Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990 47 Þorgils til mín í vinnuna, þegar hann hafði lokið morgunverkum á spíta- lanum, og iðulega kom hann hér við á heimleið frá Vífilsstöðum. Það má því nærri geta, hvílíkt reiðarslag það var fyrir okkur, hér í Holtagerði 82, þegar Þorgils veikt- ist skyndilega, svo að tvísýnt var um líf hans. Það gerðist um hádegis- bil 5. ágúst 1981. Þá fóru í hönd ömurlegir dagar. En hér sannaðist eins og oft endranær, að líkn leggst með þraut. Þorgils tók þessum hörðu örlögum með dæmafáum hetjuskap. Kjarkur hans .og æðruleysi styrki okkur hin, sem hjá stóðum. Hann mundi það sem hann hafði lært, og hafði á hraðbergi jafnt ljóð Einars Ben. sem tilvitnanir í Njálu. Á síðari árum gerði hann ýmsar orðalags- breytingar á sumum ljóða sinna, og ég sé ekki betur en að þær séu flest- ar eða allar til bóta. Síðastliðið sumar skrapp ég til hans, einu sinni sem oftar, þegar hann var staddur heima á Kársnes- braut 47, um helgi. Þegar ég kom, stóð svo á, að við rekkju hans sat sænsk menntakona, svilkona Þor- gils. Ég gekk til þeirra og heilsaði, eins og lög gera ráð fyrir. Þau höfðu verið að ræða um franska tungu, og þá kom upp úr dúrnum, að Þor- gils kunni m.a. Faðirvorið reiprenn- andi á því máli. Auðvitað hafði ég vit á því að blanda mér ekki inn í slíka umræðu! En ég gat ekki haft af þeim augun: Hún með reisn og glæsileik í öllu fasi og hreyfingum, hann lamaður og nærri blindur, en leiftrandi af gáfum, þekkingu og gamansemi. Hann lék á als oddi, og það hallaði sannarlega ekki á hann í samtali þeirra. Ég veit ekki, hvort auðvelt er að finna gleggra dæmi um mannlega tign samfara líkam- legri kröm. ... Spyr ég, hvort spor mín þekki sprunginn leggur í skoti... Gamli bærinn á Víðirhóli er löngu hruninn. Drengurinn sem lék sér þar í grasi á árunum um og upp úr 1930, er genginn á vit feðra sinna. Hann hefur nú þegar stigið það spor, sem bíður okkar allra, fyrr eða síðar. Eftir skilur hann minningar um gáf- aðan mann og góðan dreng; sem ekki mátti vamm sitt vita. Ég og fjölskylda mín sendum öllum að- standendum Þorgils Benediktssonar innilegar samúðarkveðjur. Við höf- um dáðst að þreki og kjarki konu hans og sona á þessum erfiðu árum. Afrek þeirra mun geymast í minni allra sem til þekktu. Honum sjálfum þökkum við góða og skemmtilega samfylgd og geymum minninguna um hann í þakklátum huga. Valgeir Sigurðsson Árið 1967 kom Þorgils Benedikts- son til starfa við Vífilsstaðahæli, eftir framhaldsnám í Svíþjóð. Vífils- staðahæli hafði þá lokið hlutverki sínu sem berklahæli en óákveðið hvert framtíðarhlutverk þess skyldi FRANSKIR ARNAR OG efni til arinbygginga k Yfir 60 tegundir k Arnar með hitakerfum fyrir sumarbústaði og garðhýsi * Bdfastar flísar Skorsteinseiningar ■k Setjum upp skorstein ef hann vantar * Við erum í Gulu línunni 1EArnar&to sími 651720 b nn vera. Yfirlæknaskipti urðu á næsta ári, er Helgi Ingvarsson lét af störf- um, en Hrafnkell Helgason tók við. í hans hlut kom að standa að því að móta framtíðarstefnuna. Þorgils var því samstarfsmaður hans á þess- um breytingaárum. Þorgils var vinsæll af sjúklingum og samstarfsfólki. Hann gat verið glettinn og gamansamur og sagði oft skemmtilega frá og hafði gaman af að ræða við sérkennilega menn. Hann var mikill útivistarmaður og gekk á fjöll í nágrenninu. Það kom því á óvart, þegar hann fékk heila- blæðingu á bezta aldri 1981 og lam- aðist verulega og missti sjón að miklu leyti. Eftir alllanga dvöl á Landspítala og Reykjalundi óskaði hann að dvelja á Vífilsstaðaspítala, sem hafði verið vinnustaður hans. Þrátt fyrir sjúkdóm sinn hélt hann andlegum þrótti fram til hins síðasta, hafði gaman af að setja saman vísur og gerði að gamni sínu. Við, sem vorum samstarfsmenn hans hér, viljum með þessum orðum þakka fyrir samveruna og samstarf- ið og sendum um ieið góðar óskir og samúðarkveðjur til eftirlifandi ekkju hans, Emmu Benediktsson, og barna þeirra og annarra aðstand- enda. Eftir góðan dreng lifa góðar minn- ingar. Kveðja lrá samstarfsfólki á Vífilsstaðaspítala. TÖLVU- MÖPPUR frá Múlalundi... þar er tölvupappírinn vel geymdur. Múlalundur S(MI: 62 84 50 SIEMEIMS SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 IBM PS/2 Þar sem afköst skípta máli Þegar keypt er tölva er tilgangurinn einkum sá að auka afköst. Þegar IBM setti fyrstu einkatölvuna, IBM PC, á markaðinn í ágúst 1981 var það bylting, því þá gátu allir nýtt sér tölvur í starfi og aukið afköst sín. En siðan 1981 er liðin heil tölvuöld, og þótt hraði PC tölvanna hafi aukist þá fór ekki hjá því að sífellt aukinn hraði endaði með auknum árekstrum í tölvuvinnslunni. Með PS/2 einmenningstölvunum, OS/2 stýrikerfinu og micro channel tengibrautinni fór IBM byltingakennda leið til að auka afköst við tölvuvinnslu og stakk PC eftirlíkingarnar gjörsamlega af. PS/2 tölvunni var gert kleift að vinna að mörgum verkum samtímis. Þannig var ekki nóg með að afköst ykjust um eitthvert hlutfall vegna aukningar í hraða: þau 'margfölduðust vegna möguleikans á fjölvinnslu! Vertu með í afkastabyltingunni PS/2 einmenningstölvurnar hafa fyrir löngu sannað yfirburði sína jafnt fyrir einstaklinga sem stærstu fyrirtæki. PS/2 er öflug, hraðvirk, skemmtileg í notkun og jafnvíg bæði sem einkastöð og sem útstöð í neti. Að sjálfsögðu er innbyggður DOS hamur í OS/2 þannig að DOS forrit sem þú notar nú ef þú átt ennþá PC vél nýtast þér áfram í nýrri PS/2. Tryggðu þér IBM PS/2 FYRST OG FREMST og horfðu á afköstin margfaldast SKAFTAHLlÐ 2A REYKJAVÍK SlMI 697700 ABGUS/SIA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.