Morgunblaðið - 10.04.1990, Page 24

Morgunblaðið - 10.04.1990, Page 24
(«<* ■ jih'ía .01 flUi')»(ní.iifl<,i 24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990 Prófkjör Nýs vettvangs í Reykjavík Ólína Þorvarðardótt ir hlaut fyrsta sætið ÓLÍNA Þorvarðardóttir dagskrárgerðarmaður hlaut 1. sætið í prófkjöri Nýs vettvangs fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. I 2. sæti varð Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfulltrúi og í 3. sæti Bjarni P. Magnússon borgarfúlltrúi. Alls tóku 2.130 þátt í prófkjör- inu en 2.020 atkvæði voru gildi. Ólína Þorvarðardóttir fékk 501 atkvæði í 1. sætið og 1.526 at- kvæði alls í 1.-8. sætið. Kristín Á. Ólafsdóttir fékk 881 í 1.-2. sætið, þar af 471 atkvæði í 1. sætið, og 1.552 atkvæði alls. Bjarni P. Magnússon fékk 784 atkvæði í 1.-3. sæti, þar af 404 atkvæði í 1. sætið, og 1.137 at- kvæði alls. Guðrún Jónsdóttir arkítekt fékk 702 atkvæði í 1.-4. sætið og 1.061 atkvæði alls. Hrafn Jökulsson rithöfundur fékk 809 atkvæði í 1.-5. sæti og 1.122 atkvæði alls. Ásgeir Hannes Eiríksson alþingismaður fékk 624 atkvæði í 1.-6. sæti og 709 atkvæði alls. Gísli Helgason tón- listarmaður fékk 710 atkvæði í 1.-7. sæti og 792 atkvæði alls. Og Aðalsteinn Hallsson félags- málafulltrúi fékk 558 atkvæði í fyrstu átta sætin. Kosning í fyrstu 8 sætin var bindandi og þeir frambjóðendur mynda nú uppstillingarnefnd ásamt fulltrú- um þeirra flokka og samtaka sem standa að framboði Nýs vett- vangs og raða í sætin sem eftir eru. Atkvæðatala annara fram- bjóðenda var þessi: Kristín Dýr- fjörð 540, Reynir Ingibjartsson 462, Gylfi Þ. Gíslason 459, Egill Helgason 423, Hörður Svavars- son 417, Hlín Daníelsdóttir 416, Gunnar H. Gunnarsson 412, Skjöldur Þorgrímsson 405, Bjöm Einarsson 359, Kristín B. Jó- hannsdóttir 318, Kristrún Guð- mundsdóttir 291, Margrét Har- aldsdóttir 280, Ámundi Ámunda- son 269, Jón Baldur Lorange 265, Guðmunda Helgadóttir 255. Alls greiddu 2.130 manns at- kvæði í prófkjörinu. Að prófkjöri Nýs vettvaogs stóðu Fulltrúaráð alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík, Samtök um nýjan vettvang, Reykjavíkurfélagið og ÆFR, félag ungra alþýðubanda- lagsmanna. Fyrir síðustu borgar- stjómarkosningar í Reykjavík tóku 2.048 manns þátt í próf- kjöri Alþýðuflokksins og 877 tóku þátt í forvali Alþýðubanda- lagsins. Á kjörskrá í Reykjavík fyrir borgarastjómarkosningam- ar era 71.325. Er mun bjartsýnni á árangnr Nýs vett- vangs eftir prófkjör - segir Olína Þorvarðardóttir ÓLÍNA Þorvarðardóttir, sem hlaut 1. sætið í prófkjöri Nýs vett- vangs í Reykjavík, segist vera mun bjartsýnni, eftir prófkjörið, um árangur framboðsins. Áður hafí gert ráð fyrir að Nýr vett- vangur ætti möguleika á þremur borgarfúlltrúum en nú séu fleiri fúlltrúar í sjónmáli. „Ég er mjög ánægð með þessi úrslit og þennan framboðslista. Hann er mjög frambærilegur og sýnir mikla breidd og víða skírskotun," sagði Ólína við Morgunblaðið. Hún sagði að eftir góða þátt- töku í prófkjörinu og niðurstöðu þess, gæti bókstaflega allt gerst í kosningabaráttunni. „Fyrir prófkjörið þóttist ég ömgg um að við fengjum að minnsta kosti 3 fulltrúa, en nú sé ég að allt getur gerst og fleiri em í sjón- máli,“ sagði Olína. Þegar hún var spurð hvort hún mæti það góða þátttöku í próf- kjöri að 2.130 manns kusu, sem er svipað og tók þátt í prófkjöri Alþýðuflokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar, sagði hún það ekki vera sambærilegt. „Fólk sem tók þátt í þessu prófkjöri var að ijúfa sig út úr flokkamynstrinu og taka þátt í að kjósa nýtt afl sem er að vakna. Nýr vettvangur er aðeins 3 vikna gamalt fóstur. Mér finnst þetta því mjög góð þátttaka og jafnvel betri en ég hafði gert mér vonir um,“ sagði Ólína. Um sína kosningu í 1. sætið sagðist Ólína einnig vera ánægð, en hún hlaut 501 atkvæði í það Ólína Þorvarðardóttir. sæti, 30 atkvæðum meira en Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfull- trúi. „Ég vissi alltaf að þetta yrði tvísýnt og það hversu litlu munaði á okkur KriStínu styrkir Iistann að mínu mati.“ Ólína sagði kosningabáráttuna fyrir prófkjörið hafa verið mjög skemmtilega. „ Vikumar fram- undan leggjast vel í mig og ég á von á spennandi kosninganótt,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir. Prófkjör á Seltjarnarnesi; Fjórar konur efstar SIV Friðleifsdóttir sjúkraþjálfari hlaut efsta sætið í prófkjöri Nýs afls á Seltjarnarnesi um helgina. I öðru sæti varð Guðrún K. Þorbergsdóttir framþvæmdastjóri , i 3. sæti Katrín Pálsdótt- ir hjúkrunarfræðingur og í 4. sæti Anna Katrín Jónsdóttir nemi. Siv Friðleifsdóttir fékk 112 atkvæði í 1. sætið og 284 at- kvæði alls. Guðrún. K. Þorbergs- dóttir fékk 135 atkvæði í 1.-2. sæti, þar af 96 í 1. sætið og 231 atkvæði alls. Katrín Pálsdóttir fékk 174 atkvæði í sæti 1-3, þar af 50 í 1. sætið, og 318 atkvæði alls. Anna Katrín Jónsdóttir fékk 157 atkvæði í fyrstu fjögur sætin og 248 atkvæði alls. I fimmta sæti varð Sverrir Ólafsson raf- magnsverkfræðingur, með 195 atkvæði í sæti 1-5 og 223 at- kvæði alls, Amþór Helgason deildarstjóri fékk 239 atkvæði í fyrstu 6 sætin og Björn Her- mannsson fræðslufulltrúi fékk 205 atkvæði í fyrstu 6 sætin. Alls tók 451 þátt í prófkjörinu og að sögn Stefáns Bergmanns í prófkjörsnefnd var það ívið meiri þátttaka en búist var við. Kosning var bindandi í fyrstu 3 sætin en valið verður í önnur sæti. Að Nýju afli standa öll stjórn- málasamtök á Seltjamamesi nema Sjálfstæðisflokkurinn og verður stofnað formlega bæjar- málafélag um framboðið eftir páska. Sjö fulltrúar sitja í bæjar- stjórn, og á Sjálfstæðisflokkur Siv Friðleifsdóttir varð í efsta sæti í prófkjöri Nýs afls á Selt,- jarnarnesi. nú 4, Alþýðubandalag 2 og Fram- sóknarflokkur 1. Á kjörskrá á Seltjamarnesi eru 2.944. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Friðrik H. Reynisson frá Hornafirði með hestinn Ós frá Álftárósi var sigurvegari að þessu sinni. Skeifukeppnin á Hvanneyri; Glímt við tripp- in í vitlausu veðri __________Hestar______________ Valdimar Kristinsson TAMNINGAMENN í hópi nem- enda Bændaskólans á Hvanneyri máttu gera sér að góðu að leiða trippi sín fyrir dómnefiid Skeifu- keppninnar í úrhellisrigningu og roki á sunnudaginn. Þrátt fyrir slæmt veður og óvenju stuttan tamningartíma virtust mörg trippin koma þokkalega fyrir. Skeifudagurinn var haldinn hálf- um mánuði fyrr en venja hefiir verið. Sigur að þessu sinni hafði Friðrik H. Reynisson frá Hornafirði, sem var með hestinn Ós frá Álftárósi undan Leisti 960 frá Álftagerði, með 83 stig, í öðra sæti varð Sigurður Símonarson frá Vík í Mýrdal með 81 stig, en hann var á hryssunni Hvönn frá Suður-Fossi sem er undan Náttfara 776 og Gulldrottningu frá Suður-Fossi. Þess má geta að Sig- urður kom næstur inn á eftir Frið- riki, en í þann mund sem hann er að hefja sýninguna versnaði veðrið til muna og kann það að hafa haft áhrif á úrslitin. í þriðja sæti varð svo Ásdís Helga Bjarnadóttir frá Hvanneyri með 79 stig. Ásdís Helga keppti á Guffa frá-Hvanneyri sem er undan Hlyn 910 frá Hvanneyri og Rauðku frá Hvanneyri. Ásetu- verðlaun Félags tamningamanna hlaut Hörður Guðmundsson frá Grindavík, en hann varð fjórði í skeifukeppninni. Hörður keppti á Þokka frá Búðarhóli sem er undan Boða frá Kjarnholtum og Grásu. Eiðfaxabikarinn, sem veittur er þeim nemanda sem hirðir hest sinn best, hlaut Svanborg Þ. Einarsdóttir frá Lambeyrum. Hún var með hestinn Glám frá Hjarðarhaga undan Feyki 962 frá Hafsteinsstöðum og Brún- stjörnu frá Hjarðarhaga. Þess má til gamans geta að í fyrra hlaut systir Svanborgar, Ólöf Björg, Eið- faxabikarinn svo nú munu vera til tveir slíkir á Lambeyrum. í gæðingakeppninni sigraði í A-flokki Glaumur frá Norður-Fossi, eigendur Jón Björnsson og Guðlaug- ur V. Antónsson sem sat hestinn. í öðra sæti varð Komma frá Egilsstöð- um í eigu Ingimars Sveinssonar sem sat hryssuna. I þriðjá sæti varð Blakkur frá Presthúsum, eigendur Edda Þorvaldsdóttir og Guðlaugur V. Antonsson sem sat hestinn. í B-flokki sigraði Töggur frá Ey- jólfsstöðum, eigandi og knapi Ingi- mar Sveinsson. í öðra sæti Ópall frá Hvanneyri, eigandi og knapi Hallg- rímur Sveinsson. í þriðja sæti Vaka frá Vík í Mýrdal, eigendur Anton Guðlaugsson og Guðlaugur Antons- son sem sat hestinn. Að lokinni verðlaunafhendingu færðu nemendur Ingimar Sveinssyni kennara gjafir fyrir góða aðstoð við tamningarnar í vetur. Skoðanakönnun DY: Um 50% aðspurðra tóku ekki afstöðu ALÞÝÐUFLOKKUR og Kvennalistinn hafa aukið við fylgi sitt frá síðustu skoðanakönnun, fylgi Alþýðubandalags og Framsóknar- flokks hefúr nokkurn veginn staðið í stað og heldur hefúr dregið úr fylgi Sjálfstæðisflokks, ef marka niá niðurstöður sköðanakönnun- ar DV, sem blaðið birti í gær. Þar kemur einnig fram að ríkissljórn- in hefúr aukið fylgi frá síðustu könnun, en hefúr samt minna fylgi en mælst hefúr hjá annarri ríkisstjórn í skoðanakönnunum. 39,3% sögðust óákveðnir í könnuninni og 10,8% aðspurðra svöruðu ekki. Samtals tóku því 50,1% ekki afstöðu. í úrtakinu voru 600 manns og var jöfn skipting milli kynja og landsbyggðar og höfuðborgarsvæð- is. Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu er fylgi flokkanna, samkvæmt skoðanakönnun DV, eftirfarandi (úrslit síðustu kosninga innan sviga): Alþýðuflokkur 9,4% (15,2%), Framsóknarflokkur 19,7% (18,9%), Sjálfstæðisflokkur 50,5% (27,2%), Alþýðubandalag 8,0% (13,3%), Stefán Valgeirsson 0,3% (1,2%), Flokkur mannsins 0,3% (1,6%), Borgaraflokkur 0,3% (10,9%), Kvennalistinn 10,7% (10,1%), Þjóðarflokkur 0,7% (1,3%). Ékkert fylgi frjálslyndra hægri manna mældist. Samkvæmt DV er fylgi ríkis- stjórnarinnar 37,6%. í síðustu skoð- anakönnun blaðsins, í janúar, var fylgi stjórnarinnar 32,6%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.