Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990 25 Borgarleikhúsið: Tónleikar til styrktar samtökunum Barnaheill söngvararnir Bubbi Morthens og Megas, hljómsveitin Todmobil, rit- höfundarnir Einar Már Guðmunds- son og Þórarinn Eldjám, söngkon- urnar Sigrún Hjálmtýsdóttir og Inga Backman og Barnakór Kárs- nesskóla. Þá leikur Lúðrasveit barna í Laugamesskóla í anddyri leikhússins. Borgarleikhúsið býður ókeypis afnot af húsinu vegna tónleikanna og listamennimir gefa vinnu sína. TÓNLEIKAR til styrktar sam- tökunum Barnaheill verða haldnir í Borgarleikhúsinu mið- Stjóm FFSÍ: Fiskimanna- félögin afli verkfalls- vikudaginn 11. apríl næstkom- andi. Aðgöngumiðar á tónleik- ana kosta 1.000 krónur en þeir eru seldir í Borgarleikhúsinu og á skrifstofú Barnaheilla, Lágm- úla 5. Samtökin Barnaheill voru stofnuð á degi Sameinuðu þjóð- anna, 24. október sl., til að vinna að bættum hag bama og ijöl- skyldna þeirra og hafa áhrif á viðhorf til barna í þjóðfélaginu. Á tónleikunum í Borgarleikhús- inu koma meðal annarra fram Morgimblaðið/Emilía A myndinni eru, talið frá vinstri: Páll Ásgeirsson, yfirlæknir og for- maður Barnaheilla, Bubbi Morthens, Inga Backman söngkona, Art- hur Morthens, deildarstjóri kennsludeildar Fræðsluskrifstofú Reykjavíkur og varaformaður Barnaheilla, Hrafhhildur Sigurðardótt- ir, fóstra, talkennari og gjaldkeri Barnaheilla, Jón Freyr Þórarins- son, skólastjóri Laugarnesskóla og stjórnarmaður í Barnaheillum, Hanna Dóra Þórisdóttir, skrifstofústjóri samtakanna og Helgi Dan- íelsson, yfirlögregluþjónn og stjórnarmaður í samtökunum. heimildar Könnun á virkni forvarna: STJÓRN Farmanna- og fiski- mannasambands íslands hefur beint þeim tilmælum til fiski- mannafélaga innan sambandsins að þau afli sér verkfallsheimildar vegna yfirstandandi kjaradeilu við útgerðarmenn. Mörg félög innan Sjómannasambands Is- lands hafa þegar aflað sér slíkrar heimildar. Ákvörðun stjórnar FFSÍ var tek- in í kjölfar þess, að forsætisráð- herra svaraði neitandi málaleitan sambandsins um að hann beitti sér fyrir breytingu á lögum um svokall- aða kostnaðarhlutdeild til að greiða fyrir mögulegum kjarasamningum sjómanna og útgerðar. Samningar milli þessara aðila hafa verið lausir lengi og hefur lítið sem ekkert mið- að í samkom'ulagsátt. Sjómannasambandið hvatti félög innan vébanda sinna fyrir allnokkru til að afla sér heimilda til verkfalls- boðunar. Hve mörg félög hafa gert svo liggur ekki fyllilega fyrir hjá skrifstofu SSÍ, en þau munu orðin allmörg. Verkföll hafa enn ekki verið boðuð. Ráðleggingar heilbrigðis- starfsmanna mikilvægar NÆRRI sjö af hverjum tíu mönnum reyna að forðast langvinna sjúkdóma með því að breyta lífsháttum sínum; megra sig eða breyta matarveiy'um, hætta að reykja eða drekka. Flestum, eða tveimur af hveijum þremur, tekst þetta að eigin sögn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum könnunar heilbrigðis- ráðuneytis á virkni forvarna gegn langvinnum sjúkdómum. Ráð- leggingar lækna vega þyngst til að menn temji sér betri siði, en fjórðungur þeirra sem spurðir voru i könnuninni fær slík ráð ár- lega. Sjö af hveijum tíu fara í heilsufarsskoðun ár hvert og kemur þetta háa hlutfall heilbrigðisyfirvöldum nokkuð á óvart. Könnun sem þessi hefur ekki verið gerð áður hérlendis. Hún er hluti stærra verkefnis, CINDI, á vegum Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar. Virkni og þróun forvarna er athuguð í fimmtán öðrum löndum og ætlunin er að svipuð könnun verði gerð ár hvert hér á landi. Könnunin getur sýnt heilbrigðisyfirvöldum hvaða for- varnarstarf skili mestum árangri í baráttu gegn hjarta- og æðasjúk- dómum, krabbameini, slysum, geð- sjúkdómum, stoðkerfissjúkdómum Kímni o g skop í Nýja testamentinu - ný bók frá Menningarsjóði Um þessa páska kemur út hjá. Menningarsjóði bókin „Kimni og skop í Nýja testamentinu" eftir sr. Jakob Jónsson, dr. theol. Ald- arfjórðungur er liðinn frá því er Menningarsjóður gaf hana fyrst út á ensku. Árið 1985 gaf útgáfú- fyrirtækið E.J. Brill í Hollandi bókina út öðru sinni, en nú kemur hún í fyrsta sinn út á íslensku. Hér er um að ræða þýðingu höf- undar sem hann hafði lokið við nokkru fyrir andlát sitt þann 17. júní í fyrra. í bókinni er fyrst fjallað um eðli kímni og skops, trúræna kímni, gríska og rómverska kímni, kímni í Gamla testamentinu og kímni í hinum gyðinglegu bókmenntum, sem Talmud og Midras nefnast. Þá eru greind ótal dæmi um kímni og skop í samstofna guðspjöllunum þremur, og einnig í Jóhannesarguð- spjalli og öðrum ritum Nýja testa- mentisins. Sérstakir kaflar eru um kímni Jesú og Páls postula. Bókin er fræðirit og því fyrst og fremst fróðleg, en hún er að sama skapi skemmtileg aflestrar sökum við- fangsefnisins. Höfundur þýddi bók sína á íslensku í þeirri von og trú, að hún ætti erindi til alls almenn- ings í landi hér, þótt sumir lesenda sökktu sér að vonum rækilegar en aðrir niður í viðfangsefnið og fræði- lega umfjöllun. Bók dr. Jakobs Jónssonar hefur farið víða um heim, hlotið góða dóma fræðimanna og verið notuð til kennslu í háskólum. Niðurstöður höfundar þóttu í fyrstu harla bylt- ingarkenndar, en kenningar hans hafa unnið sér sess hægt og sígandi um hinn lærða heim. Með saman- burði sínum á Nýja testamentinu og bókmenntum rabbía, gyðinga- prestanna, varpaði dr. Jakob nýju íjósi á daglegt líf á dögum Krists og við blasir öllu litríkara svið mannlegra samskipta í frumkristni en menn höfðu séð fyrir sér áður. í niðurlagi bókar sinnar kemst höfundur svo að orði: „Það hafa verið þau tímabil í sögu kristninnar, að kímni var bannfærð í mannlegu lífi sem merki um synd og guðleysi. Ástæðurnar kunna að hafa verið margar. Stund- um hafa prédikarar litið á það sem sitt aðalhlutverk að hræða söfnuð- ina, að draga upp mynd af því, sem kynni að koma fyrir, ef Guð missti öll tök á tilverunni og um Ieið hverri einstakri mannssál. Það er erfitt að brosa, þegar allt mannlegt líf, nema fáeinir heppnir einstakl- ingar, er á næsta augnabliki að hrapa ofan í díki sem er fullt af eldi og brennisteini. Það hafa einnig verið þeir tímar, að litið var á allt kristilegt líf, sem fast formaða helgiathöfn, það átti að tala, ganga og hreyfa sig á sér- stakan hátt. Allir áttu að vera alvar- legir og með helgisvip og öll gaman- yrði eða brosleg breytni var skynjuð sem hlátur prestsins fyrir altarinu í miðri messu. Hvað sem segja má um harma lífsins eða alvöru fagnaðarerindis- ins, virðist það vera harla ljóst, að Sr. Jakob Jónsson og tannskemmdum. Að sögn dr. Hrafns V. Friðrikssonar, sem stjórnaði könnuninni, getur hún hjálpað til að ákveða hvort leggja eigi áherslu á auglýsingar, fræðslu í fjölmiðlum eða upplýsingar til heilbrigðisstarfsmanna. Forvarnakönnunin fór fram gegnum síma fyrir rúmu ári. Spurðir voru 715 manns á aldrin- um 15-70 ára. í ljós kom að þriðj- ungur þeirra fékk vikulega fræðslu um heilbrigðismál í fjölmiðlum, þar af las fjórðungur sér til í dagblöð- um en einn af tíu fékk fræðslu úr sjónvarpi. Aðeins tveir af hveijum tíu reyndust hafa hækkaðan blóð- þrýsting, blóðfitu eða blóðsykur. Hækkaður blóðsykur hrjáir fleiri karla en konur, öfugt við hækkaða blóðfitu og háþrýsting. Óþekkt er að mestu hvað veldur því að fólki takist að breyta um Athugasemd INGIMAR Ingimarsson, frétta- maður Ríkissjónvarpsins, óskar að koma eftirfarandi á framfæri vegna ummæla Helga Jóhanns- sonar, forstjóra Samvinnuferða- Landsýnar, í sunnudagsblaðinu: „Frásögn Helga Jóhannssonar af samskiptum okkar vegna fréttar í Sjónvarpinu síðastliðinn föstudag er röng í öllum meginatriðum. Það er í sjálfu sér ánægjulegt að hann skuli kjósa að fara með málið fyrir dómstóla, enda mun þá væntanlega fást staðfest hið rétta í þessu máli.“ lífsstíl. Þó leiddi forvarnakönnunin í ljós að læknisráð vógu lang þyngst af því sem spurt var um. Hjá körlum fylgdi vitneskja um áhættuþætti á þar á eftir, en aldur hjá konum. Því yngri sem þær eru því betur virðist ganga að taka upp heilbrigðara lífemi. Þá varð vitn- eskja um áhættuþætti og upplýs- ingar í fjölmiðlum til þess að kon- um tókst að breyta um lífshætti. Magnús Bald- Kathryn Stanton. ■ MAGNÚS Baldvinsson bassi og Kathryn Stanton sópran halda tónleika kl. 20.30 í kvöld, 10. apríl, í íslensku óperunni ásamt Olafi Vigni Albertssyni píanóleikara. Magnús hefur víða sungið opinber- lega, m.a. við óperuna í Louisville og í háskólanum í Indiana í Banda- ríkjunum. Kathryn Stanton er frá Louisville. Fyrstu sjálfstæðu tón- leika sína hélt hún í Bandaríkjunum í júní sl. ■ í FRÁSÖGN af stærðfræði- keppni framhaldsskólanna féllu nið- ur nöfn tveggja fyrirtækja sem styrktu keppnina. Þetta eru ístak hf og Steypustöðin hf. sú gerð kristindómsins, sem vér þekkjum frá Nýja testamentinu, útilokar ekki brosið. „Sérhver hlutur undir himninum hefir sinn tíma... að gráta hefir sinn tíma og að hlæja hefir sinn tíma.““ Sr. Jakob Jónsson (1904-1989) var prestur á Austfjörðum, í Kanada, en lengst af í Hallgríms- prestakalli í Reykjavík. Hann var orðlagður ræðumaður, afkastamik- ill rithöfundur og fræðimaður og vann um dagana að margvíslegum félagsmálum. En í ritverkinu „Kímni og skop í Nýja testament- inu“ samfléttast fyrst og fremst fágæt reynsla hins innblásna prests af fólkinu sem hann starfar með og starfar fyrir í blíðu og stríðu, mikil þekking á helgum ritum, og kímnigáfa höfundarins sjálfs. Bókin er rúmar 330 blaðsíður og annaðist Prentsmiðjan Edda setn- ingu, prentun og bókband. (Fréttatilkynning frá Menningarsjóði.) „Þá við öllu þekkja svör...“ Morgunblaðinu hefúr borist eftirfarandi athugasemd: Kæri ritstjóri. Ég vísa til greinar í síðasta sunnudagsblaði Mbl. (Húsgangar úr þingheimi, bls. 14-15), þar sem ég er borinn fyrir því að hafa sett saman „vísu“ nokkra um Pál Pétursson. Það er raunar rétt að ég bjó eitt sinn til vísukorn um Pál, sem efnislega er skylt „vísunni“ i Morgunblaðinu. En ef þetta á að vera mín vísa, þá er hún svo úr lagi færð að varla er einleikið. Fýrir þessa hræðilegu afbökun kann ég blaðinu engar þakkir. En til þess að gera gott úr öllu, er það sannast mála að einu sinni þegar ég var að aka Svínvetninga- braut og hafði veður af Höllustöð- um á aðra hönd og Ytri-Löngu- mýri á hina, fór ég að yrkja lof um þá frændur mína, Pál á Höllu- stöðum og Björn á Löngumýri, enda lítið annað að gera. Um Björn var þetta sagt: Gekk að föngum, hlöður hlóð, hlakkar í svöngu dýri. Býr við öngan barningsmóð Bjöm á Löngumýri. Hugsunin um Pál leiddi til þess- arar niðurstöðu: Verði snjöllum vandi í fór, vaxi spjöll með sköðum, þá við öllu þekkja svör, þeir á Höllustöðum. Þótt mér sé annars ekki metn- aðarmál að sjá eftir mig vísur af þessu tagi í blöðum, neyðist ég til að leiðrétta það sem rangt er með farið og því fremur sem af- bökunin er verri. Með kærri kveðju, Ingvar Gíslason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.