Morgunblaðið - 17.05.1990, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAI 1990
Sjónvarpstœki
Sjónvarps-
| myndavélar
Hljómtœkja-
samstϚur
Feröaviötœki
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
' NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Lifandi miðbær
eftir Guðrúnu
Jónsdóttur
Allar borgir sem ég þekki til,
ekki síst höfuðborgir, eiga sér mið-
bæ. Hann getur verið misstór og
mismunandi merkilegur í marg-
víslegu tilliti. Það sem miðbæir eiga
sammerkt er að út frá þeim hefur
oftast viðkomandi borg þróast. Þeir
eru fasti punkturinn, sem íbúar og
gestir sækja heim til þess að fræð-
ast um uppruna og eðli viðkomandi
borgar. Komast að kjarnanum og
fá innsýn í borgarbraginn.
í miðbæ er að jafnaði miðstöð
stjórnsýslu, helstu menningarstofn-
anir, miðstöð ferðamála og sam-
gangna, miðstöð athafnalífs, helstu
verslunar- og peningastofnanir og
að lokum íbúðarbyggð þeirra, sem
kjósa að eiga heima í slíku um-
hverfi.
Lítum nánar á þessa þætti og
stöðu þeirra í miðborg Reykjavíkur.
Ekkert getur komið í staðinn fyrir
gamla góða miðbæinn og íbúðar-
hverfin í kring. Hvergi getum við
fengið jafn miklar upplýsingar um
t.d. byggingarsögu borgarinnar og
lífshætti fólks frá fyrri tíð eins og
hér.' Hvert hús á sér sína sögu, sem
„Úr því sem komið er
verður að reyna að laga
umhverfi ráðhússins
eins og hægt er. Því
held ég að ráðlegast sé
að reyna að ná sam-
komulagi við Alþingi,
en svæðið er í eigu þess,
um að fá það undir al-
mennilegt ráðhústorg.
Torg sem risið gæti
undir nafiii og hefði
aðdráttarafl fyrir fólkið
í borginni.“
tengist oft á tíðum frelsisbaráttu
þjóðarinnar, menntunar og menn-
ingarmálum að ógleymdri atvinnu-
sögunni, sem á sínar rætur á svæð-
inu. En umhverfið og húsin eru
vanhirt og bíða þess að menn vilji
kannast við þennan borgarkjarna
og hlúa að honum. Útivistarsvæðin,
umferðarmálin og ýmis þjónusta,
sem nauðsynleg er fyrir íbúðar-
byggð, ef hún á að rísa undir nafni,
eru í vanhirðu hér í miðborginni.
Úr þessu öllu þarf að bæta. Her í
miðþænum er vissulega miðstöð
stjórnsýslu, hér eru peningastofn-
anirnar, en staða verslunar hefur
versnað stórlega með tilkomu vin-
sælla verslunarmiðstöðva sem geta
boðið upp á ókeypis bílastæði við
dyrnar á meðan stöðumælasektir
hijá þá sem í miðborgina koma.
Offramboð, sem skapast hefur á
verslunar- og skrifstofuhúsnæði
sem yfirvöld gátu reyndar vel séð
fyrir, hefur nú leitt til þess að heilu
hæðirnar standa auðar hér í mið-
bænum með leigu- eða söluspjöld í
gluggum. Á þessum málum þarf
að taka.
Ef litið er á miðbæinn sem mið-
stöð ferðamála og samgangna þá
er staðan veik. Það þarf að gera
annað en aka með ferðamenn eftir
Lækjargötu á hraðferð út úr bæn-
um. Hér þarf að vera 1. fl. hótel.
Þangað þarf að fara rútan frá
Keflavík, sem tengist fluginu svo
dæmi séu nefnd og búa þarf þann-
ig um hnútana að ferðamenn eigi
fjölþætt erindi í miðbæinn. En lítum
nánar á nokkur önnur atriði, sem
komið gætu miðbænum til bjargar.
Gömlu sögufrægu húsin í mið-
bænum eru hans mesti styrkur, því
Gpðrún Jónsdóttir
þau skapa honum sérstöðu. Þess
vegna m.a. þarf að vernda þessi
hús og gæta þess að ný hús sem
byggð eru falli vel að eldri byggð.
Því miður er haldið áfram á óheilla-
braut í þessum efnum og nú eru
til umíjöllunar hjá borgaryfirvöld-
um uppdrættir að enn einu húsi sem
engan veginn tekur mið af byggð-
inni sem fyrir er. Það er hús sem
til stendur að byggja á lóðinni
Lækjargötu 4. Þessa teikningu þarf
að endurbæta stórlega.
Fasteignamatið í miðbænum hef-
ur á undanförnum árum þótt hátt
Af hverju siðareglur
fyrir borgarfulltrúa?
Við framsóknarmenn viljum að settar verði siðareglur
fyrir borgarfulltrúa og embættismenn borgarinnar
Áslaug Brynjólfsdóttir
Siðareglur eru nauðsynlegar:
Þegar lóðabrask er stundað í stórum stíl í Reykjavík, og það m.a. af einum borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins.
Þegar starfsmenn byggingafulltrúans í Reykjavík geta hannað og teiknað byggingar sem
einstaklingar og haft síðan eftirlit með sjálfum sér sem embættismenn.
Þegar borgarstjórinn getur keypt bfla á kostnað Reykvíkinga án nokkurs samráðs við aðra kjörna
fulltrúa borgarinnar.
Þegar ekki eru til nauðsynlegar reglur um ýmiss konar fríðindi, hlunnindi og risnu borgarstjóra.
Þegar ekká éru til skýrar reglur um afnot borgarstjóra af bflum embættisins.
Þegar borgarstjóri getur bannað að undirskriftalistar til að mótmæla staðsetningu ráðhúss geti legið
frammi í sundstöðum borgarinnar.
Þegar borgarstjórinn velur handgengna byggingaverktaka til að byggja íbúðir fyrir aldraða, sem þeir
selja síðan á okurverði.
FRAMSOKNARFLOKKURINN