Morgunblaðið - 20.05.1990, Blaðsíða 26
26 C
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR
4
SUNNUDAGUR 20. MAI 1990
Schwarzeneggcr tekur við Ieiðsögn Verhoevens við
tökur á Total Recall.
Framf íðarhasar á Mars
Eftir að þeir skrifuðu
handritið að geimvís-
indahrollvekjunni Alien
byrjuðu Ron Shusett og
Dan O’Bannon á nýju
handriti eftir smásögu
Philips K. Dicks, sem núna
rúmum áratug seinna er
orðið að framtíðarþrillern-
um Total Recall með Arn-
old Schwarzenegger undir
leikstjóm Hollendingsins
Paul Verhoevens.
Myndin gerist á jörðinni
og á Mars seint á 21. öld-
inni og segir frá verka-
manni sem dreymir að eitt
sinn hafi hann lifað á Mars
þótt hann telji sig aldrei
hafa komið þangað og áður
en hann veit af eru slæmu
draumarnir orðnir að raun-
verulegri martröð.
Myndin er hrikalega dýr
í framleiðslu og mestur
peningurinn, fyrir utan lau-
nagreiðslur stjörnunnar,
fór í að skapa framtíðam'k-
ið bæði hér á kringlunni
og á Mars, sem orðin er
byggileg námunýlenda
þegar myndin gerist. Á
meðal 150 fastra aukaleik-
ara eru „stökkbreyttir“
marsbúar, fólk sem orðið
hefur erfðafræðilega van-
skapað vegna geislunar,
dvergvaxnir námumenn og
hórur með allrahanda lýti.
„Stökkbreyttur" mars-
búi.
„Sjáið þetta lið.“ segir
Schwarzenegger glottandi.
„Bara enn ein klikkunin í
Paul.“
Það er ekki að efa að
Verhoeven — þekktur uppá
síðkastið fyrir hina ofbeld-
isfullu RoboCop — hefur
skemmt sér dægilega við
að skapa þennan framt-
íðarheim fullan af mis-
kunnarlausu ofbeldi og
Ijótleika sem gæti fengið
kvikmyndaeftirlitið til að
banna hana óklippta. En
það yrði þá ekkert nýtt.
Sagt er að Schwarzen-
egger fái 10 milljónir doll-
ara fyrir vikið en kostnaður
við myndina gæti jafnvel
farið uppí 70 milljónir, eða
rúma fjóra milljarða, ef
eitthvað er að marka orð-
rommn.
■ ROGER DONALD-
SON(„No Way Out“) hefur
gert nýja mynd með Robin
Williams og Tim Robbins
(Eiríkur víkingur) í aðal-
hlutverkum en hún heitir
Kadilakkmaðurinn og segir
frá sölumanni (Robin) sem
hefur þijár konur í takinu
í einu. Þegar Robbins
kemst að því að ein af þeim
er eiginkona hans tekur
hann til sinna ráða.
Fremstir í tónlistarmyndböndum
■ NY MYND meðGene
Hackman vekur alltaf at-
hygli. í þetta sinn leikur
hann saksóknara í Los
Angeles sem fær Anne
Archer (Hættuleg kynni)
til að bera vitni gegn maf-
íunni. Peter Hyams leik-
stýrir og vonandi gengur
honum betur nú en í und-
anförnum myndum.
■ EINAF sumarmyndun-
um í Bandaríkjunum sem
líklega kemst hvergi nærri
metsölufjallinu er The
Freshman með Marlon
Brando í hlutverki ma-
fíósa. Matthew Broderick
leikur á móti honum í þess-
ari gamanmynd sem leik-
stýrt er af Andrew Berg-
man.
Propaganda Films,
kvikmyndafyrirtæki
Sigurjóns Sighvatssonar
og Steve Golins í Los Ange-
les, er til umfjöllunnar í
grein í nýjasta hefti eins
víðlesnasta kvikmynd-
atímarits Bandaríkjanna,
„Premier", en þar kemur
fram að fyrirtækið veltir
um 50 milljónum dollara á
ári eðá um þremur milljörð-
um ísl. króna við auglýs-
inga- og tónlistarmynd-
bandagerð. Það er svipað
og ársvelta íslenskra aðal-
verktaka 1988.
Segir í greininni að
Propaganda Films sé sá
framleiðandi tónlistar-
myndbanda sem njóti
mestrar velgengni í Banda-
ríkjunum í dag en í framt-
íðinni muni fyrirtækið
framleiða þijár til fjórar
bíómyndir á ári. Þar á
meðal eni væntanlegar
Fear, Anxiety and De-
pression, Daddy’s Dyin’ og
Colin og Sigurjón; fremstir.
David Lynch-myndin Wild
at Heart. Einnig hefur það
nýlega fengið kvikmynda-
réttinn á endurgerð An
American Werewolf in
London.
Siguijóni, kallaður Joni
vestra, er lýst sem myndar-
legum 37 ára gömlum, ljós-
hærðum Skandinava, sem
var rokktónlistarmaður
uppi á íslandi áður en hann
sótti kvikmyndaskóla í Ka-
liforníu árið 1978 en á
síðustu fimm árum hafi
honum og Colin tekist að
gera Propaganda Films
fremst á sínu sviði.
Uns sekt er sönnuð
■ SIDNEY POITIER-
leikstýrir súperpabbanum
Bill Cosby í gamanmynd-
ini Ghost Dad frá Univer-
sal. Gosby er draugur í
myndinni í leit að líkama
sínum.
■ J SUMAR er áætlað að
byija tökur á Good Morn-
ing, Vietnam 2 með Robin
Williams eftir handriti
Mark Frost, sem skrifaði
Twin Peaks-þættina. í
myndinni segir frá frekari
æfíntýrum útvarpsmanns-
ins Adrian Gronauer árið
1968 í þetta sinn í Chicago.
Metsölubókin Uns sekt
er sönnuð eftir Scott
Turow er einhver al-
skemmtilegasta lesning
sem fæst fyrir þá sem vilja
sökkva sér oní góðar saka-
málasögur. ÞesS var ekki
langt að bíða að hún yrði
kvikmynduð í Bandaríkjun-
um en myndin, með Harri-
son Ford og Greta Scacchi,
í aðalhlutverkunum, verður
frumsýnd í sumar.
Hún segir frá saksóknar-
anum Rusty Sabich sem
kærður er fyrir morðið á
ástkonu sinni en í sögunni
eru margræðir krókar og
kimar og eftirminnilegar
persónur. Leikstjóri er Alan
J. Pakula en myndin gæti
sett hann aftur á toppinn
Ford og Scacchi í mynd Pakulas, Uns sekt er sönnuð.
KVIKMYNDIR
/Hverjar verda metsölumyndir vestra í sumar?
Dick eða „Die Hard“
KAPPHLAUPIÐ um
metsölumyndirnar hefst
innan tiðar í Banda-
rikjunum þegar hver
stórmynd sumarsins á
fætur annarri er frum-
sýnd og öllu Hollywood-
veldinu eins og það legg-
ur sig er telft fram til
sigurs.
Sumarið í fyrra ein-
kenndist mjög af fram-
haldsmyndum og ótrúleg-
um vinsældum einnar
myndar, Batman. Sáralítið
hefur i
rauninm
eftir Arnold
Indriðoson
breyst,
alls verða
frum-
sýndar sjö
fram-
halds-
myndir í
sumar og
svo gæti farið að önnur
teiknimyndahetja, Dick
Tracy, nái tindi dollara-
fjallsins.
Flest þar á milli er
spenna og hasar með Die
fíard 2, Total Recall,
48HRS 2, RoboCop 2 og
Presumed Innocent fremst-
ar í flokki. Það þarf varla
að kynna þessar með tölu-
stöfunum en Total Recall
er nýr og eftir því sem
fréttir herma verulega ljót-
ur framtíðarþriller með
Arnold Schwarzenegger
undir leikstjórn Hollend-
ingsins Paul Verhoeven
(sjá fyrir ofan) og Pres-
umed Innocent er Harrison
Ford þriller eftir metsölu-
bók Scotts Turows, sem
komið hefur út á íslensku
undir heitinu, Uns sekt er
sönnuð (sjá fyrir ofan).
Aðrar sem þátt taka í
kapphlaupinu og spáð er
fremstu sætum eru Days
of Thunder, kappaksturs-
mynd með Tom Cruise,
Bird on a Wire, John Bad-
ham-mynd með Mel Gibson
og Goldie Hawn, Aftur til
framtíðar III, Air America,
enn ein Víetnammyndin í
þetta sinn með Gibson,
Arachnophobia (Kónguló-
arfælni), úr smiðju Disneys
og Spielbergs um kóngulær
sem ráðast á friðsælan
smábæ, My Blue Heaven,
gamanmynd með Steve
Martin og Rick Moranis,
Taking Care of Buisness,
gamanmynd með James
Belushi og Charles Grodin,
Gremlins 2, Young Guns 2
og Quick Charge með Bill
Murray.
Og svo eru það allar hin-
ar, sem ekki er spáð sérs-
takri velgengni en gætu
komið öllum á óvart. Þar á
meðal eru myndirnar The
Desperate Hours, nýjasta
mynd Michael Ciminos með
Mickey Rourke, Exorcist 3
eftir William Peter Blatty
með George C. Scott, Gost
eftir Jerry Zuker úr ZAZ-
genginu, Memphis Belle,
David Puttnam-mynd úr
seinn’a stríðinu, Mo’ Better
Blues eftir Spike Lee og
síðast en ekki síst, Miller’s
Crossing eftir þá Coen-
bræður Joel og Ethan.
Miklu fleiri myndir verða
á dagskrá vestra í sumar
en þessar ættu að gefa ein-
hveija hugmynd um hvert
stefnir. í þetta sinn virðast
hörkulegar hasarmyndir
vera ráðandi. Þær verða
örugglega bannaðar börn-
um svo Dick Tracy með
Madonna og Beatty í
Dick Tracy; smellur hún
eða skellur?
Warren Beatty og Mad-
onnu virðist í fljótu bragði
ein af fáum sem gæti höfð-
að mest til þess aldurshóps
sem skapa metsölumyndir;
krakkanna (Aftur til
framtíðar 3 er önnur).
Myndin gæti vel orðið
skellur (Madonna er engin
Jack Nicholson) en ef rán-
dýr auglýsingaherferðin
tekst og ef fylgi teikni-
myndahetjunnar í
amerísku þjóðarsálinni er
eitthvað í líkingu við Bat-
man, er Dick Tracy örugg
í efsta sæti.(Sjá spá undir-
ritaðs)
SPAIN
1. Dick Tracy
2. Die Hard 2
3. Total Recall
4. Aftur til framtíðar 3
5. Days of Thunder
6. RoboCop 2
7. Arachnopohobia
8. Gremlins 2
9. 48HRS 2
10. Bird on a Wire
eftir mörg mögur ár og
misheppnaðar myndir.
Hann gæti svosem klúðrað
sögunni algerlega en líklega
og vonandi verður hún ein
af metsölumyndunum í
sumar.
Harrison Ford fór úr
Indiana Jones hamnum og
tók hlutverk Rustys mjög
alvarlega. Til að komast
sem best inní hið lögfræði-
lega andrúmsloft fylgdist
hann með glæparéttarhöld-
um og flutti inní saksókn-
araskrifstofur í einhverri
stórglæpaborginni. Þetta
smitaði út frá sér og aðrir
leikarar tóku að gera sams-
konar hluti, m.a. Paul
Winfield, sem leikur dómar-
ann í sögunni, en hann hitti
og fylgdist með dómurum í
Detroit.
IBIO
Hvenær megum við eiga
von á sumarmyndun-
um að vestan? Miðað við
undanfarin ár koma þær
helstu hingað tveimur og
upp í fjórum mánuðum eftir
frumsýningu í Bandaríkjun-
um sem gæti þýtt að þær
fyrstu komi seinni partinn í
júlí og síðan koll af kolli
fram í september, október.
Því hefur stundum verið
haldið fram að sumarið sé
enginn gósentími fyrir
íslensk kvikmyndahús en ef
myndir eru góðar virðast
þær ganga hvenær sem er.
Metaðsókn varð t.d. á
Bond-myndina Licence to
Kill um mitt síðasta sumar
og lenti hún í þriðja sæti
yfir mest sóttu myndir
síðasta árs.
Talsverður spenningur
hefur þegar myndast í
kringum sumarmyndimar
og sagði Ingvi Þór Thor-
oddsen staifsmaður í Bíó-
höllinni að þeir fengju um
50 fyrirspumir á dag frá
fólki sem vildi vita hvenær
Die Hard 2 bytjaði.