Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1990
52
TENNIS
II SKÍÐI
íslendingar
erumjög
áhugasamir
- um að efla tennisíþróttina hér á
landi, sagði Dave Miley, leiðbeinandi
á vegum alþjóða sambandsins
ÍRSKUR leiðbeinandi ítennis,
Dave Miley, var hér á landi í
síðustu viku á vegum alþjóða
tennissambandsins og þess
íslenska. Hann hélt námskeið
í nokkrum skólum fyrir íþrótta-
kennara, m.a. í íþróttakennara-
skólanum að Laugarvatni, og
sýnikennslu fyrir nemendur
ýmissa skóla.
Miley tjáði blaðamanni, sem
hitti hann að máli á Akur-
eyri, að tilgangurinn með komu
hans væri fyrst og fremst að leið-
beina leiðbeinendum, einnig að
skipuleggja æfingar fyrir börn og
unglinga, og gefa ráð varðandi inn-
anhússaðstöðu fyrir tennis. „íslend-
ingar eru greinilega mjög áhuga-
samir um að efla og auka hróður
tennisíþróttarinnar hér á landi“
sagði Miley.
Hann sagði að eina leiðin til að
efla tennis hér á landi væri að koma
upp góðri aðstöðu innanhúss.
„Veðrið gerir það að verkum að til
að ná árangri í tennis hér á landi
verður að vera fyrir hendi æfinga-
aðstaða innanhúss. Ég hef heyrt
fólk segja að hér séu engir þjálfar-
ar, þannig að ekki þýði að byggja
aðstöðu. Sannleikurinn er hins veg-
ar sá að meðan aðstaðan er ekki
fyrir hendi geta menn ekki haft lifi-
brauð sitt af því að kenna tennis,
en um leið og úr aðstöðuleysinu
yrði bætt kæmu hingað kennarar.
Það þyrfti að fá yfirvöld til hjálpar
til að koma upp aðstöðu inni, og
benda mætti á þá staðreynd að
íþróttin er mjög góð fyrir eldra fólk,
sennilega betri en nokkur önnur.
Það má leika tennis allt sitt líf,
andstætt því sem er með sumar
greinar, sem eru of erfiðar fyrir
gamalt fólk.“
Alþjóða sambandið vinnur ötul-
lega að því að efla tennis um víða
veröld að sögn Mileys. „ITF [Al-
þjóða tennissambandið] leggur til
ýmiss konar búnað, til dæmis fyrir
minni-tennis [fyrir börn], og leggur
fram fé til að bestu unglingarnir í
■ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dave Miley kennir Jóhannesi Bjarnasyni, íþróttakennara á Akureyri, réttu
handtökin.
hinum ýmsum löndum geti ferðast
til að taka þátt í sterkum mótum
erlendis. Hvað ísland varðar er
sambandið til dæmis tilbúið að að-
stoða við að senda unglinga til
Noregs, Svíþjóðar eða Danmerkur
til að keppa.“ ITF greiddi fyrir ferð
Mileys hingað til lands. Hann tók
einnig sem dæmi að alþjóðasam-
bandið hefði stutt vel við tennissam-
bönd í Afríku „og það er að skila
árangri. Til dæmis í Senegal, þar
sem margir góðir leikmenn hafa
komið upp. Nýlega komst til dæmis
Senegalbúi inn á lista yfir 100 bestu
í heiminum í fyrsta skipti,“ sagði
Miley.
Alþjóða tennissambandið greiðir
fyrir áðurnefnt uppbyggingarstarf
úr sjóði sem sérstaklega var stofn-
aður til þess. Hann er kenndur við
„grand-slam“ mótin svokölluðu,
fjögur stærstu mót ársins, og renn-
ur ákveðinn hluti af tekjum mót-
anna ár hvert í sjóðinn — venjulega
100-200 þúsund pund á ári. Það
samsvarar 10-20 milljónum ísl.
króna.
Miley fundaði með forystumönn-
um Tennissambands íslands. Hann
sagði mikilvægt að sambandið setti
sér ákveðin markmið sem unnið
væri að. Unglingastarf er nokkurt
hér á jandi, en hann tók skýrt fram
að til að eitthvert framhald verði á
því að börn og unglingar stundi
íþróttina verði aðstaða að vera fyr-
ir hendi — innanhúss, því ef þau
geti ekki æft nema lítinn hluta úr
ári hverfi áhuginn fljótlega og þau
snúi sér að öðru.
urtil minningar
um Jónas
Sigurbjörnsson
Nokkrir vinir og kunningjar Jón-
asar Sigurbjörnssonar, sem lést fyr-
ir tæpu ári síðan, hafa stofnað
styrktarsjóð til minningar um hann.
Jónas keppti í alpagreinum fyrir
hönd Skíðaráðs Akureyrar í mörg
ár og vann þar til margra verð-
launa. I tilkynningu frá sjóðnum
segir m.a.: „Þegar keppnis- og
námsárunum lauk, fékk skíðaíþrótt-
in og Skíðaráð Akureyrar að njóta
hans frábæru starfskrafta. Honum
var mjög annt um skíðaíþróttina
og vildi veg hennar sem mestan.
Sjóðnum, sem nú hefur verið
stofnaður, er ætlað að styrkja akur-
eyrskt skíðafólk.
Skipuð hefur verið stjórn styrkt-
arsjóðsins og er hún þannig skipuð:
Brynjólfur Tryggvason, sem full-
trúi Foreldraráðs og SRA, Guð-
mundur Sigurbjömsson, fulltrúi
ættingja Jónasar heitins, Árni Óð-
insson og Margrét Baldvinsdóttir,
fulltrúar skíðamanna, og Þorsteinn
Vilhelmsson, sem fulltrúi Samherja
h.f. og ísbergs h.f. í Hull, en þessi
tvö fyrirtæki hafa lagt fram 350
þús. krónur sem stofnfé styrktar-
sjóðsins."
Næstu átta vikur gefst fólki og
fyrirtækjum tækifæri á að gerast
stofnfélagar, með því að hafa sam-
band við einhvern nefndarmanna,
eða leggja fé inn á reikning nr.
265478 í Landsbanka íslands á
Akureyri. Jafnframt mun stjórnin
semja reglugerð fyrir sjóðinn á
þessum tíma.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ SPÁNVERJAR ætla að breyta
fyrirkomulagi 1. deildar í hand-
knattleik næsta keppnistímabil.
Tímabilið á hefjast 15. september
og verður þá spilað
í tveimur 8-liða riðl-
um og verður leikið
heima og heiman
fram að jóíum. Þá
munu tvö efstu liðin í hvorum riðli
spila um IHF-sæti. í janúar heldur
deildarkeppnin áfram, en í febrúar
mynda fimm efstu liðin í hvorum
riðli eina 10-liða deild, sem yrði
spiluð fram í júní. „Super Cup“, sem
er keppni þeirra liða sem taka þátt
í Evrópukeppni næsta ár verður í
byijun september.
■ TRES de Mayo, sem Sigurður
Gunnarsson og Einar Þorvarðar-
son léku með á sínum tíma, og
Puerto Cruz eru efst í 2. deild og
líklegt að þau komist í 1. deild.
■ TEITUR Þórðarson er geysi-
lega vinsæll í Bergen, þar sem hann
þjálfar Brann. Norskir fjölmiðlar
íjalla mikið um Brann-liðið og þess
má geta að Teitur
Frá svarar fyrirspurnum
Erlingi lesenda í stærsta
Jóhannssyni dagblaðinu í Berg-
iNoregi en tvisvar sinnum í
viku.
■ MIKLAR kröfur eru gerðar til
Brannliðsins, enda koma flestir
áhorfendur á heimaleiki liðsins, eða
yfir 10 þús. áhorfendur á leik. Þess
^ vegna er mesta pressan á leikmönn-
um liðsins í Noregi.
■ BRANN varð fyrir blóðtöku í
fyrsta leik liðsins í 1. deild. Þá
meiddist lykilmaður liðsins, Per E.
Alhsen á hné og verður frá í þijár
vikur. Per er leikstjórnandi á miðj-
unni og þekktur fyrir nákvæmar
sendingar sínar. Frankfurt hefur
haft augastað á Per, en hann æfði
með félaginu í tvær vikur fyrir
stuttu.
Atli
r Hilmarsson
skrifar
IÞRÓTTIR UNGLINGA
Köríuknattleikur:
íslands-
meistarar
Tindastóls í
stúlknaflokki
Tindastóll varð íslandsmeistari
stúlkna í körfuknattleik 1990. Liðið
var skipað eftirtöldum: Fremri röð
frá vinstri: Friðdóra Friðriksdóttir,
Selma Reynisdóttir, Elísabet Sig-
urðardóttir, Inga Dóra Magnús-
dóttir, Heba Guðmundsdóttir og
Edda Matthíasdóttir. Aftari röð frá
vinstri: Brynja Dröfn Jónsdóttir,
Gunnur Björk Hlöðversdóttir, Inga
Huld Þórðardóttir, Kristjána Jónas-
dóttir, Birna Valgarðsdóttir, Kristín
Jónsdóttir, Kristín Magnúsdóttir,
Berglind Pálsdóttir, SigríðurHjálm-
arsdóttir, Lind Einarsdóttir og Val-
ur Ingimundarson, þjálfari..
Morgunblaðiö/Björn Björnsson
Knattspyrna:
Tvöfaldur
sigur hjá
Stjömunni
Stjarnan úr Garðabæ sigraði í
keppni A-liða og B-liða á
Lego-mótinu í 6. flokki sem fram
fór í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ
fyrir skömmu. Leikirnir voru 2x5
mínútur og keppt í tveimur riðlum.
Alls voru 20 lið sem tók'u þátt í
mótinu.
í keppni A-liða sigraði Stjarnan,
Fylkir varð í öðru sæti og ÍK í
þriðja. Stjarnan sigraði einnig í
flokki B-liða, Fylkir í öðru sæti og
Afturelding í þriðja.
Siglingar:
Ragnar Már og
Ottarr sigruðu
RAGNAR Már Steinsen og breytilegn suð-austan átt tvö til
Óttarr Hrafnkelsson úr Ými fimm vindstig og sléttum sjó.
urðu hlutskarpastir i Vormóti Úrslit urðu sem hér segir:
siglingamanna sem fram fór Opínn nokkur:
í Fossvogi um síðustu helgi. stig
Ottarr Hrafnkelsson (Laser).... 0.0
Páll Hreinsson (bascr).........11,7
UGuðjún 1. Guðjðnsson (Laser).....................................19,1
msjón með mótinu var í SigríðurÓlafsdóttir(Europe)....23,0
höndum Siglingaklúbbsins BenediklHenryGuðmundsson(Europe)
Brokeyjar og Siglingafélagsins ...............................3i,o
Ýmis. Keppt var í tveimur flokk- Márttón'en.............. 3,0
um, opnum flokkl Og flokkl Op- GuðniDagurKristjánsson.............. 8.7
timist-báta. Keppnin fór fram í Bjarki Gústafsson..................u,i
Skólar:
Litli íþrótta-
skólinn að
Laugarvatni
Atímabilinu frá 15. júlí til 15.
ágúst verður starfræktur að
Laugarvatni sérstakur íþróttaskóli
fyrir 10-12 ára börn og nefnist
hann Litli íþróttaskólinn.
Þetta er í fyrsta skipti sem þessi
skóli er starfræktur. Börnum alls4
staðar af landinu gefst tækifæri til
að skrá sig í skólann en þar er
boðið upp á leiðsögn í flestum grein-
um íþrótta, farið verður í ratleiki,
fjallgöngur, bátsferðir og á kvöldin
verða kvöldvökur.
Búið verður í húsnæði íþrótta-
miðstöðvar íslands þar sem áður
var heimavist Iþróttakennaraskóla
íslands. Þar er mötuneyti og gisti-
aðstaða fyrir 60 börn. Fréttatilkynning