Morgunblaðið - 10.04.1990, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
Skiðaganga Ferða-
félagsins í Þórsmörk
Ferðafélag Islands býður upp á margar lengri og styttri ferðir
um páskana og má þar nefna ferðir tii Snæfellsnes, Þórsmerkur og
Landmannalauga.
Farið verður bæði í þriggja og
fimm daga ferðir til Snæfellsnes
og á Snæfellsjökul og verður brott-
för á skírdagsmorgun kl. 8. Gist
verður í svefnpokum að bænum
Görðum í Staðarsveit. Hápunktur
ferðarinnar verður ganga á Snæ-
fellsjökul. Ennfremur verða skoðað-
ir áhugaverðir staðir undir Jökli.
Ekki er enn orðið ökufært í Þórs-
mörk vegna snjóa og skipuleggur
Ferðafélagið páskagöngu á skíðum
um Þórsmerkurleiðina. Þetta verður
þriggja daga ferð með brottför kl.
8 laugardaginn 14. apríl. Gist verð-
ur í tvær nætur í Skagfjörðsskála
í Langadal.
Þá býður Ferðafélagið upp á
skíðagönguferð um Landmanna-
laugar. Þetta verður fimm daga
ferð þar sem gengið verður á
skíðum frá Sigöldu til Landmanna-
lauga og gist þar í þijár nætur í
sæluhúsi Ferðafélagsins.
Auk lengri ferða verða skipulagð-
ar styttri ferðir um bænadagana
og Verður brottför í allar ferðirnar
kl. 13. Á skírdag er ætlunin að
skoða Tröllafoss í vetrarbúningi og
samhliða því verður skíðaganga á
Mosfellsheiði. Á föstudaginn langa
verður fjöruganga fyrir alia fjöl-
skylduna frá Músarnesi að Saurbæ
á Kjalarnesi. Á laugardaginn fyrir
páska verður boðið upp á ökuferð
austur á Stokkseyri og til baka um
Óseyrarbrú og höfð viðkoma í Garð-
yrkjuskólanum í Hveragerði. Eng-
inn ferð verður á páskadag en ann-
an í páskum verður haldið að Búð-
asandi og Maríuhöfn í Hvalfirði.
Brottför í allar ferðir verður frá
Umferðarmiðstöðinni.
Morgunblaðiðí'Hrafnkell A. Jónsson
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri.
■ PÖNTUNARFÉLAG Eskfirð-
inga hf. hefur opnað matvöruversl-
un að Strandgötu 50, Eskifírði.
Félagið keypti eignir þrotabús Pönt-
unarfélags Eskfirðinga og opnaði
nú verslunina á neðri hæð hússins
eftir að hafa látið gera gagngerar
endurbætur á húsnæðinu. Guð-
mundur Stefánsson framkvæmda-
stjóri sagði í samtali við Morgnn-
blaðið að ekki væri farið að ræða
það hvort opnuð yrði verslun á efri
hæð hússins, það færi eftir hvernig
reksturinn á matvöruversluninni
gengi. Gamla Pöntunarfélagið
verslaði með bækur, gjafavörur,
fatnað og byggingavörur á efri
hæðinni. Hraðfrystihús Eskifjarð-
ar hf. á 84,5% hlutafjár í Pöntunar-
félagi Eskiíjarðar hf., bæjarsjóður
á 10% og 30 einstaklingar og fyrir-
tæki staðnum eiga afganginn. Sex
starfsmenn vinna hjá fyrirtækinu.
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri var aðalbókari á
sýsluskrifstofunni á Eskifirði áður
en hann tók við nýja starfinu í byrj-
un ársins og hafði unnið þar í 25
ár. Kaupfélag Héraðsbúa á Egils-
stöðum var með eignir þrotabúsins
á leigu og rak þar verslun í um
eitt ár. Kaupfélagið sóttist eftir að
kaupa eignirnar en núverandi eig-
endur buðu betur. Um tíma kom
til tals að kaupfélagið stofnsetti
Bónus-verslun á Eskifirði en að
sögn Jörundar Ragnarssonar
kaupfélagsstjóra hefur verið hætt
við þau áform. Af þessu tilefni sam-
þykkt bæjarráð Eskifjarðar nýlega
ályktun þar sem fram kemur að
Kaupfélag Héraðsbúa hafi ekki lagt
fram formlega beiðni um leyfi til
að reka Bónus-verslun á staðnum
og því hafí ekki verið tekin afstaða
til slíks erindis. Bæjarráð tekur hins
vegar fram að það telur að öll ný
atvinnustarfsemi í bæjarfélaginu sé
til góðs og því muni verða tekið
jákyætt í óskir um verslunarrekstur
verði eftir því leitað.
Símvirkinn hf. er samstarfsaðili Kristals hf. Hér eru á ferð þrautreyndir símvirkjar, sem munu tryggja notendum Gold Star símkerfa
vandaða uppsetningu og forritun og snögga og fagmannlega þjónustu.
Frá Langadal í Þórsmörk. Skagfjörðskáli Ferðafélags íslands.
Gold Star Telecommunication Co., Ltd. er í dag einn af
risunum í hátækniiðnaði í heiminum. Á Ólympíuleikunum í
Seoul 1988 var þeim falin öll ábyrgð á flóknum samskiptabún-
aði innan leikanna og við umheiminn. Frábær frammistaða
þeirra vakti heimsathygli.
Sigurganga þeirra hefur verið óslitin og er t.d. staða þeirra á
Bandaríkjamarkaði gífurlega sterk eftir að mörg þarlend stór-
fyrirtæki, þar á meðal A.T.&T. hafa gengið til samstarfs við
þá.
ÍSLAND LYKILUNN AÐ EVRÓPUMARKAÐI
Gold Star Telecommunication Co., Ltd. vinnur nú að
undirbúningi stórfeldrar markaðssetningar á símabúnaði fyrir
Evrópumarkað. (sland varð fyrir valinu sem tilraunamarkaður í
þeirri áætlun. Fyrir milligöngu Kristals hf. hefur fyrirtækið
gengið í einu og öllu að kröfum Pósts og síma um gæðastaðal
fyrir íslenskt samskiptaumhverfi.
FULLKOMIN SÍMKERFI Á ÓTRÚLEGU VERÐI
Gold Star GSX símkerfin eru tækniundur, sem eru sér-
hönnuð til þess að vera auðveld og þægileg í notkun auk þess
að hafa fjölbreyttustu valmöguleika sem bjóðast.
Vegna áhuga Gold Star Telecommunication Co., Ltd.
á Evrópumarkaði og beinna samninga okkar við verksmiðj-
urnar getum við nú boðið símkerfi fyrir allar stærðir fyrirtækja
á einstöku tilboðsverði.
GSX 33 hnappa handfrjáls sími.
Hafir þú metnað fyrir hönd fyrirtækisins að auka tímasparnað,
öryggi og sjálfvirkni í samskiptum innan fyrirtækisins og við
þá, sem þurfa að hafa samskipti við þitt fyrirtæki, þá hafðu
samband við okkur strax og við munum færa þér ánægjulegar
fréttir.
KRISTALL HF.
SÍMI 685750 FAX 685159 SKEIFAN 11B 108 REYKJAVÍK
GSX 4 hnappa sími.
GSX 33 hnappa handfrjáls skjásími.
GSX 21 hnappa handfrjáls skjásími.
GSX 21 hnappa handfrjáls sfmi.
GSX 8 hnappa slmi.
GULLIÐ TÆKIFÆRI - EINSTAKT TILBOÐ
BYLTING í SAMSKIPTABÚNAÐIÁ ÍSLANDI!