Morgunblaðið - 18.04.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
21
3) Fannborg 4, skrifstofuhús-
næði, verður tekin í notkun á
árinu.
4) Listasafnið. Þar liggja fram-
kvæmdir niðri um skeið,*en þó
eru ekki nema liðlega 3 ár síðan
hafíst var handa um þessa stór-
framkvæmd og mér vitanlega er
í engu sveitarfélagi verið að reisa
byggingu ætlaða slíku verkefni.
Enn eitt dæmi um stórhug og
menningarlegt átak.
5) Vogatunga. Þar hafa nú verið
teknar í notkun 57 íbúðir fyrir
aldraða á aðeins þremur árum,
allt sérbýli, ýmist leiguíbúðir,
hlutdeildaríbúðir eða eignaríbúð-
ir. Lognmolla nefnist sú fram-
kvæmd ekki, heldur Grettistak.
Aðrir verkþættir sem borið hafa
hátt að undanförnu í bæjarfélaginu,
eru m.a. umhverfismál, ræktun og
frágangur opinna svæða og lóða
m.a. skólalóða.
Gífurlegt átak hefur verið unnið
í byggingar- og skipulagsmálum.
Segja má að hafið se landnám í
Kópavogsdal og hafa lönd verið
skipulögð. Gatna- og holræsagerð
er þar í fullum gangi og brátt taka
að rísa hús. Margt fleira mætti
nefna, skólabyggingar, félagslegar
íbúðir, einkum verkmannabústaðir
og í hafnarmálum hafa orðið
stakkaskipti á örfáum árum.
Skattaálögur
Þá er það söngurinn um skatta-
gleðina. Utsvarsálagning er hvergi
á landinu lægri en í Kópavogi. A
miðju næsta sumri fær hver útsvars-
greiðandi í Kópavogi endurgreitt
0,24% af útsvarsgreiðslum sínum á
árinu 1989. Fasteignaskattur er
lægri eða jafnhár og í 23 öðrum
kaupstöðum, en þeir eru samtals
30 á landinu öllu.
Lokaorð
Nú er mál að linni. Mér hefur
sámað það mjög á blaðaskrifum um
Kópavog að undanförnu, hversu
neikvæðnin hefur riðið þar við ein-
teyming. Flest er lagt út á versta
veg. Er ekki ástæða til að láta af
þessum leik og giíma fremur við
undirstöðuþætti í stjórnun bæjarfé-
lagsins, framtíðarstefnumið og leið-
ir? Eitt að lokum: Hvergi þar ég
þekki til í sveitarstjórnum er lögð
jafn rík áhersla á að manneskjan
sitji í öndvegi og í bænum okkar
Kópavogi. Mín von er sú, að þetta
markmið verði áfram leiðarljós
stjórnenda bæjarfélagsins.
Höfundur er bæjarstjóri í
Kópavogi.
arnir í Breiðholtinu Indíánagil.
Nafngiftin sýnir leiftrandi hug-
myndaflug þeirra. Við höfum verið
að ganga um friðland Reykjavík-
urborgar. Þama föram við á
göngubrú yfir syðri kvíslina og
síðan inn undir Höfðabakkabrú,
þaðan fram hjá stífluni og eftir
gamla Vatnsveituveginum sunnan
lónsins. Sá vegur er gott dæmi
um elstu gerð bílvega á íslandi.
Við njótum hér útsýnis til nýrra
hverfa í Árbæ og Breiðholti, en
Esjan trónir yfir í norðurátt.
Spölkom innan við lónið
göngum við yfir Elliðaárnar á
gamalli brú en síðan þvert á fyrri
stefnu. Þá komum við á stað með
rústum sumarbústaða frá miðju
aldarinnar. Bústaðirnir eru nú all-
ir horfnir en rústirnar, víðirúnnar
og nokkrir tijálundir bera vitni á
sinn hljóða hátt um þá lífsfyllingu,
sem dvöl þar veitti. Þarna er kjör-
ið að staldra við stundarkorn og
fá sér nesti. Að því loknu göngum
við eftir Fylkisvöllum norður í
Rofabæinn og síðan eftir göngu-
braut meðfram Suðurlandsbraut
og Rauðavatni austur að hliði
skógræktargirðingarinnar. Þar
minnumst við upphafs skipulegrar
skógræktar á Islandi.
Hér lýkur göngu fyrsta dags í
raðferðunum 12, Reykjavík -
Hvítárnes sem famar verða í til-
efni 60 ára afmælis Hvítárnes-
skála, elsta sæluhúss Ferðafélags
íslands.
VBIUHÁRMÖGNUN
- ný þjónusta fyrir nútíma rekstur!
rlendis hefur notkun Veltufjármögnunar leitt til þess að útistandandi
kröfur hafa minnkað verulega vegna markvissra vinnubragða við inn-
heimtuna. Minni fjárbinding í útistandandi viðskiptakröfum stuðlar að
bættri lausafjárstöðu og lægri fjármagnskostnaði.
Glitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSIANDSBANKA
Ármúla 7,108 Reykjavík sími: (91) 681040
Telex: 3003 ibank, Telefax: (91) 687784
jeltufjármögnun felur í sér að Glitnir annast innheimtu útistandandi
viðskiptakrafna seljenda og hefur eftirlit með þeim. Jafnframt býðst
seljendum lán gegn veði í kröfunum til að fjármagna lánsviðskiptin.
Markmiðið er að draga úr vinnu fyrirtækja við innheimtu svo að meiri
tími verði fyrir sölu og þjónustu við viðskiptavini.
I^Lekkun kostnaðar með aukinni hagræðingu er lykilatriði í íslensku
atvinnulífi. Verkaskiptingu þar sem Sérhæfing og hagkvæmni vegna
stærðar nýtist til lækkunar á kostnaði er nú gefinn gaumur í vaxandi
mæli. Með þessari þjónustu Glitnis býðst þér slík sérhæfing
og hagkvæmni. Veltufjármögnun gefur að auki
möguleika á sveigjanlegri fjármögnun.
Höfundur er fyrrverandi kennari.