Morgunblaðið - 10.04.1990, Side 29
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
29
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Eitur og dauði
Eiturlyf eru eitt helsta vanda-
mál sem mörg ríki eiga við
að glíma. íslendingar hafa að
mestu verið lausir við þann vanda
sem eiturlyf hafa í för með sér,
með tilheyrandi ofbeldi og glæp-
um. Að undanförnu hefur þó
mátt merkja breytingar á þessu
sviði og valda áhyggjum.
Hákon Siguijónsson, rann-
sóknarlögreglumaður í fíkniefna-
deild lögreglunnar, sagði í viðtali
um eiturvandann sem birtist í
Morgunblaðinu síðastliðinn
sunnudag, að breyting hefði orðið
á fíkniefnavandanum hér á landi:
„Nú er meira framboð af ýmsum
efnum en áður og harðari efni
fara vaxandi. Þar á ég við hvítu
efnin, kókaín og amfetamín. Ekki
hefur verið minna um kannabis-
efni og hörðu efnin eru því hrein
viðbót.“ Hákon bendir á að her-
óín sé ekki til hér á landi og að
sömu sögu sé að segja um krakk,
en það er eitt hættulegasta eitrið
á strætum stórborga í Banda-
ríkjunum: „Hins vegar er engin
ástæða til að ætla að krakkið
berist ekki hingað, því þau efni,
sem eru á markaði í útlöndum,
berast hingað í auknum mæli.“
í viðtalinu segist Hákon vonast
til að fíkniefnalögreglan þurfi
ekki að ganga um vopnuð:
„Raunin hefur þó verið sú, að
ýmsir siðir í þessum efnum ber-
ast til Islands 10-15 árum síðar
en til nágrannalandanna og
vopnaburður fólks þarf ekki að.
koma á óvart, því sá tími er kom-
inn.“ Þessi orð rannsóknarlög-
reglumannsins sem gerþekkir
íslenskan eiturmarkað eru ugg-
vænleg og hljóta að vekja stjórn-
málamenn en þó ekki síður for-
eldra til umhugsunar. Sameigin-
legt átak skóla, foreldra, fjöl-
miðla og lögreglu er vænlegasta
leiðin í baráttu við ógnvald sem
ógnar fyrst og fremst ungu fólki.
í opinberum skrám er aðeins
eitt dauðsf-all rakið til ofneyslu
fíkniefna. Hákon Siguijónsson
bendir hins vegar á í áðumefndu
viðtali að þetta gefí villandi mynd
af ástandinu. „Af þeim, sem hafa
komið við sögu hjá okkur, fellur
alltaf ákveðinn fjöldi frá á ári
hveiju. Þegar dánarorsakir eru
kannaðar kemur ýmislegt í ljós,
svo sem hjartaáfall, heilablóðfall,
köfnun, sjálfsvíg, fólk verður úti,
ferst í umferðarslysum, bíður
bana í átökum og svo má lengi
telja. Margt af þessu má rekja
til neyslu fíkniefna. A tíu ára
tímabili hafa 57 þeirra, sem voru
á skrá hjá okkur, látist."
Af þessu sést hve hættuleg
eiturlyf eru og þá ekki síst fyrir
ungt fólk, en meðalaldur þessara
57 einstaklinga sem Hákon getur
um var aðeins 29 ár. Hitt er að
fíkniefni eru ekki eina eitrið sem
stefnir heilsu og lífi manna í
hættu. Morgunblaðið greindi frá
því í síðustu viku að Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin, WHO, telji
að 500 milljónir manna muni
deyja af völdum reykinga á næstu
25 árum, þar af 200 milljónir
manna undir tvítugu. Sérfræð-
ingar stofnunarinnar telja að um
næstu aldamót muni reykingar
verða fleirum að bana en nokkur
annar skaðvaldur. Þessar ógn-
vænlegu upplýsingar Ieiða hug-
ann að því hvaða siðferðilegan
rétt ríkisvaldið hafi til að selja
tóbak og gera það að gróðalind
fyrir hálftóman ríkiskassa. Á
sama tíma og við reynum að beij-
ast \að fíkniefni leggur ríkisvaldið
blessun sína yfir mesta ógnvald-
inn, — tóbakið. Hvaða rök geta
legið til grundvallar því að banna
eiturlyf á sama tíma og ríkisvald-
ið hefur beinan fjárhagslegan
hag af því að selja tóbak? Sú tíð
getur komið að skaðsemi tóbaks
kosti þjóðina meira í beinhörðum
peningum vegna sjúkdóma og
heilsugæslu en nettóhagnaður af
sölunni er. Heilbrigðiskerfið þolir
ekki meira álag en nú er. Að
minnsta kosti eru auglýsingar og
önnur upplýsingastarfsemi um
skaðsemi reykinga einhver besta
fjárfesting sem til er, svo að ekki
sé talað um heilsuna.
Barnaheill
Samhjálp hefur verið íslend-
ingum í blóð borin eins og
fjölmörg líknarfélög bera vitni
um. Einstaklingar hafa oft tekið
höndum saman og lyft Grettis-
taki.
Síðari hluta liðins árs voru
samtökin Barnaheill stofnuð með
það að markmiði að bæta hag
íslenskra barna og fjölskyldna
þeirra og hafa áhrif á viðhorf til
þeirra.
Börn búa við misjafnar að-
stæður hér á landi eins og víða
í nágrannalöndum okkar. Það
hlýtur að vera markmið allra
þjóðfélaga að búa þannig að
börnum að þau fái að vaxa úr
grasi og þroskast við sem bestar
aðstæður, því framtíð hverrar
þjóðar er í börnunum. Það er
ekki síst þess vegna sem það er
ánægjulegt að einstaklingar skuli
hafa tekið höndum saman í þeim
tilgangi að rétta þeim börnum
hjálpa''hónd sem eiga undir högg
að sækja. Fijals félagasamtök og
framlag einstaklinga eru mikil-
vægur skerfur til líknar- og heil-
brigðismála og ætti fremur að
auka slíka starfsemi en draga úr
henni. Barnaheill er mikilvægt
lóð á þá vogarskál.
ELDSVOÐAR í SCANDINAVIAN STAR OG NORRÆNU
Sáum fólkið klifra niður
reipi og leiðara í bátana
- segir Ríkharður Svemsson l.stýrimaðurá
Bakkafossi, sem bjargaði 39 manns af ferjunni
BAKKAFOSS, leiguskip Eimskipafélags íslands hf., bjargaði 39 manns
frá brennandi ferjunni Scandinavian Star aðfaranótt síðastliðins laug-
ardags. Morgunblaðið náði tali af Ríkharði Sverrissyni 1. stýrimanni
á Bakkafossi í gærmorgun, þegar skipið átti skammt ófarið til Fær-
eyja á leið til Islands. „Við vorum þarna á siglingu þegar neyðar-
kall kom klukkan 02.25. Þá vorum við um hálftíma frá slysstaðnum
og vorum komnir þangað tíu minútum lyrir þijú. Þá logaði upp úr
skipinu öllu að aftan, mikill eldur í því og reykur og fólkið var að
ylírgefa skipið,“ sagði Ríkharður. Hann sagði að tilkynnt hafi verið
um klukkustundu síðar, að engir væru eftir um borð í ferjunni. „Það
kom ekki í ljós fyrr en seinna að 150 manns voru þá að deyja þarna
um borð,“ sagði hann.
„Við tókum 39 manns um borð,“
sagði Ríkharður. „Klukkan tíu
mínútur yfir þijú kom einn bátur
með 35 mönnum og svo fímm
mínútum fyrir fjögur náðum við
öðrum bát með fjórum mönnum í.
Við sáum fólkið klifra niður reipi
og leiðara á aftanverðu skipinu og
fara í bátana."
Ríkharður var spurður hvort
Scandinavian Star
.FAR
.. I §etustofa I biskótek \.
Setustofá I . Spilaviti I . m
I \ I I , 1
Káetur-------H-----Káetur
BILAÞILFAR
1.PILFAR
BÍLAÞILh
SÖE
"T i n rr itttt
mmm
UJJ
Hér ertalið
að eldarnir
hafi kviknað
mTi: 111:11111 d
MbUKC
Útgerð skipsins borin þungum sökum:
Hentifani notað-
ur til gróðabraUs?
DANSKIR Qölmiðlar segja að óljóst virðist hver eigi feijuna Scandina-
vian Star. Politiken telur mögulegt að danskur fasteignasali, Henrik
Johansen, sem sagður er eiga skuggalegan feril að baki, komi þar
við sögu. Skipið sé skráð á Bahama-eyjum með það að markmiði að
hægj; sé að hagnast á að sniðganga öryggisreglur og ráða láglauna-
menn til starfa. Samkvæmt skýrslum er skipið eign dansks félags en
aðaleigandi þess er Johansen.
Skipið var um hríð í eigu banda-
ríska fyrirtækisins SeaEscape er
áður var í eigu danska útgerðarfé-
lagsins DFDS. Forstjóri þess, Niels
Bach, segir í samtali við Politiken
að DFDS hafi selt fyrirtæki sitt í
Bandaríkjunum, er hét Scandina-
vian World Cruises, nokkrum
Bandaríkjamönnum er breyttu
nafninu í SeaEscape. Hann segist
ekki vita hvaða menn hafi verið um
að ræða; algengt sé í slíkum við-
skiptum í Bandaríkjunum að nöfn
raunverulegra kaupenda séu ekki
gefin upp.
Scandinavian Star komst í eigu
SeaEscape nokkru eftir þessi við-
skipti og nýlega var það selt dönsk-
um kaupsýslumönnum, svonefndum
VR-hóp. Það er skráð á Bahama-
eyjum og eftir nokkra rannsókn
kom í ljós að danska útgerðarfyrir-
tækið K/S Scandinavian Star telst
nú eigandi þess. Sérstakt fyrirtæki
annast ferðirnar milli Ósló og Fred-
rikshavn og nefnist það VR-Dano,
sem aftur er eign annars félags,
VR-Holding; aðaleigandi þess er
áðurnefndur Henrik Johansen eða
eiginkona hans, Jytte Johansen.
Iðnaðarráðherra Danmerkur,
Annp Birgitte Lundholt, vísar því á
bug að um gróðabrall hafi verið að
ræða. „Mér finnst þetta grófustu
dylgjur um útgerðarmann sem ég
hef nokkru sinni heyrt. Allt bendir
til þess að brennuvargur hafí átt
sök á slysinu og ég tel ekki rétt
að nota í þessu sambandi orð eins
og gróðabrall,“ sagði ráðherrann.
Talsmaður dönsku lögreglunnar
taldi mögulegt að höfðað yrði mál
gegn útgerðarfélaginu og áhöfn-
inni, jafnt í Noregi sem Danmörku,
vegna brota á öryggisreglum. Skip-
stjóri Scandinavian Star, Hugo
Larsen, viðurkennir að það geti
hafa valdið erfiðleikum við björgun-
ina að margir Suður-Evrópumenn
úr skipshöfninni kunnu ekki ensku.
Hins vegar vísar hann öðrum ásök-
unum, þ. á m. að hann hafi farið
frá borði án þess að skeyta um fólk
neðan þilja, á bug. „Ég hef aldrei
svikið farþega mína. Það var ekki
fyrr en logatungurnar léku um
brúna og útilokað var orðið að fara
niður til að leita að farþegum undir
þiijum að ég gaf skipun um að yfir-
gefa skipið." Hann segist hafa far-
ið aftur um borð ásamt fimm öðrum
úr áhöfninni, strax og reykkafarar
töldu það mögulegt, til að setja
dælurnar í gang.
skipveijar á Bakkafossi hefðu getað
fylgst með hvernig fólkinu gekk að
yfirgefa feijuna. „Við sáum reyndar
ekki nema þetta fólk sem kom til
okkar en við vorum á staðnum al-
veg til klukkan sex, þá fórum við.
Ríkharður segir erfitt að meta
hvort hægt hefði verið að bjarga
fleirum af brennandi skipinu, ef
réttar upplýsingar hefðu borist það-
an um ástandið um borð. „Það gátu
engir farið inn í skipið nema reyk-
kafarar, því þar var allt fullt af
reyk, þótt það logaði bara að aftan-
verðu.“
Bakkafoss fór með skipbrotsfólk-
ið til Fredriksstad í Noregi.
Ríkharður segir að enginn hafi ver-
ið meiddur í hópnum. „En eins og
við var að búast var fólkið miður
sín og sumt var klæðalítið.“ Fólkið
var á ýmsum aldri, þar á meðal
börn og unglingar.
Scandinavian Star í höfninni í Lysekil, fremst sést fiskimaður huga að veiðarfærum sínum.
Reuter
Yfírheyrslur lögreglunnar í Lysekil;
Skipveiji sá brennuvarginn
kveikja í Seandinavian Star
Ósló. Frá Helge Serensen, fréttaritara Morgunblaösins.
EINN af áhöfn feijunnar Scandinavian Star hefur skýrt sænsku lögregl-
unni frá því að hann hafi séð mann kveikja í eldfimu efni í skipinu.
Stjórnendur lögreglurannsóknarinnar á ferjuslysinu vilja sem minnst
láta hafa eftir sér um framburð mannsins. Lögreglan í Lysekil yfir-
heyrði hann en fleiri upplýsingar vill rannsóknarlögreglan ekki gefa,
ekki einu sinni hvort um karl eða konu að ræða. Magnus Aukrust,
yfirmaður glæparannsóknardeildar lögreglunnar í Ósló, segir að kanna
verði málið betur en heimildarmenn segja að vitnið hafi séð brennuvarg-
inn tendra eldinn um eittleytið aðfaranótt laugardags.
Akrust staðfesti þó að lögreglan
gengi út frá því að um íkveikju hefði
verið að ræða. Yfirvöld hafa fengið
í hendur lista með nöfnum fólks sem
dæmt hefur verið fyrir íkveikju í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Unn-
ið er að því að bera þessi nöfn sam-
an við nöfn áhafnarmanna og far-
þegalista. Jafnframt þessu hefur
lögreglan fengið farþegalista frá
feijum þar sem orðið hefur eldsvoði
án þess að nokkur skýring hafi feng-
ist.
„Enn sem komið er höfum við
ekki rekist á neitt nafn sem okkur
þykir grunsamlegt;“ segir aðstoðar-
lögreglustjórinn í Osló, Arne Huuse.
Æ fleiri starfa nú að rannsókninni
og er miklum tíma varið til að kanna
Reuter
Opinn gámur með
slökkviliðsmönnum er
látinn síga niður með
síðu Scandinavian Star.
Á minni myndinni er
Hugo Larsen skipstjóri.
Formaður danska sjó-
mannasambandsins hef-
ur ráðist harkalega á
Larsen fyrir að yfirgefa
skipið um stund þótt
ljöldi farþega væri enn
eftir um borð.
tæknileg atriði málsins, m. a. hefur
glæparannsóknardeild Óslóarlög-
reglunnar sent sjö menn frá rann-
sóknarstofu sinni til Lysekil og eiga
þeir að sjá um stjórn á tæknilegu
könnuninni í skipinu.
Nokkur óvissa hefur ríkt um það
hver eigi að hafa yfirumsjón með
lögreglurannsókninni. í gær var loks
ákveðið að það skyldi vera lögeglan
í Ósló. Ákæruvaldið mun auk lög-
reglunnar eiga fulltrúa er sjópróf
fara fram en gert er ráð fyrir að
það verði í Kaupmannahöfn á morg-
un, miðvikudag.
Enn er óljóst hve margir fórust.
í gær taldi lögreglan að alls 176
væri saknað en ekki er reynt að
leyna því að talan getur hækkað
mjög áður en yfir lýkur. Langur tími
getur liðið áður en lögreglan treyst-
ir sér til að skýra frá nöfnum hinna
látnu og slösuðu. Huuse aðstoðarlög-
reglustjóri segir að fjöldi barna sé
meðal þeirra sem saknað er og seg-
ir að í sumum tilvikum virðist heilu
fjölskyldurnar hafa týnt lífi.
Þótt lögreglan gefi ekki upp nöfn-
in að svo komnu máli hefur hún stöð-
ugt samband við ættingja og sál-
fræðingar munu með aðstoð presta
skýra aðstandendum frá afdrifum
farþeganna er málið liggur ljóst fyr-
ir. Tugir manna frá réttarlæknis-
stofnun Noregs vinna nú að því að
kanna líkin sem flutt hafa verið til
Ósló, sum mikið brunnin, og reyna
að bera kennsl á líkin. Oft er reynt
að bera tennur í líkamsleifunum
saman við tannkort og höfð sam-
vinna við tannlækna í viðkomandi
löndum. Reynt er að sjá til þess að
biðtími aðstandenda verði sem allra
stystur.
Að sögn talsmanna sendiráða ís-
lands í Noregi og Danmörku bendir
ekkert til þess að íslendingar hafi
verið um borð í Scandinavian Star.
Eldsvoði í færeysku ferjunni Norrænu;
Eldsupptökin þykja
benda til íkveikju
Kaupniannahöfn, I.ondon. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaösins. Reuter.
SKIPVERJI lést og 25 manns slösuðust þegar eldur kom upp í fær-
eysku ferjunni Norrænu skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. Var skip-
ið þá í Irska hafi en það hafði verið leigt til áætlunarsiglinga milli
írlands og Wales á Bretlandi. Þykir margt benda til, að um íkveikju
hafi verið að ræða.
Norræna var á leið frá Pembroke
til Rosslare á írlandi þegar eldsins
varð vart í tveimur auðum farþega-
klefum undir bílaþilfarinu. Náði
hann að læsa sig í 10 klefa alls
áður en hann var slökktur en við
slökkvistarfið lést einn skipveiji af
hjartaslagi. 25 manns meiddust eða
urðu fyrir reykeitrun, þar af átta
farþegar, sem fluttir voru í land
með þyrlu.
Áhöfnin, 78 manns, var að mestu
írsk og farþegarnir voru nokkuð á
þriðja hundraðið. Það voru slökkvi-
liðsmenn, sem fluttir voru með þyrl-
um frá Wales, sem slökktu eldinn
um borð en að því búnu var skipinu
snúið aftur til Pembroke. Þar vann
lögreglan að því í gær að yfirheyra
farþega og áhöfn en grunur leikur
á, að um íkveikju hafi verið að
ræða líkt og með Scandinavian
Star, feijuna, sem kviknaði í á Ósló-
arfirði á laugardag.
Haft er eftir farþegum á Norr-
ænu, að brunabjöllurnar hafi ekki
farið í gang þegar eldurinn kom
upp. „Ég heyrði ekki í neinum bjöll-
um og þegar ég opnaði klefadyrnar
sá ég ekki handa minna skil fyrir
reyk. Ég skreið á fjórum fótum
eftir gangingum ásamt öðrum til
Fer aldrei aftur
með nætiirí'erju
- segir Karen Erla Erlingsdóttir
en tilviljun réð því að hún var ekki
um borð í Scandinavian Star
TILVILJUN réð því að Karen Erla Erlingsdóttir var farþegi
með sænsku ferjunni Stena Saga frá Osló til Fredrikshavn
aðfaranótt laugardagsins en ekki norsku ferjunni Scandina-
vian Star, þar sem Ijöldi manna fórst í eldsvoða. í stað þess
að berjast fyrir lífi sínu um borð í Scandinavian Star varð
Karen vitni að eldsvoðanum og björgunarstarfinu um borð í
brennandi skipinu. „Er ég vaknaði um nóttina og fór upp á
þilfar var skipið við hliðina á okkur í raun eitt eldhaf út frá
miðjunni. Ég hefði ekki viljað vera þarna um borð. Ég hefði
þá örugglega verið steinsofandi í koju eins og svo margir
voru og vart orðið til frásagnar," sagði Karen í samtali við
Morgunblaðið.
„Karen Erla Erlingsdóttir er
kennari við íþróttaskólann á
Laugarvatni, en er nú í ársleyfi
og stundar framhaldsnám við
íþróttaháskólann í Osló. Hún var
á leið í páskaleyfí til bróður síns
í Álaborg og það urðu miklir
fagnaðarfundir þegar þau systk-
inin hittust á bryggjunni í Fred-
rikshavn síðdegis á laugardag.
Engar upplýsingar hafði verið
að fá um hveijir voru með feij-
unni þar sem bruninn varð og
fjöldi manns beið því milli vonar
og ótta í Fredrikshavn eftir að
fá fréttir af sínum nánustu. Þeg-
ar Stena Saga kom þangað tæp-
um tíu tímum á eftir áætlun var
múgur og margmenni á bryggj-
unni, en margir héldu að aðeins
ein feija hefði verið á þessari
leið um nóttina.
„Þarna á bryggjunni gerði ég
mér fyrst grein fýrir því hversu
alvarlegt slysið var og hve litlu
mátti muna. Eitt af því fyrsta
sem ég sagði við bróður minn
var að aldrei aftur skyldi ég
fara með næturfeiju heldur allt-
af að degi til og sitja uppi á
dekki allan tímann; mér fannst
brennandi skipið eins og fljót-
andi líkkista."
Karen hefur áður farið þarna
á milli og þá iðulega með skipum
sem sigldu á vegum DaNo-
skipafélagsins. Hún hafði hug á
að gera það einnig að þessu sinni
þar sem sú feija er hraðskreið-
ari en skip Stena-skipafélagsins.
Hvernig sem hún leitaði tókst
henni þó ekki að finna bækling-
inn sem hún átti frá DaNo og
keypti því miða hjá sænska fé-
Norræna
að forðast reykinn og þannig tókst
okkur að komast út undir bert loft,“
sagði Fred Jenkinson, einn farþeg-
anna.
Norræna, sem var smíðuð í
Vestur-Þýskalandi árið 1973, er
jafnan í leigusiglingum á veturna
en íslandssiglingar hennar hefjast
í næsta mánuði.
iaginu. „í þetta skiptið var ég
álíka heppin og pabbi fyrir
mörgum árum, en hann mætti
þá 10 mínútum of seint í farþe-
gaflugvél norður í land, en vélin
fórst í þeirri ferð. Tilviljun eða
eitthvað annað — ég veit það
ekki,“ sagði Karen Erla.
„Mér skilst að mikill hluti
áhafnarinnar á Scandinavian
Star hafi verið ráðinn fyrir tíu
dögum og hafi enga fræðslu
fengið um hvernig ætti að
bregðast við ef eldur kæmi upp.
Þetta mun að miklu leyti hafa
verið ódýrt, erlent vinnuafl, sem
auk kunnáttuleysis gat lítið sem
ekkert tjáð sig á norrænu máli.
Við reyndum að fylgjast með
björgunarstörfum frá okkar
skipi, en það var lítið hægt að
sjá vegna reyksins. Mér virtist
sem allt björgunarstarf færi
fram frá efsta þilfari og ég sá
enga björgunarbáta eða neyðar-
útganga á síðu skipsins. Reynd-
ar var bílalúgan opin aftast á
skipinu, en þar var enga hreyf-
ingu að sjá. Þyrlurnar sveimuðu
yfír okkur og þarna voru all-
mörg skip til aðstoðar. Um borð
til okkar var komið með um 50
manns, sem sluppu án teljandi
meiðsla, og fjögur lík að mér
var sagt.
Inni í skipinu brann víst allt
sem brunnið gat og það ér ömur-
legt til þess að hugsa að þarna
hafi fólk verið að beijast skelf-
ingu lostið í reyk, eldi og óbæri-
legum hita. Þegar það svo
kannski fann útgönguleið tók
bara eitt þilfarið við í viðbót,“
sagði Karen Erla Erlingsdóttir.
Engin álirif
á sumaríerð-
ir Norrænu
ELDSVOÐINN um borð í fær-
eysku farþegaferjunni Norrænu
á engin áhrif að hafa á áætlun
hennar milli Norðurlandanna, að
sögn Jónasar Hallgrímssonar,
framkvæmdastjóra Austfars á
Seyðisfirði, umboðs Norrænu.
Samkvæmt henni verður Nor-
ræna á Seyðisfirði í fyrstu ferð
sumarsins 7. júní næstkomandi.
Jónas segir brunavarnir um borð
í Norrænu mjög fullkomnar, meðal
annars sjálfvirkt skynjunarkerfi og
mjög afkastamikla sjálfvirka vatns-
úðun. „Þegar Norræna er í ferðum
hingað til lands á sumrin, er allt
starfsfólk þjálfað í brunavörnum og
þeim þrautkunnugt um þær. Bruna-
varnaæfingar eru á Seyðisfirði í
hvert sinn áður en látið er úr höfn,
allur búnaður er prófaður og öflug
vakt er um borð allan sólarhringinn
til að koma í veg fyrir hörmungar
af þessu tagi,“ segir Jónas Hall-
grímsson.