Morgunblaðið - 10.04.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
Frá slysstaðnum við Skógarsel.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Þrennt slsasaðist
í hörðum árekstri
ÞRENNT var flutt á slysadeild
eftir árekstur tveggja bíla á
mótum Miðskóga og Skógarsels
laust fyrir klukkan tvö á sunnu-
dag.
Við áreksturinn kasataðist annar
bíllinn, Toyota, á ljósastaur og valt.
Allir sem í honum voru voru fluttir
á slysaseild. Ökumaðurinn er talinn
hafa verið undir áhrifum áfengis.
Bílarnir skemmdust báðir mikið.
Kaupmáttur launa minnk
aði um 9% á árinu 1989
KAUPMÁTTUR launa landverkafólks í Alþýðusambandi íslands
minnkaði um 9% frá 4. ársQórðungi 1988 til 4. ársQórðungs 1989,
að því er fram kemur í frétt frá Kjararannsóknanefnd. Á þessu tíma-
bili hækkaði greitt tímakaup að meðaltali um 13%, en framfærsluv-
ísitalan hækkaði um 24% á sama tímabili.
Vinnutími fólks í fullu starfi
styttist um hálfa klukkustund að
meðaltali á þessu tímabili og því
er kaupmáttarminnkunin aðeins
meiri ef litið er til hækkunar mánað-
artekna, heildarlauna með yfir-
vinnu, en þau rýrna um 10%. Ef
hins vegar er litið á meðalvinnutíma
á árinu öllu er hann nánast óbreytt-
ur milli ára.
Þegar allt árið 1989 er skoðað í
samanburði við árið 1988 í heild
kemur fram að greitt tímakaup
hækkaði um 13,6% að meðaltali.
Þar sem vinnutími var nánast
óbreyttur hækkuðu heildartekjur
um það sama. Vísitala framfærslu-
kostnaðar hækkaði um 21% milli
áranna og lækkaði kaupmáttur því
að meðaltali um 6%.
Launaþróun eínstakra stétta inn-
an ASÍ og heildarmánaðatekjur að
meðaltali á árinu 1989 voru sem
hér segir: Verkamenn voru með
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 10. APRIL
YFIRLIT í GÆR: Milli Jan Mayen og Noregs er 977 mb lægð á
leið norðaustur, en 1006 mb hæð yfir N-Grænlandi. Á vestanverðu
Grænlandshafi er 978 mb lægð á leið aust-norðaustur og verður
komin austur yfir land í fyrramálið.
SPÁ: Norðvestan kaldi eða stinningskaldi, él um norðanvert landið
en léttir til syðra. Lægir síðdegis, fyrst vestanlands, léttir einnig
til norðanlands undir kvöldið. Hiti um eða rétt undir frostmarki.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna,
fyrst vestanlands. Hlýnandi veður í bili, hiti víða 4 til 9 stig þegar
kemur fram á daginn.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðan- og síðar norðvestan átt og
kólnandi veður. Slyddu- og síöar snjóél um landið norðanvert en
léttir til syðra. Hiti nálægt frostmarki.
TAKN:
y' Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
-J0° Hitastig:
10 gráður á Celsius
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * V Él
Léttskýjað r r r r r r r Rigning = Þoka
r r r = Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 5 ? Súld
Skýjað r * r * Slydda r * r oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 léttskýjað Reykjavík 1 skýjað
Bergen 7 rigning
Helsinki 6 skýjað
Kaupmannah. 7 léttskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk +5 heiðskírt
Osló 11 hálfskýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshöfn 7 skúr
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 7 heiðskírt
Barcelona 14 mistur
Berlín 6 heiðskírt
Chicago 8 alskýjað
Feneyjar 10 alskýjað
Frankfurt 9 skýjað
Glasgow 8 rigning
Hamborg 7 léttskýjað
Las Palmas 19 skýjað
London 10 léttskýjað
LosAngeles 13 léttskýjað
Lúxemborg 8 hálfskýjað
Madríd 11 skýjað
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
New York 8 heiðskírt
Orlando 17 skýjað
París 10 léttskýjað
Róm 17 skýjað
Vín 8 skýjað
Washington 6 mlstur
Winnipeg +4 skýjað
89.357 krónur og kaupmáttur
þeirra rýrnaði um 6,2%, verkakonur
voru með 69.346 og rýrnaði kaup-
máttur þeirra um 9,1%, iðnaðar-
menn voru með 120.685 kr. og
kaupmáttur þeirra rýrnaði um 4,4%,
afgreiðslukarlar voru með 92,772
krónur og kaupmáttur þeirra
minnkaði um 7,1%, afgreiðslukonur
voru með 70.173 og kaupmáttur
þeirra íýrnaði um 8,1%, skrifstofu-
karlar voru með 119.699 krónur
og kaupmáttur þeirra minnkaði um
5,4% og skrifstofukonur voru með
80.002 og kaupmáttur þeirra
minnkaði um 5,8%.
Stjórnun fískveiða:
Gildistöku nýrra
lag*a verði frestað
- segir í ályktun frá FFSÍ
STJORN Farmanna- og fiskimannasmabands Islands hefur sent sjávar-
útvegsnefhd efri deildar Alþingis ályktun, þar sem studd er tillaga um
frestun gildisstöku laga um stjórnun fiskveiða til 1. september á næsta
ári. Jafnframt er lýst stuðningi við að Lagastofhun Háskólans fái frum-
vaij)ið til umsagnar.
Alyktun stjórnar FFSI var send
nefndinni í gær og er svo hljóðandi:
„Fundur stjórnar Farmanna- og
fiskimannasambands íslands, FFSI,
haldinn föstudaginn 6. apríl 1990
ályktar eftirfarandi um frumvarp til
laga um stjórnun fiskveiða:
Stjórn FFSÍ styður maálaleitan
níu alþingismanna til formanna sjáv-
anítvegsnefnda efri og neðri deilda
Alþingis, þess efnis að Lagastofnun
Háskóla Islands fái til umsagnar og
skili áliti um þau atriði í fyrrgreindu
frumvarpi, sem koma fram í bréfi
alþingismannanna 4. apríl sl.
Stjóm FFSÍ styður framkomna
munnlega tillögu Geirs Gunnarsson-
ar alþingismanns um að fresta gildi-
stöku væntanlegra nýrra laga um
stjórnun fiskveiða til 1. september
1991.“
Verð féll á fiskmark-
aðnum í Bremerhaven
FISKVERÐ lækkaði verulega á fiskmarkaðnum í Bremerhaven í gær,
en það varð mjög hátt í síðustu viku þrátt fyrir töluvert framboð.
Vegna verðlækkunarinnar var frestað um tvo klukkutíma uppboði á
65 tonnum af karfa úr Ottó N. Þorlákssyni. Ottó selur um 170 tonn í dag.
I síðustu viku voru seld um 1.800
tonn af karfa og ufsa á markaðnum
í Bremerhaven. Þrátt fyrir það var
verð mjög hátt, fór hæst í nálægt
180 krónur á kíló, en meðalverð upp
úr skipum var um 155 krónur fyrir
karfakílóið. í þessari viku er aðeins
fyrirhugað að selja um 700 tonn.
Vilhjáimur Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri Aflamiðlunar, segir að
Ottó hafi upphaflega átt að selja
aflann í dag, þriðjudag. Hins vegar
hafi verið ákveðið að selja 65 tonn
á mánudag og því magni skipað
upp. Við upphaf uppboðsins í gær-
morgun hafi strax komið Ijós, að lítið
var boðið í fiskinn og því ákveðið
að fresta uppboðinu um tvo tíma.
Ottó hefði verið með um 230 tonn
og yrði það, sem eftir væ'ri, selt í
dag, þriðjudag, eins og fyrirhugað
hefði verið.
Vilhjálmur segir að ekki sé offram-
boði um að kenna. Nú hafi verið
sent svipað magn inn á markaðinn
og fyrir páskana í fyrra, en þá hefðu
tvö skip sett sölumet. Skýringin á
verðlækkuninni væri fremur sú, að
fiskkaupendur hefðu keypt fiskinn
og dýru verði í síðustu viku og lo-
snuðu þeir ekki við þann fisk á verði,
sem dygði til að standa undir kaup-
verði og kostnaði. Því væru þeirtreg-
ir til kaupa nú.
Vélsleðaslys
við Neðra-
Apavatn
Selfossi.
TVÆR danskar stúlkur slösuðust
illa er þær misstu sljórn á vél-
sleða og óku á sumarbústað við
Neðra-Apavatn á laugardags-
kvöld.
Björgunarsveitarmenn frá Sel-
fossi sóttu stúlkurnar og fluttu þær
í sjúkrabíl sem ók með þær til
Reykjavíkur. Ófært var að staðnum
þar sem stúlkurnar voru og slæmt
skyggni.
— Sig. Jóns.
Arnarflug:
Leiguvél loks fengin
Arnarflug hefur nú fengið flugvél á leigu og segir Kristinn Sig-
tryggsson framkvæmdastjóri félagsins að áætlunarflug sé nú komið
í fastar skorður.
Leiguvélin er af gerðinni Boeing
727-200 og er hún leigð með áhöfn
vegna þess að flugmenn Arnarfiugs
hafa ekki þjálfun á slíkar vélar.
Verður vélin leigð út þennan mán-
uð, en þá á Arnarflug von á Boeing
737 vél á leigu til Iengri tíma.
Flugvélin er í eigu bandaríska
flugfélagsins Carnival Airlines, sem
er dótturfyrirtæki fyrirtækis að
nafni Carnival Cruises, sem að sögn
Kristins Sigtryggsonar skipuleggur
siglingar um Karabíska hafið. Flug-
vélin bilaði á leiðinni til landsins
og sgjnkaði því, en kom aðfaranótt
mánudags og fór í fyrsta áætlunar-
flug sitt fyrir Arnarflug í gærmorg-
un.
Flugleiðir hafa flutt farþega Am-
arflugs til og frá landinu frá því
félagið missti leiguvél í lok síðasta
mánaðar. Kristinn Sigtryggson
sagði að kostnaður Arnarflugs
vegna þeirra vandræða hefði verið
töiuverður, en það raskaði ekki
áætlunum um hlutafjáraukningu og
endurskipulagningu félagsins. i