Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNU’DAGUR 20. MAÍ 1990 Þegarorð tapa merkingu RITSTJÓRIHÉR í borg sagði ekki alls fyrir löngu í hópi biaða- manna að allir þeir sem unnið hefðu á ritstjórnum blaða þekktu það ástand sem skapaðist í kring- um kosningar þegar stjórnmála- flokkarnir ætiuðust tii þess að þeim væri þjónað. Fram til þessa hefur virk þátttaka blaða hér á landi verið talin ómissandi liður í kosningaundirbúningi flokkanna, a.m.k. gömlu fjórflokkanna. A seinni árum hefúr æ meir borið á því að litið sé á blöð og fjölmiðla sem þjónustuaðila og að lesendur séu neytendur sem geti vænst þess að fyrst og síðast sé verið að þjóna. í langflestum tilfellum upp- fylla blöðin þessar væntingar les- enda en þegar kosningar nálgast fjölgar dæmum þess að blöðin þjóni ekki lesendum sínum og ekki heldur endilega sannleikan- um, heldur einungis og afdráttar- Iaust Flokknum. Blöð eiga að hafa skoðanir og þau eiga alls ekki að fara í felur með þær. Góðar ritstjómir reyna hins vegar að forð- ast það að skoðanir blaðsins séu eins og slikja á öllum fréttaflutn- ingi þess sem annars á að vera óháður. Annað sem einnig ber að hafa í huga er að það er ekki það sama að hafa skoðun og að þjóna hagsmunum flokks, og vonandi þarf ekki að skýra þann mun út fyrir nokkrum fijálsum manni. Til þess að athuga hvernig blöð- in fjalla um kosningarnar sem fram fara ura næstu helgi var flett í gegnum DV, Morgunblaðið, Tímann og Þjóð- viijann dagana 10., 11. og 12. þessa mánaðar. Bein kosninga- umfjöllun var mest í DV og Þjóð- viljanum. Þar voru heilsíðu-umfjall- anir um kosningabaráttuna í til- teknum bæjarfélögum. Munúrinn á vinnubrögðum þessara blaða var sá að DV lagði augljósa áherslu á óhlutdræga úttekt þar sem öllum Ætli allar fréttir blað- anna séu eins áreið- anlegar og hlutbundnar og þessar? Þurfum meiri kvúta Knajén Áifnnum. odJvw C lUUm Þurfum að c/la i/év- arún ef al þru mðném. ' * ‘1--------*-- f/lagilegrarþ/ónuitu Gtfnrýnum, i okkar I uppbyggingu i udgrrðaleyu mnnhlul þjónusta, þá hefði auðveldlega ver- ið hægt að koma því við. Blaðið sá hins vegar ekki ástæðu til þess. Lítið var annars fjallað um kosn- ingarnar í greinum sem voru á ábyrgð ritstjóma í Alþýðublaðinu, Morgunblaðinu og Tímanum. I þessa þijá daga birti hvert þessara blaða eina grein um fundi Fram- boðsins. Birtar voru myndir frá fundum og sagt hver eða hveijir hefðu verið hvar og að umræður hefðu verið líflegar. 10. maí birtist grein í Morgunblaðinu um líflegar umræður á fundi sjálfstæðisfélag- anna í Breiðholti. 11. maí virðist það vera eitt helsta innlenda frétta- atriðið í Alþýðublaðinu að oddviti Nýs vettvangs segi að undirtektir á vinnustaðafundum hafi verið já- kvæðar, (merkilegt að aðrir fjöl- miðlar skyldu ekki hafa gripið þessi fleygu orð á lofti og látið berast um alla landsbyggðina). Tíminn segir sama dag frá því að fram- fSSarumræður ;fc«SSísSSSS BAKSVIP eftir Ásgeir Fridgeirsson w- framboðslistum var gert jafn hátt undir höfði. Þjóð- viljinn, hins veg- ar, stefndi aug- ljóslega að ýmsu fleiiu en að upp- lýsa. Þar var megináherslan á framboð Alþýðubandalagsins, eða það framboð sem Alb. studdi eða það framboð sem flestir alþýðu- bandalagsmenn studdu. Laugar- daginn 12. maí fékk oddviti G-list- ans á Húsavík t.d. að láta móðan mása gagnrýnislaust og án þess að mótframbjóðendur fengju tæki- færi til að svara fyrir sig. Þetta efni er. unnið af ritstjórn blaðsins og því á ábyrgð hennar og þar með eru blaðamenn orðnir virkir í kosn- ingaáróðri flokksins. Morgunblaðið styður Sjálfstæð- isflokkinn í borgarstjórnarkosning- unum í Reykjavík og sést það best á því að borgarstjóra er boðið að svara fyrir allar gerðir og þá um leið vanefndir flokksins í borgar- stjórn. Þetta er eins konar þjónusta af hálfu Morgunblaðsins og birtar eru einungis fyrirspurnir og svör. Hefði blaðið áhuga á að gæta jafn- vægis á milli meirihluta og minni- hluta sem hefði verið mun betri Er kosningar nálg- ast verða ritstjórnir blaða þátttakendur í áróðursstrídi flokkanna sóknarframbjóðendur í Reykjavík hafi staðið fyrir fjörugum umræð- um á vinnustöðum og dreift. því sem þeir kalla lykil að betri borg sem er í raun bara lyklakippa. Á þessum fréttum sést hvernig hin visna hönd flokkshagsmuna kæfir raunverulega blaðamennsku. Orðin í þessum greinum eru Iífvana, þau hafa misst merkinguna því það eina sem greinar af þessu tagi, sem eru á ábyrgð oft ágætra ritstjórna sem vilja að almenningur taki mark á sér, segja er: „Mundu að styðja þennan eða hinn flokk- inn.“ Þetta eru í raun einungis fréttatilkynningar frá flokkum. Hugsanlega má færa rök fyrir því að æskilegt sé að birta efni af þessu tagi en þá er mikilvægt að það sé aðgreint frá öðru ritstjórnar- efni. Það yrði lyftistöng fyrir íslensk blöð og íslenska blaða- mennsku ef ritstjórnir, sem margar hveijar eru í langflestum tilfellum sjálfstæðar og áreiðanlegar, hættu þjónkun við flokkshagsmuni, því hún í raun misbýður nútíma- lesanda sem lítur á blöð sem þjón- ustu við sig. FOLK i fjölmidlum ■ HALLGRIMUR Thorsteins- son stjórnar um þessar mundir morgunþætti Bylgjunnar sem heitir„Sjö, átta níu“ ásamt Huldu Gunnarsdóttur, sem verið hefur fréttamaður Bylgjunnar. Hall- grímur ætlar hinsvegar að stoppa stutt að þessu sinni enda stundar hann nú framhaldsnám í New YorkUni- versity og lýkur væntanlpo-n wn HALLGRÍMUR vænramega svo thorsteins- kölluðu masters- son prófi um næstu áramót. Hann kom heim í byijun maí og er á förum út aftur í júníbyijun. „Það liggur svo sem ekkert fyrir að afloknu námi, en mig langar að vera svolítið lengur þarna vestra og þá í vinnu. Ég vann um tíma í markaðsdeild UPl (United Press International). Það stendur ekki til að halda áfram í námi, a.m.k. ekki á þessu stigi. Ég er eiginlega bara að viða að mér meiri þekkingu og síðan ætla ég að sjá til,“ segir Hallgrímur. Hann lauk BA-námi í fjölmiðlun- arfræðum frá háskóla í Portland í Oregon árið 1979 og stundar nú framhaldsnám í Interactive Telecommunications. „Þetta nám er mjög spennandi og felur í sér ansi breytt svið. Það íjallar eigin- lega um alla þá samskiptatækni þar sem tölvur koma við sögu.“ — En hvernig hefur þér þótt til takast með fjölmiðlabylting- una? „Hvað ljósvakamiðlana varðar, held ég að hún sé byijuð að slíta barnsskónum. Eftir að Bylgjan varð ekki lengur ein á markaðn- um, fóru kraftarnir mikið í það að beijast fyrir tilveruréttinum eða með öðrum orðum að halda sínu sæti á markaðnum. Þannig hefur farið minna fyrir skipu- lögðu, uppbyggjandi starfi en æskilegt hefur verið. Ég vona bara að með nýjasta umrótinu í fjölmiðlaheiminum hér heima sé markmiðið gæði fyrst og fremst,“ segir Hallgrímur. Pólitíski varöhundurinn gjammar Aratugum saman gætti útvarpsráð hagsmuna stjórnmálaflokkanna innan Ríkisútvarpsins og sá til þess að gagnrýnin umræða og sjálfstæður fréttaflutning- ^ir ætti sér ekki stað. Ráðið réð og rak einstaka þátta- gerðarmenn og eru um það fræg dæmi. Síðustu tuttugu árin hefur fréttaflutningur í útvarpinu hins vegar tekið stakkaskiptum í átt til þess sem gerist í nútímasamfélög- um — hann hefur orðið sjálf- stæðari og gagnrýnni en áður var. Útvarpsráðið hefur meira sinnt heildarlínum dagskrár og gagnrýnt hana eftir á ef nota má orðið gagnrýni um það smásmugulega nöldur rtBem of oft kemur úr þeirri áttinni. Á dögunum urðu hins veg- ar snörp átök milli útvarps- ráðs og fréttastofu útvarps- Jíns„ sem gefa tilefni til al- imennra hugleiðinga lim hlut- Herk ráðsins. Tilefnið var það, að- fréttastofan birti nokkuð fhýassyrta frétt um að teikni- stofá rtokkur hefði kynnt sem raun værí ljsrit af sænskri teikningu af sýningar- og íþróttahöll. Teiknistofumenn töldu fréttina ósanngjamá og vildu fá hana leiðrétta. Frétta- stofan neitaði því. Teikni- stofumenn kvörtuðu við út- varpsráð, sem samþykkti ályktun um að í fréttinni hefði ekki verið gætt fyllstu óhlut- drægni. Athugasemd út- varpsráðs um fréttina var les- m í kvöldfréttatíma, en frétta- stofan tók jafnframt fram að hún stæði við frétt sína. ' Viðbrögð útvarpsráðs urðu mjög harkaleg. Yfirlýs'mg: 'fréttastofunnar um að hún stæði við fréttina fór mjög fyrir bijóstið á ráðinu, sem ályktaði m.a.: „Með því ítrek- ar hún frétt, sem útvarpsráð hefur úrskurðað hlutdræga, og brýtur þar með ákvæði útvarpslaga ... og fréttaregl- ur Ríkisútvarpsins ...“ Jafn- framt lýsir útvarpsráð yfírlýs- íngu fréttastofunnar ómerka og biður teiknistofuna velvirð- ingar á óþægindum. Settur útvarpsstjóri gaf síðan skríf- leg fyrirmæli un» að ályktun kvöldfréttum útvarpsins. Hér skal þess ekki freistað að kveða upp úrskurð um hvort frétt útvarpsins hafi með öllu verið sanngjörn. Hún var hvöss, en til að kveða upp úr með sanngimina þarf ná- kvæmari skoðun en tök eru á hér. Fáein atriði máþó nefna. Fréttareglur útvarpsins kveða á um að í fréttum út- varpsins megi ekki felast neins konar ádeilur eða hlut- drægar umsagnir og að fréttastofur skulí leiðrétta ranghermi um staðreyndir. Ljóst virðist að í umræddri frétt var farið rétt með stað- reyndir. Hitt getur verið álita- mál, hvort fréttin hafi verið óþarflega hvöss. En . undir- ritaður, sem átti þátt í að semja fréttareglumar, hefur ekki skilið ákvæðin um ádeií- ur og hlutdrægni þannig, að þau bönnuðu alla gagnrýna umfjöllun í fréttum. Slík ákvæði væru fráleit, og vilji menn skilja núverandi reglur slíkum þröngum skiiningi þarf að breyta þeirrt. Sterk vísbending um að offari í þessu máli kemur frá stjórn Arkitektafélags Is- lands, Stjórninkomst aðþeirri niðurstöðu, að „miðað við þau gögn sem fréttamaður hefur í höndum er það ekki óeðlileg niðurstáða af hans hálfu, að um leiðrétt Ijósrit hafí verið að ræða“. Jafnframt sagði stjó.min, áð „opinber kynning teikninga hafí gerst nieð fremur villandi hætti“ og stjómin „telur ekki ástæðu til að hafaht frékar að i þessu máli“. Þessí niðurstaða er' augljóslega/ fréttastofunni í hag.' Meginmálið hér er hins vegar málsmeðferð útvarps- ráðs, hvort útvarpsráð sé lög-.- legur og éðlilegur úrskurðar- aðili í iriálum af þessu tagi og hvort ráðið geti úrskurðað einstakar fréttir ómerkar. Ráðið telur að því hafi verið rétt og skylt að kveða upp úrskurð þegar það fékk kvört- un frá teiknistofunni. Um þá lagatúlkun er ágreiningur sem úr þarf að fá skorið sé þessi túlkun útvarpsráðs rétt þarf að breyta lögunum. um nauðsyn þess, að einhver aðili, sem nýtur trausts, álykti um hvort fréttaflutningur sé- ósanngjarn eða réttu máji hallað. Ðæmi um slíkan aðila ' er/siðanefnd Blaðamannafé- lagsins, sem þeir sem telja á sér brotið geta kvartað við. Nefndin kannar mál vandlega og ræðir við málsaðila; síðan kveður hún upp úrskurð sem skal birtur í viðkomandi fjöl- miðli.sé brotið talið alvarlegt. Teiknistofaii ■ hefði gétað kært til siðanefndar. Kannski telja menn líka nauðsynlegt áð Ríkisútvarpið hafi sína eig- in siðanefnd, sem úrskurðar í svona málum. Það er hins vegar fráleitt að útvarpsráð gegni þessu hlutverki. Frétta- stofa Ríkisútvarpsins nýtur mikils trausts landsmanna — þó hún hafi stundum gert slæm mistök, sem hafa verið leiðrétt — en ég held að sú sendisveil stjómmálaflokk- anna sem kallast útvarpsráð njóti hvorki trausts almenn- ings né fréttamanna til þéss að ákveða hvað, séu góðar fréttir og vondar — og senni- vegar mikilvægt, að dómarinn njóti einhvers trausts, bæði meðal þeirra sem kæra og eru kærðir. Útvarpið gæti auð- veldlega komið sér upp siða- nefnd, sem uppfyllti þetta skilyrði miklu betur en út- varpsráð. Sú fásinna útvarpsráðs, að lýsa orð fréttastofunnar ómerk á skyndifundi, er svo sérsoakur kapítuli, sem lýsir óvenjúlegu dómgreindarleysi og valdhroka. Rökstudd og vel grunduð ámæli marktækr- ar siðanefndai: væru auðvitað áfall fyrir fréttamann og þau bæri vitaskuld að birta. En jáfnvel í slíku tilviki héldu þessir aðilar þeim mannrétt- indum, að mega vera úrskurð- inum ósamniála. Það er ekki hægt að reka alvöru fréttastofu með því lagi, að’ séndisveinar stjórn- málaflokka séu sífellt að tugta fréttástofuna eins og óþekkan strák. Fréttástjóri verður að vera ábyrgur á endanum og ef hann stendur ekki í stykk- inu þá á að reka hann. Von- andi fær útvarpsráð aldrei það vald. Ólafur Þ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.