Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990
í
í 36 C
\ ------------
í BAKÞANKAR
| Plastmenn
! íslands
í
i
ú er vorið komið og allir geta
tekið undir með lóunni og
j sungið hver með sínu nefi sitt dirr-
i lndí.
j Allir hljóta að fagna þeirri miklu
Bmræðu um nátt-
úru- og umhverf-
isvernd sem átt
hefur sér stað í
þjóðfélaginu að
undanförnu.
Landsmenn hafa
sýnt í verki, þegar
færi hefur gefist
t.d. með kaupum á
„Grænu greinni",
að þeir styðja málið af heilum hug.
Á þessum árstíma bretta vor-
konur Islands upp ermarnar, klæð-
ast bleiku gúmmíhönskunum og
byrja að gera hreina glugga, veggi,
skápa og skúmaskot. Ég ákvað að
byija á skápunum. Úr einum þeirra
ultu þrír tómir plastdunkar undan
jólaölinu. Það er svo komið að við
sem „eigum að vinna eldhúsverkin"
getum það ekki lengur. Ég er hætt
að geta hent í ruslafötuna ýmsum
þeim hlutum, sem vitað er að eyð-
SSt ekki í náttúrunni. Með umræð-
unni hefur fólk verið vakið til með-
vitundar um þessi mál. í fréttum
heyrum við stöðugt af vaxandi
mengun og hættunni sem okkur
jarðarbúum stafar af óbreyttum
lifnaðarháttum nútímamannsins.
Veruleiki okkar hér á íslandi er
hins vegar sá að við erum neydd
til að henda endurnýtanlegum
verðmætum, vitandi að þau verða
urðuð einhvers staðar í jörðu. Þegar
eitt svæði er fullnýtt er bara fundið
annað svæði til að taka við öllu
draslinu.
Mér datt í hug að umræðan hefði
náð til framleiðenda jólaölsins og
kannski endurnýttu þeir brúsana.
Ég tók þá með einn daginn þegar
ég átt leið hjá. Manninum fannst
ég dálítið brosleg að koma akandi
með þrjá tóma plastbrúsa. Nei, þeir
endurnýttu þá ekki en mér var vel-
komið að láta mína brúsa í stóran
gám þarna fyrir utan. Ég spurði
hvað gert væri við innihaldið. „Við
urðum það,“ svaraði hann og glotti
við. En þar sem ég var búin að
geyma þá svo lengi gat ég ekki
hugsað mér að fara að fleygja þeím
núna og ók á brott með brúsana.
Ég varð því ekkert lítið glöð þegar
ég las daginn eftir i mínu virta
Morgunblaði um „Plastmenn ís-
lands". Nokkrir vaskir menn á
Akureyri höfðu fjárfest í vörubil
moð afkastamikilli kvörn sem sall-
ar niður 1 tonn af plasti á klukku-
stund. Ekki nóg með það, heldur
selja þeir plastsallann úr landi til
endurvinnslu.
Nýlega var sagt frá merkum bil
sem á að mæla loftmengun í
Reykjavíkurborg. Bíllinn kostaði
reyndar það sama og stofnkostnað-
ur fyrirtækis þeirra norðanmanna.
Hins vegar geri ég ráð fyrir að þetta
tækniundur mæli loftmengun af
meiri nákvæmni en við konurnar
sjáum í tuskunum þegar við strjúk-
um gluggana. En hvernig bregðast
á svo við hinum hárnákvæmu
tölum veít ég ekki. Ég frétti af að-
gerðum í þorpi einu í Sviss vegna
of mikillar loftmengunar frá út-
blæstri bifreiða. Þorp þetta er stað-
sett í djúpum dal. Þar var bílaum-
•Þðin takmörkuð þannig, að
bílnúmerin voru látin ráða því
hvaða daga íbúarnir fengju að aka.
Fólki með smábörn var hins vegar
ráðlagt að flytja sig upp í Alpana.
Frá litlum bæ í Svíþjóð heyrði ég
um ungan mann sem seldi bílinn
sinn, því hann gat svo litið notað
hann. Bílaumferð var bönnuð i
bænum eftir kl. 21 á kvöldin! Eftir
þann tíma fengu aðeins almenn-
ingsvagnar að aka. Það fylgdi sög-
unni að kvöldlífið hefði verið ansi
dauflegt i þessum smábæ! Hvort
nauðsynlegt verður að grípa til
álíka aðgerða hér ræðst af tölunum
frá nýja bílnum.
Ég þykist hins vegar vita að
fleira fólki en mér verðí óglatt þegar
það er að fleygja hlutum í ruslaföt-
una sem eru skaðlegir náttúrunni
eða eyðast ekki. Ekki veit ég hve-
nær von er á vörubílnum góða suð-
ur, en á meðan við „með ógleðina"
biðum, gætum við kannski fengið
lánað eitthvert húsnæði t.d. hjá
Reykjavíkurborg og byijað að safna
sáman plastílátum handa þeiin
norðanmönnum. Eða finnst fólki
ekki of snemmt að byija að senda
jólapóstinn norður, núna í byijun
sumars?
ÚTSÝNISHÚS
Á ÖSKJUHLÍÐ
verður tíl sýnis almenningi
sunnudaginn 20. maí fró ld. 14.00-17.00.
Hitaveita Reykjavikur
H-tíð ungs fólks
Hótel Borg mánudagskvöldið 21. maí kl. 20.30
Hrafn
Kristín
Bubbi
Pálmi
• Bubbi Morthens
• MargrétLóa Jónsdóttir
• Pálmi Gestsson
• Strengjabrúðurnar
• Hrafn Jökulsson
• Kristín Dýrfjörð
• Halldóra Jónsdóttir
• Langi Seli og Skuggamir
Kosningaskrífstofa,
Þingholtsstræti 1,
símar 625525 og 626701.
Halldóra
L