Morgunblaðið - 18.04.1990, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
Áhættugreining
í verksmiðjunni
I Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi hefiir verið i gangi svonefnd
áhættugreining sem fi-amkvæmd er af alþjóðlegu fyrirtæki er nefii-
ist Technica. Að sögn Runólfs Þórðarsonar, verksmiðjustjóra, hefur
greiningin náð til nýja ammoníaksgeymisins og hluta af gömlu verk-
smiðjunni en ráðgert er að áhættugreiningu fyrir alla verksmiðjuna
ljúki á þessu ári. Áhættugreiningin hefúr ekki náð til gamla ammon-
íaksgeymisins.
Runólfur sagði að þetta væri
tímafrekt starf og sem dæmi nefndi
hann að áhættugreining fyrir nýja
tankinn og hluta af gömlu verk-
smiðjunni hefði tekið hálfan mánuð.
„Þetta fer þannig fram að sérfræð-
Almanna-
vörnum
berast tugir
ábendinga
Frá því að eldur kom upp
í geymi Áburðarverksmiðju
ríkisins í Gufúnesi á páska-
dag hafa Almannavörnum
ríkisins borist tugir ábend-
inga frá fólki um staði þar
sem hugsanlega sé gengið
óvarlega um eiturefiii. Guð-
jón Petersen firamkvæmda-
stjóri Almannavarna segir
að á næstunni verði al-
mannavarnanefiidum sveit-
arfélaganna á landinu rituð
bréf þar sem farið verði
fram á að þau geri úttekt á
ástandi þessara mála í sínum
heimabyggðum.
Ammoníak er meðal annars
notað sem kælivökvi og er al-
gengt að um 500 lítrar af
ammoníaki séu í geymum við
frystihús. Þá er víða úti um
landið klórgas á geymum við
frystihús og er því blandað
saman við vatn til sótthreins-
unar. Hugsanleg óhöpp við
þessa geyma gætu orðið
starfsfólki og fólki í nálægum
húsum lífshættuleg. Að sögn
Guðjóns Petersen báru sumar
þeirra ábendinga sem bárust
það með sér að fyllsta þörf
væri til að kanna betur hvem-
ig málum þesum væri háttað
en sagði að ekki hefðu komið
í ljós áður ókunnir geymslu-
staðir eiturefna, sem til væru
kortlagðir ásamt neyðaráætl-
unum í gögnum Almanna-
vama ríkisins og almanna-
vamanefnda sveitarfélaganna.
ingar á vegum Technica koma í
verksmiðjuna og spyija starfsmenn
til hvaða ráða þeir myndu grípa ef
til mismunandi hættuástands
kæmi,“ sagði Runólfur.
Það var að undirlagi Vinnueftir-
lits ríkisins að framkvæmd var
áhættugreining á nýja ammoníaks-
geyminum þegar hann var á hönn-
unarstigi. Runólfur sagði að stjóm
verksmiðjunnar hefði síðan ákveðið
að þessi greining skyldi ná til allrar
verksmiðjunnar. Áhættugreining er
fremur ný af nálinni og var fyrst
gerð á olíuborpöllum í Norðursjón-
um, að sögn Runólfs. Hann sagði
að Áburðarverksmiðjan væri fyrsta
íslenska fyrirtækið sem léti fram-
kvæma slíka greiningu.
Eldurinn í ammoníaksgeyminum slökktur.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Ammoníakinu var hleypt út vegna bilunar i leiðslu við löndun:
Vinnubrögð sem ekki
eiga að geta átt sér stað
- segir Eyjólfiir Sæmundsson forstöðumaður Vinnueftirlits ríkisins
EYJÓLFUR Sæmundsson, forstöðumaður Vinnueftirlits rikisins, seg-
ir að það sé ekki leyfilegt að hleypa ammoníaki út úr geymi Áburðar-
verksmiðjunnar í andrúmsloftið nema í neyðartilvikum. Það hafi
verið gert við löndun vegna bilunar í leiðslu í stað þess að stöðva
vinnu og gera við bilunina og það séu vinnubrögð sem ekki ekki sé
hægt að samþykkja.
Hann sagði að Vinnueftirlitinu
hefði verið falið að fylgjast með
byggingu nýja kælda geymisins
undir ammoníak í Áburðarverk-
smiðjunni og fyrir tveimur árum
hefði verið gefið leyfi til þess að
nýta gamla geyminn á takmarkað-
an hátt áfram þar til nýi geymirinn
yrði tilbúinn. Hann hefði átt að
taka í notkun í fyrrahaust, en það
hefði frestast þangað til í sumar.
Eyjólfur sagði að það væri ljóst
að löndun á ammoníaki úr skipi sem
komið hefði með farm til verksmiðj-
unnar hefði ekki, farið fram sam-
kvæmt settum reglum. Það hefði
orðið bilun í barka sem tengdi skip-
ið við gasleiðslu í landi, en allt gas
fyrir ofan vökvaborð í geyminum,
sem byggði þar upp þrýsting, þyrfti
að flytja yfir í skipið og þétta aftur
í vökva. Það væri ekki ætlast til
að þessi löndun væri framkvæmd
með neinum öðrum hætti en þess-
um, en við bilunina hefði verið tek-
in ákvörðun um að hleypa gasinu
út í andrúmsloftið við kúluna. „Það
er í því gasi sem kviknaði. Þetta
eru vinnubrögð sem ekki eiga að
geta átt sér stað,“ sagði Eyjólfur.
Hann sagði að það hefði átt að
hætta löndun og lagfæra bilunina,
enda hefðu ekki verið neinir ann-
markar á að gera það. Aðspurður
sagðist hann ekki kannast við að
það hefði verið viðtekið að gera
þetta svona. „Við höfum nýlega
farið yfir með forsvarsmönnum
verksmiðjunnar allar hugsanlegar
lekaleiðir ammoníaks og þá kom
fram að ekki væri um slíkt út-
streymi að ræða og þarna var. Það
er algjörlega ósamþykkjanlegt sem
þarna var gert. Það er í sjálfu ser
gert ráð fyrir að slíkt gæti gerst í
vissum neyðartilvikum ófynrséðum,
en alls ekki við löndum eða aðra
reglubundna notkun á þessu mann-
virki,“ sagði Eyjólfur ennfremur.
*
Akæran sem þruma
úr heiðskíru lofti
- segirBaldvin
Tryggvason
sparisjóðsstjóri
ísland og Evrópubandalagið:
Ferð Manuels Marins til
íslands heftir verið aflýst
Steingrímur Hermannsson í Brussel
Frá Kristófer M. Kristóferssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FYRIRHUGAÐRI íslandsferð Manuels Marins sem meðal annars fer
með sjávarútvegsmál innan framkvæmdastjórnar Evrópubandalags-
ins (EB) hefiir verið aflýst. Með komu sinni til Islands ætlaði Manu-
el annars vegar að endurgjalda heimsókn Halldórs Ásgrímssonar
sjávarútvegsráðherra til Brussel í fyrra og hins vegar að staðfesta
upphaf formlegra viðræðna á milli Islands og EB um sameiginlega,
gagnkvæma sjávarútvegshagsmuni.
Samkvæmt heimildum í Brussel
er heimsókninni aflýst í kjölfar
heimsóknar sendinefndar frá EB til
íslands nýlega en fundir nefndar-
innar með íslenskum embættis-
mönnum þóttu ekki gefa tilefni til
að framkvæmdastjórinn færi í opin-
bera heimsókn til Islands. I stað
þess að heimsækja Island fer Marin
til Kanada í næsta mánuði.
- ■ - Steingrímur Hermarmsson for-
sætisráðherra heimsækir höfuð-
stöðvar EB í Brussel í dag. í fylgd
með Steingrími eru Jór, Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra,
sendiherrarnir Hannes Hafstein og
Einar Benediktsson auk Bolla Héð-
inssonar aðstoðarmanns forsætis-
ráðherra. Steingrímur ræðir við
Jacques Delors forseta fram-
kvæmdastjómar EB og auk þess
við- framkvæmdastjórann, Manuel
Marin, Martin Bangemann sem fer
með málefni innri markaðar EB,
Henning Christophersen fram-
kvæmdastjóra fjármála, Fillpps
Pandolfi sem ber ábyrgð m.a. á
vísindum og Karel Van Miert en
hann fer með samgöngumál innan
framkvæmdastjórnarinnar.
Steingrímur ræðir annars vegar
væntanlegar samningaviðræður
EFTA og EB við framkvæmdastjór-
ana og hins vegar sérstöðu og sam-
skipti íslands við EB. Síðdegis hitt-
ir Steingrímur forseta Evrópuþings-
ins, Enrique Baron, og Willy de
Clercq formann utanríkisnefndar
þingsins. Fundir Steingríms með
fulltrúum þingsins eru samkvæmt
hans ósk til þess að ræða samninga
EFTA og EB um sameiginlegt efna-
hagssvæði.
ÞESSI ákæra kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti yfir mig,“ sagði
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis, í samtali við Morgun-
blaðið vegna ákæru ríkissak-
sóknara á hendur honum og öðr-
um starfsmanni Sparisjóðsins
vegna viðskipta við Tögg hf á
greiðslustöðvunartíma félagsins
árið 1987. „Við höfðum aðeins
einu sinni, í byijun ágúst siðast-
liðins, verið kölluð til Rannsókn-
arlögreglu til að staðfesta að
ákveðin viðskipti hefðu átt sér
stað milli sparisjóðsins og Töggs
hf og gera nokkra grein fyrir
þeim viðskiptum."
„Síðan hef ég ekki heyrt eitt eða
neitt, hvorki frá Rannsóknarlög-
reglu né öðrum aðilum. Við höfum
aldrei verið beðin um upplýsingar
um eitt eða neitt þannig að mér
virðist að sá sem samdi ákæruskjal-
ið hafí ekki getað vitað að skuldir
og ábyrgðir Töggs hf hjá Spari-
sjóðnum jukust á tímabilinu fra því
greislustöðvun hófst og þangað til
fyrirtækið varð gjaldþrota, sem ber
ekki vott um ívilnun heldur þvert á
rnóti," sagði hann. „Sparisjóðurinn
vildi stuðla að því að fyrirtækið
kæmist á réttan kjöl á greiðslu-
stöðvunartímanum. Það tókst ekki
en ég hef ekki orðið var að neinn
lánardrottinn Töggs hf hafi kvartað
undan því að sparisjóðurinn hafi
valdið sér tjóni enda hefur skipta-
ráðandi ekki séð ástæðu til að krefj-
ast riftunar á nokkru því sem spari-
sjóðurinn gerði í þessu máli,“ sagði
Baldvin Tryggvason sparisjóðs-
stjóri.
Sjá yfirlýsingu stjómar spari-
sjóðsins bls. 15: Telur ákæruna
byggða á algerum misskilningi
Opna sænska meist-
aramótið í skák:
Þrír Islend-
ingar efstir
OPNA sænska meistaramótið
stendur yfir í Málmey. Kepp-
endur eru 177 í opna flokkn-
um og 59 í unglingaflokki. í
báðum flokkum eru tefldar
níu umferðir eftir svissneska
kerfinu.
Að loknum sjö umferðum eru
þrír íslendingar efstir. Sævar
Bjarnason, Þorsteinn Þorsteins-
son og Reynir Helgason hafa
allir 6 vinninga og eru allir tap-
lausir. Tvö efstu sætin gefa
rétt til þátttöku á sænska meist-
aramótinu sem teflt verður í
sumar. Meðal þátttakenda eru
þekktir skákmenn svo sem
Brynell og Winsnes.