Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990 C 29 t t t Þorbjörg Sigurðar- dóttir Sunnudaginn 22. apríl sl. lést í Landakotsspítala tengdamóðir mín, Þorbjörg Sigurðardóttir. Þorbjörg fæddist í Þykkvabæ 17. júní 1905 og var því tæplega 85 ára gömul þegar hún lést. Foreldrar hennar voru Guðfinna Sveinsdóttir og Sigurður Guðnason í Háarima og ólst hún þar upp í stórum_ systkina- hópi til 16 ára aldurs. Árið 1930 giftist Þorbjörg sveitunga sínum, Guðna Guðnasyni, og átti með hon- um tvo syni, Geir Valberg og Sigurð Fannar. Einnig ólu þau upp fóstur- son, Gunnar Gunnarsson. Guðni lést eftir stutta sjúkdómslegu í september 1965. Árið 1974 giftist Þorbjörg eftirlif- andi manni sínum, Pétri Guðbjarts- syni, og flutti hann til hennar í Álfta- mýri 12. Þar bjuggu þau þangað til síðastliðið haust, er þau fengu þjón- ustuíbúð á Dalbraut 25 sem þau höfðu komið sér vel fyrir í og voru ánægð með. Þorbjörg var heilsuhraust þó nokkuð hafi af henni dregið nú síðasta árið, en röskleika og andlegu þreki hélt hún til hinstu stundar. Ég kynntist Þorbjörgu fyrir rúm- um tuttugum árum er ég giftist Sig- urði syni hennar. Hún var trúuð kona og kirkjurækin. Gestrisin var hún í meira lagi og hafði mjög gaman af því að taka á móti fólki og skar þá ekki við nögl það sem á boðstólum var. Hún hafði mikla ánægju af ferðalögum og var þar með afbrigð- um dugleg og áræðin, t.d. fór hún á áttræðisaldri alein til Bandaríkjana í heimsókn til Geirs sonar síns og hans fjölskyldu, sem þar býr. Vinnu- söm var hún alla tíð og voru pijón- arnir aldrei langt undan og naut ég þar góðs af, því hún sá börnunum mínum alltaf fyrir öllum þeim sokk- um og vettlingum er þau þörfnuðust. Barnabörnum sínum var hún góð og ósjaldan var einhveiju laumað í lófa þeirra um leið og við kvöddum. Ég og fjölskylda mín kveðjum með þessum línum móður, tengdamóður og ömmu. Við þökkum henni allt gott á liðnum árum. Megi hún hvíla í friði. Ola Helga Sigfinnsdóttir Það borgar sig að hafa rétta kreditkortið undir höndum því hinir fjölmörgu korthafar Eurocaid hér á landi fá nú einstakt ferðatilboð á silfurfati! Flugferðir-Sólaiflug býður korthöfum Eurocard upp á allt að 31.000 kr. afslátt á mami af 3 vikiia ferd til Mallorca. Gist verður á einu glæsilegasta íbúðarhótelinu á Magaluf, Oasis-Sahara, þar sem öll þjónusta og afþreyingaraðstaða er fyrir hendi. Svona lítur dæmið út: * 3 vikur. Brottför 6.6. ,27.6., 19.9. og 10.10. 3 vikur. Brottför: 18.7., 8.8. og 29.9. Alm.verf Euroverð Sparnaður Alm.verð Euroverð Sparnaður 4 fullorðnir í íbúð 75.400 49.550 25.850 4fullorðnirí íbúð 78.900 55.800 23.100 3fullorðnirí íbúð 79.800 59.700 20.100 3 fullorðnir í íbúð 83.800 62.700 21.100 2 fullorðnir í íbúð 98.700 67.700 31.000 2fullorðnirí íbúð 103.900 76.700 27.100 * Eftir að ferðin hefur verið greidd með Eurocard verða engar breytingar á verði, jafnvel þótt hækkanir verði á fargjöldum. Innifalið: Flug Keflavík-Palina-Keflavík, ferðir á niilli flugvallar og hótels á Mallorca, gisting í fullbúnum 2 herbergja íbúðum og íslensk fararstjórn. Peir Eurocard korthafar sem ætla að nýta sér tilboð Flugferða-Sólarflugs verða að bregðast skjótt við ogpanta fyrir 20. júní. Nánari upplýsingar veittar á ferðaskrifstofunni, Vesturgötu 12, snni 15331. Ferðafélagi sem um munar! — f=mr.FERoiR = SGLRRFLUG VESTURGATA12 SÍMAR: (91) 15331 & 10661 Útsölumarkaðinum, Skipholti 33, lýkur 31. maí Nú verður líf í tuskunum með enn meiri lœkkun Pils kr. 900,-, Peysur kr. 900,- Blússur kr. 900,-1.400,-, Jakkar kr. 500,-1.900,- Kjólar kr. 1.900,—2.900,- Skipholti 33, sími 679047.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.