Morgunblaðið - 17.05.1990, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1990
!■
■(.
!-<
‘uj
:
fclk í
fréttum
VERÐLAUN
Dame Peggy Ashcrofit heiðruð
SATTAUMLEITANIR
Klæði borin á
vopn Trump-hj ónanna
Eiríkur með glaðværum nemend-
um sínum. Á innfelldu myndinni
sést hvar fagnað er frumsýningu
Yesalinganna.
ROKKHETJA
ÞRAUTSEGJA
Hresst upp
á tijálund
Hópar á vegum Bandalags
kvenna í Reykjavík hafa tekið
að sér að sjá um tijálundinn á horn-
inu á Miklubraut og Skeiðarvogi,
en þennan reit fékk bandalagið í
tilefni afmælis kosningaréttar
kvenna á íslandi. Umhverfisnefnd
BKR hefur umsjón með verkinu í
samvinnu við garðyrkjustjóra
Reykjavíkur.
Starfið er í því fólgið að hóparn-
ir hittast 10. maí, hreinsa, bera á
tré og gróðursetja ný. í framhaldi
af því fer hópurinn í ferðalag, Vor-
ferð BKR og dvelur eina kvöldstund
með kvenfélagi eða kvenfélagasam-
bandi utan höfuðborgarsvæðisins.
Að þessu sinni mættu um 90 konur
til verksins.
. . Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Tekið til hendi 1 tr^álundinum.
Enn er mikið rætt og ritað um
hjónabandsvanda
Trump-hjónanna í erlendum
blöðum og síðustu fregnir herma
að eigi sé öll nótt úti og ef til vill
dragi þau Donald og Ivana sig
saman aftur. Hætti við skilnaðinn,
Ivana hefur sett ákveðin skilyrði
Þnngarokk og
söngleikir
Eiríkur Hauksson hefur verið
einn fremsti popp- og rokk-
söngvari íslands, en fyrir tveimur
árum flutti hann sig um set til
Frederikstad í Noregi, þar sem hon-
um var boðið að syngja í norsku
þungarokksveitinni Artch. Með
Artch hefur Eiríkur gert eina plötu
sem fengið hefur framúrskarandi
dóma í breskum þungarokkblöðum,
og ekki er langt í aðra plötu, sem
gefin verður út í Bandaríkjunum
einnig. Eiríkur fæst þó við fleira
en þungarokk, því hann hefur ofan
af fyrir sér og sínum með kennslu
og söng í söngleikjum, en fyrir
skemmstu birtist mikil grein í
Frederikstad blad um uppfærslu á
Vesalingunum í Frederikstad, hvar
Eiríkur söng söng hlutverk stroku-
fangangs göfuglynda Jeans Valje-
ans. Hann vakti almenna hrifningu
fyrir raddsvið sitt, sem spannaði
bassa upp í falsettu að sögn þess
sem greinina ritaði, og var honum
sérstaklega klappað lof í lófa.
Stuttu eftir að téð grein birtist var
svo heilsíðu viðtal við Eirík í blaðinu
þar sem rakinn er tónlistarferill
hans allt frá því han hóf að syngja
fimmtán ára í hljómsveitinni Start
og þar til hann gekk j Artch, með
viðkomu í Eurovision. Eiríkur vill
ekki aftaka fyrir að hann muni
snúa aftur til íslands, þrátt fyrir
að vel gangi ytra; hann þurfi að
taka tillit til dóttur sinnar og ákveða
hvort hún eigi að ganga í skóla í
Noregi eða á íslandi. Þar spilar
margt inní, segir Eríkur, og þá
ekki síst hvernig fer með næstu
plötu Artch, sem tekin verður upp
í Bandaríkunum innan skamms.
Dame Peggy Ashcroft hlaut
nýverið sérstaka viðurkenn-
fyrir því, en spurning hvort að
Donald gangi að þeim.
Þessi tíðindi fengu byr undir
báða vængi, er Donald og Ivana
fóru saman í kvikmyndahús með
börn sín þijú dag einn eigi alls
fyrir löngu. Fáum dögum síðar
voru þau mætt, hönd í hönd, á
Prófessor Wells
Ashcroft bikarinn.
afhendir
ingu fyrir einstaka túlkun á verk-
um Williams Shakespeares, er
árlegur miðdegisverður var
snæddur í Stratford upon Avon í
tilefni af afmæli skáldsins nafn-
togaða.
Það er Shakespeare-
stofnunin breska sem stendur fyr-
ir samkundunni og að þessu sinni
voru sérstök verðlaun veitt,
„Pragnall-bikarinn“. Frú Ashcroft
viknaði er hún fékk viðurkenning-
una, einkum þó er prófessor Stan-
ley Wells, framkvæmdastjóri
Shakespeare-stofnunarinnar,
sagði í ræðu, að Ashcroft væri
skærasti gimsteinninn í krúnu
breska leikhússins.
Odyr hadegismatur
alla virka daga
frá kl. 12—2.
1. Hamborgari dagsins
m/frönskum og salati kr. 490
2. Samloka dagsins
m/frönskum og salati kr. 395
3. Kjötréttur kr. 580
4. Fiskréttur kr. 580
Súpa fylgir.
Elskum alla þjónum öllum
s. 689888
Opnunartími: Opið frá kl. 18.00
þriðjudaga - miðvikudaga - fimmtudaga
- föstudaga - laugardaga
Pantiö borö tímanlega. Sími 1 8833