Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 27 Prestar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar ganga í kringum kirkju í Moskvu snemma á páskadag. Jóhannes Páll páfi bið- ur fyrir friði í Litháen Mikið íjölmenni í kirkjum Austur-Evrópulanda á páskadag Páfagarði, Búkarest, Sofíu, Austur-Berlín, Moskvu. Reuter, Daily Telegraph. JÓHANNES Páll páfi II bað fyrir ft-iði í Eystrasaltsríkinu Litháen í páskaboðskap sínum og kvaðst vona að sovésk stjórnvöld gengju til viðræðna við Litháa um sjálfstæðisyfirlýsingu þeirra. Ibúar Austur-Evr- ópulanda héldu í fyrsta sinn upp á páskana án afskipta stjórnvalda eftir áratuga ofsóknir á hendur kristnum mönnum á valdatíma kommún- ista. Um 150.000 manns hlýddu á páskaboðskap páfa á Péturstorginu í Róm og milljónir manna fylgdust með atburðinum í sjónvarpi í 50 lönd- um. Páfi sagði að lýðræðisþróunin í Austur-Evrópu eftir áratuga harð- stjórn kommúnista, sem beittu sér fyrir guðleysi, sýndi að mannkynið væri að gera sér grein fyrir því að maðurinn gæti ekki lifað án guðs. Hann óskaði öllum þjóðum heims gleðilegra páska á 55 tungumálum, þar á meðal rússnesku, rúmensku, hebresku, tamíl og swahili. Þegar hann mælti á litháísku bað hann fyrir friði í Litháen og kvaðst vona að samningaviðræður hæfust á milli Litháa og sovéskra stjórnvalda. Kat- ólska kirkjan er öflug í Litháen og Páfagarður hefur boðist til þess að hafa milligöngu um lausn deilunnar um sjálfstæðisyfirlýsingu Litháa. Mikið fjölmenni var í kirkjum Rúmeníu á páskadag er Rúmenar héldu upp á páskana í fyrsta sinn frá því harðstjóranum Nieolae Ceausescu var steypt af stóli um jól- in í fyrra. Messum í Búkarest og fleiri borgum var sjónvarpað í fyrsta sinn. Aður var Nicolae Ceausescu eini „guðinn" sem sýna inátti í sjón- varpi og stjórnvöld héldu uppi stöð- ugum áróðri gegn kristinni trú. Meira en 100.000 Búlgarar hlýddu á útimessu í miðborg Sofíu, höfuð- borg Búlgaríu, á páskadag. Zhelyu Zhelev, leiðtogi Samtaka lýðræðis- afla, sem bjóða fram í fyrstu fijálsu kosningum landsins í júní, ávarpaði samkomuna að lokinni messu.'„Upp- risa Krists minnir á ýmsan hátt á endurreisn frelsis og lýðræðis i Búlg- aríu,“ sagði Zhelev. Allar kirkjur Sofíu voru fullar af fólki á páskadag og nokkrar þúsundir manna tóku þátt í útimessu á vegum Sósíalista- flokksins, sem áður hét Kommúnista- flokkur Búlgaríu. „Ég minnist þess að fyrir nokkrum árum stóðu starfs- menn kommúnistaflokksins fyrir ut- an kirkjurnar til að skrá nöfn þeirra sem dirfðust að ganga þangað inn,“ sagði ungur Búlgari. Þúsundir Austur-Þjóðveija fóru í gegnum Berlínarmúrinn á páskadag' er efnt var til friðargöngu í tilefni páskanna beggja megin múrsins. Þátttakendur kröfðust þess meðal annars að Evrópuríki drægju úr vopnaframleiðslu sinni og að hernað- arbandalög í Evrópu yrðu lögð niður um leið og þýsku ríkin sameinuðust. Mikið fjölmenni var í kirkjum Moskvu er messað var árla á páska- dag og flestir kirkjugestanna höfðu komið þangað löngu fyrir miðnætti daginn áður. Lögreglumenn stjórn- uðu umferðinni fyrir utan kirkjurnar en fyrir nokkrum árum voru þeir sendir þangað til að veitast að kirkju- gestum og þá einkum ungmennum. Aður var rokktónlist leikin í útvárpi og sjónvarpi um páskana til að halda ungu fólki frá messum. í ár var hins vegar útvarpað og sjónvarpað frá kirkjunum. Verksmiðjan Vífilfell tilkynnir úrslit í Sprite-leiknum: Helldarsala á Sprlte og Dlet-Sprlte á íslandi 1. janúar tll 5. apríl varð samtals 254.624 óóstr og tlöskur. Eftlrtalölr llmmtán þátttakendur í Sprite-lelknum komust s næst hlnnl réttu tölu og vlnnur hver þelrra Sprlte-snjóbrettl: 1. Kjartan Mar Magnusson, Helðarbraut 10, Kellavlk 2. Viðlr Buðmundsson, Kringlumýrl S, Akureyri 3. Árni Buðmundsson, Strandasell 7, Reykjavík 4. Pitur Belr Krlstjánsson, Vlðlhllð 27, Reykjavik 5. Ómar Ojavmoun, Fossgðtu B, Reykjavik 8. Erímkell Palsson, Vlðlhvamml 24, Kópavogl 7. Þirlr Skarphiðlnsson, Kaplaskjolsvegi 81, Raykjavík 8. Jihann H. Halstnlnssnn, Urðarvegi 47, Isallrðl 8. Cyjillur Snjóllsson, Allahelðl 13, Kópavogl 10. Sigurður Skarphiðlnsson, Kaplaskjólsvegl 81, Reykjavlk 11. Óskar Úrn Stelndórsson, Hagsell 11, Reykjavlk 12. Pitur Þór Bunnarsson, Bllkahólum 12, Reykjavlk 18. Helgl Fannar Vllhjilmsson, Allholsvegl 41, Kópavogl 14. Irls Dögg Helgadóttlr, Sklpasundi 1, Reykjavlk 15. Jónas Breki Magnusson, Lngalold 78, Reykjavlk Vlnnlngshalar geta vltjað vlnninga slnna á skrllstolu Vlflllells hl., Haga vlð Holsvallagötu / Heykjavík. Lokað Skrifstofur fyrirtækisins verða lokaðar milli kl. 12.00 og 15.00 í dag, vegna útfarar STURLU PÉTURSSONAR. Húsasmiðjan. Lokað Fjármálaráðuneytið, aðalskrifstofa og fjárlaga- og hagsýslustofa, verða lokuð milli kl. 10.00 og 12.00 í dag 18. apríl vegna jarðarfarar ÁGÚSTU HELGU SIGURÐARDÓTTUR, lögfræðings. Fjármálaráðuneytið, Arnarhvoli. Nýjar perur 20% afslúttur á 20 tíma kortum Þetta gildir sem afsláttarmiði Blessuð sólin skín og skín skært í ljósabekknum. Hjá Sunnu verðið þið sæt og fín og sæl á sólarbekknum. : - Sólbaðsstofan Sunna Laufásvegi 17, sími 25280. BBKBPBBHBBBBBIBSBSffiiSBS' Aðalfundur Samvinnubankans Aöalfundar Samvinnubanka íslands h.f., veröur haldinn að Hótel Sögu, Súlnasal, föstudaginn 27. apríl 1990 kl. 13.30. Dagskrá: 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans fyrir sl. starfsár. 2. Lagðir fram endurskoöaðir reikningar bankans fyrir sl. reikningsár. 3. Lögð fram tillaga um kvittun til bankastjóra og bankaráðs fyrir reikningsskil. 4. Önnur mál sem tilkynnt hafa verið bankaráöi með löglegum fyrirvara, sbr. 69. gr. hlutafélagalaga. 5. Kosning bankaráðs. 6. Kosning endurskoðenda. 7. Ákvörðun um þóknun til bankaráðs og endurskoðenda. 8. Ákvörðun um greiöslu arös. 9. Önnur mál. Gert er ráö fyrir aö lögö veröi fram tillaga um sameiningu Samvinnubanka íslands hf. við Landsbanka íslands, samanber 4. dagskrárlið hér að framan. Verði tillagan samþykkt falla dagsskrárliöir 5 - 8 sjálfkrafa niöur. Aðgöngumiðar og atkvæðaseölar til fundarins veröa afhentir á fundarstaö. Ðankaráð Samvinnubanka íslands hf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.