Morgunblaðið - 25.03.1990, Blaðsíða 38
* 'TMnfffg’MiIT'g- JMUTTÍlflJ I \|JA3 7,1 qi
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM sunnudagur 25.' MARZ 1990
KARLAR
„The Big
Guys“
Vissuð þið það, sem ég veit
núna? Að það eru engar
símaskrár í Sovétrikjunum? —
Þetta getur auðvitað verið mjög
bagalegt, einkum þegar um mik-
ilvæg símtöl er að
ræða. — Segjum
sem svo, að eitt-
hvert okkar
þyrfti nauðsyn-
lega að ná sam-
bandi við Gorb-
atsjov forseta.
Við gætum t.d.
þurft að biðja
hann að gera
okkur smágreiða, eða þá að gefa
honum góð ráð, eða þá að
skamma hann. (Gorbatsjov er
auðvitað valdasjúkur framapot-
ari, sem á ekkert gott skilið, læt-
ur fyrirtækin fjúka, hyggst
hækka skattana.) Við gætum
þurft að segja honum til synd-
anna. (Hann skal ekki halda, að
við ætlum að styðja svona skúrka
til metorða.) En, ónei, við náum
ekki sambandi. Það tekur heilan
sólarhring, jafnvel þó að við
hringjum eftir miðnætti, þegar
þeir eru hættir að telja skrefin,
eða á laugardagskvöldum, þegar
skrifstofum er lokað. Og eftir
heilan sólarhring er ekkert
líklegra en að eldmóðurinn sé
runninn af okkur, og við höfum
löngu gleymt erindinu.
En hugsið ykkur. Bush hefur
ekkert betri aðgang að Gorba en
við. Hann verður lika að biða
timunum saman. CIA hafði til
skamms tíma skrá með síma-
númerum æðstu manna, en það
er fyrir bí. Þeir voru farnir að
hringja i Gorbatsjov alla leið frá
Litháen með dónalegar yfirlýs-
ingar og morðhótanir næstum
daglega. Þá var ákveðið, að for-
setinn skyldi fá leyninúmer. En
þeir segja, að það sé líka önnur
ástæða fyrir því að Bush nær
ekki sambandi við Gorbatsjov.
Hún varðar siðareglur diplóma-
tíunnar, og er auðvitað aukaat-
riði, en þó. Einkaritari Bush veit-
ir honum ekki leyfi, samkvæmt
prótókól, að taka upp tólið fyrr
en Gorbatsjov er kominn í
símann. Einkaritari Gorbatsjovs
leyfir honum hins vegar ekki að
taka upp tólið fyrr en Bush er
kominn i símann. Og það er
óhugsandi að þeir komi báðir í
símann samtímis. Þetta getur
auðvitað orðið býsna snúið, ég
tala nú ekki um, ef byijað yrði
að skjóta fyrst. Flugskeyti er þó
ekki nema tuttugu minútur á
leiðinni. Og það er annað. Alltaf
þegar Bush loksins nær sam-
bandi og spyr eftir Gorbatsjov,
er honum sagt, að hann sé á
fundi. Og þegar Gorbatsjov spyr
eftir Bush er honum líka sagt,
að hann sé á fundi. Og það liggur
í augum uppi, að það er mjög ólik-
legt, að svona súpervaldamenn
séu ekki a fundi, þegar spurt er
eftir þeim. — Nú spyrja menn
eflaust, af hverju hafa mennirnir
ekki símsvara? Jú, svarið við því
er, að Gorbatsjov er reyndar ný-
búinn að fá sér símsvara. Það
gerðist um daginn, þegar menn
fóru að spara i Kreml og sögðu
símadömunni upp. Hins vegar
er bara hægt að koma fyrir
þijátíu sekúndna skilaboðum. og
það dugar engan veginn Bush
Bandaríkjaforseta.
Hvað um farsíma? Ég held, að
Gorbatsjov sé of varkár til þess
að fara að tjá sig t.d. um minnk-
andi herafla í Evrópu í farsima.
Öi: þjóðin gæti legið á hleri.
Líklega verður þjófabjalla síðasta
úrræðið, því að það er ótækt, að
Bush og Gorbi nái ekki saman.
Mér datt þetta allt svona í
hug, þegar ég lá andvaka á laug-
ardagsnóttina eftir stöðugar
hringingar frá mönnum (og kon-
um reyndar líka), sem vildu gefa
góð ráð eða skeyta skapi sinu á
sofandi fólki.
eftir Bryndísí
Schram
Morgunblaðið/hb
Nokkrir af kennurum Kramhússins, f.v. Elísabet Guðmundsdóttir, Ag-
nes Kristjánsdóttir, Sigríður Eyþórsdóttir (sem rétt sést), Sylvia von
Kospoth, Hannu Hadya og Hafdís Arnadóttir. Krjúpandi er Bryndís
Petra Bragadóttir.
KRAMHUSIÐ
Æfa nýstárlega upp-
færslu á Gorkíverki
að er eitt og annað á döfinni
hjá okkur á næstunni, það
niárkverðasta e.t.v. leiksmiðja í lok
apríl þar sem þau Árni P. Guðjóns-
son og Sylvia von Kospoth flytja
verk Gorkis, „Sumargesti", ásamt
15 manns sem hafa verið í leik-
smiðju hjá þeim í vetur. Þetta er
klukkutímasýning og er óhætt að
segja að þarna verði verkið flutt á
mjögnýstárlegan hátt,“ sagði Hafdís
Ámadóttir eigandi Kramhússins en
þar hefur löngum verið bryddað upp
á ýmsu skrítnu og óvenjulegu.
Hafdís sagði ennfremur að margt
áhugavert ræki á fjörurnar ef leitað
væri eftir því, þannig kæmi einnig
bráðlega Kínveqi, Khin Thitsa, sem
myndi kenna tai ji, óvenjulega
kínverska hreyfilist og síðast en ekki
síst kæmi tangókennari með vorinu.
HANDKNATTLEIKUR
Landsliðsmarkvörður
í nýju hlutverki
*
Isienska hand-
knattleiks-
landsliðið þreytir
nú sína fyrstu
raun síðan ósköp-
in í Tékkósló-
vakíu dundu yfir
á dögunum., HSÍ
endurgeldur
Norðmönnum
tvær heimsóknir
hingað til lands
og hjálpar Norð-
mönnum að æfa
fyrir C-keppnina
með því að senda
sterkt íslenskt
landslið út. Fyrri
leikurinn er í
kvöld, sá seinni
annað kvöld.
Þetta er að Morgunblaðið/Július
kjama til nýtt lið að því leyti að
flestir lykilmanna liðsins í gegn um
árin hafa dregið sig í hlé frá lands-
liðinu. Samt er um leikreynt lið að
ræða, því ýmsir þeir sem mikið
mun mæða á hafa leikið með lands-
iiðinu í 5 til 6 ár. Einar Þorvarðar-
son, aðalmarkvörður landsliðsins
til margra ára, mun stjóma liðinu
af bekknum og Morgunblaðið
ræddi aðeins við hann rétt fyrir
helgi.
„Það kom mér á óvart að vera
beðinn um þetta, en ég held að það
sem HSÍ vill að ég geri öðru frem-
ur, er til lengri tíma er litið, sé að
vera sérstakur þjálfari markvarða
íslenska liðsins. Slík þjálfun við-
gengst um allan handknattleiks-
heiminn og nægileg rækt hefur
ekki verið lögð við slíka þjálfun
hérlendis. Ég hef mikla reynslu og
hef m.a. leikið erlendis og tel mig
því geta skilað verkinu," sagði Ein-
ar. En hvað með landsliðið, leikur
það undir pressu í Noregi, þarf það
að sanna sig? Einar:
„Það væri nú ágætt að rétta aðeins
úr kútnum og ég vona að við vinn-
um að minnsta kosti annan leikinn
og helst báða. Aftur á móti er eng-
in pressa á liðinu og valda aðstæð-
ur því m.a. Það sést best á því, að
við leikum í 1. deildinni hér heima
á laugardag og höldum síðan tii
Noregs snemma á sunnudagsmorg-
un. Laust upp úr hádegi verðum
við líklega komnir á okkar hótel
og klukkan 19.00 um kvöldið er
fyrri leikurinn. Undirbúningurinn
fyrir leikinn verður einn fundur hjá
HSÍ þar sem prógrammið verður
kynnt. Það er eiginlega ekki hægt
að hafa það knappara." En hveiju
spáir bráðabirgðaþjálfarinn?
Ég veit það ekki, best að fara
ekki út á þann hála ís, en eins og
ég sagði áðan, vonandi vinnum við
að minnsta kosti annan leikinn,"
sagði Einar Þorvarðarson.
TISKA
Ekkiráð
nemaí
tíma tekið
Vestur-þýski tískuhönnuðurinn
Karl Lagerfeld sem er helsti
forkólfur Chanel-tískuhússins
kynnti næstu haust- og vetrartísku
hússins í París fyrir skömmu. Lag-
erfeld þessi er sem kunnugt er
leiðandi í greininni og margir líta
til hans eftir því sem koma skal.
Eins og myndirnar tvær bera með
sér, hefur hann lítið hvikað frá
því sem fyrir er í ríkum mæli, föt-
um sem falla þétt að líkamanum
svo lögun hans fái notið sín og
stutta tískan seiglast enn áfram,
karlmönnum til sannrar gleði.
ÞJOÐARATAK
Til sigurs með
fegurðinni
Stúlkurnar sem taka þátt í
keppninni um titilinn Fegurðar-
drottning íslands 1990 munu ásamt
fjölda an'narra iandsmanna taka
þátt í miklu átaki i þágu barátt-
unnar gegn krabbameini, sem fram
fer 31. marz og 1. apríl n.k. undir
yfirskriftinni: Til sigurs, þjóðarátak
gegn krabbameini. Um síðustu
helgi voru stílkurnar á fundi hjá
Krabbabeinsfélaginu, þar sem þær
voru fræddar um skaðsemi
reykinga um leið og átakið var
kynnt fyrir þeim. Myndin var tekin
við það tækifæri. Úrslitakeppnin fer
fram á Hótel íslandi síðasta vetrar-
kvöid, 18. apríl. Áformað var að
keppnin færi fram á annan dag
páska, 16. apríl, en því varð að
breyta vegna þess hve undirbúning-
ur undir beina útsendingu Stöðvar
2 frá keppninni er viðamikill.
Morgunblaðið/Árni Sæberg