Morgunblaðið - 18.04.1990, Side 41

Morgunblaðið - 18.04.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRIL 1990 4i Kristín U. Þórðar dóttir - Minning Fædd 20. júní 1913 Dáin 7. apríl 1990 í gær var amma mín Kristín Unn- ur Þórðardóttir jörðuð og rifjuðust allar minningar um okkur upp. Sem ungbarn var ég alitaf hjá ömmu og átti bamavagninn minn sérstakan stað í litlu stofunni henn- ar. Ég átti mjög lengi „leyndó“ hjá ömmu og voru það tvö snuð sem geymd voru í glasi í efstu hillunni inni í eldhúsi hjá henni. Er ég fluttist til útlanda var sökn- uður í hennar garð afskaplega mik- ill. Á meðan á dvöl okkar í Dan- mörku stóð fengum við tilkynningu um alvarleg veikindi ömmu og fór móðir mín þá strax til íslands. Ég var lengi að sætta mig við það að ég fékk ekki að fara með til að heim- sækja ömmu. Þegar við systkinin komum svo aftur heim til íslands fórum við að heimsækja ömmu. Amma var þá á spítala og þegar við komum sat hún úti í sólinni. Hún þekkti okkur ekki þegar við komum labbandi að henni og heilsuðum. Loks sá hún íjölskyldusvipinn og sá ég að gleðitár rann niður kinn henn- ar. Hún faðmaði okkur að sér og byijaði að spjalla við okkur af fullum krafti. Síðan veikist amma alltaf meira og fannst mér ég íjarlægjast hana meira. Það var mjög sárt því að við vorum svo góðar vinkonur áður fyrr. Ef við hefðum ekki flust til Dan- merkur hefði þetta örugglega ekki gerst. Síðustu jól gat amma ekki verið með okkur vegna veikinda. 011 jólin sem við höfðum átt saman hafa ver- ið svo eftirminnileg og stundum sá maður ánægjuna glampa í augum hennar. Veikindi hennar komu í veg fyrir yndislegar samverustundir þessi jól. Við heimsóttum ömmmu á spítalann á aðfangadag og hengdum upp hjá henni skraut til að gera jóla- legt. En þegar við þurftum að kveðja fékk ég sting í hjartað, eins og að hluti af því væri að eyðileggjast. Er mér var tilkynnt lát hennar ömmu minnar snemma einn laugar- dagsmorgun átti ég bágt með að trúa því að hún amma mín væri farin að eilífu. Ég lá lengi andvaka og hugsaði um mig og ömmu, það eina sem kom upp í huga minn voru allar ánægju- stundirnar sem við áttum saman, ég og amma. Ég fylltist mikilli sorg þegar ég fyrst áttaði mig á því að hún amma mín væri dáin. Guð blessi minningu hennar. Með kveðju, Lísa Krisljánsdóttir I gær þriðjudaginn 17. apríl, var ástkær móðir okkar lögð til hinstu hvílu eftir langvarandi veikindi. Guð blessi minningu hennar. Hvar ertu móðir mín: þín augu sem vöktu yfir mér föllnum þín hönd sem leiddi mig gegnum ystu myrkur þinn faðmur sem bar mig upp himnastigann þín tunga uppspretta míns ljóðs? Hvarvetna leita ég þín: í moldinni snjónum loftinu og alstaðar verð ég þín var en er ég hleyp til og vil grípa þá er það bara geisli þá er það bara skuggi. Æ hversu lítil er: í vöggu rökkursins hvílir mín stóreyga sál eins og nýfætt barn og mænir upp til stjamanna. (Jóhannes úr Kötlum) Kveðja frá börnunum Jarðarför Kristínar Unnar Þórðar- dóttur fór fram þriðjudaginn 17. apríl síðastliðinn, frá Hallgríms- kirkju í Reykjavík. Kristín andaðist í sjúkrahúsinu á Vífilsstöðum, laug- ardaginn 7. apríl, eftir langa og erf- iða glímu við sjúkdóm sinn. Hún fæddist 20. júní 1913, í foreldrahús- um á ísafirði, yngst 11 systkina, dóttir hjónanna Sólveigar Jónsdóttur og Þórðar Þórðarsonar Grunnvík- ings. Kristín var af kunnum vest- firskum ættum, þekktum af dugnaði og manndómi. Gísli, kallaður hinn ríki, frá Bæ á Selströnd var langafi hennar í móðurætt og eins og áður segir var Þórður Grunnvíkings faðir hennar, en hann var sonur Þórðar í Hattardal þingmanns Isfirðinga 1880-85, Magnússonar prests að Hrafnseyri, Þórðarsonar prests í Ögurþingum. Hún var aðeins tveggja ára gömul þegar faðir henn- ar lést, en á ísafirði ólst hún upp til fullorðinsára og bjó þar er hún missti unnusta sinn, Sigurvin Pálma- son, frá 11 mánaða gamalli dóttur þeirra árið 1933, er bátur hans fórst með allri áhöfn. Kristín vann við-hjúkrunarstörf á sjúkrahúsinu á ísafirði er hún kynnt- ist Sigurði Gíslasyni frá Viðey sem hún giftist 4. júlí 1936 og fluttist með til Reykjavíkur, þar sem heim- ili þeirra stóð meðan honum entist aldur, en hann fórst af slysförum 22. september 1958. Sigurður og Kristín eignuðust saman 5 dætur og einn son, Sigrúnu Unni, f. 28. apríl 1937, Sólveigu Svöfu, f. 22. mars 1938, Aðalheiði Lilju, f. 11. apríl 1941, Gísla Reyni, f. 23. nóvember 1943, Maríu Ernu, f. 2. desember 1944, og Margréti, f. 10. febrúar 1953. Elsta barn Kristínar, Sigurvina Alda Sigurvins- dóttir, erfædd 12. nóvember 1932. Árið 1968 giftist Kristín í annað sinn. Seinni eiginmaður hennar var Gestur Sigurðsson frá Brúará í Strandasýslu og var það einnig hans annað hjónaband. Gestur lést 8. september 1982. Eins og strax verður ljóst af lestri þeirra staðreynda um lífshlaup Kristínar Þórðardóttur sem hér koma fram, hefur það tæpast verið neinn dans á rósum. Faðir hennar drukknaði þegar hún var tveggja ára , systkinin voru 11, það elsta 15 ára. Hið opinbera velferðarkerfi var þá ekki fætt, barnahópar tvístruðust, lífsbaráttan var hörð, en lífið hefur sinn gang. Ung og fríð stúlka eignast sitt fyrsta barn með heitmanni sínum, en aftur er höggvið á þráðinn og framtíðar- áform breytast. Full þörf hefur hinni ungu móður verið að vöggugjöf sinni frá hinum styrku stofnum vestfir- skra manndómsætta er að henni stóðu. Vafalaust hefur sú vöggugjöf einnig reynst henni dijúgtil að skapa hið myndarlega alþýðuheimili sem hún átti með Sigurði manni sínum og mannvænlegum barnahópnum. Það vegarnesti flutti hún vissulega áfram til barna sinna er hún brýndi fyrir þeim að gera fyrst og fremst kröfur til sjálfra sín samfara rétt- sýni og heiðarieika. Því miður lauk hamingjuríku hjónabandi Sigurðar og Kristínar með sviplegum hætti er hann lést af slysförum við vinnu sína. Sigurður var verkstjóri við Togaraafgreiðsluna í Reykjavík. Þrátt fyrir að ólög þau sem riðið hafa yfir líf þessarar svipsterku al- þýðukonu hafi verið mörg og þung tókst henni alltaf að standa fyrir sínu eins og hún sjálf gjarnan orð- aði það, þótt hið hastarlega fráfall eiskaðs eiginmanns hafi án efa haft mest áhrif á líf hennar efir það. Árið 1968 giftust þau Gestur og Kristín, keyptu fljótlega litla íbúð á Brekkustíg 3a í Reykjavík þar sem heimili hennar stóð síðan meðan hún lifði. Þangað var gott að koma, þar sem saman fór rósemi og góðvild húsbóndans, gestrisni og innileiki húsfreyjunnar. Eftir fráfall Gests fóru veikindi þau er lengi höfðu hijáð Kristínu að hafa æ meiri áhrif á líf hennar og líðan þar sem lengri og skemmri vistir á sjúkrahúsi urðu óhjákvæmilegar. Að komast ekki heim til sín og sjá um sig sjálf vai ekki að hennar skaplyndi, en engir má sköpum renna. Það varð henni einnig ljóst og var innilega þakklát starfsfólki sjúkra- hússins á Vífilsstöðum fyrir frábæra og nærfærna umönnun þar til yfii lauk. Með þessum fátæklegu kveðjuorð- um vil ég láta í ljós þakklæti mitt fyrir að hafa átt þess kost að kynn- ast Kristínu Þórðardóttur, lífsvið- horfum hennar og lífsverki, sem ég vona að skili sér með farsæld til afkomenda hennar. Þeim og öðrum vinum hennar og vandamönnum sendi ég samúðar- kveðjur, en við vitum öll að minning- in um góðan dreng mun lifa. Nikulás Jensson LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... . þær duga sem besta bók. Múlalundur i S [ M1: 62 84 50 £ Vinningstölur iaugardaginn 14. apríl '90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.397.525 O fu'sííAÍ(U$ Z. 4af5^pi 5 83.326 3. 4af5 107 6.716 4. 3af 5 3.615 463 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.206.512 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 ígildar freistingar í nýjum umbúðum! Þó að flatkökurnar okkar hafi nú fengið nýjan og veglegri búning, þá eru þær enn sömu Ijúfmetiskökurnar. Láttu freistast og nældu þér í fyrirtaks snæðing frá Ommubakstri BAKARÍ FRIÐRIKS HARALDSSONAR SF. KÁRSNESBRAUT 96, KÓPAVOGl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.