Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
Vinningstölur laugardaginn
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 2.283.684
o Z. 4af5 2 198.155
3. 4af 5 98 6.975
4. 3af 5 4.318 369
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.956.886 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
VERÐSAMANBURÐUR A
JÓGÚRT FRÁ MS OG BAULU
Leiðbeinandi smásöluverð samkvæmt útgefnum verðlistum
MS ÓSKAJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 47 BAULUJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 47
BAULU ÚRVALSJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 52
MS EÐALJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 170 g Smásöluverð kr.: 47
MS SUNNUDAGSJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk og rjóma Magn 180 g Smásöluverð kr.: 52
MS SKÓLAJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 150 g Smásöluverð kr.: 42 BAULU BROS Framleidd úr nýmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 49 (Lækkað úr kr. 52 27/3 90)
MS LÉTTJÓGÚRT Framleidd úr léttmjólk Magn 180 g Smásöluverð kr.: 42 BAULU TRIMMJÓGÚRT Framleidd úr undanrennu Magn 180 g Smásöluverð kr.: 52
MS ÓSKAJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 500 g Smásöluverð kr.: 106 BAULUJÓGÚRT Framleidd úr nýmjólk Magn 500 g Smásöluverð kr.: 106
MS LÉTTJÓGÚRT (femur) Framleidd úr léttmjólk Magn 500 g Smásöluverð kr.: 91
MS SÝRÐUR RJÓMI18% Magn 200 g Smásöluverð kr. r 133 (150 g kr. 100) BAULU SÝRÐUR RJÓMI 18% Magn 150 g Smásöluverð kr.: 109
Dýpkunarskipið Perla að dæla sandi á land í Hafiiarhöfn.
Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson
Hornaflarðarós grynnkar
Höfn.
MIKLAR breytingar hafa átt sér stað undanfarnar vikur í Horna-
fjarðarósi. Samspil náttúrunnar í legi og lofti hefur valdið því að
stórt skarð hefur myndast vestan við Hvanney svo sjór streymir þar
um og ber mikið magn af sandi og möl inn í ósinn þannig að hann
hefur grynnkað að mun.
Árangurinn hefur verið það mik-
ill að nánast hefur grafið frá vita
á Suðurfjörutanga en hann lagðist
á hliðina við svipaðar kringumstæð-
ur árið 1948. Dýpkunarskipið Perla
hefur verið við dælingar í Horna-
firði frá því í febrúar. Skipið hefur
undanfarið dælt nokkrum förmum
að svæðinu umhverfis vitann og í
„nýja ósinn“.
Ástandið er það alvarlegt um
þessar mundir að stærri skip og
togarar hafa ekki komist inn til
Hafnar. Síðustu daga hefur því tals-
vert af afurðum verið ekið á Djúpa-
vog í skip þar. Þetta er ástand er
öllum hér áhyggjuefni og fyrir
skemmstu samþykkti bæjarstjórn
Hafnar að beita sér fyrri ráðstefnu
um náttúru Hafnar, með sérstöku
tilliti til þátta er áhrif hafa á innsigl-
inguna og aðra hafnaraðstöðu. Ráð-
gert er að sú ráðstefna fari fram
8. og 9. júní í sumar.
- JGG
Norrænu sjónvarpsstöðvarnar:
Vikivaki frumfluttur sam-
tímis í öllum stöðvunum
FYRSTA íslenska sjónvarpsóper-
an, Vikivaki eftir Atla Heimi
Sveinsson tónskáld, verður frum-
flutt á föstudaginn langa í öllum
norrænu sjónvarpsstöðvunum,
nema í Svíþjóð, þar sem hún
verður sýnd annan dag páska.
Thor Vilhjálmsson samdi óperu-
textann og byggir á samnefiidri
skáldsögu eftir Gunnar Gunnars-
son. Vikivaki er jafnframt fyrsta
ópera fyrir sjónvarp, sem allar
Norðurlandaþjóðirnar standa
saman að og láta semja fyrir sig.
í frétt frá Sjónvarpinu segir að
aðdragandi að þessari óperu sé orð-
inn langur. Fyrst hafi ætlunin verið
að útbúa fyrir sjónvarp óperu Atla
Heimis, Silkitrommuna, sem vakti (
mikla athygli fyrir nokkrum árum,
meðal annars á leiklistarhátíð í
Caracas. Úr varð þó að skapa frem-
ur nýtt verk og varð fyrir valinu
saga Gunnars Gunnarssonar, Viki-
vaki, sem samin var 1932. Þar seg-
ir frá rithöfundi sem býr í voldugu
húsi á afskekktum stað, þangað
sem samgöngur eru ógreiðar nema
fljúgandi. Hins vegar eiga svipir
fortíðar greiðari aðgang að honum,
fulltrúar lands og þjóðar frá ýmsum
öldum. Sagan er uppgjör og þroska-
saga heimsborgara, sem er að festa
sig í eigin mold og sögu.
Norrænt listafólk frá öllum Norð-
urlöndunum tekur þátt í flutningn-
um. Finninn Hannu Heikinheimo
er leikstjóri, Gunnilla Jensen frá
Svíþjóð er leiklistarráðunautur og <
Sinfóníuhljómsveit danska útvarps- '*
ins leikur undir stjóm Petri Sakari,
hins finnska aðalhijómsveitarstjóra .
Sinfóníuhljómsveitar íslands. "
Islenskir og finnskir söngvarar
syngja hlutverkin, en íslenskir leik-
arar sjást í myndinni. Aðalhlutyerk-
ið, skáldið Jaka Sonarson, syngur
Kristinn Sigmundsson, en Helgi
Skúlason leikur skáldið. Meðal
söngvaranna eru Signý Sæmunds-
dóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Guðmunda
Elíasdóttir, Viðar Gunnarsson, Eið-
ur Gunnarsson, Garðar Cortes,
Gunnar Guðbjörnsson og Sigurður
Björnsson og meðal leikara eru
Bríet Héðinsdóttir, Borgar Garðars-
son, Róbert Arnfinnsson, Margrét
Ákadóttir, Pétur Einarsson, Hanna
María Karlsdóttir og Þröstur Leó (■
Gunnarsson.
Georg Sikov sá um leikmynd,
aðstoðarleikstjóri var Borgar Garð- |
arsson, búninga og förðun sá
norska sjónvarpið um. Tónlistin var
tekin upp í Kaupmannahöfn síðast- |
liðið vor, en myndefnið á íslandi,
að mestu við Geysi síðastliðið haust.
Framleiðslustjóri var Hrafn Gunn-
laugsson. _
Tillaga í borgarsljórn:
Möguleikar á frí-
verslunarhöfti í
Reykjavík kannaðir
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur vísaði á fimmtudaginn til hafii-
arsljórnar tillögu um að möguleikar á því að koma upp um-
skipunar- og fríverslunarhöfn í Reykjavík verði kannaðir.
Flutningsmaður tillögunnar var Sigrún Magnúsdóttir, borgar-
fúlltrúi Framsóknarflokksins.
í greinargerð með tillögunni
segir Sigrún, að hinar miklu
pólitísku breytingar í ríkjum
Austur-Evrópu og Sovétríkjunum
muni að líkindum leiða til stórauk-
inna viðskipta þeirra við Vestur-
Evrópu og Ameríku, en það gæti
leitt til aukningar á vöruflutning-
um um norðurhöf. Jafnframt valdi
breytt tækni því að siglingar um
Norður-íshaf séu orðnar mögu-
leikar í ríkari mæli en áður og
leiðin um það liggi vel við sigling-
um milli austurstrandar Ameríku
og Japans. Umskipunar- og
fríverslunarhöfn í Reykjavík sé í
þeirri þjóðbraut, sem við það
myndist og þar sem þörf sé á
þróttmiklu og fjölbreyttu atvinn-
ulífi í borginni sé eðlilegt, að
kannað verði hvort rétt sé að gera
hér umskipunar- og fríverslunar-
höfn.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður hafnarstjórnar og vara-
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, sagði að rétt væri að borgar-
yfirvöld héldu vöku sinni varðandi
þetta mál og lagði til að tillögu
Sigrúnar yrði vísað til hafnar-
stjórnar. Jóna Gróa Sigurðardótt-
ir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og formaður atvinnu-
málanefndar borgarinnar, sagði
að auðvitað yrðu íslendingar að
fylgjast vel með þeirri þróun, sem
ætti sér stað í flutningum á sjó í
norðurhöfum og borgaryfirvöld-
um bæri skylda til að huga að
málinu. Árni Sigfússon, Sjálf-
stæðisflokki, sagði þetta mál snú-
ast annars vegar um könnun á
nýjum möguleikum í atvinnumál-
um og hins vegar um skattamál.
Nauðsynlegt væri að draga úr
skattheimtu á varning við umskip-
un.
Tillaga Guðmundar um að vísa
málinu til hafnarstjórnar var sam-
þykkt samhljóða.