Morgunblaðið - 18.04.1990, Page 24

Morgunblaðið - 18.04.1990, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 Sjópróf vegna feijuslyssins: Skipið hefði ekki átt að láta úr höfii við þessar aðstæður —sagði næstæðsti yfírmaður Scandinavian Star við sjópróf í Kaupmannahöfn Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. Rcuter. NÆST æðsti maður farþegafeijunnar Scandinavian Star telur að skip- ið hafi ekki verið búið undir siglingar á norðurslóðum auk þess sem skipshöfiiin hafi verið úrvinda af þreytu. „Skipið var einfaldlega ekki i lagi, það hefði aldrei átt að láta úr höfn við þessar aðstæður," sagði Norðmaðurinn Karsten Hansen, stýrimaður með málefhi áhafnar á sinni könnu og jafnframt næstráðandi feijunnar, við yfirheyrslur sjóréttar í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Lögregla í Ósló skýrði á annan í pásk- um frá nöíhum þeirra sem fórust í eldsvoðanum á ferjunni 7. apríl sl. Fundist hafa 161 lík um borð í skipinu og eru nöfii 158 þekkt. Þar af eru 127 Norðmenn, flestir frá Ósló, 27 Danir, þrír Bretar, þrír Svíar, tveir Spánveijar, einn Portúgali og einn Bandaríkjamaður. Embættis- menn sem annast rannsóknina á slysinu segja að ekki sé hægt að úti- loka að fleiri hafi týnt lífi. Hitinn varð allt að 600 stig á celsíus í feij- unni og er þvi mögulegt að líkamsleifar sumra fórnarlambanna hafa eyðst algerlega. 25 börn undir sextán ára aldri dóu í slysinu. Scandinavian Star var áður í skemmtisiglingum á Karíbahafi og var mikill meirihluti skipveija lítt kunnugur skipinu. Karsten Hansen, er gekk næstur Hugo Larsen skip- stjóra að tign um borð, sagði að skipveijar hefðu hraðað sér eftir mætti við að búa skipið undir breytt verkefni. Danska útgerðarfélagið DaNo keypti það í marslok og sigl- ingar hófust þegar 1. apríl milli Ósló- ar og Fredrikshavn á Jótlandi. „Flestir skipverjar voru svo þreyttir að þeir voni nær úrvinda," sagði Hansen. Hugo Larsen skipstjóri hef- ur vísað öllum ásökunum um mistök og vanrækslu á bug. Æðstu yfir- mennirnir eru flestir norskir en áhöfn að mestu frá Portúgal og Filippseyj- um. Yfirvélstjóri feijunnar, Heinz Stenhauer, sakar sænska slökkviliðs- menn um mistök, segir þá hafa brot- ið rúður og opnað eldvarnadyr með þeim afleiðingum að eldurinn hafi breiðst út. Um 100 manns hafa starfað að rannsókninni fyrir norsku lögregluna um páskana og í Kaupmannahöfn var ákveðið að halda sjóprófum áfram yfir hátíðar. Ljóst er að yfir- völd eru sannfærð um að brennu- vargur hafi staðið að eldsvoðanum. „Við höfum engan grunaðan enn þá,“ segir starfandi lögreglustjóri Óslóar, Arne Huuse. „Við getum ekki útilokað að sökudólginum hafi tekist að komast undan í ringulreið- inni sem varð þegar þeir sem kom- ust af voru fluttir í land á mörgum stöðum." Larsen skipstjóri Scandina- vian Star sagði við yfirheyrslur í sjó- prófum að allt benti til að þjálfaður brennuvargur hefði verið að verki. „Kveikf var í neðst í stiga og fólk þannig hindrað í að komast upp og á brott,“ sagði hann. Larsen benti einnig á að hugsanlega hefði fyrsti eldurinn, er áhöfninni tókst fljótlega að slökkva, verið kveiktur til þess að leiða athygli manna frá næstu tveim eldum sem kviknuðu á allt öðrum stöðum í skipinu og reyndust illviðráðanlegir. Vélstjóri feijunnar telur líklegt að brennuvargurinn hafi notað fljótandi eldsneyti af einhveiju Heimsókn Nelsons Mandela vekur deilur í Bretlandi St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. NELSON Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, gagnrýndi Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, í ræðu á hljómleikum í London á mánudag. Nokkrar deilur spunnust vegna heimsóknar Mandela til Bretlands og þeirrar ákvörðunar breska ríkissjónvarpsins að sýna hljómleikana í bcinni útsendingu. Hljómleikarnir voru haldnir á Wembley-leikvanginum til að fagna því, að Neison Mandela var látinn laus úr haidi í Suður-Afríku fyrr á árinu. Fyrir tveimur árum voru tón- leikar á sama stað honum til stuðn- ings. 72 þúsund manns mættu á Wembley og talið er að allt að einn milljarður manna hafi horft á hljóm- leikana í sjónvarpi, en þeim var sjón- varpað beint til 30 landa. Mandela þakkaði baráttumönnum í Bretlandi fyrir stuðning við sig, meðan hann dvaldi í fangelsi. Hann hvatti alla til að hafna hugmyndum um að draga úr baráttunni gegn kynþáttaaðskilnaðarstefnu stjórn- valda í Suður-Afríku. Hann bætti við: „Það eru aðeins þeir, sem styðja aðskilnaðarstefnuna, sem geta haldið því fram, að umbuna ætti stjórninni í Pretóríu fyrir þær takmörkuðu að- gerðir, sem hún hefur gripið til, eins og að láta mig lausan og aflétta banni gegn Afríska þjóðarráðinu og öðrum samtökum." Þótti sýnt að orðum þessum væri beint gegn Margaret Thatcher en hún hefur hvatt til þess að slakað verði á refsi- aðgerðum þeim sem gripið hefur verið til á alþjóðavettvangi gegn stjórn hvíta minnihlutans í Suður- Afríku. Mandela hvatti til þess, að viðskiptabanni yrði ekki aflétt á Suð- ur- Afríku, fyrr en allir íbúar lands- ins hefðu fengið kosningarétt og fall- ið hefði verið frá kynþáttaaðskilnað- arstefnunni. Mandela sagði á blaðamanna- fundi, að hann myndi hitta Margaret Thatcher að máli næst þegar hann kæmi til Bretlands. Hann bætti því við að hann teldi ekki æskilegt að Thatcher sækti Suður-Afríku heim fyrr en friðarviðræður ANC og stjórnvalda hefðu skilað áþreifanleg- um árangri. Suður-afríska sendiráðið í London kvartaði undan því við forráðamenn breska ríkisútvarpsins BBC, að sjón- varpað yrði beint frá tónleikunum. Þeir yrðu lítið annað en áróður gegn suður-afrískum stjórnvöldum og gæfu ranga mynd af ástandinu í Suður-Afríku. Talsmenn BBC sögðu að þeir myndu beita eðlilegri ritstjórn við útsendinguna. tagi, e. t. v. áfengi, og skýri það að nokkru hve hratt eldurinn breiddist út. Um 40 menn frá Óslóarlögregl- unni reyna að hafa uppi á brennu- varginum. Reynt er að safna ná- kvæmum upplýsingum um það hvar hver einstakur farþegi og skipveiji var staddur þegar eldur varð laus. Með þessum hætti verður reynt að ríða netið utan um glæpamanninn. Larsen skipstjóri sagðist ekki telja ástæðu til að gruna áhöfnina fremur um græsku en aðra en bent hefur verið á að brennuvargurinn virðist hafa verið kunnugur um borð. „Allir geta fundið teikningar af skipinu," sagði Larsen. Vitni hafa iýst manni sem þau töldu haga sér undarlega og talið er mögulegt að um brennuvarginn hafi verið að ræða. Maðurinn var hár og grannur, gráhærður og á aldrinum 55 - 60 ára, klæddur bláum fötum. Hann gekk rólega um í reykjarkófinu og sinnti í engu viðvörunum áhafnar- innar er hvatti farþega til að hraða sér í björgunarbátana. Útgerð feij- unnar héfur heitið sem svarar hálfri þriðju milljón ísl.kr. fyrir upplýsingar sem skýrt geta tildrög eldsvoðans. Æ fleiri vísbendingar koma í ljós sem benda til lélegrar skipulagningar björgunaraðgerða í feijunni og van- rækslu af ýmsu tagi. Margir skipveij- ar höfðu ekki hugmynd um hvert hlutverk þeirra væri ef hættu bæri að höndum, aðeins tvær af 12 reyk- köfunargrímum voru notaðar og eng- in björgunaræfmg hafði farið fram. Yfirmaður öryggismála um borð, Sverre Aashildrod 1. stýrimaður, sagði að ekki hefði gefist tími til að sinna ýmsum hefðbundnum ráðstöf- unum í öryggismálum í tæka tíð. „Við gátum ekki tafið ferðir skips- ins,“ sagði Aashildrod sem einnig viðurkenndi að hann þekkti ekki al- þjóðareglur um þjálfun áhafnar og öryggi farþega. Karsten Hansen, næstráðandi á Scandinavian Star, fyrir utan byggingu sjóréttar í Kaupmann- höfii. Hansen telur að ferjan og skipshöfn hennar hafi ekki verið fær um að helja reglulegar sigl- ingar milli Óslóar og Fredriks- havn þegar 1. apríl sl. Eigendur útgerðarfélagsins, sem er danskt, hafa gefið til kynna að þeir muni hætta öllum afskiptum af skipaútgerð. Hundrað far- ast í eldsvoða í indverskri lest Patna. Reuter. ÓTTAST er að hundrað manns hið minnsta hafi beðið bana er eldur braust út í tveimur lestar- vögnum skammt frá bænum Patna í Norður-Indlandi á mánudag. Sjónarvottar sögðu að vagnarnir hefðu verið troðfullir af sölufólki á leið til útimarkaðar í bænum og tals- menn lestafyrirtækisins sögðu að ,allt að 200 manns hefðu verið í vögn- unum þótt þeir hefðu aðeins verið ætlaðir 80 farþegum. Sjónarvottarnir sögðu að farþegar hefðu reynt að slökkva eldinn með mjólk, sem selja átti á markaðinum, og enginn hefði komist úr vögnunum þar sem græn- metiskörfum hefði verið raðað við dyrnar. Tugir manna voru á þaki lestarinnar og 60 slösuðust, sumir alvarlega, er þeir stukku af lestinni áður en hún stöðvaðist. Greta Garbo látin: Ein af skærustu stjörnum kvikmyndanna fyrr og síðar New York. Reuter. GRETA Garbo, ein mesta kvikmyndastjarna allra tíma, lést á páskadag 84 ára að aldri. Hún var aðeins 36 ára gömul og á hátindi ferils síns þegar hún sneri baki við kvikmyndaleiknum með þeim orðum, að hún vildi vera ein, og við það stóð hún alla tíð síðan. Hefúr Garbo verið minnst með virðingu víða um lönd, í Bandaríkjunum og í kvikmyndaborginni Hollywood og þá ekki síður í ættlandi hennar, Svíþjóð. Greta Lovisa Gustafsson eins og áhugamenn um kvikmyndir og hún hét réttu nafni var fædd 18. september árið 1905. Hún stundaði leiklistarnám við Kon- unglega leikhúsið í Stokkhólmi og tók sér listamannsnafnið Garbo þegar hún fluttist vestur til Holly- wood. í 14 ár Ijómaði stjarna hennar skærar en nokkurrar ann- arrar leikkonu en alls lék hún í 24 kvikmyndum á 19 árum, 10 þöglum og 14 talmyndum. Gamlir samstarfsmenn Garbo ljúka upp einum rómi um, að hún hafi verið stórkostleg leikkona, sem tekist hafi að gæða jafnvel illa skrifuð hlutverk einhveijum seiðmögnuðum krafti. „Hún gat túlkað svo miklar tiifinningar með ándlitinu einu, gleði og gáska eða hinn sárasta harm. Hún var ein mesta leikkona fyrr og síðar," segir kvikmyndasagnfræðingur- inn Andrew Sarris og aðrir hafa minnst hennar með sama hætti. Greta Garbo yfirgaf Hollywood árið 1941 og settist að í sjö her- bergja íbúð á Manhattan í New York þar sem hún bjó alla tíð síðan. Hélt hún aðeins sambandi við fáa, útvalda vini sína og sást sjaldan utan dyra og aldrei án þess að vera með dökk sólgler- augu. Garbo var einræn að upp- lagi en menn hafa samt aldrei skilið, að hún skyldi draga sig svona algerlega í hlé. Sagnfræð- ingurinn Sarris hefur þá skýringu fram að færa, að þegar heims- styijöldin síðari hafi verið búin að eyðileggja Evrópumarkaðinn fyrir bandarískar kvikmyndir hafi Garbo óttast, að Hollywood reyndi að steypa hana í sitt ameríska mót. „Garbo sá hvert stefndi og Greta Garbo þar sem hún hafði auðgast vel á kvikmyndaleiknum fannst henni tími til kominn að hætta,“ segir Sarris. Greta Lovisa Gustafsson var brennd í útfararstofnun í New York en talið er, að askan hafi verið eða verði flutt til Svíþjóðar. þa5 kostar aöeins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.