Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 21
+
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990
C 21
FOLK
í fjölmiðlum
■ STEINGRÍMIJR Ólafsson og
Eiríkur Hjálmarsson hafa tekið að
sér stjórnun mag-
asínþáttar á Aðal-
stöðinni í sumar
sem þeir nefna
„Kominn tími til“
og verður á dag-
skráfrá 10.00 til
13.00 á virkum
dögum. Þátturinn
verður fyrst og
fremst helgaður áhugamálum mann-
eskjunnar. Þeir félagar ætla að vera
með viðtöl, slúðursögur, fróðleik-
skorn, kvikmyndagagnrýni, ljóða-
upplestur, neytendaþáttogviðtal
dagsins,_sem útvarpað verður á slag-
inu tólf. í þessum þætti er ætlunin
að talað mál verði 70%, en tónlist
30%, öfugt við það sem hefðin hefur
verið. Steingrímur og Eiríkur eru
nýliðar á Aðalstöðinni. Eiríkur
Hjálmarsson er borinn og barn-
fæddur í Kópavogi.
Hannfæddist9.
nóvember 1964, er
stúdent frá MH og
með BS-próf í
blaðamennsku frá
Ohio University.
Eiríkur starfaði
áður sem frétta-
maður á Bylgjunni. ólaf'ssÖn
Steingrímur Ólafsson er Reyk-
víkingur og á sama afmælisdag og
Eiríkur, en er árinu yngri.
Steingrímur er stúdent úr Verslun-
arskóla íslands og var áður fréttmað-
ur og verkstjóri fréttadeildar Bylgj-
unnar. Jafnframt stjórnaði
Steingrímur þættinum „Reykjavík
síðdegis" um hríð og var umsjónar-
maður poppþáttarins Poppkorns í
Sjónvarpinu. llann stundaði fjöl-
miðlanámvið norska blaðamanna-
skólann í Ósló.
STEINGRÍMUR
Nýtt tímarit hefiir göngu sína:
Höfum lengi gengið með
þemian draum í maganum
Morgunblaðið/Kristj án
Ari Gísli Bragason og Þorsteinn Siglaugsson á ritstjórnarskrif-
stofu tímaritsins 2000.
- segjaútgef-
endur„2000“
Nýtt tímarit hefur göngu sína í
byrjun næsta mánaðar. Ritinu
hefur verið valið nafnið „2000“.
Það er ætlað aldurshópnum 18
til 35 ára og verður áhersla lögð
á létt yfirbragð, meðal annars
með miklu myndefni, en stuttum
og vönduðum texta. Blaðið verð-
ur prentað í dagblaðsbroti á
vandaðan pappír. Helstu efnis-
þættir eru dans, tónlist, mynd-
list, erótík, leikhús, skemmt-
analíf, bókmenntir, hönnun,
tíska, framtíðin, heilsurækt,
arkitektúr, listahátíð, miðbær-
inn, umhverfismál og ný viðhorf,
að sögn útgefendanna þriggja
sem að ritinu standa.
Ritstjórnarskrifstofa blaðsins er
til húsa á þriðju hæð í Austur-
stræti 17 og kemur það út ársfjórð-
ungslega, áttatíu til hundrað blað-
síður í hvert sinn. Útgefendur og
ritstjórar blaðsins eru Ari Gísli
Bragason, Þorsteinn Siglaugsson,
Siguijón Ragnar Siguijónsson ljós-
myndari, og Lars Emil Árnason,
sem jafnframt er hönnunarstjóri
tímaritsins. Allir hafa þeir komið
nálægt útgáfumálum af ýmsu tagi
auk þess sem þeir hafa stundað
blaðamennsku í lausamennsku. Þá
gaf Þorsteinn út ljóðabókina „Líf“
eftir félaga sinn Sigurð Ingólfsson
fyrir skömmu. Ari Gísli hefur gefið
út tvær ljóðabækur eftir sjálfan
sig, „í stjörnumyrkri" sem út kom
fyrir síðustu jól, og „Orð þagnar-
innar“, sem út kom árið 1988.
Þeir félagar ætla að sjá um efnis-
tök að miklu leyti sjálfir auk þess
sem þeir segjast hafa á sír.um
snærum fjöldann allan af pennum
og ljósmyndurum. „Við höfum
lengi gengið með þann draum að
gefa út tímarit í þessum dúr. Við
erum persónulega orðnir leiðir á
þessum „glamor“-tímaritum sem
eru hér á markaðnum og þykir
okkur tími til kominn að bæta við
vönduðu tímariti fyrir almenning í
landinu. Mottóið er að gefa út tíma-
rit sem á erindi," segir Þorsteinn.
Undirbúningur að útgáfunni hef-
ur staðið yfir síðustu tvo mánuði
og eins og áður segir er fyrsta tölu-
blaðið væntanlegt í júníbyijun.
Ákvörðun hefur enn ekki verið tek-
in um hvar tímaritið verður prent-
að, en að öllum líkindum verður
það hjá Odda. „Við rennum nánast
blint í sjóinn með söluna. Við erum
mjög bjaitsýnir á þetta og hefur
auglýsingasöfnunin gengið mjög
vel það sem af er. Þannig e'rum
við tryggðir að ákveðnu marki,“
segir Ari Gísli. Stefnt er að því að
selja blaðið í áskrift auk þess sem
það mun fást í söluturnum og bóka-
verslunum um land allt.
FOtK
í fjölmiðlum
I NÝR tískuþáttur, annar í röð-
inni í umsjón Áslaugar Ragnars
verður sýndur á
Stöð 2 á miðviku-
dagskvöld, strax að
loknum þættinum
19:19 og endur-
sýndur á laugardag
kl.18,35. Þátturinn
ber heitið „Það er
engintíska“og ÁSLAUG^
munljallaumtisku ragnars
á nokkuð öðrum nótum en tíðkast
hefur. Áslaug Ragnars segir að ís-
film hafi samið við Stöð 2 um sýn-
ingu tveggja tískuþátta með þessu
heiti. Sá fyrri var sýndur s.l. miðviku-
dag og endursýndur á laugardag.
Samningurinn gerði ráð fyrir að um
ólæsta dagskrá yrði að ræða. Grund-
vallarhugmynd okkar var sú að losa
okkur við þá gerviímynd sem tísku-
heimurinn hefur haft á sér með því
að sýna eðlilegt íslenskt fólk í eðli-
legu íslensku umhverfi," segir Ás-
laug. „Tíska er nokkuð sem hver og
einn á að ákveða fyrir sig. “ Þor-
björn Erlingsson annaðist upptöku
þáttana tveggja en að þeim stóðu,
auk ísfílm, fyrirtækin Klapp-film og
Sjónmál.
FURÐUHEIMAR
FJÓLMIÐLANNA
(pokunar- og handapatsdeild)
Mælst er til að fólk í Bakka- og
Stekkjahverfi sækji rusiapoka og
annað nauðsynlegt á Bakkatún en
íbúar Skóga- og Seljahverfis stöðvi
rauð-gulu borgarbílana með
handapati. DV 18/5
BÍLALEIGA FLUGLEIÐA
AUÐVELDAR FERÐALÖG UM LANDIÐ
- OPNUM ÚTIBÚ Á AKUREYRI 25. MAÍ -
1. '1
• •
ú getur þú flogið norður og tekið splunkunýjan
bíl á leigu á Akureyrarflugvelli, farið allar þínar
ferðir og skilað bílnum í hvaða útibúi Bílaleigu
Flugleiða, sem þér hentar.
• Síminn á nýju skrifstofunni er 96-11005
eða 96-22000
daga vikunnar
m umboðs- og
I