Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ VlÐSHQFTl/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990 Fjárfestingarlánasjóður HAGNAÐUR Iðnþróunarsjóðs á síðastliðnu ári nam alls 116 milljón- um króna og var afkoman svipuð og árið áður. Afskriftir útlána voru hins vegar meiri árið 1989 eða 155 milljónir króna en beitt var nýjum reglum sem samþykktar voru á árinu og var afskrifað sérstak- lega vegna tiltekinna útlána auk 1% almennrar afskriftar. I árs- skýrslu Iðnþróunarsjóðs kemur fram að góða afkomu megi að nokkru leyti skýra með því misvægi sem var á gengi erlendra gjaldmiðia og innlendu verðlagi. Á árinu hækkaði lánskjaravísitalan um 22% en gengi dollars hins vegar um 32%. Eigið fé Iðnþróunarsjóðs nam 2.364 milljónum króna í árslok 1989. Þar af eru stofnframlög 602 milljónir. Iðnþróunarsjóður veitti á síðasta ári lán að upphæð 960 milljónir króna en árið 1988 voru afgreidd lán að upphæð 1.700 milljónir. Synjað var umsóknum fyrir um 470 milljónir króna eða þær dregnar til baka. í frétt frá Iðnþróunarsjóði kemur fram að eftirspurn eftir láns- fé hafí haldist nokkur á síðasta ári en síðari hluta ársins var hún í vaxandi mæli til endurijármögnun- ar á skammtímaskuidum og til fjár- hagslegrar endurskipuiagningar. iðnaður, mannvirkjagerð, samgöng- ur, skinna- og leðuriðnaður. AÐALFUNDUR — Frá aðalfundi Iðnþróunarsjóðs, f.v. Valur Valsson, formaður framkvæmdastjórnar, Þorvarður Alfonsson, fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarsjóðs, Kjartan Jóhannsson, sendiherra og Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra. Tímabært að setja löggjöf um Ijárfestingarlánasjóði — sagði Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra á ársfundi Iðnþróunarsjóðs Hagnaður Iðnþró- unarsjóðs 116millj. Um fimmtungur lána síðasta árs var til fjárhagslegrar endurskipu- lagningar. Til hinna ýmsu greina iðnaðarins fóru 714 milljónir af samþykktum lánum en 246 milljón- ir til atvinnugreina sem áður féllu utan verksviðs sjóðsins. Er það umtalsverð aukning frá fyrra ári. Hlutfallsleg skipting útlána í árs- lok 1989 var þannig að til mat- væla- og drykkjarvöruiðnaðar hafa farið 18% lánanna, 10% til vefjar- og fataiðnaðar, 10% til pappírs- og prentiðnaðar, 10% til málm- og skipasmíðaiðnaðar og einnig 10% til plastiðnaðar. Þá voru 8% til stein- efnaiðnaðar, tæp 6% til trjávöruiðn- aðar og 6% til ýmiskonar þjónustu. Aðrir lánaflokkar voru m.a. efna- í viðskiptaráðuneytinu er nú unnið að því að semja frumvarp um starfsemi fjárfestingarlánasjóða. Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, greindi frá þessu á ársfúndi Iðnþróunarsjóðs sem haldinn var síðast- liðinn fimmtudag. Hann sagði löngu tímabært að setja almenna lög- gjöf um fjárfestingarlánasjóðina sem yrði hliðstæða hinnar almennu löggjafar um viðskiptabanka og sparisjóði. Viðskiptaráðherra sagði að með slíkri löggjöf væri ekki verið að breyta hlutverki eða stjórn fjárfest- ingarlánasjóðanna a.m.k. fyrsta kastið, en hins vegar væru þar sett- ar almennar reglur. „Með slíkum lögum eru fjárfestingarlánasjóðun- um settar almennar leikreglur og þeir settir undir samskonar eftirlit og innlánsstofnanir sem að sjálf- sögðu er nauðsynlegt ekki síst í ljósi þeirrar breytingar sem er að verða í okkar fjárhagslega umhverfi. Ég tel að setning slíkra almennra laga, almenns starfsramma fyrir ljárfest- ingarlánasjóðina hljóti að verða fyrsta skrefið í endurskipulagningu og uppstokkun á fjárfestingarlána- sjóðakerfinu. En markmið breyting- anna ættu að vera að Iaða fram, eða í sumum tilfellum knýja fram, sameiningu sjóðanna í færri og sterkari einingar sem gætu rækt sitt hlutverk betur og með lægri kostnaði en verður í dag. Þá er ég ákveðið þeirrar skoðunar að ríkis- ábyrgð á skuldbindingum fjárfest- ingarlánasjóða ætti með öllu að. Og einnig er mér til efs að hin nánu tengsl einstakra viðskipta- banka og ijárfestingarlánasjóða séu heppileg þegar horft er fram á veg- inn. Fjárfestingarlánasjóðirnir hafa á undanförnum árum náð að vaxa og dafna og eru nú sumir þeirra öflugar fjármálastofnanir með mik- ið eigið fé. Þeim er því engin vor- kunn að standa framvegis á eigin fótum án ábyrgðar ríkissjóðs eða framlaga úr honum. Þeim er heldur engin vorkunn að bera sambærileg- ar skyldur og skatta og viðskipta- bankarnir. Ég tel að við slíkar að- stæður muni fjárfestingarlánasjóð- irnir jafnvel spjara sig betur en í því verndaða umhverfi sem þeir hrærast í, í dag.“ Á MARKAÐI Bjarni Sigtryggsson Skipuritið Qytur ekki íjöll Ekkert er nýtt undir sólinni, og að því kemst maður best við skoðun á nýjum kenningum um stjórnsýslu, að þrátt fyrir allt gilda þar best hin gömlu fræði. Sá sem ekki er leiðtogi í sér hrífur hvorki aðra til dáða né fær hann nokkru breytt um viðhorf fólks. Og sá sem er leiðtogi í eðli sínu kann að vera hættuleg- ur umhverfi sínu búi hæfni hans ekki að siðgæði í veganesti. Sag- an hefur margoft sýnt okkur það. Þetta er sérstakt íhugunarefni nú þegar tískukenningar boða að stjórnandi framtíðarinnar sé ekki maður aðferðanna (technoe- rat), heldur leiðtogi. Þetta eru nefnilega engin ný sannindi lífsreyndum mönnum. Sá sem ekki hefur foringjaeðli stjórnar ekki öðrum. Hann getur skipað þeim fyrir, en hann eignast ekki hug þeirra. Leiðtoginn er sá sem öðlast tiltrú annarra, en hann er um leið einn úr hópnum. Hann er það sem á góðri íslensku hef- ur verið kallað: Fremstur meðal jafningja. Fjallabíll gerir ekki foringja Ekki er fjarri að álykta að rót margs okkar heimatilbúna vanda sé sú, að okkur skorti leiðtoga. Bæði í stjórnmálum og í heimi atvinnulífsins. Hagfræðingar heildarsamtakanna gerast stjórnendur þeirra og kannski forset- ar, en varla for- ingjar. Sérfræð- ingar í opinberri þjónustu fá for- ingjatign á skipuritinu, en ekki nauðsynlega að sama skapi meðal þegnanna. Fjallabíll á ríkisins kostnað, stórsveit ráð- gjafa og léttsveit ritara gerir menn ekki að höfðingjum. Um þann hæfileika gildir hið sama og sagði í frægum vísubotni: „Sumir hafa sexappíl, sumir ekki neinn.“ Það sem er íhugunarefni fyrir áhugamenn um fræði stjómlist- arinnar er hve það færist í vöxt meðal stórra og vel rekinna heimsfyrirtækja að ráða til for- ystustarfa menn, sem kalla mætti „vegvísa“. Þessir menn eru fráleitt allir sérfræðingar á sviði hagfræði, skattatækni eða markaðsmála. Þvert á móti koma æ fleiri þeirra úr röðum hinna sem hafa lagt stund á hug- vísindi. Unga skáldið okkar íslenska í höfuðstöðvum Ameríku-Sony er eitt dæmi af slíkum mönn- um, en þau eru mörg fleiri. Heimspekingar og félagsfræð- ingar — jafnvel listamenn — raða sér á topp inn og auðga við- skiptaheiminn með skilningi sínum, þar sem áður sátu á fleti fyrir menn aðferðanna, nær ein- ir. Að skilja mannlega breytni Fyrir allmörgum árum_ sat sá sem þetta ritar úti í Árósum námskeið fyrir norræna viðskipt- afréttamenn. Einn gesta okkar var ritstjóri sænska umsvifa- blaðsins Veckans Affárer. Hann fjallaði eins og aðrir gestir um það að nýjungar í fréttamennsku væru nú mestar á sviði frásagna af viðskiptum og atvinnulífi. En erfitt væri að finna nægjanlega hæfa blaðamenn til starfa. Þá væri spurningin hvort betra væri að ráða viðskiptafræðinga og kenna þeim blaðamennsku, eða fá góða blaðamenn og kenna þeim viðskiptafræði. Þessi ágæti ritstjóri var ekki í vafa um það að góður blaðamaður gæti lært flest, en góður viðskiptafræðing- ur væri hins vegar alls ekki vís til þess að geta sagt lesendum sínum frá á ljósan hátt með skýru máli. Sama hefur mér oft síðar dot- tið í hug um stjórnendur; að sá sem hefur lagt sig eftir að skilja mannlegt eðli og mannlega breytni sé trúlega betur til þess fallinn að leiða hóp manna en hinn, sem rækt hefur fög sér- fræðinnar og talið hina hag- fræðilegu lausn eina vera það sem hrífur samferðafólkið. Hér skýrist framtíðin aftur með því að líta til fortíðar. Sá eða sú, sem skilur samtíð sína, þekkir fortíð hennar og hefur hugsjón að miðla, er án efa fær- ust um að leiða hana inn í framt- íðina. Hvaða skóli skyldi svo vera bestur fyrir væntanlega stjórn- endur framtíðarinnar? Án efa gott og kærleiksríkt uppeldi. „Sumir hafa sexappíl, sum- ir ekki nein...“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.