Morgunblaðið - 18.04.1990, Page 44

Morgunblaðið - 18.04.1990, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 Minning: Ágústa H. Sigurðar- dóttir lögíræðingur Fædd 21. ágúst 1960 Dáin 9. apríl 1990 Engin orð fá lýst með hve miklum trega þessar línur eru skrifaðar. Það er þyngra en tárum tekur að minnast elskulegrar systurdóttur minnar látinnar. Hefði mig órað fyrir að ég ætti eftir að vera í þess- ari aðstöðu, hefði ég oftar lagt leið mína í Seilugrandann síðustu árin og ræktað betur vináttuna við elsku frænkuna mína og ekki látið neitt tækifæri ónotað til að iáta hana vita hversu vænt mér þótti um hana og hve mikið mér þótti til hennar koma. En nú er það of seint. 21. ágúst árið 1960 var mikill gleðidagur, því þá fæddist frum- burður stóru systur minnar, Jó- hönnu og Sigurðar Pálssonar, manns hennar. Ekki var gleðin síðri hjá mér, tæplega tíu ára gamalli. Ég var yngst fjögurra systkina og hafði árangurslaust rellað um að fá að eignast lítið systkini. Ég þótt- ist því hafa himin höndum tekið þegar ég fékk yndislega litla frænku. Fram að þessu hafði ég verið heimagangur hjá Jóhönnu og Didda, en nú var ekki stundlegur friður fyrir mér og nýtti ég hveija fría stund til að vera hjá systur minni og litlu stúlkunni okkar — að mér fannst. Ég varð líka heldur en ekki upp með mér þegar hún var skírð og fékk nafnið Ágústa Helga — og tók það að sjálfsögðu beint til mín. Það var stolt frænka sem ýtti á undan sér barnavagnin- um og síðar kerrunni og sýndi hveij- um sem sjá vildi þennan dýrgrip sinn með ljósu lokkana og fallega brosið. Við brölluðum mikið saman næstu árin — fórum í búleiki með viðeigandi drullumalli, teiknuðum og föndruðum og áttum ótal góðar stundir. Svo bættist Magga Stína í hópinn, öllum til gleði og er vart hægt að nefna aðra systurina án þess að minnast á hina, svo sam- rýndar voru þær alla tíð. Þær voru miklir gleðigjafar og í uppáhaldi hvar sem' þær komu. Ekki má gleyma henni Möggu, sem ég kall- aði Tollasíus, frænku systranna, sem oft var góð viðbót í hópinn og sér nú ekki aðeins á eftir góðri frænku, heldur og góðum vini. Ágústa Helga var mjög skýrt og skemmtilegt bam. Hún var altal- andi áður en nokkur tönn lét sjá sig og þriggja ára var hún læs. Hún var bráðgreind og hafði næma kímnigáfu. Mér eru minnisstæð mörg skemmtileg tilsvör hennar, svo sem þegar hún var bara smá kríli og vinkona mín spurði hana hvað hún héti. „Magga“ svaraði Ágú, grafalvarleg á svip. Henni var vel ljóst að spyijandinn vissi alveg hvað hún hét. En úr því spurningin var út í hött, var svarið í sömu mynt. Hún stóð sig afburða vel í skóla, en fannst jafnan sjálfri lítið um. Þegar hún sl. vor útskrifaðist sem lögfræðingur, þriggja barna móðir, var hún meðal efstu manna. Auk námsgáfna var hún gædd' ríkum tónlistargáfum. Tónlistar- kennari hennar staðfesti að hún hafði hreina tónheyrn, eða það sem kallað er absolut eyra. Næsta fáir munu vita þetta, enda flíkaði hún þessum kostum ekki, fremur en öðrum, sem hún hlaut í vöggugjöf. Hún giftist miklum öðlingi, Búa Kristjánssyni, en þau voru ein fal- legustu brúðhjón sem ég hef séð. Augljóst var alla tíð að vart mátti á milli sjá hvort dáði hitt meira og veittu þau hvort öðru mikla ham- ingju. I kjölfarið komu svo litlu gullin þijú, stolt móðurinnar — þeir Haukur Þór, Birgir Hrafn og Arnar Már, sem nutu mikils ástríkis sam- hentra foreldra. Lífið virtist leika við Ágústu Helgu. En það er svo margt sem við ekki skiljum. Hvernig getur nokkur sem búinn er svo miklum mannkost- um — góðum gáfum, greind, gæsku og fegurð, nokkur seifi alla tíð hef- ur búið við svo mikið ástríki hjá foreldrum, systur, eiginmanni og bömum — efast um gildi sitt? Svar- ið er í raun einfalt. Sjúkdómar fara ekki í manngreiningarálit. Það var sjúkdómur sem dró elsku stúlkuna okkar til dauða. Sjúkdómur, sem var ekki alltaf sýnilegur, en gróf um sig og skaðaði ekki síður en aðrir, stundum auðgreindari sjúk- dómar. Elsku hjartans Ágústa Helga mín er farin frá okkur. Hún er farin til Guðs, þar sem angist og kvöl er vikið burt. Elsku fallega stúlkan mín hefur fundið frið. Nú, þegar ég fletti í gegnum myndasafnið, hljóta myndimar ann- að og meira gildi og minningarnar verða enn dýrmætari. Sorgin svíður sárt og söknuðurinn er óumræði- lega mikill. En það er ekki of seint fyrir okkur. sem eftir lifum að hlúa að drengjunum hennar, eiginmanni, foreldrum og systur — og það ger- um við fyrir hana. Guð geymi elsku Ágústu Helgu — þar til við hittumst á ný. Helga Möller í dag verður Ágústa Helga Sig- urðardóttir lögð til hinstu hvílu í okkar venjulega jarðneska skiln- ingi. Við þau leiðarskil langar mig til að kveðja hana með nokkmm minningar- og þakkarorðum fyrir liðna tíð. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og það á vel um þá sorglegu stað- reynd að Ágústa Helga, frænka mín, er ekki lengur á meðal okkar. Þessi fallega stúlka sem lýsti allt upp með fegurð sinni og yndisþokka er nú hjá Guði. Á æskuárunum í MR var hún á föstu með Búa Kristjánssyni, sem er einn besti maður sem ég hef kynnst, og þótti mér þau vera dug- leg, ættrækin, reglusöm og í alla staði mjög hjálpsöm. Það fór svo að þau gengu í það heilaga og eins og mörg æskuástin varð þetta eitt besta hjónaband sem ég hef kynnst. Trúin er kjölfesta tilverunnar í lífí þessarar fjölskyldu og það á eftir að hjálpa þeim í þessari sorg. Þar sem ég hef vissu fyrir því að Búi og Ágústa sneru bökum saman og kenndu bömum sínum að trúa á Guð þá á það afdráttarlaust eftir að hjálpa þeim á erfíðum tímum ástvinamissisins. Mér sýndist Ágústa Helga aldrei kunna vel við sig í fjölmenni. Ég held að henni hafi fallið betur að eiga stund með fáum vinum og kunningjum og heimakær var hún svo af bar. Nú ér dvöl Ágústu á þessu til- verusviði lokið. Kallið kom snögg- lega og fyrr en búist var við. Ágústu verður sárt saknað, það verður tómlegra eftir en áður. Sökn- uðurinn er þó mestur og sárastur í heimaranni og hjá foreldrum henn- ar. Ég og móðir mín sendum fjöl- skyldu hennar samúðarkveðjur í fullvissu þess að á bak við hin dimmu ský er mikið sólfar. Kári Thors Stundum nístir sorgin hjarta manns svo sárt að öll orð virðast fánýt og gagnslaus. Þannig er það á þessari stundu og samt ætlum við að reyna að minnast vinkonu okkar, Ágústu Helgu Sigurðardótt- ur, með fáum orðum til þess eins að láta í ljósi hvað okkur þótti vænt um hana. Það er svo einkenni- legt að ætla að hugsa um hana í þátíð núna þegar manni fínnst hún enn svo nálæg að það hljóti að vera hægt að hringja til hennar í kvöld eins og venjulega — og þó er það ekki í fyrsta sinn sem við veltum því fyrir okkur hvernig hún var því að á margan hátt var hún óvenjuleg og einstök. Hún virtist við fyrstu sýn mjög alvörugefin og jafnvel þóttafull. Við sem þekktum hana vel, vissum hins vegar að hún hafði mjög gott skopskyn og gat verið einstaklega orðheppin og fyndin. Við vissum líka að hún átti mjög hlýjar tilfínningar og innilega sam- úð með öðrum þótt henni væri ekki eiginlegt að bera tilfínningar sínar á torg. Hún var mjög grönn, fínleg, viðkvæm og virtist næstum því brothætt en um leið var alltaf ein- hver reisn yfir henni. Hún lét atdrei neinn ráðskast með sig, vissi hvað hún vildi og fór sína leið. Hún var ekki allra, en trygg vinum sínum og brást þeim ekki þegar á reyndi. Við vorum sjö ára þegar við byrj- uðum saman í bekk í Melaskólanum og vinátta okkar hélst alla tíð upp frá því. Við vorum líka í sama bekk í Kvennaskólanum og í MR þann tíma sem Ágústa var þar. Hún skipti um skóla eftir tvo og hálfan vetur og lauk stúdentsprófí frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Seinna fór hún í lögfræði og útskrifaðist sem lögfræðingur vorið 1989. Hún var óvenjugreind og svo næm að læra að það vakti oft furðu manns. Hún átti einstaklega góðan eigin- mann og með honum þijá fallega og efnilega drengi. Lífið virtist leika við hana og samt var það henni alla tíð svo einkennilega þungbært. Hún átti góða að á alla vegu. Af einhveijum ástæðum vorum við ein- mitt að tala um það síðasta skiptið sem við hittumst og þá sagði hún svo blátt áfram að það væri vissu- lega mjög gott að eiga góða fjöl- skyldu. Við vitum að hún mat það mikils. Við vitum líka að núna eiga svo margir um sárt að binda vegna þess að hún er farin og kemur ekki t Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, ÁGÚSTA HELGA SIGURÐARDÓTTIR lögfræðingur, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, í dag miðvikudaginn 18. apríl, kl. 10.30. Búi Kristjánsson, HaukurÞór Búason, Birgir Hrafn Búason, Arnar Már Búason, Jóhanna G. Möller, Sigurður Pálsson, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Börge Johannes Wigum. t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, HÖGNI HELGASON, Kópavogsbraut 97, lést í gjörgæsludeild Borgarspítalans laugardaginn 14. apríl. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 23. apríl kl. 13.30. Kristín Halldórsdóttir, Ketill Högnason, Hildur Högnadóttir, Haukur Högnason. t Útför, ÁSDÍSAR JÓHANNESDÓTTUR, Faxabraut 38 B, Keflavík, sem lést á föstudaginn langa, verður gerð frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju laugardaginn 21. apríl kl. 14.00. Pálmi Viðar, Elísabet Jensdóttir, Martha Jensdóttir, Jóhannes Jensson, Katrín Friðjónsdóttir, Hilmar Jónsson, Benjamin Vilhelmsson, Guðrún Lúðvíksdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SVEINBJÖRNS SIGURJÓNSSONAR magisters, fyrrv. skólastjóra, Smáragötu 12, Soffía Ingvarsdóttir, Guðrún Sveinbjarnardóttir, Baldvin Tryggvason, Arnþór Garðarsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Soffía Arnþórsdóttir, Tryggvi M. Baldvinsson, Þrándur Arnþórsson. t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarfor, HAUKS ÞORLEIFSSONAR fyrrverandi aðalbókara, Rauðalæk 26, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Guðjóns Lárussonar, læknis, og starfsfólks á deildum 1-A og 2-A, Landakotsspítala, fyrir frábæra umönnun. Ásta Björnsdóttir, Gunnar Már Hauksson, Þorleifur Hauksson, Halla Hauksdóttir, Nanna Þórunn Hauksdóttir og aðrir vandamenn. aítur. Við getum hvorki þekkt né skilið til fulls myrkrið sem settist að í sálu hennar en það fyllir okkur ósegjanlegri hryggð. 10. sálmur Davíðs hefst þannig: „Hví stendur þú fjarri, Drottinn, hví byrgir þú augu þín á neyðartímum?“ Þannig spyijum við þegar myrkrið virðist hafa tekið völdin. En síðar í sama sálmi standa þessi orð: „Þú gefur gaum að mæðu og böli til þess að taka það í hönd þína.“ Ekkert myrk- ur er svo ógurlegt og enginn staður svo afskekktur að maðurinn sé þar alveg einn. Bæði í lífí og dauða erum við í hendi Guðs og ekkert getur gert okkur viðskila við kær- leika hans. Við viljum að lokum þakka vináttu og traust sem hélst allt til enda og var okkur mikils virði. Það er dýrmætt að eiga góðar minningar og þótt þær veki sökn- uð, eru þær okkur líka huggun. Við biðjum Guð að styrkja eiginmann hennar og börn, foreldra hennar, systur og aðra aðstandendur. Margrét Eggertsdóttir, Gyða Karlsdóttir. Það er erfítt að skrifa núna. Það er svo erfítt að sætta sig við að Ágústa Helga skuli vera dáin. Það virðist svo tilgangslaust og óréttlátt og grimmilegt. Hvers vegna hún? Okkur er ekki gefíð að skilja allt. Minningarnar fylla hugann. Ég man eftir Ágústu allt frá því í barnaskóla. Frá unglingsárunum tengist hún flestum góðum minn- ingum. í samstarfi við fjölskyldu hennar í kristilegu starfi og vegna einstakrar velvildar Jóhönnu og Sigurðar, naut ég hjá þeim hlýju og skilnings sem seint verður full- þakkað. í KSS eignaðist ég marga þá vini og kunningja sem best hafa enst síðan. Þar var Ágústa aldrei langt undan. Ég man hana ætíð sem trausta og vandaða stúlku sem í engu mátti vamm sitt vita, var stórgáfuð, gerði allt vel og reyndist öðrum vel. Á þessum árum kynntist hún Búa og þau bundust óijúfanlegum tryggðaböndum. Framtíðin virtist brosa við þeim, ungu hæfíleikafólki á leið út í lífið. Ágústa Helga hafði mjög margt til brunns að bera. Til marks um hæfileika hennar er að henni skyldi * takast að ljúka lögfræðinámi með glæsibrag nokkru eftir að þriðji sonurinn fæddist. Ágústa átti marga góða að — foreldrana og elskulega systur, traustan eiginmann og yndislega syni, hóp ættingja og trúrra vina sem vildu bera byrðar hennar. Samt hlaut hún að ganga í gegn- um mikið myrkur og loks að lúta í lægra haldi fyrir þeim sjúkdómi sem einna erfíðast er að beijast við. Það er erfítt að sætta sig við dauða Ágústu eins og aðra nístandi kvöl. Á slíkum sorgarstundum verð- ur fátt um svör við erfiðum spurn- ingum um eðli þjáningarinnar eða það hversu óréttlátlega mönnum er skammtað hið beiska. Engin orð megna að hugga á þessum dimma tíma — nema orð krossins. Eina huggunin felst í því að Kristur leið í stað okkar, tók með sér upp á krossinn alla eymd og alla sekt og opnaði mönnum leið að allri dýrð Guðs með upprisu sinni. Ágústa heitin átti þá trú á Jesú Krist. Trúin er ekkert töframeðal gegn þjáningu og meinum lífsins eða sjálfvirk lausn vandans. En hún gefur okkur von — í gegnum myrk- ur krossins skín birta páskanna, upprisuljóminn. Ágústa heitin var barn Guðs í lífi sínu og er það áfram í dauðanum. Hún er nú stigin yfir frá dauðanum til lífsins — er í faðmi frelsarans þar sem engin þjáning er til og öllu því úthýst sem gengur í berhögg við algæsku Guðs. Því megum við treysta — af því að hann sagði: Ég er upprisan og lífíð. Sá, sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi (Jóh. 11:25). Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Ágústu Helgu og njóta vináttu hennar. Ég skil ekki hvers vegna svona hlaut að fara en verð að treysta því að allt sé í hendi Drottins. Kæru vinir, Búi og drengimir, Jóhanna og Sigurður, Magga Stína og aðrir ástvinir. Missir vkkar er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.