Morgunblaðið - 25.03.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLADIÐ SUNNUDAGUK 25,-1^^/1990
a 17
ÞORBERGUR \»\I S I i:i\SSO\.
VEROWOI IA\OSIiOSÞJAIJ ARII IIWOKWTTLEIK
Ákveóiiui
en óþolin-
IIIÓÓIII'
Stella Stefánsdótt-
ir, móðir Þorbergs.
„Hann varvinmargurog
alltaf eitthvað að gerast í
kringum hann. En eitt áttu
vinirnir allir sameiginlegt;
þeir voru Víkingar og allt
snerist um Víking og íþrótt-
ir."
leikmaður og er, að mínu mati,
alltof skotglaður en það er víst
ekki nýtt vandamál hjá honum.
En ég held að hann sé einmitt
rétti maðurinn fyrir íslenska
landsliðið og geti kennt því að
leika með hjartanu.“
Þorbergur hefur ekki mikla
reynslu sem þjálfari, tvö ár hjá
Saab, eitt ár hjá Þór Vestmanna-
eyjum og nokkur ár með yngri
flokka Víkings. En reynsla hans
sem leikmaður, með félagsliðum
og landsliðinu, ætti að bæta það
upp. „Reynsla sem þjálfari er
ekki allt og sumir telja hana ekki
skipta nokkru máli. Ef þjálfarinn
skilur íþróttina, hefur áhuga og
metnað, og er vel menntaður,
ætti hann að geta náð árangri,“
segir þjálfari sænska landsliðs-
ins.
„Það er stutt í strákinn í hon-
um en hann er mjög ábyggilegur
þegar í alvöruna kemur,“ segir
Þorbjöm Jensson, þjálfari Vals,
en hann lék með Þorbergi í lands-
liðinu í mörg ár og deildi með
honum herbergi á landsliðsferð-
um. „Við vorum saman í Svíþjóð
og héldum þá góðu sambandi og
hringdum eftir leiki. Ég vissi allt-
af hvenær honum hafði gengið
vel því þá byrjaði hann samtalið
Viggó Sigurðsson,
félagi Þorbergs í
Víkingi og lands-
liðinu.
„Hann erfarinn að bleikjast
örlítið og má víð því enda
var hann býsna róttækur.
Ég held að það sé gott og
bendi bara til aukins þroska
og að Svíþjóðardvölin hafi
haft eitthvað uppá sig."
á, jæja hvað heldurðu að sá gamli
hafi gert mörg í dag?“ Þegar ilia
gekk bar hinsvegar minna á hon-
um.“
Þorbergur hefur mikinn áhuga
á stjómmálum og margir segja
að hann stefni leynt og ljóst að
því að fara í framboð. Hann er
flokksbundinn í Sjálfstæðis-
flokknum og hefur þótt mjög
hægrisinnaður. „Hann er á kafí
í pólitík og hefur gífurlegan
áhuga. Jafnvel svo mikinn að
hann þykist stundum vera eld-
heitur kommúnisti, bara til að
koma umræðum af stað,“ segir
Erna.
í námi sínu í Svíþjóð hefur
hann kynnt sér nútíma stjóm-
kerfi og uppbyggingu kerfisins í
Svíþjóð. „Hann er ekki ýkja hrif-
inn af því enda stríðir það gegn
lífsskoðun hans; að menn eigi að
bjarga sér. Honum finnst Svíar
gera of lítið til að bjarga sér og
reiða sig of mikið á sósíalinn,“
segir Þorbjörn Jensson en hann
lék í Svíþjóð, á sama tíma og
Þorbergur.
Erna, eiginkona Þorbergs,
segir að honum hafí gengið illa
að sætta sig við hve allt tók lang-
an tíma í Svíþjóð. „Það fór í taug-
arnar á honum hve rólegir Svíar
Teikning/Pétur Halldórsson
Erna Valbergs-
dóttir, eiginkona
Þorbergs.
„Hann er á kafi í pólitík og
hefurgífurlegan áhuga.
Jafnvel svo mikinn að hann
þykist stundum vera eld-
heitur kommúnisti, bara til
að koma umræðum af
stað."
voru og fyrstu tvö árin átti hann
bágt með að skilja þetta. En
smám saman sættum við okkur
við þetta og núna emm við kom-
in á sænska hraðann," segir
Ema.
Flestir eru á því að Þorbergur
hafí mýkst örlítið í pólitískum
skoðunum sínum. „Hann er far-
inn að bleikjast örlítið og má við
því enda var hann býsna róttæk-
ur. Ég held að það sé gott og
bendi bara til aukins þroska og
að Svíþjóðardvölin hafí haft eitt-
hvað uppá sig,“ segir Viggó Sig-
urðsson, félagi Þorbergs úr hand-
boltanum.
Aðstoðarmaður Þorbergs við
þjálfun landsliðsins verður Einar
Þorvarðarson sem staðið hefur í
íslenska markinu undanfarin ár.
„Það er alltaf mikið fjör í kring-
um Begga. Hann hefur ákveðnar
skoðanir og hefur hátt ef menn
eru ekki sammála honum. Hann
er ákveðinn og sjálfsömggur og
hikar ekki við að taka af skar-
ið,“ segir Einar. „Helsti galli
hans er hve gott honum þykir
að borða,“ bætir Einar við hlæj-
andi en á ferðum með landsiiðinu
rökræða þeir félagar fram og
aftur um það hvor þeirra sé
þyngri.
ÞEIR SEM þekkja Þorberg Aðalsteinsson, næsta þjálfara
íslenska landsliðsins í handknattleik, segja að hann sé einhver
besti vinur sem hægt sé að hugsa sér. Mikill húmoristi og góð-
ur félagi. En um leið segja þeir að hann hafí í sér þá hörku
sem þarf til að standa undir þessu erfíða og umdeilda starfi
og láti ekki vaða yfír sig. Viljastyrk hafí hann í ríkum mæli
en gæti hugsanlega brennt sig á óþolinmæði. Að stjórna lands-
liðinu í handbolta er langt frá því að vera auðvelt og líklega
er leit að umdeildara starfí enda mætti stundum halda að á
íslandi væru 250 þúsund handboltasérfræðingar en einn vitleys-
ingur sem sljórnar landsliðinu.
orbergur er
kvæntur Emu
M. Valbergs-
dóttur og
saman eiga
þau tvö börn, Aðalstein, 14 ára,
og Sonju sem er 7 ára.
Hann fæddist 6. maí 1956 í
Reykjavík og ólst upp við Grens-
ásveginn. Hann er sonur hjón-
anna Aðalsteins J. Þorbergsson-
ar, pípulagningameistara, og
Stellu Stefánsdóttur, húsmóður.
Eftir hefðbundna skólagöngu í
Breiðagerðis- og Réttarholts-
skóla, fór hann í matsveinaskól-
ann og lauk þaðan matsveins-
prófí. Hann fékk svo meistara-
bréfíð 1977.
„Hann var vinmargur og alltaf
eitthvað að gerast í kringum
hann. En eitt áttu vinimir allir
sameiginlegt; þeir vom Víkingar
og allt snerist um Víking og
íþróttir," segir Stella Stefáns-
dóttir, móðir Þorbergs. Hann er
elstur þriggja bræðra, en hinir
tveir, Aðalsteinn og Stefán, leika
báðir knattspymu með Víkingi.
Aðalsteinn, faðir
Þorbergs, fýlgdi
hinsvegar Val
að málum og lék
reyndar með lið-
inu á árum áður.
„Það var ekki
lítið rifist um Val og Víking og
liðin unnu og töpuðu á víxl. En
Aðalsteinn stóð alltaf við bakið
á strákunum og með ámnum
hefur hann orðið engu minni
Víkingur en þeir,“ segir Stella.
Þorbergur var sextán ára er
hann kynntist Emu. „Ég var
fjórtán ára og féll fyrir honum,
síðhærðum töffara í leðuijakka,"
segir Ema. Hún segist eiga erf-
itt með að lýsa manni sínum:
„Hann hefur mikinn viljastyrk
og mér fmnst hann þolinmóður
þó aðrir eigi erfítt með að sjá
það. En hann getur líka verið
þijóskur og ef liann hefur sagt
eitthvað þá bakkar hann ekki
með það, jafnvel þó það sé
rangt.“
Arið 1978, er Þorbergur hafði
leikið með meistaraflokki Víkings
í fjögur ár, fékk hann tilboð frá
vestur-þýska liðinu Göppingen
og lék með því næstu tvö ár.
Honum gekk þó ekki vel því um
áramótin sleit hann liðbönd og
gat því lítið leikið með liðinu.
Hann ákvað því að snúa heim
og fara aftur í Víking en þar
hafði pólskur þjálfari að nafni
Bogdan Kowalczyk tekið við
þjálfun liðsins.
Næstu fjögur ár með Víkingi
vom nánast samfelld sigurganga,
Liðið varð íslandsmeistari öll ár-
in, tapaði ekki leik í deildinni í
tvö ár, og náði mjög góðum ár-
angri í Evrópukeppninni.
A þessum árum starfaði Þor-
bergur sem matreiðslumaður í
mötuneyti aldraðra við Dalbraut
en 1984 söðlaði hann um og flutt-
ist til Vestmannaeyja. Þar tók
hann við liði Þórs og kom því
úr annarri deild í þá fyrstu. Hann
stoppaði þó ekki lengi í Eyjum
og fór aftur í Víking næsta vetur.
„Hann er iífsgiaður og hress
og það var alltaf gott að spila
með honum enda hægt að reiða
sig á hann undir pressu," segir
Viggó Sigurðsson, félagi hans
úr Víkingi og landsliðinu. „Hann
er stundum svolítið fljótfær og
óþolinmóður en ég hef mikla trú
á honum sem landsliðsþjálfara,“
segir Viggó.
Ólafur Jónsson, sem lék með
Þorbergi í Víkingi og landsliðinu,
segir Þorberg mjög ákveðinn og
fylginn sér. „Hann eflist við mót-
lætið og það hef-
ur komið sér vel
í gegnum árin
og er mikilvæg-
ur eiginleiki hjá
þjálfara," segir
Olafur. „Hann
hefur góðan og sterkan karakter
og getur verið ákveðinn ef þess
gerist þörf.“
Sumarið 1985 ákvað Þorberg-
ur að fara til Svíþjóðar í nám í
hagfræði og stjómmálum. Sam-
hliða því lék hann með Saab og
þjálfaði einnig liðið fyrstu tvö
árin. Þorbergur kom liðinu upp
í úrvalsdeildina en það féll niður
aftur næsta ár. Eftir það ákvað
hann að einbeita sér að spila-
mennskunni enda tók þjálfunin
mikinn tíma frá náminu. Hann
hélt þó áfram þjálfaranámi og
var boðið að læra við þjálfarahá-
skóla sænska handknattleiks-
sambandsins og er fyrsti íslend-
ingurinn sem lýkur námi úr skó-
lanum.
Þjálfari sænsku heimsmeistar-
anna í handknattleik, Bengt Jo-
hansson, segist hafa mikið álit á
Þorbergi. „Hann er íslendingur
og bara þess vegna hefur hann
mikið fram yfir erlenda þjálfara.
Auk þess er góður andi í kringum
hann og það sem ég hef heyrt
frá Saab er allt á þá leið að hann
sé góður félagi og mikilvægur
fyrir liðið,“ segir Johansson.
„Hann hefur vissulega galla sem
MANWSIVIYNP
eftir Loga Bergmann Eiðsson