Morgunblaðið - 18.04.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 18.04.1990, Síða 1
64 SIÐUR B/C 87. tbl. 78. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Kína: Andófsmenn uggandi um útvarp sitt París. Reuter. ÚTLÆGIR kínverskir andófs- menn létu í gær í ljós ótta við að stjórnvöld í Peking beittu hervaldi gegn Lýðræðisgyðjunni, skipi sem þeir gera út og er nú á leið til Kina. Um borð í skipinu er útvarpsstöð sem ætlað er að útvarpa málflutningi lýðræðis- sinna til Kína. Nicolas Druze, ritstjóri Europe Journal, sem gefið er út á kínversku í París, sagði á fréttamannafundi í gær að kínverskir ráðamenn hefðu gert ýmislegt til að stöðva útgerð skipsins. Franskir embættismenn hefðu verið beittir þrýstingi og orr- ustuþotur hefðu verið sendar til syðsta hluta Kína en útsendingar frá skipinu eru áformaðar af Suður-Kína-hafi. Skipið sem nefnt er eftir styttu sem námsmenn reistu á Torgi hins himneska friðar fyrir tæpu ári er nú á Indlandshafi og verður komið á áfangastað í lok mánaðarins. Andófsmennirnir segja að kínversk flutningaskip hafi siglt í kjölfar þess allt frá Gíbraltarsundi. Einn fjármagnenda skipsins er franskt tímarit sem heitir Actuel. Brotist var inn í ritstjórnarskrifstof- ur þess á annan í páskum og gögn- um um skipið og ferðir þess stolið. Christophe Nick, starfsmaður blaðsins, sagðist í gær hafa grun- semdir um að leyniþjónusta Kín- veija stæði að baki innbrotinu. Moskvustjórnin boðar efiiahagslegar refsiaðgerðir gegn Litháum: Uppstokkun í Nepal: Nvja stiórnin stefti- ir að frjálsum þing- kosningum innan árs Reuter Krishna Prasad Bhattarai, nýr forsætisráðherra Nepals, fær sveig um háls úr hendi stuðnings- manns. mælendur í höfuðborginni, Kath- mandu. Læknar segja að 50 manns hið minnsta hafi beðið bana í árás- inni en stjórnvöld halda því fram að tala látinna sé mun lægri, eða sex. Stjórnarandstæðingar telja að 150-200 manns hafi týnt lífi. Bann- inu við starfsemi stjórnmálaflokka var aflétt tveimur dögum eftir þennan atburð, eða 8. apríl. Krishna Prasad Bhattarai er for- maður Þjóðþingsflokks Nepals, sem stóð fyrir mótmælunum ásamt Sameinuðu vinstrifylkingunni, bandalagi sjö hreyfinga kommún- ista. Hanrx hefur nokkrum sinnum verið dæmdur í fangelsi fyrir bar- áttu sína fyrir íjölflokkakerfi. Leið- togar Sameinuðu vinstrifylkingar- innar sögðust styðja Bhattarai sem forsætisráðherra. Talsmenn stjórnarandstöðu- flokkanna segja að forsætisráðherr- ann stefni að því að breyta sem fyrst stjórnarskrá landsins, tak- marka völd konungs og koma á þingræðislegu lýðræði að breskri og hollenskri fyrirmynd. Reuter Kjötaf vísundi áboð- stólum Frönsk verslana- keðja í Bordeaux byijaði í gær að bjóða viðskipta- vinum sínum vísundakjöt og er það í fyrsta skipti sem sæl- keraþjóðinni býðst sú fæða í stórverslunum. Kaupmenn segja að kjötið sé meyrt, pró- tínríkt og rýrt að kólesteróli. Katlimandu. Reuter, Daily Telegraph. BIRENDRA konungur Nepals gekk að kröfum stjórnarand- stæðinga á mánudag og vék for- sætisráðherra sínum úr embætti til að hægt yrði að mynda bráða- birgðastjórn sem kæmi á fjöl- flokkakerfi í landinu. Krishna Prasad Bhattarai, sem er þekkt- ur fyrir baráttu sína fyrir lýð- ræði, var þegar falið að mynda bráðabirgðasljórn. Forsætisráð- herrann nýi sagði í gær að frjáls- ar kosningar færu fram í Him- alajalandinu innan árs. Ailir stjórnmálaflokkar landsins voru bannaðir árið 1960 á valda- tíma Mahendra konungs, föður Bir- endra. Konungur landsins hefur síðan farið með framkvæmdavald og skipað ráðherra. Birendra konungur tilkynnti þá ákvörðun sína að ganga að kröfum um fjölflokkakerfi eftir langan samningafund með stjórnarand- stæðingum,-sem hófst á páskadag. Stjórnarandstæðingar höfðu tveim- ur mánuðum áður hafið herferð fyrir auknu lýðræði og efnt til fjöl- mennra mótmæla svo til daglega. Mótmælin náðu hámarki 6. apríl er hermenn hófu skothrfð á mót- Almennmgur heldur stillingn sinni þrátt fyrir hótanirnar Til stuðnings þjóðheljum! Æðsta ráð Sovétríkjanna frestaði í gær ákvörðun um hvort svipta ætti tvo þingmenn, Telman Gdlíjan og Nikolai Ivanov, þinghelgi. Þeir hafa verið sakaðir um ósæmileg vinnubrögð á meðan þeir störfuðu sem saksóknarar. Viðleitni þeirra til að afhjúpa spillta valdamenn hefur gert þá að þjóðhetjum og efndu rúmlega tíu þúsund manns til mótmæla fyrir utan Kremlarmúra í gær þeim til stuðnings. - segir starfsmaður þings Litháens í samtaii við Morgunblaðið „Almenningur í Litháen hefur áhyggjur vegna hótana Moskvu- stjórnarinnar um elnahagsþving- anir en fólk heldur samt stillingu sinni. Ekki hefur enn verið gripið til slíkra aðgerða en þær eru yfír- vofandi. Einu merkin um óróleika fólks eru lengri biðraðir við bensínstöðvar þótt hótanir Auknar bruna- varnir í ferjum StokKhólmi. Reuter. STJÓRNVÖLD í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hafa ákveðið að herða reglur um brunavarnir um borð í ferjum. Tilefnið er eldsvoðinn í ferjunni Scandinavian Star aðfaranótt 7. apríl síðastliðins. I yfirlýsingu sem kynnt var í Ósló í gær segir að þess verði fram- vegis krafist að haft verði brunaeft- irlit á hálftíma fresti í stað klukku- stundar eins og nú er. Einnig skuli feijur sem sigla að nóttu til skilja eftir tæmandi farþegalista í landi. Sjá „Skipið hefði ekki.. .“ á bls. 24. Moskvustjórnarinnar hafi ekki enn tekið til eldsneytis af því tagi,“ sagði Rita Daptus, starfs- maður upplýsingaskrifstofu þings Litháens, í símaviðtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. Á föstudaginn langa hótaði Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovét- ríkjanna, Litháum efnahagslegum refsiaðgerðum innan tveggja sólar- hringa ef þeir felldu ekki úr gildi iög sem sett hafa verið á þingi landsins frá því sjálfstæði var lýst yfir 11. mars síðastliðinn. I gær var lesið skeyti á þingi Litháens frá yfirmanni gasflutninga í vesturhluta Sovétríkj- anna þar sem sagði að dregið yrði úr gasflutningum til Litháens frá og með fimmtudegi. Síðar sögðu emb- ættismenn í Moskvu að gasflutningar . væru með eðlilegum hætti til Lithá- ens. Forsætisráðherra landsins, Kaz- imiera Prunskiene, sagðist einnig hafa heyr-t að stöðva ætti olíuflutn- inga til einnar stærstu olíuhreinsun- arstöðvar landsins frá og með degin- um í dag. „Þetta er enn óstaðfest. Hér er líklega einungis um eina olíu- hreinsunarstöð að ræða sem á að hafa fengið símhringingu frá Moskvu þar sem sagði að hún fengi ekki meiri olíu frá og með morgundegin- um,“ sagði Rita Daptus. „Á blaða- mannafundi ríkisstjórnarinnar kom fram að Litháar væru reiðubúnir að standa við gerða samninga við Sov- étríkin þótt Moskvustjórnin myndi hefja efnahagsþvinganir. Almennt má segja að efnahagsþvinganir komi niður á Sovétríkjunum sjálfum. Lit- háar eru sjálfum sér nógir hvað matvælaframleiðslu snertir. Olían sem er hreinsuð í Litháen fer aftur út úr landinu. Verra væri með gasið því það er notað til að hita húsin og til eldunar." Það kom fram í máli Ritu Daptus að þrír þingmenn frá Bandaríkjunum hefðu fyrir viku fengið vegabréfsárit- un hjá stjórnvöldum í Litháen og ætlað sér að heimsækja landið en sovéskir landamæraverðir hefðu ekki hleypt þeim inn í landið á landamær- um Póllands og Litháens. Að hennar sögn eru nú um tíu eriendir frétta- menn í Viinius. Hún sagðist telja að sumir þeirra hefðu komist þangað án vegabréfsáritunar með því að aka frá Riga, höfuðborg Lettlands, en engin landamæravarsla er milli Lit- háens og Lettlands. Einnig hefði þar til fyrir skemmstu verið mögulegt að fljúga frá Austur-Berlín til Vilnius en nú hefðu sovésk yfirvöld hætt að selja flugmiða í þær ferðir nema menn hefðu sovéska vegabréfsáritun til Vilnius. Sjá „Felur í sér..“ á bls. 25.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.