Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAI 1990 DvELUR -RITZ- Miðflóttaaflsdœlur Miðstöðvardœlur OC ALFA-LAVAL Ryðfríar dœlur BMA Spjaldadœlur Snigildœlur Olíudœlur Hverju þarftu að dœla og hverl? Hafðu sam- band við okkur og við höfum lausn sem hentar. Kanada: Meirihluti fyrir sjálf- stæði Quebec Montreal. Reuter. IJM 60% íbúa Quebec vilja að fylkið segi skilið við Kanada og lýsi yfir sjálfstæði samkvæmt skoðanakönnun, sem blaðið Tor- onto Star birti í fyrradag. Að sögn blaðsins myndi meiri- hluti íbúa Quebec samþykkja tillögu um sjálfstæði fylkisins ef efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hana nú. Er þar um stefnubreytingu að ræða því í kosningum 20. maí 1980 lögðust 60% íbúa Quebec gegn því að veita fylkisstjórninni heimild til þess að semja um aðskilnað fylkis- ins frá Kanada. íbúum Quebec, en þar búa flestir hinna sex milljóna frönskumælandi íbúa Kanada, finnst að ekki hafi verið staðið við ýms fyrirheit sem þeim voru gefin segðu þeir ekki skilið við fylkjasambandið. Þeir nefna sem dæmi um það slakar undirtektir við svokallað Meech- vatns-samkomulag frá 1987, en það átti m.a. að tryggja að menning allra þjóðfélagshópa yrði varðveitt. Náðist það á fundi Brians Mulro- neys forsætisráðherra með forsæt- isráðherrum hinna 10 fylkja Kanada. Þrjú þeirra, New Bruns- wick, Manitoba og Nýfundnaland, hafa neitað að staðfesta samkomu- lagið en frestur til þess rennur út 23. júní nk. Falli Meechvatn-sam- komulagið um sjálft sig er talið að Robert Bourassa, forsætisráðherra Quebec, eigi ekki annarra kosta völ en falast eftir heimild íbúa fylkisins til þess að semja um aðskilnað frá fylkjasambandinu og sjálfstæði. Reuter „Málverk af Gachet lækni“ eftir Vincent Van Gogh, sem selt var á metverði á uppboði í New York í fyrradag. Nicaragua: Afvopnun kontra-liða miðar hægt Managua. Reuter. AFVOPNUN 17.000 kontra- skæruliða í Nicaragua gengur hægar fyrir sig en áætlað var í fyrstu, að því er talsmaður ellir- litssveita Sameinuðu þjóðanna í Managua sagði í fyrradag. Talsmaðurinn sagði að á sunnu- dag hefðu alls 556 kontra-liðar lagt niður vopn. „Þessi tala er mun lægri en við höfðum gert okkur vonir um,“ sagði hann. Roberto Ferrey, sem fer með mál kontra-liðanna fyrir hönd Violeta Chamorro, forseta Nicaragua, sagði í síðustu viku að eftirlitssveitir Sam- einuðu þjóðanna og Samtaka Ameríkuríkja gætu afvopnað 750 skæruliða á dag. Þannig yrði hægt að ljúka afvopnunni fyrir 10. júní, en kontra-liðar höfðu samþykkt að leggja niður vopn fyrir þann tíma. I yfirlýsingu frá varnarmálaráðu- neyti landsins segir að skæruliðarn- ir haldi áfram að bijóta vopnahlés- samninga. Metverð á listaverkauppboði í New York; Málverk eftir Van Gogh selt á 82,5 milljónir dala New York. Reuter. MÁLVERK, sem hollenski list- málaði af lækni sínum, var selt málarinn Vincent Van Gogh á metverði, 82,5 milljónir LANDSSMIÐJAN HF. Verslun: Sölvhólsgötu 13 SlMI (91) 20680 • FAX (91) 19199 BORG Listmunir-Sýningar-Uppboð Pósthússtrati 9, Austurstrati 101 Reykjavík Sími: 24211, P.O.Box 121-1566 Málverkauppbod í kvöld í Hótels Sögu kl. 20.30 Um 75 verk verða boðin upp eftir unga sem aldna, þekkta og óþekkta. Af þekktum höfundum má nefna: Kristján Davíðsson, Valtý Pétursson, Einar Hákonarson; Erró, Karen Agnete, Eirík Smith, Eyjólf J. Eyfells, Jóhannes Geir, Nínu Sæmundsson og Tolla. Fjölmörg verk gömlu meistaranna verða einnig boðin upp; þar má m.a. nefna: Stóra olíumynd eftir Jóhann Briem, málverk úr Skagafirði eftir Jón Stefánsson, Reykjavíkur- mynd eftir Nínu Tryggvadóttur, vatnslitamyndir eftir Jón Engilberts, tvær stórar olíu- myndir eftir Jóhannes S. Kjarval, nokkur minni verk og gömul landslagsmynd eftir Þorvald Skúlason. Uppboðsverkin eru sýnd í dag í Gallerí Borg við Austurvöll frá kl. 10.00 til 18.00. Athygli er vakin á því, að hægt er aó bjóða í verkin símleiðis í símum: 985-28165 og 985-28167 eða skilja eftir forboð í Gallerí Borg. BORG Bandríkjadala (rúma fimm milljarða ísl. kr.), á uppboði hjá Christie’s í New York í fyrra- kvöld. Þetta er 30 milljónum dala hærra verð en fyrra met- verð. Van Gogh málaði verkið, sem heitir „Málverk af Gachet lækni“, örfáum vikum áður en hann framdi sjálfsmorð árið 1890. Japani, sem ekki vildi láta nafns síns getið, keypti málverkið fyrir milligöngu japansks listaverkasala, Hidetos Kobayasis. Listaverkasalinn sagði að kaupandinn hefði verið reiðubú- inn að greiða enn hærra verð fyrir málverkið. Fyrst voru boðnar 20 milljónir dala í verkið en tilboðin hækkuðu síðan um milljón dala. Uppboðssalurinn var troðfullur og viðstaddir tóku andköf þegar 50 milljónir dala voru boðnar í verkið. Þegar það var síðan slegið á 82,5 milljónir dala brutust út mikil fagn- aðarlæti og þurfti uppboðshaldar- inn að slá hamrinum í borðið til að koma á ró í salnum. Málverkið var selt úr safni Siegfrieds Kramarskys, þýsks bankastjóra í New York sem lést árið 1961. Metropolitan-listasafnið hefur haft verkið að láni frá árinu 1984. Það var metið á 40-50 millj- ónir dala en nokkrir listaverkasalar höfðu spáð því að það yrði selt á allt að 65 milljónir dala. Hæsta verðið sem áður hafði verið greitt fyrir málverk á uppboði var 53,9 milljónir dala, en það verð greiddi Ástralíumaðurinn Alan Bond fyrir málverkið „Sverðliljur“ eftir Van Gogh. Fyrir uppboðið í fyrradag höfðu hlutabréf í uppboðsfyrirtækinu Sotheby’s lækkað um fimmtung í verði vegna vangaveltna um að lægð væri í nánd í listaverkamark- aðinum eftir síhækkaridi verð í fimm ár. í fyrri viku höfðu verk eftir nútímalistamenn selst illa hjá Sothebys. Nú bíða menn í ofvæni eftir næsta uppboði hjá Sotheby’s á morgun, en þá verður eitt af þekktustu verkum franska listmál- arans Pierre Renoir, „Au Moulin de la Galette", boðið upp. Verkið er metið á 40-50 milljónir dala eins og „Málverk af Gachet lækni“ og sérfræðingar Sotheby’s telja líklegt að það verði selt á enn hærra verði en verk Van Goghs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.