Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAI 1990 33 væri erfítt að horfa upp á atvinnu- leysi, „en einhvern tímann verður þessi þjóð að horfast í augu við það að hún getur ekki byggt sig upp úr vandanum, það er hægt í refabú- skapnum að fá lán og byggja einn skála enn, í byggingaiðnaðinum að byggja eina blokk enn, en ef al- menningur á að geta lifað hér og fjárfest þá verður að ríkja stöðug- leiki en ekki gusugangur,“ sagði Árni Steinar. Fleiri fundarmenn lýstu sig andsnúna því að álver yrði byggt í Eyjafirði og Bjarni Guðleifsson, ráðunautur hjá Ræktunarfélagi Norðurlands, kvaðst vonsvikinn yfir að ekkert nýtt hefði komið fram á fundinum varðandi mengunarþátt- inn frá því sem menn vissu árið 1986. Hann spurði hvort kannað hefði verið í þaula hvaða aðrir kost- ir væru til í stöðunni en álver og sagðist telja að ráðgjafar í iðnaðar- ráðuneytinu hefðu sofið á verðinum. Næst þjóðarsátt um álver í Eyjafirði? Magnús Már Þorvaldsson, arki- tekt, gagnrýndi leiðtoga þjóðarinn- ar fyrir að leggja ekki áherslu á fáa vænlega staði undir álver, en láta fjölmarga staði út um land bítast um „happdrættisvinninginn stóra.“ Hann sagði að stjórnvöld hlytu að eiga síðasta orðið um hvar álver yrði reist, hér á landi stæði erlend- um aðilum til boða land undir iðju- ver, orka á tiltölulega hagstæðu verði og dugmikið vinnuafl. Gerðu menn sér þetta ekki að góðu væri það hlutverk stjórnvalda að vísa hinum erlendum aðilum annað. Hann sagði að þær raddir gerðust sífellt háværari á meðal ungs fólks hvar það ætti í framtíðinni að skrá heimili sitt, á Akureyri, í Reykjavík eða Svíþjóð. Hólmsteinn Hólm- steinsson, formaður atvinnumála- nefndar, ræddi einnig um þá stór- felldu búferlaflutninga sem útlit væri fyrir að yrðu ef ekki kæmi álver. Bragi Bergmann, ritstjóri, tók undir orð bæjarstjóra, sem sagði að út frá þröngum eyfirskum hags- munum væri betra að ekkert áiver risi, en að það yrði byggt á suðvest- urhorninu. Bragi sagði þetta hrein- ræktaða víðsýni, stöðva þyrfti með öllum ráðum þá byggðaröskun sem yfirvofandi væri. Sigurður J. Sig- urðsson, forseti bæjarstjórnar, kvaðst vonast til að víðtæk sam- staða næðist á meðal landsmanna, sem kalla mætti þjóðarsátt um það að álverið yrði reist í Eyjafirði. Geir Zoega, verkfræðingur, vakti athygli fundarmanna á því að hlú þyrfti að þeim störfum sem nú væru fyrir hendi, ekki m.ætti fórna 600 störfum sem nú væra til fyrir önnur ný. Þá ræddi hann einnig um samkeppni sem yrði um vinnuaflið í kjölfar álvers og nefndi að Akur- nesingar kvörtuðu undan sambýlinu við Járnblendiverksmiðjuna, þau fyrirtæki sem fyrir væru þyldu oft illa samkeppnina um vinnuaflið kæmi eitthvað nýtt upp. jKann 17. maí eru 5 ár liðin frá því að Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins hf. markaði tímamót í verðbréfaviðskiptum hérlendis með útgáfu KJARABRÉFA. Hugmyndin var sú að tryggja hag íslenskra sparifjáreigenda með því að sameina góða raunvexti og öryggi. Þetta hefur tekist. STÓRKOSTLEGUR ÁRANGUR Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga í ál- veri verði sameiginleg FORMENN allra stéttarfélaga á Akureyri, sem aðilar eru að ASÍ, hafa samþykkt ályktun sem kynnt var á fundi um álver við Eyja- Qörð, en þar lýsa formennirnir yfir því að verði álver reist í Eyja- firði muni þeir beita sér fyrir því að kjarasamningar verði bornir upp sameininlega eftir að allir aðilar eru sáttir við hann. Formenn stéttarfélaganna á Ak- ureyri, sem aðild eiga að ASÍ, leggja á það þunga áherslu að álveri verði valinn staður í Eyjafirði, bæði í þjóðhagslegu tilliti vegna búsetu- röskunar og í atvinnulegu tilliti fyr- ir svæðið, segir í ályktun þeirra. Verði stóriðja reist í Eyjafirði munu formenn stéttarfélaganna beita sér fyrir því að í samskiptun þeirra við Atlantal verði stofnuð nefnd með einum fulltrúa frá hveiju stéttarfélagi, sem hagsmuna á að gæta, er komi sameiginlega fram fyrir hönd félaganna. Einnig að við gerð kjarasamninga hafi hver nefndarmaður neitunarvald vegna ákvæða er varða hans félaga. Kjarasamningurinn yrði síðan af- greiddur með sameiginlegri at- kvæðagreiðslu. Iðja, félag verksmiðjufólks, skrif- aði undir ályktunina með fyrirvara, þar sem m.a. er tekið fram að i engu sé átt við að gerðir verði lé- legri samningar en eru í Straumsvík. í máli Þóru Hjaitadóttur, for- manns Alþýðusambands Norður- lands, sem greindi frá ályktun for- manna stéttarfélaganna, kom fram að samskiptamál verkalýðshreyf- ingarinnar og atvinnurekenda eru viðkvæm. Fyrirkomulagið væri með þeim hætti nú í stærri verksmiðjum að stéttarfélögin, allt upp í tíu í hverri verksmiðju, koma sameigin- lega fram fyrir hönd sinna manna, en halda bæði samnings- og verk- fallsréttinum og kjarasamningar væru bornir upp sérstaklega hjá hverju stéttarfélagi. Formennirnir vildu beita sér fyrir því að á þessu verði breyting, þann- ig að séu allir sáttir við viðkomandi kjarasamning verði hann borinn upp sameiginlega, þannig að eitt fámennt stéttarfélag eigi ekki á hættu í skjóli neitunarvalds, að annað fjölmennara skerði rétt þess. Atkvæðagreiðsla um kjarasamn- inga verði síðan sameiginleg þannig að ekkert eitt félaga geti stöðvað allan rekstur verksmiðjunnar. Leiðrétting í FRÉTT af borgarafundi á Akur- eyri um álver, sem birtist í Morg- unblaðinu í gær, gætti óná- kvæmni í frásögn blaðamanns af erindi Andrésar Svanbjörnsson- ar yfirverkfræðings Markaðs- skrifstofú iðnaðarráðurneytisins og Landsvirkjunar. Hér á eftir er greint frá meginatriðum þessa hluta erindisins og er beðist vel- virðingar á mistökunum. í máli Andrésar Svanbjörnssonar kom fram, að endanlegar niðurstöð- ur loftdreifingarútreikninga NILU, norsku loftrannsóknastofunnar, lægju ekki fyrir, en ekki væri við því að búast, að niðurstöður yfir- standandi rannsókna varðandi flúor yrðu á verri veg en í fyrri dreifing- arspá NILU í Eyjafirði frá árinu 1985. Þar væri talið að hætta gæti verið á gróðurskemmdum í 3 til 5 kílómetra fjarlægð miðað við um 200.000 tonna álver. Áætluð skað- semismörk bæri þó að taka með fyrirvara, þar sem þau væru með háum öryggisstuðlum, auk þess sem hugsanleg skaðsemi væri háð ýmsum veðurfarsskilyrðum. Holl- ustuvernd ríkisins ætti að leggja mat á niðurstöður loftdreifingar- spárinnar og ákveða viðmiðunar- mörk fyrir flúor og þrennisteins- tvíildi og yrði skýrsla NILU því ekki kynnt ópinberlega fyrr að fenginni umsögn stofnunarinnar. Æ þessum 5 árum hefur meðal raunávöxtunin verið 13,1 % og eigendur KJARABRÉFA skipta þúsundum. AFMÆLISBOÐ-VEITINGAR KYNNINGARMYND ít tilefni afmælisins býður Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins hf. npp á kaffí og smáveitingar á skrifstofum sínum í Reykjavík dagana 17. og 18. maí. Þar munum við m.a. sýna nýja fræðslumynd um fjármál. Einnig gefst mönnum kostur á að taka þátt í skemmtilegri getraun þar sem 5 verðlaun verða veitt hver að upphæð 10.000 kr. Dregið verður úr réttum svörum í Kringlunni föstudaginn 18. maí kl. 17:00. Og að sjálfsögðu fá yngstu afmælisgestimir afmælisblöðrur. KYNNINGARMYNDIN Fróðleikur umfjármál Fróðleikur um íjármál er stutt mynd um fjármál heimila. Henni er ætlað að veita hagnýtar upplýsingar, vekja til umhugsunar - og kveikja góðar hugmyndir. Myndbandið má fá á skrifstofum Verðbréfamarkaðar Fjárfestingar- félagsins hf. Kynntu þér málið! VERÐBRÉFAMARKAÐU R FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF HAFNARSTRÆTl 28566 • KRINGLUNNI 689700 HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.