Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1990
Segðn Hafiifirðingum satt
„Afirek Alþýðuflokksins“
eftir Kristófer
Magnússon
Ekki ein einasta króna af þeim
rúmum 4 milljörðum sem bæjarbúar
hafa greitt í skatta til bæjarsjóðs
frá 1986 til 1989 hefur farið í fjár-
festingu, þeir peningar er farið hafa
í uppbyggingu í bænum hafa verið
fengnir að láni.
Um áramótin 1985/1986 skuld-
aði bæjarsjóður 176 millj. Um ára-
mótin 1989/1990 skuldaði bæjar-
sjóður 1.217 millj. Kratamir tóku
lán upp á 1.041 milljón síðastliðin
4 ár. Kratarnir fjárfestu aðeins fyr-
ir 946 milljónir af þeim lánum.
Kratarnir tóku lán umfram fjárfest-
ingu 95 milljónir til að til að eiga
t.d. fyrir launum starfsmanna bæj-
arsjóðs.
Kratarnir greiddu 441 milljón í
fjármagnskostnað. Þeir greiddu
329 milljónir í fjármagnskostnað
umfram fjárhagsáætlun. Kratarnir
hafa hækkað útsvör yfir 27%.
Kratarnir hafa hækkað fasteigna-
gjöld yfir 60%. Kratamir hafa
hækkað útsvör og fasteignagjöld
frá 1986 um 46 þúsund á hveija
þriggja manna fjölskyldu í bænum.
Tekjur bæjarsjóðs hafa farið 377
milljónir fram úr áætlun á tímabil-
inu. Kratarnir hafa notað 173 millj-
ónir af framlögum húsbyggjenda í
rekstur bæjarsjóðs umfram það sem
ráðstafað var í gátnagerð og 20
milljónir eiga að bætast við í ár
samkvæmt fjárhagsáætlun.
Kratarnir færðu 58 milljóna
króna kostnað af endurbyggingu
Kristófer Magnússon
Strandgötu í bókhaldi bæjarsjóðs
undir kostnaðarreikning gatna í
nýjum hverfum. Gatnagerðargjöld-
in vom því notuð til að endur-
byggja Strandgötuna.
Fjármagnskostnaður (vextir og
verðbætur) bæjarsjóðs verða að öll-
um líkindum yfir 20 milljónir í ár,
sem er tugum milljóna hærri upp-
hæð en ætlað er í eignfærða fjár-
festingu í ár.
Allar upphæðir eru samræddar
við lánskjaravísitölu 31/12 89 og
breytingar á íbúða- og íbúatölu það
sem það á við. Það er ótrúlegt,
þrátt fyrir þá kjararýrnun sem laun-
þegar hafa mátt þola vegna skulda-
söfnunar ríkis og bæjarfélaga, að
„Hann talar um nettó-
skuldir bæjarins þegar
menn vilja fá uppgefið
hvað bæjarsjóður raun-
verulega skuldar. Það
sama er reyndar uppi á
tenihgnum hjá þeim í
Kópavogi, skuldugusta
bæjarfélagi landsins.
Segir það eflaust skýr-
ast til um fiárhag Hafin-
arfiarðarbæjar, að
Kópavogur er tekinn til
samlíkingar í tali
fólks.“
enn þann dag í dag standa stjórn-
málamenn í að kaupa sér vinsældir
með taumlausri eyðslu og skulda-
söfnun. Það mætti ætla að stjórn-
málaflokkarnir en ekki skattgreið-
endurnir komi til með að greiða
skuldirnar.
Guðmundur Stefáns bæjarstjóri
í Hafnarfirði er í þessum flokki
stjórnmálamanna sem telur það
vænlegt til vinsælda að safna skuld-
um fyrir komandi kynslóðir, það
kemur glögglega íra.m í stjórn hans
á bæjarfélaginu. Árið 1985 er Sjálf-
stæðisflokkurinn fór með meiri-
hlutastjórn ásamt óháðum borgur-
um var mikil uppbygging í bænum
þrátt fyrir lægri álagningu en
þekktist í nokkru öðru samsvarandi
bæjarfélagi á landinu. Íbúaíjöldinn
hafði meir en tvöfaldast, götur voru
malbikaðar, vatnsveitan endurnýj-
uð, hitaveita lögð, höfnin endurnýj-
uð, skólar og leikskólar byggðir,
íþróttaaðstaðan stórbætt, fegrun-
arframkvæmdir fyrir tugi milljóna,
bygging Hafnarborgar og sundlaug
Suðurbæjar hafin o.s.frv. allt án
skuldasöfnunar.
Hafnarfjörður naut virðingar
allra sveitarstjórnarmanna fyrir öra
uppbyggingu og góða fjármála-
stjórn. Vegna breytinga á skatt-
lagningu fyrirtækja á þessu tíma-
bili risu upp mörg verslunar- og
þjónustufyrirtæki eins ogt.d. Fjarð-
arkaup en það fyrirtæki hefur með
lágu vöruverði bætt kjör almenn-
ings í bænum. Bæjarstjórinn hefur
verið þeirri kenningu Leníns trúr
að þeir sem ekki eru sammála hon-
um séu á móti hagsmunum ríkisins
(Hafnarfirði). Hann mætir gagn-
rýni með upphrópunum um ofsókn-
ir í sinn garð og Hafnarijarðarbæj-
ar og telur sig og sína já-bræður
betri Hafnfirðinga en aðra bæj-
arbúa. Hann talar um nettó-skuldir
bæjarins þegar menn vilja fá upp-
gefið hvað bæjarsjóður raunveru-
lega skuldar. Það sama er reyndar
uppi á teningnum hjá þeim í Kópa-
vogi, skuldugusta bæjarfélagi
landsins. Segir það eflaust skýrast
til um fjárhag Hafnarfjat'ðarbæjar,
að Kópavogur er tekinn til samlík-
ingar í tali fólks.
Bæjarstjórinn sniðgengur sam-
starfsflokk sinn í kosningabarátt-
unni. Engu er líkara en Alþýðu-
SKATTUR TIL SOSlALISMANS
I MILLJ.KR.
SKULDAAUKNING FRAMKVÆMDIR
A 4 ARUM. A 4 ARUM.
WM Serles 1
bandalagið hafi hvergi komið nærri
stjórn bæjarins. Hroki beejarstjór-
ans í garð Magnúsar Jóns Árnason-
ar fulltrúa Alþýðubandalagsins
virðist engin takmörk eiga ogundir-
lægjuháttur Magnúsar Jóns óskilj-
anlegur.
Bæjarstjórinn hefur þegar ákveð-
ið að breyta bókhaldsvenjum bæjar-
sjóðs frá 1988 til að reyna að bæta
reikningslega stöðu bæjarsjóðs.
Með slíkum bókhaldsloftfimleikum
telur hann sig geta keypt sér að-
göngumiða að Alþingi Islendinga
og látið okkur Hafnfirðinga um að
greiða vextina og verðbæturnar og
afborganirnar af aðgöngumiðanum.
Síðar ætlar hann að benda á mann-
virkin er risu í hans tíð og treysta
á að almenningur gleymi fljótt
hvernig að þeim var staðið, hvað
þau kostuðu heimilin og hvaða af-
leiðingar þau koma til með að hafa
fyrir stöðu bæjarsjóðs um ókomna
framtíð. Það má alltaf hafa það í
bakhendinni að kenna andstæðing-
unum um.
Höfiindur á sæti í stjórn
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði.
Góðir Reykvíkingar!
eftirHelgu
Bachmann
Við viljum telja okkur rík af
færum einstaklingum á sviði fræða,
vísinda og lista og á góðuní stund-
um gumum við af merkum menn-
ingararfi. Vis^ulega getum við án
nokkurrar blekkingar verið stolt af
íslenskum einstaklingum sem í
gegnum tíðina hafa vakið athygli
og skarað fram úr, einnig á alþjóða-
vettvangi.
Ég tel óþarft að telja upp fjöl-
mörg nöfn kvenna og karla en minni
á vísindamenn, skákmenn, rithöf-
unda og skáld, stórsöngvara fyrr
og síðar, myndlistarmenn, leikhús-
menn og nú á allra síðustu tímum
eru það kvikmyndagerðarmenn og
leikarar.
Einkenni landans?
Á hinn bóginn hefur mér lengi
þótt við býsna fátæk af sterkum
foringjum eða leiðtogum. Ég minn-
ist þess að hafa lesið í Áföngum
Sigurðar Not'dals, þar sem hann
fjallar um dugnaðar- og afreks-
menn á ýmsum sviðum og kemst
síðan að þeirri niðurstöðu að það
sé einkennandi fyrir stóran hluta
íslenskra afreksmanna og foiustu-
manna að vinna mjög ötullega og
glæsilega í fyrsta áfanga og ná
umtalsverðum árangri, en láta síðan
deigan síga og glata baráttuþrek-
inu.
Ekki skal ég fullyrða að hægt
sé að tala um jtetta sem þjóðarein-
kenni okkar Islendinga, en þetta
er góð ábending sem vert er að
hver maður velti fyrir sér.
Veikir foringjar
Það hefur lengi verið skoðun mín
að við eigum of marga menn í
stjórnunarstörfum og forustuhlut-
verkum sem skortir kjark til að
stjórna. Það fólk er býr við forustu
þvílíkra leiðtoga verður vansælt,
missir sjálfsvirðingu sína og verður,
með öðrum orðum, eins og höfuð-
laus her sem ekki á lengur sameig-
inlegt markmið að stefna að.
í kjölfar þesskonar ástands fylgir
gjarnan mikil spilling sem er ör-
væntingarfull tilraun mannsins til
að skrimta í fullkomnu öryggisleysi
óstjórnar.
Mikill leiðtogi
Mér sýnist ég komin langleiðina
að því að skýra hvers vegna ég
álít dýrmætt fyrir íbúa Reykjavíkur
að skynja að það eru forréttindi í
dag að eiga jafn sterkan, hugaðan
og hreinskiptinn en einnig mannúð-
legan borgarstjóra og við höfum
fengið að kynnast síðastliðin átta
ár.
eftirJúlíus Sólnes
Um næstu helgi, 19. og 20. maí,
verður landsmönnum boðið að taka
beinan þátt í baráttunni fyrir bættu
umhverfi og betra mannlífi. Þá
verður boðinn til sölu lítill gulur
kall með litskrúðugan fjaðrahatt,
og nefnist hann Álfur.
Undir hatti Álfs eru birki- og
lúpínufræ, sem kaupandinn getur
sáð þar sem honum þykir þörf að
græða landið.
Álfur er tvöfalt átak Landgræðsl-
unnar og SÁÁ. Fræin undir hattin-
um minna á að við getum öll tekið
þátt í því að bæta fyrir gróðureyð-
ingu síðustu þúsund ára.
Hagnaður af sölu Álfsins rennur
til þess að byggja upp fólk. Þar eru
á íslenskum bókmenntum í félags-
miðstöðvum fyrir eldri borgara í
höfuðborginni, hef ég kynnst því
hve veí er búið að fólki sem lokið
hefur starfsdegi sínum úti í atvinnu-
lífinu og getur nú notið þess að
sinna ýmsu sem áður vannst ekki
tími til.
Það er fallegt að sjá virðulegt
heiðursfólk sem fær að sinna því
sem hugur þess stendur til og njóta
jafnframt þess öryggis er sambýlið
veitir. En best af öllu er sú stað-
reynd að það fær að halda sinni
mannlegu reisn. Ég mun ekki hefja
hér talningu á öðrum verkefnum
sem unnin hafa verið á vegum
Reykjavíkurborgar á síðari árum,
það munu aðrir gera.
Verðugur andstæðingur
Að lokum koma mér í hug línur
„Fræin undir hattinum
minna á að við getum
öll tekið þátt í því að
bæta fyrir gróðureyð-
ingu síðustu þúsund
ára.“
að verki Samtök áhugamanna um
áfengisvandamálið, SAÁ. Á rúmum
'áratug hefur starfsemi SÁÁ hjálpað
þúsundum íslendinga til að takast
á við sjúkdóm sinn og verða nýtir
þjóðfélagsþegnar á nýjan leik. Nú
beinir SÁÁ spjótum sínum að for-
varnarstarfi og ungu fólki, og auk-
inni þjónustu urn allt land.
Helga Bachmann
úr einni af góðu bókunum hans
Halldórs Laxness: „Það er einkenni
á íslendingum að þeir muna ávallt
eftir erindinu þegar þeir eru farn-
Júlíus Sólnes
Með því að kaupa Álfinn leggjum
við lið ræktun lands og lýðs.
Höfundur er umhverfísráðherra.
Vegna starfa minna við kynningu
Bætt umhverfi
og betra mannlíf
„Við erum vön miklum
sviptingum í kosning-
um, því ættu þeir sem
hafa gert upp hug sinn
ekki að dvelja í því and-
varaleysi að mæta ekki
á kjörstað.“
ir.“ Við erum vön miklum svipting-
um í kosningum, því ættu þeir sem
hafa gert upp hug sinn ekki að
dvelja í því andvaraleysi að mæta
ekki á kjörstað.
Loks vil ég segja blátt áfram við
„Nýjan vettvang": Til lukku með
að etja kappi við verðugan andstæð-
ing!
Höfúndur er leikari og leikstjóri
og skipar 24. sætið á framboðslista
Sjálfstæðisfíokksins við
borgarstjórnarkosningarnar 26.
maínk.
Nýi gítarskólinn:
Smnar-
námskeið
að hefjast
NÝI gítarskólinn, skóli Frið-
riks Karlssonar og Björns
Thoroddsen, gengst fyrir sum-
arnámskeiði fyrir gítarleikara
sem hefst næstkomandi mánu-
dag, 21. maí, og stendur í tvo
mánuði.
Kenndar verða allar helstu
stíltegundir rafgítarleiks og er
námskeiðið öllum opið.
Kennt verður í húsi Félags
íslenskra hljómlistarmanna við
Rauðagerði 27, og þar fet' innrit-
un fram frá klukkan 17 til 19
virka daga.