Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/ STOFNAÐ 1913 84. tbl. 78. árg. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Verðandi forsætisráðherra Ungveijalands: Stefiit verður að skjótri EB-aðild Búdapest. Reuter, The Daily Telegraph. JOZSEF Antall, væntanlegur forsætisráðherra Ungverjalands, lýsti því yfir í gær að stefnt skyldi að skjótri aðild landsins að Evrópu- bandalaginu. Flokkur hans, Lýðræðishreyfingin, sem telst hægfara miðjuflokkur, vann stórsigur í seinni umferð þingkosninga sem fram fór í Ungverjalandi um helgina. Stefiiir Antall að því að mynda stjórn með tveimur hægriflokkum; Smábændaflokknum og kristilegum demókrötum. Urslit kosninganna þykja áfall fyrir Bandalag frjálsra demókrata sem fékk mikið fylgi í fyrri umferð- inni þann 25. mars. Talsmenn flokksins vændu leiðtoga Lýðræðis- hreyfingarinnar um að hafa staðið óheiðarlega að kosningabaráttunni en varaforseti hreyfingarinnar sagði ungversku þjóðina hafa kosið hófsöm öfl til forystustarfa. Samkvæmt bráðabirgðatölum er Austur-Þýskaland; Ráðherra- listi birtur Austur-Berlín. dpa. GENGIÐ var frá skiptingu ráðu- neyta í nýrri ríkisstjórn Austur- Þýskalands í gær. Ráðherrar eru samtals 24. Forsætisráðherra er Lothar de Maiziere úr flokki kristilegra demó- krata. Auk þess fær flokkurinn 10 ráðherraembætti og í hans hlut koma meðal annars efnahags-, mennta- og menningarmál. Jafnað- armenn fá 7 ráðherra og er starf- andi formaður flokksins, Markus Meckel, utanríkisráðherra. Auk þess fara ráðherrar flokksins með fjár- mál, viðskipti, landbúnað og félags- mál. Frjálsir demókratar fá þrjú ráð- herraembætti, Þýska sósíalsam- bandið tvo og Lýðræðisvakning einn. birtar voru í gær fékk Lýðræðis- hreyfingin 165 menn kjörna, Smá- bændaflokkurinn 43 og kristilegir demókratar 21 fulltrúa. 386 menn sitja á þingi landsins þannig að flokkarnir þrír hafa þar öruggan meirihluta. Fijálsir demókratar fengu 92 menn kjörna en Sósíalista- flokkurinn, sem var stofnaður á rústum gamla Kommúnistaflokks- ins er fjölflokkakerfi var innleitt í Ungveijalandi á síðasta ári, vann aðeins 33 þingsæti og er því nú íjórði stærsti flokkur landsins. Kosningabandalag ungra jafnaðar- manna fékk 21 fulltrúa kjörinn líkt og kristilegir demókratar en tveir smáflokkar og óháðir frambjóðend- ur unnu 11 þingsæti. Mótmælendur í Tbilisi í gær steyta hnefann tii að leggja áherslu á kröfiir um sjálfstæði Georgíu. Reuter Sovétlýðveldið Georgía: Mótmælendur lílga Sovét-. ríkjunum víð þjóoafangelsi Gorbatsjov hafiiar sáttaumleitunum Litháa Tbilisi. The Daily Telegraph. TUGÞÚSUNDIR manna fóru í gær í kröfugöngu að höfuðstöðv- um sovéska hersins í Tbilisi, höf- uðborg Sovétlýðveldisins Ge- Bruninn um borð í Scandinavian Star: Talið að 176 hafifarist VIÐ rannsókn á eldsvoðanum um borð i dönsku ferjunni Scandin- avian Star suður af Noregi aðfaranótt laugardags byggir lögregla á grun um íkveikju. Magnar Aukrust, lögregluforingi í Ósló, dró [?’, ‘íMáfHHHB þó í efa í gærkvöldi að rétt væri að sést hefði til farþega kveikja eld um borð eins og hann hafði eftir sænskum starfsbræðrum sinum itféiMí' fyrr um daginn. „Þar gæti hafa verið um misskilning að ræða,“ Wm sagði hann í samtali við Reuíers-fréttastofuna. Sú staðreynd að pir Wf"f* eldur kviknaði á tveimur stöðum hið minnsta þykir benda sterk- lllHffiHHiBHHHlfllflL lega til íkveikju. Aukrust segist telja að 176 manns hafi farist með feijunni. Úm 500 manns voru um borð þegar eldurinn kvikn- aði samkvæmt farþegaskrám og komust 345 lífs af. Danska dagblaðið Politiken seg- ir að líkur séu á að hugsanlegur brennuvargur hafi sloppið með því að hverfa í hóp farþega á þeim skipum sem tóku þátt í björgunar- aðgerðum. T.d. var um 50 manns bjargað um borð í sænsku feijuna Stana Saga. Tveir þeirra hafa horf- ið sporlaust að sögn blaðsins. í frétt norska dagblaðsins Aft- enposten segir að Lloyd’s-trygg- ingafélagið ætli sér ekki að bæta tjón af völdum brunans um borð í Scandinavian Star, þar sem ekki hafi nógu stór hluti áhafnarinnar hlotið tilskilda þjálfun. í gær kviknaði í tveimur feijum við Bretlandseyjar. Þrír menn hafa verið handteknir grunaðir um íkveikju um borð í Norrænu en þar fórst einn maðuí. Einn maður lést einnig um borð í feijunni Reine Mathilde þegar kviknaði í henni á Ermarsundi. Sjá frásögn af eldsvoðum í Scandinavian Star og Norr- ænu á baksíðu og miðopnu. Reuter Svona er umhorfs á káetugangi Scandinavian Star. orgíu. Fólkið bar fána Georgíu sem lengst af hefur verið bannað- ur og gríðarstóran borða með mynd af sovéskum hermanni sem hélt á blóðugri skóflu. Undir myndinni var letrað eitt orð á rússnesku: „Burt“. Um það bil 50.000 manns komu einnig sam- an á knattspyrnuvelli í borginni til stuðnings sjálfstæði lýðveldis- ins. Á fundinum var veifað borð- um sem á stóð: „Sovétríkin — fangelsi þjóðanna". Skóflan er nú orðin að tákni í Georgíu fyrir ofbeldi sovéska hers- ins. Þess var minnst með ijölda- fundi á sunnudagskvöld að fyrir réttu ári var sovéskum hermönnum vopnuðum hárbeittum skóflum sig- að á þátttakendur í friðsamlegri mótmælagöngu með þeim afleiðing- um að 20 manns féllu. Fólkið söng sálma í fyrrakvöld og hélt á kertum en um klukkan fjögur um nóttina leystu hersveitir innanríkisráðu- neytisins fundinn upp. Míkhaíl S. Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sendi þingi Georgíu og þjóðinni allri skeyti þar sem hann lýsti yfir samúð sinni með ættingjum þeirra sem myrtir voru. Leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, hreyf- ingar þjóðernissinna í Georgíu, sagði orðsendingu Sovétleiðtogans einkennast af mikilli kaldhæðni en því hefur verið haldið fram að óhugsandi sé að hersveitunum hafi verið beitt gegn óvopnuðum mót- mælendum án vitundar hans. Um 300.000 Litháar tóku um helgina þátt í útifundi til stuðnings stjórnvöldum þar. Míkhaíl Gorbatsj- ov hafnaði í gær sáttaumleitunum þeim sem fram komu hjá þingi Litháens á fimmtudaginn var. For- sætisráðið undir forystu Gorb- atsjovs hefur nú boðað nýjar að- gerðir til að þvinga lýðveldið til að falla frá sjálfstæðisyfirlýsingu sinni. Vytautas Landsbergis, forseti Litháens, fordæmdi í gær viðbrögð Gorbatsjovs. Sjá „Lettar ..“ á bls. 26. Reuter Fjórir bíða bana í sprengjuárás Fjórir breskir hermenn sem voru á ferð í Land Rover-bif- reið í nágrenni Belfast á Norður-írlandi í gærmorgun biðu bana er öflug jarðsprengja sprakk. Hér er um mannskæð- ustu árás írska lýðveldishersins að ræða á þessu ári. Á mynd- inni sést hermaður virða fyrir sér gíg sem myndaðist við sprenginguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.