Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990 C 11 p-tó' ffislandog* *rs£ **ium ldvagninn' HHGF'RÆDI/Hvad segir OECD? Stóridómur OECD Skýrsla Efhahags- og framfarastofhunarinnar (OECD) um íslensk efnahagsmál hefur að vonum vakið nokkra athygli. íslensk- ir stjórnmálamenn hafa raunar litið á þessa skýrslu sem einhvers konar stóradóm um hagstjórn síðustu ára, og tína til það sem helst hentar. Athuganir OECD á íslenskum efnahagsmálum eru ekki nema að litlu leyti byggðar á sjálfstæðum athugunum, enda kemur í ljós að spár stofhunarinnar eru samhljóða spám Þjóðhags- stofnunar. Þessar skýrslur eru þó uin margt athyglisverðar enda er glöggt gests augað. Hér er ætlunin að kynna þessa skýrslu °g leggja út frá henni. eftir Siguró Snævarr OECD er samtök helstu iðnr- íkja heims. Rætur stofnunar- innar má rekja til Marshall að- stoðarinnar, en fyrirrennara OECD var komið á laggirnar af Bandaríkja- mönnum í tengslum við út- hlutun aðstoðar og til að auka efnahagssam- vinnu milli Evr- ópuríkja. Á árinu 1960 var nafni stofnunarinnar breytt í OECD og þá urðu ýmis ríkustu lönd heimsins aðilar. Verksvið OECD hefur síðan eink- um verið ráðgefandi. OECD birtir reglulega yfirlits- skýrslur um efnahagsmál í hvetju aðildarlandi, en skýrslur um Is- land eru gefnar út á 18 mánaða fresti. Þannig kom skýrslan á undan þessari út í nóvember 1988. Þeirri skýrslu var ekki fagnað af ráðamönnum hérlendum og voru fleyg þau orð Steingríms Her- mannssonar, forsætisráðherra, að hann nennti ekki að lesa skýrsluna enda væri um að ræða þýðingu á rausi úr einhveijum fijálshyggju- mönnum. Megin kostur hinnar nýju skýrslu er hversu greinandi hún er og segja má að um ákveðinn rauðan þráð sé að ræða í þessari bláu bók. Greint er annars vegar frá, hvemig hagstjórn og hag- stjórnarskilyrðum var háttað fyrir um miðjan þennan áratug og hins vegar frá þeim breytingum sem gerðar hafa verið og þeim vanda- málum sem nú blasa við. Sú greining á hagstjórn fyrri tíma sem fram kemur í skýrslunni er einkar athygiisverð. Niðurstað- an er sú að fram til 1983 hafi hér ekki verið nein efnahags- stjórn. Eftirfarandi ályktun er að finna á blaðsíðu 25: „I reynd var peningastefnunni, raungenginu, tekjustefnunni beitt til endurdreifingar þjóðarauðsins, hinum tveimur fyrstu með niður- greiddum lánum til atvinnuveg- anna og breytingum á viðskipta- kjörum í krónum, hinum tveimur síðari með beinni hætti... Skort- ur á nægjanlegri hagstjóm með jöfnun sveiflna að markmiði leiddi til erlendrar lántöku, sem ætlað var að brúa bilið milli þjóðartekna og útgjalda ... Hins vegar var þetta kerfi orðið óstöðugt — og hugsanlega explosivt — með hrað- vaxandi verðbólgu og erlendri skuldsetningu. Við þau skilyrði bar lífsnauðsyn til að laga inn- lenda eftirspurn að framleiðsluge- tunni og til þess að það mætti takast varð að endurbæta og stilla upp á nýtt helstu hagstjórnar- tækjum." Hér er talað tæpitungu- laust, Breytingar í átt til virkari efna- hagsstefnu má rekja til aðgerð- anna 1983, en einnigtil breytinga í peningamálum, einkum varðandi ákvörðun vaxta og breytinga á afurðalánakerfinu. Víða í skýrsl- unni er drepið á nauðsyn frekari aðgerða í fijálslyndisátt, s.s. að opna fjármagnsmarkaðinn fyrir erlendum straumum, bæði með heimildum til fjárfestinga í verð- bréfum og í atvinnulífi. I niðurlag- skafla skýrslunnar segir um fjár- festingar erlendra aðila í íslensku atvinnulífi: „Breytingar í átt til meira fijálsræðis í þessum efnum fælu í sér sterkari stöðu til að auka fjölbreytni efnahagslífsins. Þetta er nauðsynlegt ef takast á að nýta til fullnustu þá möguleika sem eru til staðar í iðnaði og þjón- ustugreinum, nú á tímum þegar útlit er fyrir að framleiðsla sjávar- afurða aukist lítið og vinnuaflseft- irspurn í sjávarútvegi dragist saman. Aukið hlutverk markaðar- ins ætti að auðvelda þessa aðlög- un og stuðla að því að skapa að- stæður fyrir hagvöxt og efna- Sú niðurstaða er í fullu gildi, að tekjustefnan sem hér hefúr tíðkast og felur í sér að bjóða skatta- lækkanir/útgjaldahækkun fyrir lægri launahækkanir, er ekki árangursrík og leiðir til óstöðugleika þegar til lengdar lætur. Þetta kann að vera skynsamlegri skýring á sveiflum í hagkerflnu heldur en að þær megi að öllu rekja til óstöðugra aflabragða. hágslegt jafnvægi." Sérstaka athygli vekur, að eng- inn gaumur er gefin þeirri milli- færslupólítík sem ríkisstjórnin fylgir, sem sannarlega er ekki í anda þess boðskaps sem skýrslan flytur. Umfjöllun um vinnumarkað í skýrslunni er athyglisverð og á köflum nokkuð djörf. Gengið er út frá því, að launamyndun á ís- landi sé óvenju miðstýrð, og því til sönnunar er bent á hversu hátt hlutfall launþéga sé í stéttar- félögum og hversu mikill þáttur ríkisvaldsins hefur verið í launa- mynduninni. Afleiðingar þessa telja skýrsluhöfundar vera að kaupmáttur launa lagist hraðar að breyttu efnahagsástandi en víða annars staðar. Hins vegar er bent á að sveiflur í kaupmætti launa hafi verið óþarflega miklar, þar sem sveifiur í framleiðni valdi enn meiri sveiflum í raunlaunum. (Þessi tilgáta er studd tölfræði- legri greiningu, sem um margt er hæpin). Uppbygging verkalýðs- hreyfingar á Islandi styður trauðla þessa tilgátu, því Alþýðu- samband íslands er nánast „regn- hlífarsamtök" með lítið miðstjórn- arvald. Á hinn bóginn er sú-niður- staða í fullu gildi, að tekjustefnan sem hér hefur tíðkast og felur í sér að bjóða skattalækkanir/út- gjaldahækkun fyrir lægri launa- hækkanir, er ekki árangursrík og leiðir til óstöðugleika þegar til lengdar lætur. Þetta kann að vera skynsamlegri skýring á sveiflum í hagkerfinu heldur en að þær megi að öllu rekja til óstöðugra aflabragða. Þegar á heildina er litið felst í skýrslunni mikill stuðningur við þau skref sem stigin hafa verið hér á landi í fijálsræðisátt, einatt í andstöðu við þá sem nú standa við stjórnvölinn. CAMP-UT '90 TJAIDVAGNARNIR ERU KOMNIR! nn Simi 18833 Oðrumsi staður Árshátíöir eru okkarfag! Þríréttaður árshátíðarmatur kr. 2.700,- Dansleikur að hætti Óperukjallarans fyrir smærri fyrirtæki og hópa. Opnunartími: Opið frá kl. 18.00 þriðjudaga - miðvikudaga - fimmtudaga - föstudaga - laugardaga Úrvalið og gœðin hafa alcirei verið meiri ... ■ Það er næsta fullvíst að Camp-let hefur fallið íslendingum best allra tjaldvagna, enda er frágangur þeirra rómaður og telja eigendur þeirra þá best fallna fyrir íslenskar aðstæður. í ár kynnum við nýja Royal tjaldvagninn sem er örugglega glæsilegastur allra tjaldvagna! Kynntu þér kosti keppinautanna og þá sérðu að það er ekki um aðra kosti að ræða en Camp-let. ** Sémokk/ eld. avéi a*&/ör- jónsson eldi í Evrópn- sá tnest s & Co. /rs/ * /*?3/ Sundaborg ll Sími 91 -686644

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.