Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990 C 15 Vinna úr því sem menn hafa á milli handanna í það og það skiptið og með því einu verða þeir alþjóð- legir. Þetta hefur Sveinn Björnsson gert með því að rækta uppruna sinn og bamatrú. Hann leitar á svið hins ófreska ævintýris, — álfkonan og draumur- inn er jafnan í næsta nágrenni og klappa á dyr listamannsins er hann handleikur pentskúfinn og hann getur ekki annað en sinnt kalli þeirra. Hann gengur ekki skipulega til verks heldur eins og ræðst á dúkinn í stjórnlausum ofsa, sem þó er borinn uppi af rökvísi sköpunar- gleðinnar. Sveinn hefur í tímans rás öðlast meira og meira vald á miðli sínum svo sem maður verður greinilega var við á sýningunni. Litir hans hafa orðið hreinni og markvissari um leið og verkin hafa orðið jafn- betri, en þau vildu vera æði misjöfn hér áður fyrr, svo að erfitt reyndist að festa auga á gullkornin í allri myndamergðinni og öllum sam- kynja formapataldrinum. En á þessari sýningu þar sem getur að líta tilfallandi samtíning frá ýmsum tímaskeiðum gerir hin aukna fjölbreytni einmitt það að verkum að styrkleiki listamannsins verður greinilegri en áður og hinar fáu myndir hvers tímabils eins og styrkja og efla heildina. Þetta gerir sýninguna mun forvitnilegri, því að hér gefst tækifæri til samanburðar og að fylgja þróun síðustu áratuga, þótt þetta sé engin bein yfirlitssýn- ing né uppgjör við fortíðina. Mætti frekar nefna þetta kynningu því að fyrsta áratuginn vantar og af ásettu ráði eru ekki myndir frá allra síðustu árum, sem listamaðurinn hefur nýlega sýnt sbr. sýningu að Kjarvalsstöðum á síðastliðnu ári. Strax og inn á sýninguna er kom- ið niðri í anddyri, er gesturinn boð- inn velkominn með lítilli en bráð- skemmtilegri mynd „Ævintýri“ frá 1970. Hér er það leikurinn sem stýr- ir penslinum og nafnið hittir í mark. Hér kemur það merkilega í ljós, að elstu myndirnar, sem eru frá 1960-68 (nr. 1-7) njóta sín mun betur en á sýningum í gamla daga þegar svipaðar fylltu heilu sýning- arsalina. Varð ég satt að segja hissa er ég uppgötvaði það, þótt mér væri alltaf ljóst að sýningar lista- mannsins einkenndust af ofhlæði eins og margra annarra ungra og kappsfullra listamanna og er sá er hér ritar engin undantekning. Þá vildu myndirnar eins og grípa hver í aðra í stað þess að njóta sín til fulls, hver og ein. Stóra myndin „Látið tunglið vera“ (12) frá 1965, er svo eitt af öndvegisverkum listamannsins frá þessu tímabili og öll mjög einkenn- andi fyrir myndstíl hans fram á daginn í dag. En sennilega munu klippimynd- irnar vekja einna mesta athygli á þessari sýningu, því að þær sýna nýja hlið á listamanninum, sem sumir hafa vafalítið haldið að ekki væri til. Hér koma fram stór og einföld form í skipulögðum hrynj- andi og þrátt fyrir það eru þær bornar uppi af sama leik og er gegn- umgangandi í list Sveins Björnsson- ar. Þetta eru að vísu ekki nýjar myndir, en listmaðurinn mun hafa veigrað sér við að sýna þær fyrr en núna og setja þær óneitanlega sterkan svip á sýninguna. Ég er hér á engan hátt að full- yrða, að þéssar myndir séu athyglis- verðari en annað á sýningunni, heldur staðfesta þær einfaldlega, að Sveinn á í sér meiri fjölhæfni sem listamaður, en flesta óraði, svo sem sjá mátti á sýningunni að Kjarvalsstöðum og hann mætti að ósekju rækta þessa hæfileika meir og betur, því að svo er sem að list hans blómstri við þessa auknu at- hafnasemi. Á sýningunni má svo einnig sjá tvær stórar ljóðrænar abstrakt- myndir,- en Sveinn hélt heila sýn- ingu á slíkum myndum að Kjarvals- stöðum fyrir nokkrum árum og kom sú sýning mörgum á óvart. Njóta þær sín vel á sýningunni og er auð- sær skyldleiki þeirra við önnur tímabil listamannsins. Þá eru þijár myndir úr myndaflokknum við ljóð Matthíasar Jóhannessonar frá 1985, sem breytti viðhorfum margra til listamannsins Sveins Björnssonar. Þannig er þetta fjölþætt og áhugaverð sýning og væntanlega láta hvorki Gaflarar né Reykvíking- ar það tækifæri frá sér fara, að kynnast list hins óstýriláta aðdá- anda hulinsheima og hins hráa íslenska veruleika. Ga NÝJUSTU MÓDELIN KOMIN FYRIR STÚDENTANA Jón og Óskar Laugavegi 70, s. 24930 Gilbert úrsmibur Laugavegi 62, s. 14100 • Þitt eigið eðlilega hár sem vex það sem þú átt eftir ólifað. • Ókeypis ráðgjöf og skoðun hjá okkur eða heima hjá þér. • Skrifleg lífstíðar ábyrgð. • Framkvæmt af færustu læknum. HRINGIÐ (BEST KL. 19-21) EÐA SKRIFIÐ TIL: Skanhár Holtsbúð 3, 210 Garðabæ, sími 91-657576 Þakkir viÖ áttrœða áfangann, fyrir vinsemd og viröingu í margvíslegu formi er ég hlaut. Geta verÖ ég um askinn, kjörgrip úr höndum MiÖ- húsafeÖga, en innan i lok hans er skoriö: „MeÖ viröingu og þökk frá Fljótsdœlingum “. Vorbirt- an falli yfir þessi þakkarorÖ af tungu minni. Jónas Pétursson, Lagarfelli 8, Fellabæ. Hjartkœrar þakkir til ykkar allra, sem á marg- víslegan hátt auÖsýnduÖ mér vináttu á 90 ára afmœli mínu þann 30. apríl sl. Öll sú góðvild og tryggÖ, sem ég varð aÖnjótandi, mun verma mig til hinstu stundar. Ég bið ykkur allra heilla og blessunar um framtíÖ alla. - , , .. ... Þorgerður Þorgilsdottir, Rauðalæk 19. Öndvegishúsgögn RATTAN-húsgagnalínan frá Cerda á Spáni hefur tryggt sér sess í Evrópu og Bandaríkjunum fyrir að vera ein fjölbreyttasta RATTAN-línan sem völ er á og tvímælalaust með hagstæðasta verðið miðað við gæði. 3ja sæta sófi + 2 stólar kr. 178.000,- stgr. HÚSGAGNAVERSLUN Síðumúla 20 - sími 688799.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.