Morgunblaðið - 17.05.1990, Page 55

Morgunblaðið - 17.05.1990, Page 55
55 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 17. MAI 1990 KNATTSPYRNA / UEFA KEPPNIN Reuter Dino Zoff, þjálfari Juventus, með UEFA-bikarinn í gærkvöldi. Liðið sigraði í tveimur mótum undir hans stjórn í vetur, en hann lætur engu að síður af störfum. „SáraboL - sagði DinoZoff, þjálfari Juventus, eftirsigurí UEFA-keppninni, en hann hættir nú með liðið JUVENTUS sigraði í Evrópukeppni félagsliða, UEFA-keppninni svokölluðu, í gærkvöldi með því að gera markalaust jafntefli við Fiorentina í síðari úrslitaviðureign liðanna. Juventus vann þann fyrri, 3:1. Bæði eru liðin ítölsk sem kunnugt er. etta var heimaleikur Fiorentina en leikið var í borginni Avellino á suður Ítalíu, vegna þess að félag- ið hafði verið dæmt heimaleikja- bann í kjölfar óspekta áhangenda liðsins er þeir fylgdust með viður- eign þess við Mónakó fyrr í vetur. „Þetta var stórkostlegt, dásam- legt. Leikmenn mínir verðskulduðu sigurinn; börðust þrátt fyrir að vera einum færri lengi. Það er ekki hægt að gera betur,“ sagði Dino Zoff, þjálfari Juventus, eftir sigur- inn. Hann hefur nú stjórnað liðinu í tvö keppnistímabil og hreppti tvo bikara í vetur. Hann verður þó ekki áfram með liðið; samningur hans er útrunninn og tvö ár eru síðan forráðamenn félagsins sömdu við Luigi Maisrebi, þjálfara Bologna, um að taka við stjórninni næsta vetur. „Það verður sárt að yfirgefa fél- agið nú, en árangurinn er nokkur sárabót," sagði Zoff. Leikurinn var mjög harður. Fimm leikmenn voru bókaðir og einum þeirra, Pasquale Bruno hjá Juvent- us, var vikið af velli á 58. mín. En félagar hans létu ekki bugast og héldu út. Gríðarleg barátta ein- kenndi leikinn, eins og við var búist. Bæði lið fengu ákjósanleg færi á að skora strax í byijun leiks. Síðan dofnaði yfir leiknum, mestan hluta fyrri hálfleiks var lítið um færi, en eftir að Bruno hafði verið rekinn út af höfðu leikmenn Fiorentina tögl og hagldir. En þeir mættu of- jarli sínum þar sem var Stefano Tacconi, markvörður Juventus og varamarkvörður ítalska landsliðs- ins. Hann sýndi afburðamarkvörslu eins og svo oft áður í vetur. Bras- ilíumaðurinn Dunga, Alberto Di Chiara og Roberto Baggio (sem leikur hugsanlega með Juventus næsta vetur) fengu allir góð færi á að skora en Tacconi bjargaði af snilld í öll skiptin. Næst komst Fior- entina því að skora fjórum mín. fyrir leikslok er tékkneski landsliðs- maðurinn Lubos Kubik skaut í stöng. Tvívegis heimtuðu leikmenn Fi- orentina víti í leiknum en vestur þýskur dómari var í hvorugt skiptið á sama máli. Juventus vann þarna aðra keppni sína í vetur; áður höfðu leikmenn liðsins fagnað sigri í ítölsku bikar- keppninni, en félagið hafði ekki unnið mót í fimm ár. Juventus vann UEFA bikarinn 1977 en siðast Evr- ópukeppni meistaraliða 1985 með 1:0 sigri á Liverpool. KNATTSPYRNA Platini á æfíngu í Laugardalnum fyrir leik Juventus og Vals 1986. Platini „njósnar“ í Laugardal Einn frægasti knattspyrnumað- ur Evrópu, Michel Platinir "* landsliðsþjálfari Frakka, verður meðal áhorfenda á leik íslands og Albaníu í undankeppni Evrópumóts landsliða á Laugardalsvelli 30. maí. Platini kemur til að „njósna" um liðiii þar sem Frakkar eru í sama riðli í undankeppninni. Platini hefur einu sinni áður kom- ið til íslands. Það var er italska lið- ið Juventus lék við Val á Laugar- dalsvelli í Evrópukeppninni 1986. Hann skoraði þá tvö af fjórum mörkum Juventus. * URSLIT Knattspyrna UEFA-keppnin: Sfðari úrslitaleikur keppninnar: Juventus—Fiorentína.................0:0 Juventus vann samanlagt, 3:1. Vináttulandsleikir: Dublin, írlandi: írland—Finnland.....................1:1 Kevin Sheedy (85.) — Vesa Tauriainen (76.) Áhorfendur: 31.556 Tel Aviv, ísræl. ísrael—Sovétríkin...................3:2 Uri Malmillian (18.), Nir Levin (30.), Tal Ban- im (67.) — Gennadí Litóvsjenkó (27.), Alexei Mikhaílísjenkó. Aberdeen, Skotlandi. Skotland—Egyplaland.................1:3 Ally McCoist (73.) — Gamal Abdel-Hamid (15.), Hossam Hasan (28.), Ismail Yusuf (83.) Álrorfendun 23.000 Úrslitakeppnin i Englandi: Undáhúrslit um sæti í deild, síðari leikin Newcastle—Sunderland...............0:2 Sunderland vann samanlagt 2:0. Swin’don—Blackbum.................2:1 Swindon vann samanlagt 4:2. KNATTSPYRNA Kaii á fomar slóðir Tekur þátt í afmælisleik í Laval í Frakklandi sama dag og ÍA mætir Fram í 2. umferð íslandsmótsins Karl Þórðarson, knattspyrnu- maður af Akranesi, verður ekki með IA í 2. umferð Islands- mótsins er liðið mætir Fram í Reykjavík, fimmtudaginn 24. þessa mánaðar. Honum hefur ver- ið boðið til borgarinnar Laval í Frakklandi til að taka þátt í leik sem komið hefur verið á vegna 10 ára afmælis útvarpsstöðvar í borginni. Karl lék sem kunnugt er með liði Laval um skeið fyrir nokkrum árum, og hefur útvarpsstöðin hó- að saman þeim mönnum sem skip- uðu liðið á þeim tíma — en þá tók félagið einmitt þátt í Evrópu- keppni í fyrsta og eina skipti í sögu þess. Það var tímabilið 1982-83. „Gamlingjarnir" eiga nú að mæta liði félagsins eins og það er skipað í dag, en það er sem stendur í 2. deild. „Þetta er boð sem ég gat ekki hafnað," sagði Karl við Morgun- blaðið um Frakklandsferðina, þrátt fyrir að leikinn bæri upp á sama dag og viðureign ÍA og Fram. Karl og eiginkona hans halda til Frakklands eftirjeik ÍA við Val í fyrstu umferð íslands- mótsins á sunnudag og dvelja ytra í nokkra daga, í boði útvarps- stöðvarinnar. Karl Þórðarson. A-ÞYSKALAND Heike Drechsler: Bannað að eignast barn Heike Drechsler, ein besta fijálsíþróttakona Austur- Þýskalands, segir í viðtali við vest- ur-þýska tímaritið Sports að aust- ur-þýsk íþróttayfirvöld hafi bannað henni að eignast barn fyrr en að loknum keppnisferli. '* Fyrir fjórum árum sagði Drechsl- er í blaðaviðtali að hana langaði til að eignast barn. Hún hafði þá ný- lega unnið tvenn gullverðlaun á Evrópumótinu og fékk skýr fyrir- mæli um að haida áfram keppni. Hún fékk loks leyfi eftir leikana í Seoul og eignaðist son. Hún seg- ist nú vera tilbúin til að hefja keppni að nýju og stefni á Evrópumótið sem fram fer í Júgóslavíu í ágúst. VINATTULANDSLEIKIR Skotum skejlt á heimavelli Sovétmenn töpuðu í Israel og írar náðu jöfnu heima gegn Flnnum ÞRENN mjög óvænt úrslit urðu í gær í upphitunarleikjum fyrir heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu. Skotar fengu skell á heimavelli gegn Egyptum, 1:3, og Sovétmenn töpuðu í ísrael, 2:3. Þá náðu írar aðeins jafntefli gegn Finnum í Dublin. 3. deild: Notts County—Bolton................2:0 Notts County vann samanlagt 3:1. Tranniere—Bury................... 2:0 Tranmere vann samanlagt 2:0. 4. deild: Stockport—Chesterfield.............0:2 Chesterfieild vann samanlagt 6:0. Maidstone—Cambridge................0:2 (Eftir framlengingu) Cambridge vann saman- lagt 3:1. BSigurliðin leika til úrslita um sæti í næstu deild á Wembley 26.-28. maí. Golf Hið árlega vormót Gollklúbbs Hellu fór fram 13. mai sl. Leiknar voru 18 holur með og án forgjafar. Þáttakendur voru 164. Án forgjafan högg 1. Jón Haukur Guðlaugsson, NK............70 2. Gunnar Halldórsson, GK................75 3. Óskai' Pálsson, GHR...................75 Með forgjöf: 1. Snæbjöm Guðmundsson, GK...............65 2. Torfí Jónsson, GHR....................65 3. Jón Haukur Guðlaugsson, NK............67 Íshokkí NHL-deildin, úrslit: Edmonton Oilcrs—Boston Bruins.......3:2 (Eftir þijár framlengingar). Edmonton er yfír, 1:0 en leikið er þartil annað “liðið'héfúr sigfad Qð'rum' sinnúm.' ... Egyptar sem taka þátt í loka- keppni HM í fyrsta sinn í 50 ár, unnu mikilvægan sigur á Skot- um í Aberdeen. Egyptar eru í riðli með Englendingum, Hollendingum og írum og hafa hingað til ekki verið taldir líklegir til stórræða. En ef marka má leikinn í gær eru þeir sýnd veiði en ekki gefin. Abdel Hamid og Hossam Hasan náðu tveggja marka forystu eftir aðeins 28 mínútur. Ally McCoist minnkaði muninn en Ismail Yusuf gerði þriðja markið við takmarkaða hrifningu skosku áhorfendanna. Þeir höfðu bókað sigur, enda Egypt- ar þekktari fyrir pírárnítá en kriátt- spyrnu. Skotar, sem leika í riði með Brasilíu, Svíþjóð og Kosta Ríka verða hinsvegar að gera eitthvað róttækt ætli ekki að stoppa stutt á Ítalíu. Avextir í Israel Valerí Lobanovskí, þjálfari Sov- étmanna, var afar óhress með sína menn eftir tap fyrir Israelsmönnum, 2:3. Hann sagði að slæleg vörn hefði kostað þá tap og hann ætti ærið starf fyrir höndum ef hann ætlaði að koma liðinu úr riðli sínum í HM. Leikurinn, sem var sá fyrsti milli þjóðanna í 34 ár, tafðist um 12 míMtuý' vegna skyndilegrar ávaxtaveislu á miðjum vellinum. Ahorfendur, sero voru að mótmæla því að þrír lykilmenn, þar á meðal Ronnie Rosenthal frá Liverpool, væru ekki með, hentu gömlum ávöxtum inná völlinn og létu ófrið- lega. Þeir róuðust þó er líða tók á leikinn enda frammistaða heima- manna með allra besta móti. Tal Banim gerði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik en þetta var fyrstu landsleikur hans. Áður höfðu Uri Malmillian og Nir Levin skoraði fyrir heimamenn en Gennadí Litóvtsjenkó og Alexeij Míkhaílítsj- enkó rétt hlut Sovétmanna jafnóð- um. Þetta var síðasti leikur Sovét- manna fyrir HM en þar eru þeir í riðli með Argentínu, Rúmeníu og Kamerún. Jafnt í kveðjuleiknum írar sluppu með jafntefli, 1:1, gegn Finnum í gær en lengi vel leit út fyrir að Irar myndu tapa fyrsta leik sínum á heimavelli f fjög- ur ár. Varamaðurinn Vesa Tauria- inen kom Finnum yfir á 74. mínútu með þrumuskoti af 25 metra færi en Kevin Sheedy jafnaði ellefu mínútum síðar, eftir að Jöhn^^, Aldridge hafði átt skot í þverslá. Þetta var síðasti leikur Liam Brad- ys en hann fór af leikvelli eftir 26 mínútur. Engu að síður var hann nálægt því að leggja upp mark en markvörður Finna varði glæsilega skalla frá David O’Leary, eftir send- ingu frá Brady. Ágóðinn af leiknum rann í vasa Bradys og þeir þurf?^. að vera stórir því hann fékk í sinn hlut úm 30 milljónír. ísL kr. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.