeltoft-Hans- en, umboðsmaður danska Þjóð- þingsins. Danska fyrirkomulagið var mjög haft til hliðsjónar þegar starf umboðsmanns var lögfest hér á landi. „Eg ber mikla virðingu fyrir Gauki Jörundssyni, bæði vegna hans miklu faglegu þekking- ar og ekki síður vegna mannkosta hans. Hann hefur mjög víðtæka reynslu og gagnlega eftir störf hjá Mannréttindanefnd Evrópu í Strassburg. Slík reynsla er mjög sérstök og mikilvæg fyrir umboðs- mann á Norðurlöndum," segir Gammeltoft-Hansen um starfsfé- laga sinn á íslandi. Viðmælendur Morgunblaðsins í stjórnsýslunni eru flestir sammála þeim dómi sem danski umboðsmað- urinn kveður upp um hæfni Gauks Jörundssonar umboðsmanns Al- þingis. Jafnvel þeir sem þráast hafa við að veita umboðsmanni greinar- góðar upplýsingar eru ekki tilbúnir að koma fram og gagnrýna hann. Ónefndur embættismaður segir að skýringin á tregðunni sé ósköp einföld; að embættismenn hafi tekið umboðsmanni alltof hátíðlega í fyrstu og talið þörf á doktorsrit- gerðum í hvert skipti sem hann óskaði eftir upplýsingum, smáum eða stórum. Þetta er að breytast, segir hann, nú eru menn farnir að venjast umboðsmanni. í ljósi þess verður á endanum miklu auðveldara að bæta stjórnsýsluna og losna þannig við athugasemdir umboðs- manns Alþingis. VEIÐIFERÐ TIL SKOTLANDS (PÁSKAFERÐ) Velja má um laxveiði, silungsveiði eða flugukast- námskeið við ána Tweed. Gott veiðihótel og frá- bært umhverfi. Brottför 10. apríl. Keflavík - Glas- gow Heimkoma 17. apríl. Takmarkað sætaframboð. Fararstjóri: Guðmundur Guðjónsson. Verð: frá kr. 55.500,- FLUG OG LAX FLUGLEIÐIR kréáær æ Haínorstntíi 2 - Síml 62-30-20 J TILBOÐ OSKAST i Ford Bronco II XLT4x4 árgerð '87 (ekinn 44 þús. mílur), Plymouth Turismo árgerð '85, og aðrar bifreiðar, erverða sýndará Grensásvegi 9 þriðjudaginn 27. mars kl. 12-15 Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00. Sala varnarliðseigna. iii isWÍseMafe^riiSU>ma«ar Guðmunösso ^s\and\. TV° virtov'etóstoð .ort0g ViuodruðUW^ ^vnstöKóóK. sKýriugarmyuo' ■ söaurnar eftir ’an?nneHróð\eg°& || TesS ,bar.M6»^|Ssl asss«— -_________________________ íUU8»ver cunnarsson 2.480,- jvctóureWrG ... 3.103.- 3.103,- »eigur eftiv G^J\d6r Laxncss "“„.WÍH*"" ..^ •ssA-rr: —— 2.211.- Fenmngargjafimar í ár! VAKátS. HELGAFELL Síðumúla 29 Síml 688 300

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.