Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.05.1990, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAI 1990 u *• ATVIMNUAUGíraNGAR Afgreiðslustörf Starfskrafta vantar í afgreiðslustörf hálfan eða allan daginn. Upplýsingar í versluninni milli kl. 10.00 og 14.00. ‘Giympia, Laugavegi 26. Gagnaskráning Traust fyrirtæki óskar eftir starfsmanni til gagnaskráningar í fullt starf í sumar, en hlutastarf (eftir hádegi) í haust. Reynsla æskileg. Umsóknarfrestur er til 21. maí. Umsóknir skilist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Gagnask. - 21 “. Gott starfsfólk óskast í býtibúr frá 1. júní. Vinnutími frá kl. 8.00- 13.00. Unnið aðra hvora helgi. Fast starf. Frá 1. júlí í sumarafleysingar við ræstingu og í fast starf í borðsal. Upplýsingar gefur Jóhanna í síma 30230 frá kl. 9.00-12.00 virka daga. í eldhús og borðsal til sumarafleysinga og í föst störf. Upplýsingar gefur Magnús í síma 689323. Býtibúr frá kl. 17.00-21.00. Fast starf - vaktavinna. Upplýsingar gefur Jónína Nielsen í síma 689500. Sumarstarf - kennari? Mjög sérhæft þjónustufyrirtæki í borginni vill ráða þroskaðan starfsmann til sumaraf- leysinga sem fyrst til loka ágúst. Aldur 35-55. Öllum umsóknum svarað. Umsóknir, merktar: „S - 9215“, sendist aug- lýsingadeild Mbl. fyrir kl. 17.00 föstudag. Öllum umsóknum svarað. Laus staða lögfræðings Staða löglærðs fulltrúa við embætti undirrit- aðs er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf þurfa að berast undirrituðum fyrir 1. júní 1990. Sýslumaður Þingeyjarsýslu, bæjarfógeti Húsavíkur, Halldór Kristinsson. Grunnskólinn í Sandgerði Kennara vantar í eftirtaldar stöður: Yfirkennara. Sérkennslu. Kennslu eldri barna: íslenska, stærðfræði, danska og nátt- úrufræði. Almenn kennsla yngri barna. Ódýrt húsnæði fyrir hendi. Tilvalið fyrir fjöl- skyldufólk. Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson, skólastjóri, í símum 92-37439 og 92-37436, og Jórunn Guðmundsdóttir, formaður skóla- nefndar, í símum 92-37620 og 92-37601. Rafeindavirki á tölvusviði óskar eftir framtíðarstarfi við við- hald eða sölu á tölvubúnaði. Tilboð merkt: „T- 1404“ sendist auglýsinga- deild Mbl. fyrir 25. maí. Umsjónarmaður félagsmiðstöðvar Laust er til umsóknar nýtt 100% starf um- sjónarmanns félagsmiðstöðvar Selfoss. Um- sjónamaður ber ábyrgð á rekstri félagsmið- stöðvarinnar og skipuleggur starfsemi henn- ar í samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð Selfossbæjar. Um er að ræða áhugavert framtíðarstarf þar sem reynir á frumkvæði, samviskusemi og stjórnunarhæfileika umsjónarmanns. í sumar verður að mestu lokið uppbyggingu félagsmiðstöðvarinnar og mun umsjónar- maður annast kaup á búnaði og tækjum. Lausráðið starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar verður umsjónarmanni til aðstoðar í starfi. Ráðning þess er í höndum umsjónarmanns og bæjarstjóra. Umsjónarmaður getur hafið störf í júní nk. eða síðarskv. samkomulagi við undirritaðan, sem veitir nánari upplýsingar um starfið á bæjarskrifstofu Selfoss, Austurvegi 10, sími 98-21977. Æskilegt er að umsækjandi hafi uppeldis- menntun eða reynslu á sviði unglingastarfs, en slíkt er ekki skilyrði. Þeir, sem áhuga hafa á starfinu, eru vinsam- legast beðnir um að hafa samband hið fyrsta. Bæjarstjórinn á Seifossi, Karl Björnsson. HÚSNÆÐIÓSKAST Reykjavík Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli í Reykjavík. Um er að ræða einbýlis- hús, par-/eða raðhús á einni hæð með 5-6 rúmgóðum herbergjum. Æskileg staðsetning vestan Elliðaáa. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, bygg- ingarár og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, afhendingartíma og sölu- verð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytis- ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní 1990. Fjármálaráðuneytið, 15. maí 1990. KENNSLA Söngskglinn í Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist í Söngskólanum íReykjavík veturinn 1990-1991 er til 22. maí. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, Hverfisgötu 45, sími 27366, daglega milli kl. 15.00-17.00, þar sem allar nánari upplýsing- ar eru veittar. Skóiastjóri. TILKYNNINGAR Forval Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík, auglýsir forv- al vegna fyrirhugaðs útboðs á undirbyggingu nyrðri akbrautar Sæbrautar (Sætúns) frá Kringlumýrarbraut að Kalkofnsvegi. Valdir verða 4-5 verktakar til að bjóða í verk- ið að loknu forvali. Heildarlengd gatna er um 2.200 m. Gröftur um 40.000 m3. Fyllingar um 40.000 m3. Frárennslislagnir um 1500 m. Verkið skal hefja um miðjan júní og skal lok- ið eigi síðar en 15. september næstkomandi. Forvalsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Forvalsgögnum skal skilað á sama stað eigi síðar en miðvikudaginn 23. maí 1990, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RE YKJ AVÍ KURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800 Tilkynningtil launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir maí er 15. júní nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því, sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll- stjóra, og afhenda um leið launaskatts- skýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Stofnun Þróunarfélags miðbæjar Reykjavíkur Dagana 27. maí - 16. júní nk. liggja frammi undirskriftalistar í Gallerí Borg, Pósthús- stræti 9, Byggingaþjónustunni í Iðnaðar- mannahúsinu við Hallveigarstíg og á Borgar- skipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, fyrir þá, sem vilja gerast stofnfélagar í Þróunarfélagi miðbæjar Reykjavíkur. Starfsvettvangur félagsins er miðbærinn. Stofnfélagar geta þeir orðið, sem eiga lög- heimili, fyrirtæki og atvinnurekstur í Reykjavík, svo og stofnanir. Áætlað árgjald félagsaðila er kr. 2.000 fyrir íbúðareigendur, kr. 10.000 fyrir fyrirtæki og kr. 20.000 fyrir hverja stofnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.