Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990 Lettar hyggjast lýsa yfir sjálfstæði Genf, Riga. Reuter. ANATOLIJIS Gorbunovs, forseti Æðsta ráðs Sovétlýðveldisins Lett- lands, lýsti yfir því á blaðamannafundi í gær að Lettar hygðust, líkt og nágrannarikin Eistland og Litháen, lýsa yfir sjálfstæði landsins. Flokkur kommúnista í Lettlandi klofhaði um helgina vegna dcilna um afstöðuna til Moskvu-valdsins en þjóðernissinnaðir fulltrúar höfðu ákaft hvatt til þess að stofnaður yrði nýr og óháður flokkur. Gorbunovs sagði á fréttamanna- fundi í Genf í Sviss að hann gæti ekki sagt til um hvemig sjálfstæðis- Kommúnistar fóru hrakfar- ir í Slóveníu Ljubljana. Reuter. FLEST bendir til, að kommúnista- flokkurinn og stjórnarflokkurinn í Slóveníu, einu júgóslavnesku lýðveldanna, hafi beðið mikinn ósigur í fyrstu frjálsu kosningun- um í landinu frá 1938. Endanlega úrslit verða ekki kunn fyrr en á miðvikudag en verði niðurstaðan þessi getur hún aukið enn á glund- roðan innan kommúnistaflokksins og i landinu öllu. yfirlýsing Lettlands yrði orðuð en kvað engan vafa leika á því að sam- þykkt yrði að endurreisa fullveldi og sjálfstæði landsins. Eystrasalts- ríkin þijú nutu sjálfstæðis á árunum milli heimsstyijaldanna en voru inn- limuð í Sovétríkin árið 1940. Nýtt þing Lettlands kemur saman þann þriðja næsta mánaðar og sagð- ist Gorbunovs sannfærður um að þjóðemissinnar hefðu tryggan meiri- hluta á þingi en til þess að sjálfstæð- isyfirlýsing og breytingar á stjómar- skrá landsins öðlist gildi þurfa tveir af hveijum þremur þingmönnum að leggja blessun sína yfir slíka samþykkt. Gorbunovs, sem er félagi í flokki kommúnista í heimalandi sínu, kvaðst hlynntur því að Lettland yrði sjálfstætt ríki en bætti við að jafn- framt þyrfti að taka tillit til hags- muna Sovétstjómarinnar. Reuter Constantine Mitsotakis, leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins, (t.h.) og Costis Stefanopoulos, leiðtogi og eini þingmaður Lýðræðislega endurreisnarflokksins, ræða við firéttamenn eftir að sá síðarnefndi hafði ákveðið að mynda þingmeirihluta með hægrimönnum. Iran-kontra-hneyksiið: Poindexter dæmdur sekur um fimm alvarleg* lögbrot Washinffton. Reuter. JOHN Poindexter, sem var öryggismálaráðgjafi Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta 1985-86 hefúr verið dæmdur sekur um fimm ákæru- atriði í málinu út af Iran-konta-hneykslinu svonefhda. Lögfi'æðingur hans segir að hann ætli að áfrýja málinu. „Við urðum að sjálfsögðu fyrir vonbrigðum með þennan úrskurð dómsins," sagði Richard Beckler, lögfræðingur Poindexters, við frétt- amenn eftir að úrskurðurinn hafði verið kveðinn upp á laugardag, „en við ætlum að áfrýja málinu og beij- ast eins hart og lengi og þörf kref- ur.“ Poindexter var sjálfur þögull og vildi ekkert segja um ástæðuna fyr- ir því að hann neitaði að bera vitni. Dæmt verður í málinu 11. júní næstkomandi og á öryggismálaráð- gjafinn fyrrverandi yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisdóm og rúm- lega einnar milljónar dollara sekt. Tvö ákæruatriðanna sem hann var dæmdur sekur um lúta að því ,að hann hafi logið að þinginu, tvö að því að hann hafi hindrað störf þess og eitt að því að hann hafi átt þátt í að koma í veg fyrir að þing- rannsóknin sem fram fór í málinu fengi eðlilegan framgang. Saksóknararnir halda fram að Poindexter hafi verið potturinn og pannan í þeirri áætlun að selja Irön- um vopn í skiptum fyrir bandaríska gísla og veita ágóðanum af vopna- sölunni til skæruliða í Nicaragua, kontranna — þrátt fyrir bann þings- ins við slíkri aðstoð. Poindexter hefur ævinlega borið að hann hafi einungis verið að fram- kvæma fyrirskipanir forsetans og aldrei gert neitt ólöglegt. Reagan, fyrrum forseti, var kallaður til vitna- stúkunnar í málinu, en bar oft fyrir sig minnisleysi. John Poindexter Aðalsaksóknarinn, Dan Webb, kvaðst ánægður með úrskurðinn: „ Háttsettum stjórn arstarfsmönnu m sem bera ábyrgð á öryggi þjóðarinn- ar ætti aldrei að leyfast að fremja glæpi til að koma málum sínum fram.“ Keuter Hetjulegri baráttu lokið Ryan White, 18 ára gamall, bandarískur unglingur, sem frægur varð fyrir hetjulega baráttu við alnæmið og ekki síst óttann, sem sjúkdómurinn vekur, lést síðastliðinn sunnudag. White, sem var dreyr- asjúklingur og sýktist við blóðgjöf, komst í fréttimar fyrir fimm árum þegar foreldrar skólafélaga hans og skólastjómin bönnuðu honum skólavist af ótta við sjúkdóminn. Vegna þessa fór móðir hans í mál og vann það og er myndin af White þegar hann var á leið í skólann aftur. George Bush Bandaríkjaforseti harmaði í gær dauða Whites og sagði, að hugrekki hans ætti að verða öllum hvatning til að standa saman í baráttunni við þennan skelfilega sjúkdóm. Samkvæmt óopinberum tölum, sem byggjast aðeins á fáum pró- sentum atkvæða, fær DEMOS, samtök stjórnarandstöðuflokka, um 52% atkvæða en kommúnistaflokk- urinn aðeins 20%. Hann er þó enn stærstur einstakra flokka. Fijáls- lynda flokknum er spáð um 17% atkvæða. Stjómmálaskýrendur segja, að hrun kommúnistaflokksins í Slóv- eníu gæti flýtt fyrir upplausn kommúnistaflokkanna í hinum Iýð- veldunum og aukið enn á stjórnar- farslega og efnahagslega ringulreið í Júgóslavíu. Sigur DEMOS yki einnig líkur á, að Slóvenía, sem er vestrænast allra lýðveldanna, segði skilið við alríkið. Hægrimenn sigra í þingkosningum í Grikklandi: Mitsotakis hefur tryggt sér meirihluta á þingi Abenu. Reuter. Aþenu. Reuter. NÝI lýðræðisflokkurinn, flokkur hægrimanna, vann afgerandi sig- ur í þingkosningunum í Grikk- landi á sunnudag og hlaut 150 sæti af 300 á þingi. í gær ákvað svo eini þingmaður Lýðræðislega endurreisnarflokksins að ganga til liðs við hægrimenn og tryggja ríkisstjórn undir forystu Const- antine Mitsotakis, leiðtoga Nýja lýðræðisflokksins, þingmeiri- hluta. Viðbrögð við sigri hægrimanna í kosningunum hafa verið jákvæð og í gær hækkuðu t.a.m. verðbréf um 14,74% og hefur vísitala þeirra aldrei verið hærri. Búist er við að Mitsotakis sveiji embættiseið síðar í vikunni. Hann sagði í gær, að brýnasta verk stjóm- arinnar yrði að reisa við efnahag landsins er væri í rúst. í kosninga- baráttunni hét hann skjótum að- gerðum í því skyni og var þar efst á blaði niðurskurður ríkisútgjalda og uppskurður á velferðarkerfi só- síalistastjórnarinnar. Ennfremur hafði Mitsotakis hei- tið því að gera nýjan samninga við Bandaríkjamenn um framtíð banda- rískra flotastöðva í Grikklandi en vegna stefnu sósíalistastjórnarinnar stefndi allt í að þeim yrði lokað í nóvember nk. Nýi lýðræðisflokkurinn sigraði óvænt í kosningurium. Kannanir höfðu bent til að Sósíalistaflokkur- inn, flokkur Andreas Papandreou fyrrum forsætisráðherra, fengi flest þingsæti. Sósíalistar hlutu 123 sæti, bandalag kommúnista 19 og ýmsir smáflokkar átta. Nýi lýðræðisflokkurinn var við völd í Grikklandi 1974-81 eftir fall herforingjastjórnarinnar. Sósíalist- ar komust til valda 1981 en töpuðu kosningum í júní í fyrra. Við tók stjóm sem hafði það sem aðal mark- mið að láta fara fram rannsókn á meintri spillingu og ljármála- hneyksli í stjómartíð Papandreou. Sigur Nýja lýðræðisflokksins í kosningunum er ekki fagnaðarefni fyrir Papandreou. Mitsotakis hefur ekki sýnt nein merki miskunnar og má því forsætisráðherrann fyrrver- andi því eiga von á því að verða leiddur fyrir rétt og hljóta dóma fyrir fjármálamisferli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.