Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990 53 Aka ekki með ljós Þ.S. hringdi: „Ég hef veitt því athygli að margir þjónustubílar aka ekki með dagljós og á þetta einnig við um aðra bíla. Ekki veit ég hvort ökumenn vita almennt að þeir fá minna tryggingum ef þeir lenda í óhappi ef þeir hafa ekki haft ljósin á. Eins er þetta með stefnu- Ijósin, þau eru ekki nógu mikið notuð.“ Málgagn Alþýðuflokksins? Einar Jónsson hringdi: „Er Morgunblaðið orðið mál- gagn Alþýðuflokksins? Þessi spurning kom mér í hug þegar ég sá tvær greinar eftir góða Al- þýðuflokksmenn í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Ekki er Tíminn að birta greinar eftir Sjálfstæðis- menn eða þá Þjóðviljinn. Þetta tíðkaðist heldur ekki hjá Morgun- blðinu hér í eina tíð en núna virð- ist frjálsræðið orðið svona mikið.“ Silfiirdósir Forláta silfurdósir, stórar og merktar HGS 1979, töpuðust fyr- ir nokkru. Finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hringja í síma 36014. Hjól Hjól undan Nílfisk ryksugu töp- uðust í febrúar nálægt Sörlaskjói 6. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að hringja í Jóhönnu í síma 34010. 03 - góð þjónusta Guðmundur J. hringdi: „Ég vil þakka símastúlkunum á 03 fyrir ákaflega góða þjónustu. Þetta númer er notað af fjölmörg- um stofnunum og einstaklinga. Þær eru ótrúlega fljótar og snjall- ar að finna númer og gott að leita liðsinnis hjá þeim. Þarna finnst mér þjónusta símans best en hins vegar virðist vera stefnan að fækka starfsmönnum þarna. Ég held að launin séu lág í þessu starfi og ef stofnunin þarf að spara ætti að vera hægt að gera það með því að fækka í deildum þar sem launin eru hærri.“ Lágir vextir Borgari hringdi: „Bankarnir eru fljótir að lækka vextina á sparisjóðsbókunum þeg- ar verðbólgan minnkar en seinlát- ari að hækka þá þegar verðbólgan fer upp. Engin samkeppni viriðist vera því sömu vextir eru hjá þeim öllum. Réttast væri að taka af þeim réttinn'til að ákveða vexti því greinilega er haft samráð um hveijir þeir skuli vera.“ Blár brúðukjóll Jón Traustason, brúðuviðgerð- armaður hafði samband: „Vegna mistaka fór blár brúðu- kjóll með hvítum teinum með brúðu af verkstæðinu hjá mér og bið ég viðkomandi vinsamlegast um að skila honum til mín að Skúlgötu 76.“ Læða Læða fannst fyrir þremur vik- um við Miklatún. Hún er svört með hvíta bringu og hvítar lopp- ur. Upplýsingar í síma 10160. NÚ ER HJÁLPRÆÐISDAGUR Vér páskahátíð höldum og honum þakkir gjöldum, er sætti Guð við sekan mann, og sjálfan dauðann yfirvann. Hallelúja. Þannig orti sr. Valdimar Briem þegar hann horfði fram til heilagra páska. Nú er dymbilvika eða kyrrð- arvika, svo á að vera a.m.k. að kristnum sið. Opinberar skýrslur sýna að langflestir Islendingar telja sig vera kristna, en í raunveruleik- anum sést að mikið vantar á að svo sé, og því miður bendir margt til þess að þjóðin sé á hraðri leið til afkristnunar. Aldrei hafa verið uppi svo margar stefnur og kenningar, sem ekkert eiga skylt við fagnaðar- erindi Jesú Krists. Fjölmiðlar hampa slíku fúslega og vinna því brautargengi. Vínveitingastöðum Aprílgabb Ólafs G. Til Velvakanda. Enda þótt taka beri með sér- stakri varúð það sem lesa má í blöð- um sem út koma 1. apríl leiðist ég til að fara fáeinum orðum um við- tal það sem Morgunblaðið birti þann dag við Ólaf G. Einarsson alþm. Blaðamaðurinn minnti Ólaf á að hann væri í þeim hópi þingmanna sem gerðu áfengan bjór að fijálsri söluvöru í landinu. Af því tilefni sagði þingmaðurinn m.a.: „Ég hef séð allar tölur um aukna neyslu, en við verðum að gæta að því að þá náðu menn í bjór ef þeir ætluðu sér og þær neyslutölur komu hvergi fram. Tölurnar nú um ein- hliða aukningu eru því villandi. Mér finnst þetta ekki hafa orðið að þeim ógnvaldi sem spáð var — nema síður sé.“ Hverjir drukku þennan bjór og hvar var það gert? Þegar Gallup á íslandi spurði menn í janúar 1989 um drykkju- venjur kom fram að bjórdrykkjan var haria lítil. Það er ekki í neinu samræmi við þessi orð alþingis- mannsins. Þau eru því raunverulegt aprílgabb, tilhæfulaus hugarburð- ur, enda bendi ekkert til að bjór- þorsta þjóðarinnar væri svalað til fulls fyrir bjórdaginn. ílr. Kf.' fjölgar gífurlega, og bjórinn flæðir yfir til viðbótar því áfengi sem fyr-' ir var. Þetta hlýtur að hafa hinar alvarlegustu afleiðingar í för með sér. í fjölmiðlum má einnig sjá dag- skrár yfir þessa viku þar sem hver keppir við annan að spenna fólk upp með allskonar skemmtiatriðum og tilstandi bæði úti og inni, en ekkert af því minnir á innihald há- tíðanna föstudaginn langa og páskadag, dauða og upprisu Frels- arans, sem „dó vegna vorra synda“ (Jes. 53:5) og reis upp frá dauðum, og gaf þar með þeim, sem á hann trúa bústað á himni hjá sér, þar sem þeir munu sjá hann eins og hann er, og vera með honum alla tíma. (Jóh. 14:3. 1. Þess. 4:18. 1. Jóh. 3:2-3.) Jesús hrópaði út frá krossin- um á Golgata að endurlausnarverk- ið væri „fullkomnað“ (Jóh. 19:30) og hersveitarforinginn sem stóð gegnt honum hrópaði upp yfir sig: „Sannarlega hefir þessi maður ver- ið Guðssonur." (Mark. 15:29.) Hvað hugsar þú nú, lesandi góður? Hvert er viðhorf þitt í þessu efni? Allt annað á að víkja fyrir hinum heil- aga boðskap, sem einn tengist í sannleika þessari viku. Hann á að hafa algeran forgang: Steini harðara er hjartað það, sem heyrir um Jesú pínu. Gefur sig þó þar ekki að, ann meir gjálífí sínu. Passíus. 46:4. Nokkru áður hafði Jesús horft yfir Jerúsalem og grátið yfir henni og talað til fólksins. „Hversu oft hefi ég viljað saman safna börnum þínum, eins og hæna safnar ungum sínum "undir vængi sér, og þér haf- ið ekki viljað það.“ (Matt. 23:37.) Frá fjallsins hæð, í heiðum sólarljóma, Hann horfir yfir Jerúsalemborg. En musterið, og mennt, og þjóðarblóma sér Meistarinn með djúpri hjartasorg. Hann horfir gegnum hina fógru gylling. Sem hylur eymd og smán og bitra nauð. Þar hafna menn í sinni synda- spilling þeim sönnu gæðum, sem hann oft þeim bauð. Og Jesús grét, svo hjartahreinn og blíður, hans hjarta brann af eldi kærleikans. Hans eigin þjóð í syndasorta bíður og sinnir ekki náðarboðskap hans. Að eyrum berast öldur hárra hljóma frá hátíðlegum dans- og veizlu- sal, en meðan kvöldið deyfir dagsins Ijóma, hann dapur reikar yfir Kedrons dal. Jerúsalem, þú öll munt lögð í eyði, því óðum fjölga syndir þínar hér. Mót þér svo ljúft minn líknarfaðm ég breiði, þú lokar þínum dyrum fyrir mér. 0, Jerúsalemborg, þú sjálf þig blekktir, ég bauð þér eilíft líf og frið og skjól, vitjunartíma þinn þú ekki þekktir, og því er horfin gæfu þinnar sól. (Conrad Björkman - Sigurbjöm Sveinsson) íslenska þjóð. Grætur Jesús yfir þér. Viltu þekkja þinn vitjunartíma? „Sjá, nú er mjög hagkvæm tíð, sjá, nú er hjálpræðisdagur." (2 Kor. 6:2.) Fjölmennið nú í Guðshús og tileinkið ykkur boðskapinn og reyn- ið sjálf að „Sannarlega er Drottinn upprisinn." (Lúk. 24:34.) Sigfús B. Valdimarsson SIEMENS WV 2760 Margra ára sigurganga á íslandi! Þessi góða og hagkvæma þvottavél hefur sannað ágæti sitt svo að um munar. Það stað- festa þúsundir ánægðra notenda um allt land. • Mörg þvottakerfi. • Sparnaðarhnappur. • Frjálst hitaval. • Vinduhraði 600 og 800 sn./mín. • íslenskir leiðarvísar. Staðgreiðsluverð: 6o.900,- SMITH&NORLAND OPIN RÁOSTEFNA UM „RASISMA" A ÍSLANDI miðvikudaginn 11. apríl 1990 í Borgartúni 6 Dagskrá kl. 13. Þróun „rasisma" í gegnum mannkynssöguna og „rasismi" í nágrannalöndum okkar í dag. Kalid Salimi: SOS Rasisme, Noregi. Við og hinir. „Rasismi“ - mannfræði - Amnesty International. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, mannfræðingur, formaður íslandsdeildar Amnesty International. „Er „rasismi“ á íslandi?" HólmfríðurGísiadóttir, Rauða krossi íslands. Victor Amaquah, skiptinemi, Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur. Gildi aukinnar fræðslu í baráttunni gegn „rasisma" - hlutverk menntakerfisins. Fulltrúi menntamálaráðuneytis. Pólitísk stefna í málefnum innflytjenda - hlutverk stjórnvalda. Óli Þ. Guðbjartsson, dómsmálaráðherra. Hlutverk alþjóðlegra, óháðra æskulýðssamtaka f baráttunni gegn „rasisma". HólmfríðurGarðarsdóttir, Æskulýðsráði ríkisins. Kl. 20.00 Opiðhús. Pallborðsumræður: Pétur Edwardsson, fulltrúi undirbúningshóps, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Kvennalista, SteingrímurGautur Kristjánsson, Amnesty International. Kl. 22.00 Fundarlok. Ráðstefnustjóri: Guðmundur Birgir Heiðarsson, SUF. Ritarar: Guðbjörg Daníelsdóttir, URKÍ, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, mannfræðinemi. Upplýsingafulltrúi: Guðmundur RúnarÁrnason. Hjfsáísundi CDaUS Alpjóóleg Iraaósla og samskipli Alpfóöleg ungmennaskipii Intemational sludeni exchange programs Ungmennahreyling Rauða kross Islans Samtök og stofnanir, sem veittu stuðning sinn: Kvennalistinn, Samband ungra framsóknar- manna, Samband ungra jafnaðarmanna, Sam- band ungra sjálfstæðismanna, Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins, Æskulýðsráð ríkisins, Þró- unarsamvinnustofnun íslands, Hjálparstofnun kirkjunnar. Metsölublad á hverjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.