Morgunblaðið - 18.04.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
33
Grétar Þór Sig-
urðsson - Minning
Fæddur 25. ágúst 1978
Dáinn 5. apríl 1990
Það ríkti mikil sorg á heimili
okkar þegar fréttist að ungi vinur-
inn okkar, hann Grétar Þór, hefði
látist af slysförum að kvöldi 5. apríl.
Hann gaf okkur hjónunum og
börnum okkar svo mikið þann tíma
sem við fengum að njóta hans.
Hann var svo fjörugur og indæli
strákur. Við kynntumst honum
mjög náið þegar við hófum skóla-
akstur með hann frá Nesjavöllum
fyrir nokkrum árum. Það var gam-
an að fá að .fylgjast með örum
þroska hans þessi ár. Grétar heitinn
var svo góður félagi allra, hvort sem
um var að ræða menn eða dýr.
Elsku Guðbjörg, Ester, Sigurður,
Jón og Hanna, megi Guð styrkja
ykkur í þessari miklu sorg.
Við munum ætíð geyma minn-
ingu hans í hjörtum okkar.
Arni og Sigrún.
Hörmuleg frétt barst okkur í
Ljósafossskóla að morgni föstu-
dags, 6. apríl sl., að Grétar Þór
Sigurðsson, Nesjavöllum, hefði orð-
ið fyrir vélsleða og væri dáinn. Við
gátum naumast skynjað þessi
ótíðindi í fyrstu, svo óbærilegt var
það, að þessi lífsglaði piltur væri
ekki lengur lífs. Þetta var hljóður
morgunn í skólanum og tár á vöng-
um.
Grétar var einstaklega lifandi.
Hann var bjartur yfirlitum, séretak-
lega fagureygður og bauð af sér
góðan þokka. Pjörugur og glaðlynd-
ur og lét sig sjaldan vanta þar sem
eitthvað var að gerast. Gaman var
að fylgjast með honum ef einhveija
framkvæmd bar á góma. Um leið
og orðinu sleppti var hann tilbúinn
að taka að sér verkstjórnina og vissi
alveg hvernig að skyldi staðið!
Grétar var vinsæll skólafélagi,
en naut líka hylli kennara sinna.
Kurteisi og hjálpsemi var honum
eðlislæg, raunar ættarfylgja.
Grétar var yngstur þriggja barna
þeirra Sigurðar Jónssonar og Ester-
ar Hannesdóttur á Nesjavöllum.
Mikið ástríki var einnig með honum
og ömmu hans, Guðbjörgu Guð-
steinsdóttur. Sá morgunn lífsins,
sem Grétar fékk að lifa var því hlýr
og fagur. Innilegar samúðarkveðjur
til Nesjavallafjölskyldu frá Ljósa-
fossskóla.
Böðvar Stefánsson
Að morgni 6. apríl barst mér sú
sorgarfregn að nemandi minn,
Grétar Þór, hefði látist af slysförum
kvöldið áður. Ég var sem lamaður
og var góða stund að meðtaka þessa
hörmungarfregn. Ótal spurningar
þutu gegnum hugann: Hvers
vegna? Hvers vegna svo ungur
drengur? Hann sem átti allt lífið
framundan. Hvað get ég gert?
Hvernig get ég horfst í augu við
bekkjarfélaga hans og vini og verið
sá sem flytur þeim þessa frétt vit-
andi að sæti hans verði autt í fram-
tíðinni? Hvernig fer maður að slíku?
Ég kynntist Grétari Þór fyrst
þegar við hjónin réðumst til kennslu
síðastliðinn vetur við Ljósafossskóla
í Grímsnesi. Grétar eignaðist strax
ákveðinn stað innra með mér því
persónuleiki hans heillaði mig.
Grétar Þór var fallegur drengur,
tápmikill, snaggaralegur og ein-
staklega jákvæður á lífið og tilver-
una og hafði þannig mannbætandi
áhrif á alla sem hann umgekkst.
Stundum þurfti að sussa á Grét-
ar þar sem hann hafði mikla þörf
fyrir að ræða við bekkjarfélagana
um atburði Iíðandi stundar. Aldrei
gat maður þó orðið honum reiður
því maður fann vilja hans til að
uppfylla óskir annarra. Sérhver
nemandi átti alltaf vísan vin í Grét-
ari þar sem honum samdi einkar
vel við alla og hann skildi svo vel
hvað góð vinátta var dýrmæt.
Lífsgleði Grétars naut sín til fulls
í frímínútum og alltaf var líf og
fjör þar sem hann var í hóp.
Það er erfitt að finna orð til
huggunar við foreldra, systkini,
ömmu og aðra ættingja og vini
þegar þeir verða fyrir öðrum eins
missi. Én það tekur enginn frá okk-
ur allar ljúfu minningarnar sem
hægt er að riija upp og ylja sér við
þegar söknuðurinn verður of sár.
Við hjónin vottum ættingjum og
öði-um ástvinum Grétars okkar inni-
legustu samúðaróskir. Við biðjum
algóðan guð að gefa ykkur styrk í
sorg ykkar.
Steinberg Ríkarðsson, kennari
Rósa 5. Sigurþórs-
dóttir - Minning
Fædd 13. júní 1933
Dáin 22. mars 1990
„Dauðinn er lækur, lífið er strá.“
Þessi hending úr þekktu ljóði
Matthíasar Jochumssonar, flaug
mér í hug er ég frétti ótímabært
andlát Rósu vinkonu minnar. Þótt
við vitum að það liggur fyrir okkur
öllum að deyja, þá kemur dauðinn
okkur oft á óvart.
Það er eins og verið sé að sýna
okkur hversu óendanlega smá og
máttlítil við erum gagnvart al-
mættinu. Hvers vegna einmitt hún?
Ég get aðeins spurt, en ég fæ
ekkert svar.
Ég ætla ekki að rekja hér ættir
né uppvöxt Rósu, það gera eflaust
þeir, sem eru mér fróðari um þá
hluti. Við Rósa vorum kunnugar
frá því ég var ung kona og bjó í
Hafnarfirði, þá var mér bent á 16
ára stúlku, sem dvaldi þar um tíma
hjá skyldfólki sínu, mér var sagt
að hún myndi fáanleg til að líta
eftir börnum meðan skroppið væri
í bíó. Þessi stúlka var Rósa. Ég
dáðist að því hversu natin hún var
við börn og hvað hún var innilega
ánægð með að sitja hjá þeim með
sína handavinnu, þótt aðrir ungl-
ingar væru úti að skemmta sér.
Hvortveggja fylgdi Rósu ævina
á enda, sérstök barngæði og snilld-
ar handbragð, sem ávallt hennar
aðal. . • i'i ,
Ung að aldri giftist Rósa Guð-
mundi Tyrfingssyni, ættuðum af
Rangárvöllum. Þau stofnuðu heim-
ili á Selfossi og byggðu sér einbýl-
ishús af miklum dugnaði. Þau
eignuðust fjórar dætur. Oft hefur
sjálfsagt verið þröngt í búi hjá
þeim, eins og öðrum frumbýling-
um, en samt fannst mér alltaf telp-
urnar hennar Rósu vera svo vel til
fara að af bæri. Hún saumaði allt-
af fötin þeirra sjálf og bjó þar að
þeirri kunnáttu er hún hlaut við
nám í Kvennaskólanum að Staðar-
felli í Dölum þegar hún var ung
stúlka.
Þau Guðmundur og Rósa slitu
samvistum og bjó hún í fyrstu ein
með dætrum sínum, en fluttist
síðan til Grundarfjarðar til frænd-
fólks síns. Þar giftist hún síðar
frænda sínum, Guðbjarti Cecils-
syni, hinum ágætasta manni, sem
reyndist dætrum hennar eins og
besti faðir og barnabörnunum hinn
góði afi. Þau hjónin eignuðust ekki
börn saman, en oftast var nóg af
börnum í kringum þau, þótt dæ-
turnar flygju úr hreiðrinu, þá komu
barnabörnin til sögunnar, og Rósa
var svo sannarlega hin sanna
amma.
Þau Rósa og Guðbjartur áttu
saman mörg góð ár, þótt veikindi
og erfiðleikar sneiddu ekki hjá
þeim fremur en öðrum, þau voru
ákaflega samrýnd og áttp' , gott
Ellefu ár er ekki Iangur tími hjá
okkur sem eldri erum. En ellefu ár
eru ellefu 'ár, því megum við ekki
gleyma.
I sorginni vill yfirieitt gleymast
það sem á undan er gengið, þar sem
gleði og glaumur réði ríkjum. Við
megum ekki láta sorgina blinda
okkur, sorgin er til að sigra hana
og það getum við með því að sjá
hvað árin ellefu gáfu okkur.
Það var fyrir fjórum árum að ég
hóf að flytja kost að mötuneytinu
á Nesjavöllum, þá komst ég ekki
hjá því að kynnast Grétari litla, því
ef hann var heima, var hann kom-
inn til að hjálpa við að losa vörurn-
ar úr bílnum, þá skipti engu máli
hvort kassarnir væru þyngri en
hann sjálfur, það var samt reynt,
og jafnvel aðeins bölvað, ef kass-
arnir voru of þungir. Eitt sinn
spurði hann hvort ég væri til í að
fara heim að bæ með vörurnar
hennar ömmu, það gerði ég og sá
að amma hans var honum dýrmæt,
það skilja þeir sem hlýju hennar og
gestrisni hafa fengið að njóta.
Það má ekki bugast þó ljós
slokkni, það hefur verið bjart yfir
Nesjavallabænum og hverju fót-
spori Grétars, það mun verða það
áfram. Þó Grétar hafi brugðið sér
yfir á annað tilverustig, þá var það
ekki ætlun hans að taka með sér
ljós og gleði ættingja sinna og vina.
Látum minninguna um Grétar
lýsa okkur veg framtíðar og gleði.
Með þeim orðum vil ég þakka Grét-
ari þá minningu sem hann skildi
eftir hjá mér, sem mun geymast
þar til leiðir okkar liggja saman á
ný-
Það er von mín að bros og gleði
heimili, þar sem gott var að koma
og gestrisnin sat í fyrirrúmi, og
vil ég þakka þá hlýju og ánægju
er við hjónin nutum þar.
Rósa var söngvin, hafði góða
söngrödd og naut þess að syngja
í kirkjukór Grundarfjarðar.
Þótt samfundum fækkaði við
fjarlægð, hélst okkar vinátta söm.
Rósa hafði í mörg horn að líta til
dætra og ömmubarna og alltaf var
hún sama góða mamman og amm-
an, tilbúin til hjálpar, ef einhver
þarfnaðist hennar. Ég veit að Rósu
er sárt saknað af eiginmanni,
dætrum, barnabörnum, bræðrum
og öðrum ættingjum og vinum og
ég bið Guð að styrkja þau öll í
sorg þeirra.
Rósu vinkonu minni þakka ég
allt.
Fari hún í friði.
;, Jtagíia S, fiunnarsdóttir
festi sem fyrst rætur í hjörtum for- Ákveðni og skapfesta voru sterkir eldra hans, systkina, ættingja og þættir í fari hans og hann var eftir- ömmu hans á ný. minnileg persóna. Lífshlaup hans Samúðarkveðjur, varð ekki langt, en gæfuríkt. Þorvaldur Guðmundsson Þó Grétar Þór sé horfinn sjónum okkar mun minning hans lifa í hjört- Þeir deyja ungir sem guðirnir um okkar sem eftir stöndum. Minn- elska. Þessi orð koma upp í huga ing um fallegan og góðan dreng minn þegar ég kveð elskulegan sem ég trúi að gegni nú mikilvægu frænda og nafna minn í hinsta sinn. hlutverki á æðri stöðum. Grétar Þór yar yngstur barna þeirra Sonu|. - dýrðar hendi Sigurðar Jonssonar og Esterar Drottin Jminn ^ vært Hannesdottur. Systkmi hans eru hann, sera þér huggun sendi Jon Matthias og Hanna Bjorg. Gret- hann elskar þj “ kært ar Þor var augastemn ommu smnar þú lifðir ^um Guðj Guðbjargar Guðsteinsdottur sem í Guði sofnaðir þú asamt foreldrum og systkinum hans j eilifum andarfriðj ol hann upp við m.kið astnki. Það ætið sæl| ljfðu nú var þvi mikil harmafregn að þessi góði og lífsglaði drengur sem átti Elsku amma, Siggi, Ester, Jón allt lífið framundan skyldi hverfa og Hanna, sorg ykkar og söknuður frá okkur svona alltof fljótt. Hann er mikill. Megi góður guð styrkja sem var sólargeisli í lífi svo margra. ykkur og vernda um ókomna Grétar Þór var náttúmbarn af framtíð. Blessuð sé minning Grétars lífi og sál og í sveitinni innan um Þórs. dýrin undi hann hag sínum best. Grétar Jónsson ir w
t Móðir mín, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG G. ÞÓRÐARDÓTTIR, ættuð frá Patreksfirði, áður til heimilis á Haðarstig 15, lést á Hrafnistu, Reykjavík mánudaginn 16. apríl. Magnús S. Magnússon, Guðbjörg M. Gunnarsdóttir og synir, Ingibjörg Osk Birgisdóttir. *
Móðir okkar, DAGBJÖRT ÍVARSDÓTTIR, lést á Hrafnistu f Hafnarfirði laugardaginn 14. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Valgerður B. Hassing, ívar Arnar Bjarnason.
t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON frá Tjörn, Akranesi, síðar búsettur Vallarbraut 1, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 16. april. Ólöf Guðjónsdóttir og börn.
t GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR fyrrverandi söngkennari, lést í Landspítalanum laugardaginn 14. apríl. Hildur Þorsteinsdóttir Valgerður Þorsteinsdóttir.
t Bróðir okkar, GÍSLI ODDSSON, Sundabúð, Vopnafirði, andaðist 15. apríl. Jarðarförin fer fram frá Hofi laugardaginn 21. apríl kl. 14.00. Guðrún Oddsdóttir, Páll Oddsson. 4T
t Maðurinn minn, PÉTUR SIGURÐSSON, Bergstaðastræti 77, andaðist föstudaginn 13. apríl. Soffía S. Ó. Axelsdóttir.
t Bróðir okkar, INGÓLFUR AGNARS, Sævarsstfg 2, Sauðárkróki, lést á heimili sínu 13. apríl. Jarðsett verður frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 21. apríl kl. ^ 4-00- Systkini hins látna. 4