Morgunblaðið - 18.04.1990, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 18.04.1990, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 55 Við treystum á tilkynn- ingar í útvarpsstöðvunum manna verið í bráðri lífshættu. Við heyrum um skelfileg efnaslys úti í löndum, verksmiðjur eru að springa í loft upp og það eru eitur- efnaslys og hvað eina. Kannski er - segja íbúarnir að Fannafold 103 „VIÐ treystum á að látið yrði vita í útvarpi ef hættuástand væri,“ sögðu Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Sigurlína Davíðsdóttir í sam- tali við Morgunblaðið aðspurð um hvort hvarflað hefði að þeim að yfirgefa heimili sitt vegna brunans í Áburðarveksmiðjunni á páskadag. Þau búa á Fannafold 103, sem er í jaðri Grafarvogs- hverfisins næst Áburðarverksmiðjunni og voru heima ásamt þrem- ur drengjum, þegar kviknaði í ammóníaksgeyminum. Ragnar seg- ir að ekkert hafi verið að heyra í útvarpinu um hvað var á seyði, fyrr en í fréttum klukkan sjö, um klukkustundu eftir að atburðirn- ir gerðust. „Við vorum hér heima, heyrðum í sírenum og sáum bíla fara niður- eftir. Fyrst sáum við tvo bíla fara, síðan þann þriðja og svo hvern af öðrum. Þá varð okkur ljóst að eitt- hvað var að gerast þama, kveikt- um á útvarpi og fylgdumst mjög grannt með. Maður veit að þetta er mjög hættulegt," sagði Ragnar. Hvernig leið ykkur eftir á, eftir allar útskýringar á þeirri hættu sem yfir vofði? „Við vissum auðvitað að þessi geymir er hættulegur, það hefur fyrir löngu komið fram. Ég veit ekki hvaða einkunn á að gefa þessu, við leituðum ekki sjálf nægilega eftir því hvað við ættum að gera. Við búum hér við hliðina á verksmiðjunni og þetta er vissu- lega á okkar ábyrgð líka. En, eng- inn hafði fyrir því að fræða okkur um hvað við ættum að gera,“ sagði Sigurlína. Þau voru spurð hvort þeim finn- ist nægilega mikið hafa verið hugsað um öryggi íbúanna í ljósi þess, að nágrenni verksmiðjunnar gæti í versta falli verið í bráðri hættu innan nokkurra mínútna. „Það er alltaf spuming hveijir eiga að hugsa um öryggið," sagði Ragnar. „Era það íbúarnir sjálfir sem eiga að hugsa um öryggi sitt eða aðrir. Við hér höfum kannski ekki verið nægilega hörð á því að fá upplýsingar um þetta. Það sem er auðvitað aðalatriðið er það, að við vöknuðum upp í gær við að þetta er hættulegt, svo hættulegt að þama gátu tugir þúsunda slík hætta hér rétt utan við lóðar- mörkin okkar?“ Á þá að loka verksmiðjunni? „Mér finnst að þessi verksmiðja eigi ekki að vera hér. Þessi byggð og verksmiðjan fara ekki saman, það er alveg Ijóst,“ sagði Ragnar. „Það má lengi deila um það hvort á að draga eihvern til saka vegna þess að þetta er svona, en þetta er einfaldlega svona np. Hér stendur eiturverksmiðja inni í þús- unda manna byggð og mér finnst að það eigi ekki að vera. Því verð- ur að breyta," sagði Sigurlína. „Annað hvort að fara með okk- ur eða verksmiðjuna,“ sagði Ragn- ar. Morgunblaðið/Júlíus Davíð Ingi Ragnarsson, Sigurlína Davíðsdóttir Guðmundur Ingi Guðmundsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Aðalsteinn Ingi Ragn- arsson fyrir utan heimili sitt, Áburðarverksmiðjan í baksýn. Það var lítið annað að gera en að reyna eitthvað — segir Þórður Bogason slökkviliðsmaður „EF tankurinn hefði sprungið á annað borð, þá held ég að við hefðum hvort sem var allir farið, þannig að það var lítið annað að gera en að reyna eitthvað og sjá hvað maður kæmist langt með þessa slöngu sem við tókum upp með geyminum," sagði Þórður Bogason slökkviliðsmaður í sam- tali við Morgunblaðið. Þórður var á vakt í Árbæjarstöð slökkviliðsins þegar útkall kom til Áburðarverk- smiðjunnar og það var hann sem fór upp á logandi ammóníaks- geyminn við annan mann og slökkti eldinn. Frásögn Þórðar fer hér á eftir. „Tilkynningin kom rétt fyrir áex, þá erum við Sigurður Guðmarsson skráðir á sjúkrabíl og fömm í sam- Úr dagbók slökkvi- liðsins Kl. 17.47. Tikynnt um eld í Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi. Strax lagt af stað á öllum tiltækum bílum frá aðal- stöð í Öskjuhlíð og Árbæjarstöð. Frá Árbæjarstöð fara dælubfll og sjúkrabíll, á þeim fjórir menn. Frá aðalstöð fara tveir dælu- bílar, körfubíll og sjúkrabíll, á þeim sjö menn. Hringd út ein vakt til viðbótar. Skömmu síðar allt tiltækt lið kallað út. Kl. 17.51. Bflar frá Árbæjar- stöð koma á eldstað. Kl. 17.54 - 17.55. Eldurinn slökktur Kl. 17.56. Bílar frá aðalstöð koma á eldstað. Kl. 18.06. Bfll með eiturefna- búninga kemur á eldstað. Kl. 18.45. Slökkviliðið yfir- gefur staðinn. Eftir að eldurinn hafði verið slökktur, var geymirinn kældur með því að dæla á hann vatni. Svæðinu var lokað fyrir allri umferð um leið og ljóst var að eldurinn var slökktur, og fór liðsauki slökkviliðs ekki inn á svæðið, þar sem ekki var talin þörf fyrir það, en var beint til slökkvistöðvar. Kælingu haldið áfram af starfsmönnum Áburð- arverksmiðjunnar eftir að slökkvilið hafðij lokið störfum. ( Morgunblaðið/Bjami Eiríksson Gunnar Þór Kristjánsson og Daði Sveinbjörnsson. Reyndi að loka gasloka en varð að hverfa frá - Segir Daði Sveinbjörnsson, vaktstjóri GUNNAR Þór Kristjánsson, verksljóri í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, sagði að Slökkvilið Reykjavíkur hefði verið komið á verk- smiðjusvæðið örfáum minútum eftir að brunaboða var hringt í verk- smiðjunni kl. 17.47 á sunnudag. Daði Sveinbjömsson, vaktstjóri, varð fyrstur starfsmanna var við eldinn í ammoníaksgeymi verk- smiðjunnar. Daði var staddur í stjórnstöð blöndunarverksmiðjunnar þegar hann varð eldsins vart út um glugga í stjórnstöðinni. var gert viðvart um eldinn. Þar var sem unnið að dælingu á ammoníaki úr Lisbeth Tálstmp. Skipið var með 400 tonn af ammoníaki og hafði 90 tonnum verið dælt í geyminn þegar dæling var stöðvuð. Skipið sneri síðan frá Gufunesi í gærmorg- un með rúm 300 tonn af ammon- íaki. Gunnar Þór sagði að eftir að eld- urinn var slökktur hefði verið bætt við slöngum frá Slökkviliði Reykjavíkur og vatni verið úðað yfir geyminn til að kæla hann. „Örlítill leki er við gaslokurnar. Það er eftir að skoða hann betur þannig að við höldum áfram kælingu á geyminum,“ sagði Gunnar Þór. Gunnar Þór kvaðst ekki geta gert sér í hugarlund hvernig eldur- inn hefði kviknað. Hann sagði að mjög sérstakar aðstæður þyrfti til að kviknað gæti í ammoníaki. Til að geta brunnið yrði mettunin í andrúmsloftinu að vera 15-20% af amiriQitíáki. !; ‘ ' 1: (1 1 : íirmg-gurg mu íu ,101 bioltBnni>H floti með slökkvibílnum uppeftir, höfðum galla með okkur í bílnum til þess að geta tekið þátt í slökkvistarf- inu ef þetta væri eitthvað alvarlegt. Fyrsta tilkynningin var um eld í skipinu sem var þarna, en slökkvi- stjórinn á staðnum, sem er með tal- stöð frá okkur, kallar í okkur á leið- inni og segir að eldurinn Sé í kúl- unni. Þegar við komum á staðinn bytjum við strax á því að leggja slöngur í góðan brunahana sem var þarna við kúluna. Síðan förum við upp, ég og piltur frá Áburðarverk- smiðjunni, með tveggja og hálf- tommu slöngu og stút. Ég ætlaði fyrst að hinkra eftir bíl númer fjög- ur, sem kom frá aðalstöðinni í Öskjuhlíð og er með reykköfunar- tækjunum, en þegar ég er kominn upp, tilbúinn með slönguna, vatnið komið á og ég sé að liðsaukinn er á leiðinni, þá hafði ég í rauninni ekk- ert annað að gera en að kíkja á þetta og sjá hvað ég kæmist langt, vita hvort ég kæmist nálægt eldinum fyrir hita. Ég skreið þarna að og komst töluvert nálægt, náði svo að slökkva þetta eftir skamma stund, líklega nokkrar mínútur. Það var ansi ónotaleg tilfmning að skríða þarna að, því að maður vissi ekkert hvernig þetta leit út þama undir né í raun og veru í hverju eldurinn var. Það virtust vera einn, tveir fermetrar logandi bál undir pallinum sem er ofan á geyminum og mikill hvinur af eldinum." Þórður segir að greinilega hafi logað út um stúta eða sundurbrunnar slöngur ofan á geyminum. „Það voru Þórður Bogason þarna þrír kranar sem þurfti að skrúfa fyrir þegar við vorum búnir að slökkva. I lokin kom maður frá Áburðarverksmiðjunni upp og skrúf- aði fýrir síðustu tvo kranana, við höfðum áður skrúfað fyrir einn stór- an. Síðan kældum við brunastaðinn þangað til körfubíllinn kom þarna upp að og hélt áfram að kæla.“ Var mikill hiti uppi? „Ég var með mjög góðan hjálm með hlífum sem ég dró strax niður yfir andlitið og síðan beygði ég mig niður, þannig að ég varð ekki mikið var við hit- ann, skýldi mér á bak við slöngustút- inn.“ Þórður var spurður hvort honum hafí ekki þótt vera nokkuð ógnvekj- andi að klifra upp á logandi geym- inn. „Jú, mér var alls ekki sama, ég hugsaði til þess, að það væri nú ansi hart klifra upp á þetta fyrir 54 þús- und krónur á mánuði og leggja sig í lífshættu fyrir þau laun. Þurfa svo kannski að..., það var ekki hægt að vita hvernig þetta mundi enda. Þetta var hálf óhugnanlegt." \ „Ég hringdi strax brunaboða og flýtti mér út. Síðan reyndi ég að komast upp á kúluna með hand- slökkvitæki til að loka þrýstiloka en varð frá að hverfa vegna hita. Eldurinn var undir grind efst á kúlunni og virtist nú ekki ýkja mik- ill. Það logaði í gasi sem streymdi úr geyminum. Eg gat ekki beitt handslökkvitækinu enda var helsta hugsunin sú að loka þrýstilokanum en ég varð sem sagt frá að hverfa,“ sagði Daði. Daði sagði að hann hefði skömmu síðar verið látinn vita að slökkvibfll væri á leiðinni með háþrýstislökkvi- búnað og fljótlega eftir að eldurinn var slökktur tókst að loka þrýstilok- anum. Daði sagði að sér virtist ekki hafa verið mikil hætta á því að gat kæmi á geyminn þar sem svo fljótt tókst að slökkva eldinn. Taldi hann að eldur hefði logað í geyminum í 10-12 mínútur í mesta lagi. Gunnar Þór kvaðst hafa verið im Sjómannafélag Reykjavíkur: Skoðun á öryggisbúnaði erlendra skipa nauðsyn < MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun frá stjórn Sjómannafélags Reykjavík- ur: Á fundi í stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur þann 17. apríl var með- al annars rætt um þá stórhættu sem Reykvíkingum var búin þegar eldur kom upp í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi á páskadag og bráð hætta skapaðist á leka úr ammoníaksgeymi verksmiðjunnar. Sú staðreynd hefur ekki nægjan- lega komið fram að skipið sem Ios- aði þennan hættulega farm var van- búið til að taka við gasi sem mynd- ast í geymslutanki í Iandi við dælingu frá skipi en slíkur búnaður verður að teljast nauðsynlegur við slíka los- un. Þetta skip sem er í danskri eign siglir undir þægindafána“ (Singap- ore) og er á margan hátt vanbúið öryggisbúnaði, miðað við íslenskar mglur. ‘ ;' : •' 1 ; ; .;J) 1 .[1083‘Uíil.j 'iöbiIfiH i&gsa Jlien i é'öv Þegar haft er í huga að íslenska loftferðaeftirlitið hefur ítrekað kraf- ist sérstaks eftirlits og gert strangar kröfur um flugvélar sem hefur átt að leigja til landsins, en era skráðar og fá skoðun undir „þægindafánum" þykir stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur furðulegt að Siglinga- málastofnun skuli ekki sköpuð sam- bærileg aðstaða gagnvart siglingum erlendra skipa til landsins sem vegna lélegs búnaðar geta mengað haf og hafnir og skapað stórhættu fyrir áhöfn, farþega og íbúa viðkomandi’’ byggðarlaga. Stjórn Sjómannafélags Reykjavík- ur telur því nauðsynlegt að komið verði á skylduskoðun á öllum örygg- isbúnaði áhafnar og farms þeirra erlendu skipa sem sigla til Islands og eru skráð undir „þægindafána". Fréitatilkynning frá sjómannatclagi Rcykjavtur ,s ibleí

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.