Morgunblaðið - 10.04.1990, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990
23
Verðum að rétta úr kútnum
- segir Jón Ingvarsson, formaður stjórnar SH
„ÞÆR eru að mínu mati fáheyrðar, hugmyndir embættismanna og
forystumanna þjóðarinnar um að hækkanir á sjávarafurðum erlendis
bæti svo mjög stöðu fiskvinnslufyrirtækjanna að nauðsynlegt sé að
hækka gengi krónunnar eða láta þau greiða í Verðjöfhunarsjóð til að
bægja frá þenslu í þjóðfélaginu. Staðreyndin er sú að þessar hækkanir
gera ekki meira, í bezta falfi, en vinna upp tekjurýrnun í árslok og
vega upp á móti öðrum kostnaðarauka," segir Jón Ingvarsson, formað-
ur stjórnar SH, í samtali við Morgunblaðið.
Mál þessi voru rædd á stjórnar-
fundi SH í þessari viku og segir Jón
að tekjur vinnslunnar hafi rýrnað
verulega í árslok, þegar niður féllu
verðbætur úr Verðjöfnunarsjóði og
endurgreiðsla á söluskatti. Þá leiði
upptaka virðisaukaskatts til aukinn-
ar flárbindingar í fiskvinnslunni.
„Fyrirsjáanlegur samdráttur í
frystingu á þessu ári verður vart
minni en 8 til 10%. Mikill taprekstur
undanfarinna ára hefur dregið mjög
úr samkeppnishæfni innlendrar fisk-
vinnslu. Það er því nauðsynlegt að
hagnaður verði af rekstrinum svo
fyrirtækin geti staðið af sér aukna
samkeppni um hráefnið og fengið
að rétta úr kútnum.
Þá virðast menn alveg leiða hjá
sér að tapreksturinn hefur leitt til
skuldasöfnunar og skuldbreyting sú,
sem framkvæmd var á síðasta ári í
kjölfar langvarandi rekstrarhalla,
hefur í för með sér mikla greiðslu-
byrði á komandi árum. Það vantar
mikið á að tekið sé tillit til áhrifa
þessa þáttar og þeirra, sem ég hef
áður nefnt í opinberri umræðu um
afkomumál," segir Jón Ingvarsson.
Fiskvinnsla í Þorlákshöfn.
IsaQarðardjúp og
Arnarflörður:
Góð rækju-
veiði og bjart-
sýni með
næstu vertíð
„RÆKJUVEIÐAR í ísafjarðar-
djúpi og Arnarfirði hafa gengið
Ijómandi vel í vetur og búist er
við að næsta vertíð verði einnig
góð,“ sagði Guðmundur Skúli
Bragason, útibússtjóri Hafrann-
sóknastofnunar á Isafirði, í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann sagði
að rækjukvóti í ísafjaröardjúpi
hefði verið aukinn úr 1.500 tonn-
um í 1.800 tonn á þessari vertíð
en kvótinn var 1.100 tonn á síðustu
vertíð. Rækjukvótinn í Arnarfirði
var aukinn úr 500 í 650 tonn í
vetur en hann var 600 tonn á
síðustu vertíð.
Guðmundur Skúli sagði að stunda
mætti rækjuveiðar í Isafjarðardjúpi
til næstu mánaðamóta en flestir
væru nú þegar búnir með rækju-
kvóta sína. Hins vegar hefði rækju-
veiðum í Arnarfirði lokið um miðjan
síðasta mánuð. Hann sagði að ákveð-
ið yrði í júní næstkomandi hversu
mikið mætti veiða af rækju í ísafjarð-
ardjúpi á næstu vertíð.
„Uppistaðan í Isafjarðardjúpi á
þessari vertíð er tveggja ára gömul
rækja, sem er til þess að gera smá,
en þessi árgáng'ur er mjög sterkur í
ísafjarðardjúpi, Arnarfirði og úthaf-
inu og við búumst _við miklu af hon-
um á næstu vertíð. í Arnarfirði veidd-
ist hins vegar einnig fjögurra og
fimm ára gömul rækja í vetur,“ sagði
Guðmundur Skúli Bragason.
Fyrst hótela í Reykjavík
fyrir Reykvíkinga og nágranna
Við fögnum nýju vori með nýrri stefnu og bjóðum Reykvíkinga
og nágranna velkomna í hóp hótelgesta.
Lokaorð
Það er ekki einleikið hve góður
ásetningur um jafnaðarmennsku
snýst oft í andhverfu sína. Hagkerfi
heilla þjóða eru hrunin af þeim sök-
um. Miklu varðar að menn bíti sig
ekki fasta í vaxtaleysi námslána
heldur skoði hvernig ná megi mark-
miðum LÍN með samsetningu styrkja
og lána fyrir þá aðstoð sem þjóðfé-
lagið lætur námsmönnum í té.
Hér er ekki verið að draga úr
þeirri aðstoð, enda auðvelt að sýna
fram á að greiðslubyrði af námslán-
um með markaðsvöxtum og án
styrkja yrði flestum námsmönnum
ofviða. Hér er hins vegar bent á
breytt og skilvirkt námslánakerfi
sem bæði námsmenn og skattgreið-
endur ættu að telja snöggtum betra
en það sem nú er.
Grein þessi er reist á vinnu starfs-
hóps sem fyrrverandi mennta-
málaráðherra, Birgir ísleifur
Gunnarsson, fól að undirbúa tillög-
ur til endurskoðunar á reglum og
lögum um námslán og námskostn-
að. I starfshópnum voru auk grein-
arhöfundar Finnur Ingólfsson, að-
stoðarmaður ráðherra, og dr. Jón
Bragi Bjarnason, prófessor. Guð-
mundur Ólafsson, hagfræðingur,
aðstoðaði við gagnaöflun og út-
reikninga.
Greinarhöfundur er prófessor i
viðskipta: og hagfræiiideild
Háskóla íslands.
Apríl, og þá sérstaklega páskavikan, verða tileinkuð ykkur
á Hótel Loftleiðum. Af því tilefhi bjóðum við sérstök vor-
kjör á eins og tveggja manna herbergjum með morgun-
verði. Endumýjaðir veitingastaðir okkar munu skarta sínu
besta í apríl og öll þjónusta hótelsins, ss. sundlaugin,
nuddpotturinn, gufubaðið og Ijósalampinn standa ykkur til
boða alla páskadagana jafnt og aðra daga.
Hvort sem þið viljið njóta einveru eða samvista við ykkar
nánustu munum við reyna að gera ykkur dvölina jafh
ánægjulega og okkur er unnt
Hótel Loftieiðir - hótel allra landsmanna.
Ykkar dagur á Hótel Loftleiðum gæti orðið með ýmsum
hætti: Dagur víns og rósa, dagur dýrðlegra máltíða, dagur
hvíldar og heilsubótar, allt í senn, en fyrst og fremst dag-
urinn ykkar.
Möguleikamir em margir. Öskjuhlíðin, einn rómantískasti
staður í allri Reykjavík, býður upp á matgbreytilegar
skokk- og gönguleiðir auk útsýnis til allra átta. Hægt er að
taka lífinu með ró á hótelinu, líta í blöð og tímarít í Koní-
aksstofunni og blanda geði við aðra hótelgesti eða notfæra
sér heilsuaðstöðuna með öllu sem henni tilheyrír. Einnig er
sjátfsagt að nota tækifærið og bregða sér í hársnyrtingu eða
á nýju snyrtistofu hótelsins.
Af Ijúfu tilefni
“Dagamunur“
Sérstakt vortilboð á kr. 8.900.- fyrír hjónin.
Gisting eina nótt fyrir tvo. Óvæntur glaðningur við komu
á herbergið. Aðgangur í sund, gufubað, nuddpott og Ijós.
Fordrykkur í Koníaksstofu. Fjórréttuð máltíð í Blómasal,
það besta frá matreiðslumeistara hverju sinni. Morgun-
verður daginn eftir í Lóninu. Efþið hafið einhverjar sérósk-
ir munum við uppfýlla þær eftir bestu getu. Vissara er að
panta Dagamun, og þjónustu eins og hársnyrtingu og
snyrtingu, með nokkmm fýrirvara.
Síminn okkar er 91-22322.
FLUGLEIÐIR
MIKLU MEIRA EN COTT HÓTEL
AUK/SlA k321-8