Morgunblaðið - 25.03.1990, Side 44
FORGANGSPÓSTUR
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, POSTFAX 681811, PÖSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 25. MARZ 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
*
Islands-
banki borg-
ar út hluta-
féð vegna
Stöðvar 2
SAMKOMULAG hefur tekizt milli
íslandsbanka og stjórnar Stöðvar
2 um að bankinn borgi stöðinni
út þær 400 milljónir kr., sem
hlutafé hennar var aukið um fyrir
áramótin.
Að sögn Þorvarðar Elíassonar,
sjónvarpsstjóra Stöðvar 2, fjall-
aði deila bankans og stöðvarinnar
um tryggingar að baki lánum, sem
veitt höfðu verið stöðinni áður en
nýir eigendur keyptu meirihluta í
henni. Hlutaféð hafi verið aukið að
frumkvæði Verzlunarbanka og
þangað hafi hlutafjárgreiðslurnar
farið. Úr Verzlunarbanka fór féð svo
inn í íslandsbanka. Bankinn hafi
ekki viljað greiða féð til stöðvarinnar
fyrr en samkomulag næðist um
tryggingar vegna eldri lána.
„Það hefur náðst samkomulag um
það með hvaða hætti féð verði greitt
út og hvernig tryggingunum verði
háttað, þannig að allir aðilar telji sig
geta við unað,“ sagði Þorvarður.
Hestakerrur
til vandræða
Selfossi.
„ÞETTA er eins og að breiða segl
aftan á bílinn og keyra síðan í
myrkri," sagði einn lögregluþjónn
á Selfossi um Ijóslausar og ólög-
legar hestakerrur eða vélsleða-
kerrur sem ökumenn hafa aftan
í bílum sínum. Nokkrar kerrur
hafa verið teknar úr umferð og
menn á leið um Selfoss hafa þurft
að skilja þær eftir.
errumar eru ólöglegar ef þær
eru ljóslausar að aftan og ekki
sést í bílinn fyrir þeim. Tveir árekstr-
ar urðu nýlega vegna þessa. Lög-
reglumenn telja þessar kerrur vera
vandamál í umferðinni og hafa vak-
andi auga með þeim.
— Sig. Jóns.
Eiður Guðnason:
Hætt verði við
breytingar á
Þjóðleikhúsi
EIÐUR Guðnason alþingismaður
hefur lagt fram þingsályktunar-
tillögu um að hætt verði við fyrir-
hugaðar breytingar á Þjóðleik-
húsinu •
Itillögunni er gert ráð fyrir að
menntamálaráðherra beiti sér á
næstu 2-3 árum fyrir því að fram
fari nauðsynlegar viðgerðir á Þjóð-
leikhúsinu og aðgengi fyrir fatlaða
verði bætt.
„Ég tel að Þjóðleikhúsið eigi að
,vera nokkurn veginn í þeirri mynd
sem það var upphaflega hannað og
hugsað. Við eigum að aðlaga það
að kröfum tímans með eðlilegu við-
haldi og breytingum. Við höfum hins
vegar ekkert leyfi til að umturna
því. Þetta er óskynsamleg fram-
kvæmd og hún er feiknarlega dýr.
Ég tel að unnt sé að gera góða að-
btöðu fyrir starfsfólk og gesti leik-
hússins með minni tilkostnaði,"
sagði Eiður.
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
UNDIR GAFLIA DJUPA VOGI
Forsætisráðherra:
Deilan í ál-
verínu gæti
haft áhrif
á staðarval
„LAGASETNING
á vinnudeilur má
ekki eiga sér stað
nema í algerum
neyðartilvikum. Á
þessu stigi er ekki
til umræðu að setja lög á boðað
verkfall starfsmanna ISAL,“ seg-
ir Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra. Hann telur að
deilurnar í álverinu geti haft þau
áhrif á viðræður við Atlantal-
hópinn að nýtt álver rísi ekki í
grennd við álverið í Straumsvík.
Ef vinna stöðvast í álverinu hlýst
vitanlega verulegt tjón af fyrir
þjóðarbúið, starfsfólkið og fyrir-
tækið. En ef fyrirtæki vill heldur
loka getur vel verið að þjóðarbúið
verði að bera það. Lagasetning á
vinnudeilur getur aldrei orðið annað
en neyðarúrræði,*1 segir Steingrím-
ur.
Aðspurður um líkleg áhrif á við-
ræður við Atlantal-fyrirtækjahóp-
inn segir forsætisráðherra að and-
rúmsloftið milli ÍSAL og verkalýðs-
félaga þar hafi ekki verið gott og
harkan oft mikil. „Þetta kann að
hafa þau áhrif að aðilar að Atlant-
al-hópnum verði ákveðnari í að
byggja álver annars staðar en á
vinnusvæði ÍSAL og forðast of mik-
il tengsl við álverið í Straumsvík.
V e stmannaeyj ar:
Sjö árekstrar á
þremur tímum
SJÖ árekstrar urðu á þremur
klukkustundum í Vestmannaeyj-
um í fyrradag. Þrír bílar rákust
saman á gatnamótum Heiðarveg-
ar og Kirkjuvegar. Engin slys
urðu á mönnum.
Mikil hálka var á götum og að
sögn Iögreglunnar áttuðu öku-
menn sig greinilega ekki á slæmum
aksturskilyrðum.
Verðlagning á olíuvör-
um endurskoðuð í vikunni
Skiptaverð sjómanna gæti hækkað um 2-3%, segir Krislján Ragnarsson
FARIÐ verður yfir verðlagningu á olíuvörum á næstu dögum og
athugað hvort forsenda er til verðbreytinga um næstu mánaða-
mót. Heimsmarkaðsverð á gasolíu var rúmir 164 dollarar tonnið
undir lok vikunnar og hefúr það lækkað um þriðjung frá því í
byijun ársins. Kristján Ragnarsson formaður Landssambands
íslenskra útvegsmanna, segir að við verðlagningu gasolíu til
skipta, miðað við 160 dollara, muni skiptahlutfall sjómanna hækka
um 2-3% og verða 75-76%, en hæst hefur þetta hlutfall verið 76%.
Heimsmarkaðsverð
á gasolíu, miðað við
meðalskráningu í
Rotterdam, fór yfir
243 dollara tonnið í
byijun ársins og var
það hæsta gasoh'uverð frá því
haustið 1985. Ástæða verð-
sprengingar í vetur var m.a. mik-
ill innflutningur til Banda-
ríkjanna, kuldar í Evrópu, lágt
yfirborð Rínar sem hamlaði flutn-
ingum og minni útflutningur frá
Sovétríkjunum. Hækkunin gekk
að hluta til til baka í janúar og
var um 170 dollarar í byijun febr-
úar. Undir lok vikunnar var verð-
ið komið niður í 164,50 dollara.
Gasoiíuverð til skipa var síðast
endurskoðað 1. marz og lækkaði
þá um 7,4%. Við gasolíulækkun-
ina hækkaði hlutur sjómanna af
afla til skipta um 1%, úr 72 í 73%
og var þá miðað við 190 dollara
tonnið. Kristján Ragnarsson segir
að miðað við 160 dollara hækki
skiptahlutfall sjómanna upp í
75-76%. Hæst hefur hlutfallið far-
ið í 76%.
„Þessi olíuverðslækkun er
ánægjuleg og vonandi kemur til
lækkunar hér heima,“ sagði Krist-
ján. Gunnar Þorsteinsson, vara-
verðlagsstjóri, sagði að venjulega
væri farið yfir verðlagningu olíu
einu sinni í mánuði og yrði það
gert í vikunni. Ekki væri vitað
hvort sú athugun leiddi til verð-
breytinga um mánaðamótin.