Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990 35 Frumvarp sjö þingmanna um öldrunarmál: Tekjutengd greiðslukvöð á dvalarstofiiunum verði létt Sólveig Pétursdóttir (S-Rv) og sex aðir þinginenn úr fjóruin þing- flokkun flytja frumvarp til breytinga á lögum um málefni aldraðra, sem felur í sér að létt skuli greiðslukvöð aldraðra á dvalarkostnaði á stofhunum fyrir aldraða. I gildandi lögum um málefni aldraðra (1. og 2. málsgrein 27. grein- ar laga nr. 82/1989) er kveðið á um að vistmenn sem hafa tekjur umfram kr. 11.000.- skuli taka þátt í greiðslu dvalarkostnaðar á stofh- unura fyrir aldraða að hluta eða öllu. Frumvarpið felur í sér að þessi tekjuviðmiðun greiðslukvaðar hækki í kr. 30.000 og að sett skuli í reglugerð nánari ákvæði hækkun viðmiðunartekna. Flutningsmenn frumvarpsins eru: Sólveig Pétursdóttir (S-Rv), Anna Olafsdóttir Björnsson (SK- Rv), Arni Gunnarsson (A-Ne), Frið- rik Sophusson (S-Rv), Hreggviður Jónsson (FH-Rn), Olafur G. Einars- son (S-Rn) og Þórhildur Þorleifs- dóttir (SK-Rv). í greinargerð með frumvarpinu segir m.a.: „I eldri lögum um málefni aldr- aðra þurftu aldraðir að vísu að greiða hlutdeild í dvalarkostnaði ef þeir höfðu lífeyristekjur umfram frítekjumark en greiðslur féllu niður ef þeir fluttust á hjúkrunardeild. I lögum nr. 82/1989 virðist hafa ver- ið ætlunin að breyta þessu fyrir- komulagi að einhveiju leyti í rétt- AlMnCI lætisátt og jafnvel að létta á greiðsluskyldunni hjá þeim sem greitt hafa í lífeyrissjóði en niður- staðan hefur orðið önnur. Það sem vekur sérstaka athygli er að nú greiða einnig aldraðir sjúklingar fyrir vist sína. Lögin hafa þannig stækkað þann hóp aldraðra sem ætlað er að greiða dvalarkostnað sinn á stofnunum að hluta eða öllu. Þeir, sem hafa yfir 11 þúsund krón- ur á mánuði í eigin tekjur, skulu þannig greiða með sér og bitna þessar greiðslur aðallega á fólki sem greitt hefur til lífeyrissjóða á starfsævi sinni, enda þótt eignatekj- ur séu einnig teknar inn í þennan kostnað. Þetta fólk fær þar að auki ekki neina vasapeninga frá Trygg- ingastofnun ríkisins, líkt og þeir sem ekki hafa neinar aðrar tekjur en frá þeirri stofnun. Það hlýtur að teljast óeðlilegt að það fólk, sem hefur tekjur umfram bætur frá Tryggingastofnun vegna þess sparnaðar sem það hefur ástundað alla ævi, skuli missa þær til ríkisins þegar það sest í helgan Stuttar þingfréttir ■ SKAÐSEMISAB YRGÐ: Fram hefur verið lagt stjórnarfrumvarp um skaðabótaábyrgð framleiðenda og dreifingaraðila á tjóni, sem hlýzt af ágalla á vöru sem þeir hafa fram- leitt, eða látið af hendi á annan hátt. ■ MEÐ KA UP í HUGA: Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) gagnrýndi það á þingfundi í gær að forsetar þingsins hafi sent þingmönnum sérstakt skriflegt boð um skoðunar- ferð um Hótel Borg [Pósthússtræti 11] „með kaup í huga“. Hveiju sætir þetta? spurði þingmaðurinn. Hveijir hafa í huga að kaupa Hótel Borg? - Guðrún Helgadóttir forseti þingsins sagði forseta vilja gefa þingmönnum kost á að skoða Borg- ina vegna tillögu til þingsályktunar um kaup Alþingis á þessu húsnæði. ■ SÍÐASTI SKILADA GUR: í dag er síðasti skiladagur frumvarpa stein. Vandséð er hvaða rök geta réttlætt slíka ráðstöfun löggjafans enda þótt vistun aldraðra feli í sér mikinn kostnað fyrir ríkissjóð. Það má einnig leiða að því rök að eldri borgarar séu nú þegar búnir að leggja sitt af mörkum til samfélags- in hvað þennan kostnað varðar og að þeir eigi sinn sparnað sjálfir.“ Síðar í greinargerðinni er vfsað til þess höfuðeinkennis sjúkratrygg- inga hér á landi að öllum sjúkra- tryggðum landsmönnum hafi verið tryggð ókeypis vist á sjúkrahúsum og sjúkradeildum fyrir aldraða, sbr. 40. og 41. grein laga um almanna- tryggingar. Þá segir orðrétt: „Verður ekki annað séð en 27. grein laga nr. 82/1989 gangi þvert á þetta ákvæði almannatrygginga og breytir þar varla nokkru um þótt aldraðir sjúklingar séu í reglu- Sólveig Pétursdóttir (S-Rv.) gerð kallaðir „langiegusjúklingar". Þessa nýtilkomnu greiðslubyrði mætti e.t.v. kalla „sjúklingaskatt“ og vísast þá til fyrri umræðna á Alþingi um hann, m.a. á þinginu 1983-84, er rætt var um umdeilda tillögu í þá átt að sjúklingar greiddu hluta af fæðiskostnaði sínum en þá var þessi nafngift notuð.“ * Alfrum- varp í dag? JÓN Baldvin Hannibalsson, stað- gengill iðnaðarráðherra, sagði á Alþingí í gær, að hann gerði fast- lega ráð fyrir því að stjórnar- frumvarp um nýtt álver yrði lagt fram í dag eða á morgun. Friðrik Sophusson (S-Rv) krafði forseta sameinaðs þings upp- lýsinga um það á Alþingi í gær, hvað dveldi skýrslu iðnaðarráðherra til Alþingis um nýtt álver, en nú væru u.þ.b. tveir mánuðir liðnir síðan hann var beðinn að láta þing- inu í té skýrslu um stefnu ríkfe- stjórnarinnar í málinu, meginefni væntanlegs stjórnarfrumvarps um það sem og um staðsetningu hins nýja álvers. Guðrún Helgadóttir, forseti þingsins, sagði skýrslu ráðherr- ans um nýtt álver á næsta leiti. Jón Baldvin Hannibalsson, sem er staðgengill iðnaðarráðherra í ijarveru hans, sagði að hann gerði fastlega ráð fyrir að frumvarpið yrði lagt fram í dag eða á morgun. Stjórnarlfrumvarp um auglýsingar; Hagsmunir neytenda ráði ferð á Alþingi er fá umræðu og af- greiðslu á þessu þingi, en áform standa til að þinginu ljúki 27. þ.m. ■ ÞINGSÁL YKTANfR Á HRAÐFERÐ: Ekki færri en tíu tillögur til þingsályktunar fengu afgreiðslu í gær til skoðunar í nefndum og til síðari umræðu - eða var vísað til ríkisstjórnarinnar. Til- lögur, sem afgreiddar vóru til nefnda, fjalla m.a. um: framtíð gamla miðbæjarins, endui'vinnslu úrgangsefna, undirbúning að nýjum samvinnulögum, þjóðleikhúsið, efnainnihald í íslenzkum matvæl- um, jöfnun orkukostnaðar, fríhafn- arsvæði við Keflavíkurflugvöll og ræktun íslenzka Ijárhundsins. Til ríkisstjórnarinnar var m.a. vísað til- lögum um könnun á aðstöðu ein- staklinga með glúten-óþol og um menningarsamskipti við Vestur- íslendinga. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, segir að markmiðið með frumvarpi til laga um auglýs- ingar, sem hann hefur lagt fram, sé að „stuðla enn frekar en nú er gert að heilbrigðri samkeppni á auglýsingamarkaðinum og vernda enn betur hagsmuni neyt- enda, fyrst og fremst barna . . . Það er ekki vanþörf á því að gefa hagsmunum barna sérstakan gaum á okkar tímum þegar áhrif Qölmiðlanna eru jafiimikil og raun ber vitni“. í frumvarpinu eru m.a. ákvæði um: * 1) Auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi skulu vera á lýtalausri íslenzku, sem og aðrar auglýsingar. Erlendur söngtexti má þó vera hluti auglýsingar í hljóð- og sjónvarpi. Auglýsingatexti, sem sérstaklega er beint til útlendinga, t.d. í flughöfn- um, má þó vera á erlendum málum. * 2) Oheimilt er að veita rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsing- ar í auglýsingum. Þær mega heldur ekki „vera ósanngjarnar gagnvart keppinautum eða neytendum vegna forms þeirra eða sökum þess að skírskotað ertil óviðkomandi mála“. * 3) Auglýsingar skulu miðast við að börn sjái þær og/eða heyri og sértakrar varúðar skal gætt þegar auglýsingar höfða til barna. * 4) Auglýsingar skulu vera þann veg úr garði gerðar að ekki leiki vafi á að um auglýsingu sé að ræða og skýrt aðgreindar frá öðru efni fjölmiðla. Auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi skulu fluttar í sérstök- um auglýsingatímum. * 5) Abyrgð á að ákvæði í reglu- gerð og lögum um auglýsingar séu haldin hvílir á auglýsanda, höfundi auglýsingar eða auglýsingastofu eða útgefanda, eiganda fjölmiðils eða öðrum birtingaraðila. * 6) Ráðherra skal í reglugerð setja nánari ákvæði um framkvæmd, sem m.a. byggist á siðareglum Alþjóða- verzlunarráðsins um auglýsinga- starfsemi * 6) Ráðherra skipar fimm manna nefnd til fjögurra ára er gegni lykil- hlutverki í því að framfylgja ákvæð- um verðlagslaga og reglugerðar á grundvelli þeirra að því er varðar auglýsingar. Sama orkuverð án tHlits til búsetu fólks Tillaga Friðjóns Þórðarsonar (S-Vl) um jöfhun orkukostnaðar í landinu fékk góðar undirtektir í umræðu í Sameinuðu þingi í gær. Tillögugreinin er áskorun á ríkisstjórnina um að stefiia að því að allir landsmenn greiði sama orkuverð, óháð búsetu. Meðflutningsmenn eru aðrir þingmenn Vestlendinga. Friðjón Þórðarson (S-Vl) sagði að meginforsenda þess að fólk kysi framtíðarbúsetu í stijálbýli væri sú að næg atvinna væri til staðar og að fólk byggi við svipaða aðstöðu hvað snertir framfærslukostnað. Óhóflegur verðmunur raforku eftir búsetu valdi óviðunandi mun að þessu leyti. Þingmaðurinn las upp ýmsar ályktanir landsfunda stjórnmála- flokkanna, sem og ákvæði stjórnar- sáttmála ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonat-, um þetta efni. Ekki vantaði hin góðu orðin en á skorti mjög um efndirnar. Mál væri úr að bæta. Margir þingmenn tóku til máls og studdu allir tillöguna. Alexander Stefánsson (F-Vl) taldi misréttið, sem fram kæmi í orkuverði, mælast í u.þ.b. tveimur milljörðum króna. Hann sagði að viðunandi árangur til verðjöfnunar orkunnar næðist ekki nema að breyttum lögum um Lands- virkjun. UR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK - 19 ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfeng- is um helgina. 16 þeirra voru stöðvaðir í akstri, en þrír höfðu lent í umferðaróhöppum. - 6 umferðarslys urðu um helg- ina og tilkynnt var um 27 önnur umferðaróhöpp. Ökumaður meiddist í árekstri á gatnamótum Þingholtsstrætis og Amt- mannsstígs um miðjan dag á föstudag. Um miðjan dag á laug- ardag meiddist farþegi í árekstri á Reykjanesbraut gegnt Jarlinum. Síðar þann dag meiddust ökumað- ur og farþegi í árekstri í Vallar- ási. Um kvöldið meiddist ökumað- ur í árekstri á Sætúni. Á sunnu- dagsmorgun meiddust ökumaður og farþegi í árekstri á Miklubraut gegnt húsi nr. 50. Um miðjan dag á sunnudag slösuðust þrír í árekstri tveggja bifreiða á gatna- mótum Skógarsels og Miðskóga. - Ökuhraðinn eykst í kjölfar betra tíðarfars. 30 ökumenn voru irí'. i'i' i' i'. ii.'!'. . -i! ,.i't|: 'i kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina. Sá, eða öllu heldur sú, er stöðvuð var á hvað mestum hraða ók á 124 km/klst. á götu þar sem leyfður hámarkshraði er 70 km/klst. Þá voru allnokkrir ökumenn kærðir fyrir að virða ekki rauða ljósið á umferðarljósa- vitum. - A.m.k. 70 sinnum þurfti lög- reglan að hafa afskipti af ölvuðu fólki. 22 gistu fangageymslurnar, 12 á laugardagsnótt, 8 á sunnu- dagsnótt og 2 á mánudagsnótt. 5 þeirra voru færðir fyrir dómara að morgni og boðið að gera upp fyrri gerðir sínar á kr. 7.000- 10.000. Það voru þeir, sem höfðu haft uppi ókurteislegt athæfi á almannafæri, sýnt af sér miður góða hegðan og einn hafði haft uppi tilburði til þess að bíta starf- andi lögregluþjón. Stundum er ekki djúpt á dýrseðlinu í mann- skepnunni. Aðrir þeir, er nutu gistiaðstöðu fangageymslunnar, —-Hr---?—: ■ 11 i--------------r. voru þar vegna undanfarandi þjófnaða, innbrota, heimilisófrið- ar, slagsmála og skemmdarverka. Þeir voru færðir fyrir starfsmenn rannsóknadeilda og Rannsóknar- lögreglu ríkisins, og gert að gera þar nánar grein fyrir málum sínum. - 6 ökutæki voru fjarlægð með kranabifreið vegna hættulegrar stöðu þeirra og 13 eigendum ann- arra var gert að greiða gjald vegna annars konar ólöglegrar stöðu. - Lögreglan aðstoðaði 20 öku- menn við að komast inn í læstar bifreiðir sínar og 14 öðrum var veitt annars konar aðstoð í einni eða annarri mynd. 6 til viðbótar voru aðstoðaðir við að komast inn í læstar íbúðir sínar. Svo er að' sjá að eigendur bifreiða séu meira vakandi og læsi þeim í auknum mæli, enda ekki vanþörf á. Inn- brot og þjófnaðir úr bifreiðum hafa verið tíð frá áramótum, en nú er að sjá að dregið hafi úr tíðni þeirra. En ekki verður dregið úr slíkum þjófnuðum til frambúðar nema með dyggri aðstoð bifreiða- eigendanna sjálfra. Rétt er að minna á að auk þess sem nauðsyn- legt er að taka kveikjuláslykilinn og læsa bifreiðinni má ekki skilja þar vérðmæti eftir óvarin, s.s. veski, ávísanahefti, greiðslukort, persónuskilríki, töskur og a.þ.h. — 10 innbrot og 8 þjófnaðir voru tilkynnt til lögreglu um helg- ina. Brotist var inn í 5 fyrirtæki við Laugaveg, í íbúð við Kapla- skjólsveg, í íbúð við Ljósheima, í verslun við Kleifarsel, í verslun við Selásbraut, í verslun við Dal- braut, í verslun í Þverholti, í hár- greiðslustofu í Pósthússtræti, í bílasölu við Miklatorg og í vinn- uskúr við Skúlagötu. Bensíni og verkfærum var stolið úr bílskúr, símaborði og skóm úr vinnustofu í Asparfelli, tvisvar stolið pening- um og fatnaði úr skáp í sundlaug- unum í Laugardai, peningum og skilríkjum sjúklings á spítala og dekki af bíl við Suðurhóla. Þá voru fjórir staðnir að verki við hnupl í verslunum. Sérstök gæsla var við verslun ÁTVR í Kringl- unni. - Einu ökutæki var stolið. Það fannst skömmu síðar. - Eitt rán var framið. Það átti sér í Hafnarstræti aðfaranótt sunnudags. Tveir menn rændu þar mann veski sínu. Þessir sömu menn voru síðan handteknir í inn- broti síðar um nóttina. - 7 skemmdarverk voru framin á gæslusvæðinu og 5 rúðubrot. Úðað var úr slökkvitæki í stiga- gangi, garðljós var skemmt, skemmdir voru unnar á tveimur bifreiðum og á hurð. Nokkrir voru handteknir vegna skemmdarverk- anna. Rúður voru brotnar í húsi í Ingólfsstræti, í Hraunbæ, í Skip- holti og í Hafnarstræti. - Hald var lagt á bruggtæki í húsi á Seltjamarnesi. - Maður var fluttur á slysa- deild eftir slagsmál á Hallæris- planinu um kl. 4.00 á sunnudags- morgun. Þá var veist að manni á Hverfisgötu við Barónsstíg skömmu síðar. - Tilkynnt var um eld í húsi við Drafnarstíg. Þar hafði pottur gleymst á eldavél. - Talsverðu af óskilamunum var skilað á Lögreglustöðina um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.