Morgunblaðið - 18.04.1990, Side 40

Morgunblaðið - 18.04.1990, Side 40
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRIL 1990 Kveðjuorð: Gunnar Jónsson frá Breiðabólstað Fæddur 2. janúar 1927 Dáinn 9. apríl 1990 Hann Gunnar Jónsson frá Breiðabólstað í Borgarfirði er dáinn. Ég trúi þessu tæplega enn. Þessi prúði elskulegi maður, horfínn svo skyndilega. Hann sem alltaf var boðinn og búinn til að rétta sína 'F traustu hjálparhönd. Það munu aðrir rekja sögu þessa mæta manns. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka honum, alla hans vin- áttu og hjálpsemi í minn garð. Ég bið guð að blessa hann og leiða í nýjum heimkynnum. Elskulegri eiginkonu hans og öðru vandafólki votta ég innilega samúð. Guð veiti þeim styrk í þeirra saru sorg. Marta Þorsteinsdóttir Páskahelgin er tími vonar og til- beiðslu í hugum allra kristinna manna. Fráfall nákomins vinar í páskavikunni, ber því að á þeim tíma, þegar atburðir páskahelginn- ar í Jerúsalem, minna okkur ein- mitt á það enn einu sinni, hvernig við öll, vegna pínu og upprisu Jesú, eigum fyrirheit um eilíft líf, þegar veraldarvafstrinu lýkur. Við kveðjum vin okkar Gunnar Jónsson frá Breiðabólsstað í Reyk- holtsdal, nú í lok páskahelginnar, þegar við höfum minnst upprisu frelsarans, fórnar og gjafar guðs til allra manna. Gunnar Jónsson fæddist á rBreiðabólsstað í Reykholtsdal 2. janúar 1927. Hann átti sín æsku- spor í fögrum sveitum sögufrægra Borgarfjarðardala, á heimili for- eldra og systra á landnámsjörðinni í Reykholtsdal. Bærinn stendur hátt í hlíð, þar sem sést til flestra bæja í dalnum. Þar er sumardýrðin ólýsanleg á björtum og kyrrum sumarkvöldum. Reykir stíga hátt til lofts frá heitum hverum, grænar grundir og grónir hálsar. Fljótið liðast um dalinn, en blá fjöll í fjarska, og hvítir jökulkoll- ar mynda umgjörð þessa dýrðlega listaverks náttúrunnar. Og kyrrð þessara ljúfu, björtu sumarkvölda dalsins er oft svo algjör að heyra ► má hljómkviðu búpenings og mannamáls, vítt og breitt um dal- inn. Á slíkum kvöldum verða örlög íslandssögunnar lifandi vettvangur í Reykholtsdal. Enn rýkur úr laug- inni hans Snorra, þar sem íslenskur héraðshöfðingi færði í letur atburði í lífi þjóðar sinnar og gaf að auki frændþjóð, okkar Norðmönnum, hornsteina í þeirra sögu. Sagnfræði og heimildir Reykholtsbóndans eru afreksverk, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Heimskringlu hans geta ungir Reykdælir enn þann dag í dag notað sem leiðsögubók í Miklagarði. Gunnar Jónsson varð þeirra gæfu aðnjótandi, að fæðast og alast upp og lifa sín manndómsár í faðmi þessara fögru sögufrægu byggða. Hann ólst upp í foreldrahúsum ásamt tveimur eldri systrum sínum. Foreldrar hans voru Jón óðalsbóndi Ingólfssonar, Guðmundssonar kirkjusmiðs og bónda að Breiða- bólsstað og konu hans Valgerðar Erlendsdóttur frá Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal. Eftirlifandi systur Gunnars eru Unnur Jónsdóttir hús- freyja, Deildartungu í Reykholts- dal, og Sigrún Jónsdóttir húsfreyja f Reykjavík. Gunnar ólst upp við trausta bú- skaparhætti forfeðra sinna og tók við búsforráðum er faðir hans dró sig í hlé. Gunnar var traustur bóndi, sem rak bú sitt með fyrirhyggju og af dugnaði og reglusemi. Hann, eins og faðir hans áður, fylgdist vel með öllum nýjungum í búskapar- greinum, nýtti sér það besta, sem tæknin bauð á hveijum tíma. Hélt hann áfram traustu samstarfi við nágrannana, skólastjóra og kenn- arabændur í Reykholti, enda liggja túnin saman. Ríkti þar skemmtileg samvinna um nýtingu dýrra land- búnaðarvéla, sem faðir hans hafði tekið upp með Reykholtsbændum og byggðist það samstarf á langri og traustri vináttu. Gunnar gekk ungur í héraðsskói- ann í Reykholti, sem jafnan hefir reynst ungu fólki dijúg og haldgóð menntunarbraut. Gunnar giftist 30. desember 1965 eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði J. Valdimarsdóttur, oggekk í föðurstað tveimur, þá ungum, son- um hennar, Brynjólfi og Valdimar, og tengdist einnig börnum þeirra innilegum „afa“ böndum. Fyrir um það bil fimmtán árum fór heilsa Gunnars að gefa sig, og líkamlegir burðir þessa hrausta og gjörvilega manns urðu aldrei samir eftir það. Lét Gunnar fljótlega af búskapar- störfum, og stundaði eftir það störf við verslun og þjónustu, þar til fyr- ir fáum árum, eftir að þau hjónin fluttu til Reykjavíkur, að hann ásamt konu sinni tók að sér gæslu og umsýslustörf við dvalarheimili aldraðra við Bólstaðarhlíð í Reykjavík. Þeim störfum sinnti Gunnar eins og öðru af alúð og árvekni, sem eldri borgarar þessar- ar fjölmennu byggðar kunnu vel að meta. Gunnar kunni vel við sig í „borginni við Sundin“, en oft mun hugurinn hafa reikað upp til Borg- aríjarðardalanna, og þá yljuðu ljúf- ar minningar bjartra sumardaga og vetrarkyrrðar, góðra stunda í byggðum og upp til heiða. Gunnar kenndi skyndilega hjartameins á pálmasunnudag og var þá fluttur á Borgarspítalann, þar sem hann lést að kvöldi næsta dags. Ættingjar og vinir Gunnars Jóns- sonar syrgja, og sakna hins góða drengs við skyndilega brottför hans. Þeir eru þakklátir fyrir samveru- stundirnar með Gunnari, því fram- koma hans og viðmót og vammlaus drengskapur, á öllum sviðum hafði mannbætandi áhrif á alla þá, er áttu því láni að fagna að eiga með honum samleið. gþ. Félagsbróðir, granninn góði, greiði ég þér í smáum óði hlýja kveðju hinsta sinn. Lít ég yfir líf til baka lítið meir en næturvaka sýnist forni ferillinn. Þetta erindi úr ljóðinu, Sigurður Gíslason frá Kletti, eftir Kristleif á Stóra-Kroppi vildi ég gera að mínum orðum þegar ég er nú sest- ur niður til að minnast vinar og nágranna míns Gunnars á „Breiða“. í raun og veru segir þetta erindi allt sem segja þarf og því e.t.v. best að hafa þessi orð ekki fleiri. En þar sem vinátta og samstarf okkar Gunnars var með nokkuð sérstökum hætti langar mig til að bæta nokkrum orðum við. Gunnar var fæddur á Breiðabóls- stað í Reykhoítsdal 2. janúar 1927 sonur hjónanna Jóns Ingólfssonar bónda þar og konu hans Valgerðar Erlendsdóttur. Ingólfur Guðmunds- son bóndi á Breiðabólsstað, faðir Jóns, var frá Helludal í Biskups- tungum en kona hans var Halla Pálsdóttir frá Koti á Rangárvöllum. Erlendur Gunnarsson bóndi á Sturlureykjum, faðir Valgerðar, var frá Geirshlíð í Flókadal. Erlendur var tvíkvæntur. Seinni kona hans hét Andrea Jóhannesdóttir frá Akranesi og var hún móðir Valgerð- ar. Báðir afar Gunnars voru ann- álaðir hagleiks- og dugnaðarmenn og kappsfullir að hveiju sem þeir gengu. Hér verður ætt Gunnars ekki rakin frekar. Það verða aðrir mér færari að gera. Gunnar ólst upp ásamt tveimur systrum sínum, Unni og Sigrúnu, hjá foreldrum sínum á Breiðabóls- stað; og átti þar heima til ársins 1984 að hann fiutti til Reykjavíkur og stundaði þar ýmiss konar vinnu til hinsta dags. Ekki hef ég trú á að Gunnar hafi kunnað vel við sig á mölinni, til þess var hann of mik- ið barn sveitarinnar. Grunur minn er sá að hugurinn hafi ærið oft hvarflað upp í Dalinn þó að hann segði það ekki berum orðum, enda ekki hans máti að flíka tilfinningum sínum eða bera þær á borð fyrir aðra. En hvenær og var sem fund- um bar saman barst talið fljótlega að afkomu manna á æskustöðvun- um, högum þeirra og háttum, tíðar- fari og afkomu svo auðfundið var hvar hugurinn dvaldi. Einkum var þetta áberandi þegar vora tók og loftið fylltist gróðurilmi. Þá munu vafalaust hafa liðið um huga hans minningar um iðjagræn tún, grænkandi móa og lömbin hoppandi á þúfnakollunum. Já, Gunnar var vissulega barn sinnar sveitar þótt örlögin höguðu því á þann veg að hann fluttí burtu. Þá fennir í fornar slóðir, göturn- ar sem áður voru fljótfarnar gróa upp, hverfa og gleymast en minn- ingarnar lifa. Þar var ekki löng leið eftir gömlu götunni sem lá upp tún- ið í Reykholti og skáhallt upp háls- inn að Breiðabólsstað. Þessa götu gekk ég oft þegar ég var barn og ekki lengdist leiðin við að finna að á Breiðabólsstað var maður alltaf velkominn. Átti það eftir að sann- ast betur síðar. Það mun hafa verið nokkru fyrir jól árið 1941 að skarlatssótt kom upp í Héraðsskólanum í Reykholti. Ég vann þá við íþróttakennslu víða um land á vegum UMFÍ en Steini y bróðir minn var í skóla í Reykjavík. Ekki kom til mála að við færum heim um jólin og ættum síðan á hættu að bera veikina út um allt land. Vissum við bræður varla hvar við vildum helst eyða jólunum. Fengum við þá skilaboð um að okk- ur væri velkomið að vera á Breiða um jólin og eftir það kom enginn annar staður til greina a.m.k. ekki í mínum huga. Dvöldum við svo þar um jólin og fram yfir áramót og voru móttökurnar þannig að mér fannst ég vera orðinn einn af fjöl- skyldunni. Slíkur vinargreiði verður seint fullþakkaður. Tíminn líður. Árið 1947 fer ég að búa með föður mínum í Reykholti og nokkrum árum síðar fer Gunnar að búa með föður sínum á Breiða. Gott sam- komulag ríkti alla tíð milli þessara bæja og samstarf var mikið. Þegar vélvæðingin hélt innreið sína í íslenskan landbúnað varm ikið kapphlaup um að ná í þær fáu drátt- arvélar sem í boði voru. Var þá brugðið á það ráð að Breiðabóls- staður og Reykholt keyptu eina dráttarvél saman og stóð þá ekki á afgreiðslu. Var það stór stund er gripurinn kom. En nú fjölgaði bæði dráttarvélum og tækjum smátt og smátt, einkum heyvinnutækjum og samtímis fór samvinna okkar við heyskapinn vaxandi sérstaklega við hirðingu. Við sáum að með því að vinna saman nýttust tækin mun betur og um leið sparaðist tími. Var fyrst farið með öll tækin á annan bæinn og síðan á hinn og ekki hirt um að halda bókhald þó unnið væri einum eða tveimur tímum lengur á öðrum bænum en hinum og er sá reikningur því óuppgerður. Um slíkt var ekki hugsað heldur aðeins að ná sem mestu heyi inn á sem styst- um tíma. Vagnarnir þutu fram og aftur allan daginn og árangurinn minnti á gömlu þjóðsöguna „Heim í garð til Sæmundar". Þetta voru vinnubrögð sem Gunnari líkaði og í fullu samræmi við áhuga hans og kapp. Eitt atvik er mér sérstaklega minnisstætt frá þessum árum. Góður þerrir hafði verið í nokkra daga og mikið hey þurrt á báðum bæjunum, ýmist flatt eða í beðjum. Ákveðið var að fara í hirðingu dag- inn eftir enda veðurspá góð. Byijað var á Breiða um morguninn og allt gekk vel eins og venjulega. Um hádegi fór þó veðurútlit að verða tvísýnt svo búast mátti við síðdeg- isskúrum. Vildi Gunnar þá ólmur að við flyttum okkur í Reykholt svo að við næðum einhveiju inn þar líka ef illa færi. Við aftókum með öllu að eyða tíma í að flytja „vélaher- deildina“ eins og við kölluðum tæk- in okkar á milli, milli bæja og vorum sannfærð um að við myndum sleppa. Svo varð þó ei því að næst- um á sama tíma og heyið af síðasta vagninum var komið inn í hlöðu á Breiða gerði mikla rigningargusu svo auðséð var að ekki yrði meira hirt daginn þann. Tækin voru þó flutt að Reykholti og allir í góðu skapi nema Gunnar. Greinilegt var að hann var ekki ánægður með árangur dagsins, en það breyttist næsta dag. Var þá komið glamp- andi sólskin og besti þurrkur. Ann- aðhvort hefur Gunnar farið snemma á fætur eða gleymt að mjólka kýrnar sínar morguninn þann þvl að hann var mættur með sitt lið fyrir allar aldir í Reykholt til að ryðja úr blautum beðjum og snúa því heyi sem flatt var. Er ekki að orðlengja það að um kvöld- ið var allt hey af Reykholtstúni komið inn í hlöðu og nú var enginn kátari en Gunnar. Hann hafði greitt skuldina frá deginum áður, jöfnuður var kominn á. Þetta atvik lýsir bet- ur en mörg orð manninum Gunnari á Breiða. Það skaðast enginn á samstarfi við slíkan nágranna. Fyrstu árin eftir að Gunnar hóf búskap bjó hann með ýmsum bú- stýrum en árið 1965 kvæntist hann Sigríði Valdimarsdóttur sem ættuð er vestan af Skógarströnd. Þeim Gunnari og Sigríði varð ekki barna auðið en Sigríður á tvo syni af fyrra hjónabandi, Brynjólf og Valdimar Einarssyni. Brynjólfur býr nú á Breiðabólsstað en Valdimar í Grindavík. Það var aldrei ætlun mín að rekja ævisögu Gunnars hér. Aðeins að geta nokkurra atriða úr margra ára vináttu og samferð og verða þessi orð því ekki fleiri. Nú þegar Gunnar er horfinn yfir móðuna miklu, lagður upp í þá för sem okkur er öllum áskapað að fara fyrr eða síðar, þökkum við hjónin margra ára vináttu og tryggð og sendum Sigríði eiginkonu hans, systrunum Unni og Sigrúnu svo og öllum öðrum vandamönnum hans og vinum innilegar samúðar- kveðjur og er ég viss um að ég mæli fyrir munn allra systkina minna og barna okkar hjóna. Þó að maðurinn hverfi lifir minn- ingin um góðan dreng. Jón Þórisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.