Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAI 1990 41 NEYTENDAMAL Konur og* alkóhólneysla — óhagstæð eftiaskipti í maga Konur virðast þola alkóhólneyslu síður en karlar. Eftir því sem fram hefur komið í Qölmiðlum er vandamálið vaxandi hér á landi. Margar konur hafa reyndar bent á, í gegnum árin, að áhrif alkó- hóls komi mun seinna fram hjá þeim en körlum og af þeim ástæð- um hafi þær oft tilhneigingu til að drekka meira af alkóhóli en þær hafðu í raun ætlað sér að gera. Ahugaverðar rannsóknir þessu tengdar voru nýlega birtar í „New England Journal of Medicine" og segir þar m.a: Alkóhólið hefur mjög misjöfn áhrif á karla og konur. Jafnvel þó um sé að ræða karla og konur sömu stærðar sem drekká sama magn af alkóhóli þá endar mun meira af magni alkóhólsins í blóðrás konunnar en karlsins. Ennfremur mynda konur mun fyrr alkóhólsjúkdóma eins og lifr- arsjúkdóma en karlar, þrátt fyrir sömu neyslu. — Að þessari niður- stöðu komst hópur vísindamanna frá Bandaríkjunum og Ítalíu sem unnið hefur að alkóhólrannsókn- um á sjálfboðaliðum, 20 körlum og 23 konum, í Trieste á Ítalíu. Vísindamennirnir telja, að þessu geti valdið mismunandi efnasam- setning í maga, þ.e. kynbundnir þættir sem hafi áhrif á efnahvata sem bijóta niður alkóhólið. Charles S. Lieber, sem m.a. er forstöðumaður Alkóhólrann- sókna- og meðferðarstofnunar í New York (Alcohol Research and Treatment Center), talsmaður hópsins, segir að fram til þessa hafí vísindamenn litið svo á, að lifrin hafi ekki aðeins séð um að bijóta niður alkóhólið, heldur að niðurbrotið byijaði þar. Það kom fram hjá hópnum sem rannsakað- ur var á Ítalíu, að þeir hópar efna- hvata sem sjá um niðurbrot á alkóhóli í lifur heiji starfið í mag- anum fljótlega eftir að alkóhóls hefur verið neytt. í niðurstöðum dýratilrauna, sem hópurinn hefur staðið að og birtur var á síðasta ári, kom fram að efnahvatar í slímhúð magans virðist geti brotið niður allt að 20-30 prósent af því alkóhóli sem drukkið er. Hjá mannfólkinu virð- ast það aftur á móti, samkvæmt þessum nýju rannsóknum, aðal- lega vera karlmenn sem geta brot- ið niður stóra hluta af alkóhóli í maga. Skýringin virðist ekki ljós, en hjá þeim 31, sem tóku þátt í rannsókinni og reglulega drukku minna en sem svarar 75 gr af alkóhóli á viku, kom fram að hjá konum var niðurbrot alkóhól- magns í maga aðeins einn fjórði í samanburði við niðurbrot alkó- hólmagns hjá körlum. í ljós kom einnig að niðurbrot alkóhóls var jafnvel minna hjá þeim 12 alkóhólistum, sem þátt tóku í rannsókninni, hjá 6 konum, sem voru alkóhólistar, var niður- brotið ekkert og hjá 6 körlum, sem voru alkóhólistar, var niðurbrotið helmingi minna en hjá körlum sem ekki voru alkóhólistar. Fram hefur komið í öðrum rannsóknum þessa sama vísinda- mannahóps á körlum, að svo virð- ist sem magalyf, þar á meðal ci- metidine, sem mikið er gefið til að fyrirbyggja magasár, geti einn- ig komið í veg fyrir að niðurbrot verði á alkóhóli í maga. Charles S. Lieber leggur til að fólk drekki alkóhól í hófi. Endurmeta þurfi hvað geti talist hófleg drykkja — það alkóhólmagn sem talist getur hóflegt fyrir karla sé ekki nauð- synlega hóflegt fyrir konur — eða fyrir fólk sem taka þarf inn ákveð- in lvf. SPEKI DAGSINS Eigi skal gylla það, sem ekki er þess verðugt. Rannsóknir þessar þykja ekki aðeins áhugaverðar fyrir niður- stöður um áhrif alkóhóldrykkju á einstaklinga, heldur einnig vegna þess að þær opna nýtt rannsókn- arsvið, sem eru efnaskipti og víxláhrif lyfja í maga þeirra sem tilhneigingu hafa til ofdrykkju og alkóhólsjúkdóma. M. Þorv. Nú getur þú komið oftar a Mímisbar! Mímisbar nýtur aukinna vinsælda eftir breytingarnar og þess vegna höfum við ákveðið að hafa hann oftar opinn en áður -eða fjögur kvöld íviku: Fimmtudags-, föstudags- laugardags-ogsunnudagskvöld. Fáðu þér léttan snúning á dansgólfinu undir tónlist Stefáns og Hildar á föstudags- og laugardagskvöldum. Láttu sjá þig á nýja staðnum - og láttu þér ekki bregða! _______ hóieV -lofargóðu! BAÐMOTTUR OG BAÐHENGI Óskum eftir umboðsmönnum HEILDVERSLUN SKÚTUVOGI 12j SÍMI 687070 Olíufélagið hf. hefur nú til afgreiðslu CHAR-BROIL 6600 gasgrill á einstaklega hagstæðu verði Verð kr. 17.950 án gaskúts. CHAR-BROIL 6600 er vönduð banda rísk framleiðsla og fæst á ESSO bensínstöðvum um land allt. CHAR-BROIL 6600 hefur eftirfarandi eiginleika: • Afkastamikill 30.000 BTU (8,8 kW) tvöfaldur brennari. • Neista-kveikja. • Emaléruð grillrist sem auðveldar þrif. • 1710 cm2 eldunarflötur. • 1232 cm2 færanleg efri grillrist. • Fellanleg járnhilla að framan. • Tvær hliðarhillur úr tré. • Glerrúða í loki og hitamælir. GASGRILL án gaskúts mo CHAR-BROIL gasgrill fást einnig minni og kosta þau kr. staðgreitt án gaskúts. Gaskútar fyrir grillið fást á ESSO bensínstöðvum um allt land. Skiptiþjónusta á tómum og áfylltum kútum. Olíufélagið hf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.