Morgunblaðið - 20.05.1990, Síða 34

Morgunblaðið - 20.05.1990, Síða 34
34 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990 + ÆSKUMYNDIN... ER AF PÁLMA GESTSSYNl LEIKARA ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Rólegurog saklaus dýravinur PÁLMI Árni Gestsson leikari fæddist í Bolung- arvík 2. október árið 1957, sonur hjónanna Gests Pálmasonar byggingameistara og Sigur- borgar Sigurgeirsdóttur húsmóður. Hann er næstelstur fímm systkina, sem ólust upp í for- eldrahúsum í Bolungarvík. Pálmi er fráskilinn tveggja barna laðir, Þessa dagana undirbýr hann ásamt félögum í Spaugstofunni sýningu sem frumsýnd verður í Háskólabíói undir heit- inu „Örfá sæti Iaus“. Að sögn Spaugstofumanna er þetta hugljúfúr hvunndagsþriller, með dular- fullu eða ekki beinlínis dulrænu ívafí, að hluta til byggður á sönnum heimildum, en að öðru leyti argasta lygi lrá rótum. Ipáirni bjó í Bolungarvík allt til tT 24 ára aldurs, er hann hóf nám í leiklistarskólanum. í Bolungarvík starfaði hann mest við húsasmíðar og átti rétt ólokið sveinsprófí, þegar leiklistargyðjan kallaði. Af Pálma í Bolungarvík fara góðar sögur. Sig- urborg, móðir hans, segir hann hafa verið sérstaklega rólegt barn framan af. „Hann fór síðan að færa sig upp á skaftið, en var þó aldrei ódæll," segir hún. Það verður ekki sagt um Pálma -að hann hafí verið haldinn mikilli þörf fyrir að sýna sig, þótt síðar hafi hann átt eftir að standa á sviði í aðalhlutverkum og vera inn á hveiju heimili í vinsælum sjónvarps- þáttum. Hann tók þátt í félagslífi í hófi, var með í skólaleikritunum, en gerði sér ekkert far um að leika stórar rullur. Móðir hans rifjar hins vegar upp eina undantekningu frá þessu: „Fyrir utan húsið okkar var stór laut. Þar byggðu Pálmi og börnin kofa og léku sér með bíla. Þar vildi Pálmi stjórna,“ segir hún. Búskapur. Hann sló með orfi eins og fílhraustur karl. Jón Guðni Guðmundsson, æskufé- lagi hans, man jafnframt eftir því, að Pálmi vildi gjarnan fara fyrir í bófahasar. „Hann hefur þó alltaf verið saklaus maður og laus við alla rætni,“ segir Jón Guðni. Tvö áhugamál virðast hafa staðið upp úr hjá Pálma. Hann var tónelsk- ur, lærði á saxófón og spilaði auk þess á bassagítar í unglingahljóm- sveitum. Hann var og mikill dýra- vinur og mikið. gefinn fyrir að vera úti í náttúrunni. „Það var heilmikill búskapur í honum,“ segir Jón Guðni. Einkum fékk hann notið sín við að hjálpa móðurafa sínum, Sigurgeiri Sig- urðssyni úr Fæti. Hann stundaði heyskapinn með honum af krafti og sló með orfi eins og fílhraustur karl. Að loknum annasömum degi fannst honum síðan gott að lúra með kisu og kanínurnar áttu sinn stað í herberginu hans. Síðar þróað- ist gæludýraáráttan út í hesta- mennsku, sem varir enn þótt frístundir gefist fáar hjá honum í seinni tíð. Fráfortíð tilframtíðar Ekki alls fyrir löngu birtum við myndir frá opnun Reykjavík- ursýningarinnar í nóvember 1949 og hér eru nokkrar í viðbót frá þessari merku sýningu. Á sýn- ingunni, sem haldin var í Þjóðminjasafninu, kenndi ýmissa grasa og þótti hún gefa góða mynd af mannlífi í Reykjavík fyrr og nú og um þróunina frá fortíð til framtíðar. Þarna gat meðal annars að líta nýtísku eldhúsinnréttingu við hlið gamalla elhúshlóða, þarna mátti sjá nýtísku nýlenduvöru- verslun við hlið gamallar krambúð- ar og gamla rokknum var stillt upp við hlið splúnkunýrrar spuna- vélar. Mörg fyrirtæki sýndu framleiðslu sína á sýningunni og í hát- íðarsalnum fóru fram kvikmyndasýningar, fyrirlestrar, tískusýn- ingar og kvöldvökur. Þá voru kynntar ýmsar starfsgreinar og ekki síst ýmsar nýjungar í tækni og iðnaði og þannig mætti lengi telja. Á myndunum má sjá hvernig sumt af þessu kom sýningargestum fyr- ir sjónir á því herrans ári 1949. Hér má sjá sýnishorn af leikfongum barna árið 1949, dúkkuvagn og vörubíl úr tré og forláta reiðhest úr plasti. SMÁVINUR VIKUNNAR (EUPITHECIA SATYRATA) BÓIiIN ÁNÁTTBORDINU PLATAN ÁFÓNINUM MYNDIN ÍTÆIiINU Mófeti Margar tegundir fíðrilda eru aðdáanlega stundvísar og flugtími hverrar þeirra er oft ekki nema 1-2 mánuðir. Mófeti er með árrisulli tegundum en hans hefúr íyrst orðið vart 26. maí og er á ferli fram í miðjan júlí. Hann er nokkuð algengur og hefur fundist víða um land. Hann heldur sig í þurrlendi allskon- ar, graslendi, mólendi og blóm- tendi. Lirfumar vaxa upp seinni hluta sumars og lifa á blómum ýmissa plöntutegunda. Á haustin púpa þær sig í jarðveginum og bíða næsta vors. Allmargar tegundir fetaættar (Geometridae) er að finna á ís- landi. Mófeti er ein af minnstu teg- undunum með um 20 mm væng- haf. Hann er nær einlitur, gul- brúnn, með ögreinilegu mynstri í vængjum. Hann á sér nauðalíkan ættingja, en það er brekkufetinn Eupithecia plumbeolata, sem er öllu sjaldgæfari og hefur aðeins fundist um landið sunnanvert. Hann flýgur á svipuðum tíma og mófeti. Best er að aðgreina þessar tvær tegund- ir á lögun framvængja. PETTA SÖGÐU ÞAU ÞÁ... Við höfum oft harmað það, hvað heiðarlegt fólk hef- ur lengi verið tregt til að yfir- gefa Alþýðuflokkinn, löngu eftir að því var ljóst orðið að flokkur- inn hafði brugðizt trúnaði þess. Fijdls þjóð. „Markmið og lciðir.“ 3. júní 1964. Ævar Kjart- ansson dag- skrárgerðar- maður Það er „Hús andanna“ eftir Isa- belle Allende. Ég er einn af þessum mönnum sem les fremur lítið, en læt mér oft nægja að heyra umræður um bækur - þó ekki al- veg. Ég tek tarnir í bókmenntunum. Nýlega hef ég lesið tvær bækur eftir íslenskar konur á besta aldri sem ég er afskaplega hrifinn af. Það er bók Vigdísar Grímsdóttur „Ég heiti Isbjörg - ég er ljón“ og bók Þórunnar Valdimarsdóttur um hann Snorra á Húsafelli og ég féll gjörsamlega flatur fyrir þessari aðferð hennar. Árni Björnsson þjóðhátta- fræðingur Það, sem er á náttborðinu hjá mér, er nýjasta heftið af þýska vikuritinu Der Spiegel. Það rit virk- ar fyrir mig sem einskonar gluggi til umheimsins og ég verð að segja það að ég les um erlenda atburði frekar þar en í Morgunblaðinu. Rósa Grammófónninn minn er nú bil- aður eins og er, en ég hlusta mikið á lög með Gipsy Kings, eða Sígaunakóngunum öðru nafni, þessa dagana. Þetta' er suður- amerísk tónlist í öllu sínu veldi. Tónlistin er mjög „rytmísk“ og það finnst mér skipta öllu máli. Hér heima finnst mér hljómsveitin Todmobile bera af. Hún er listræn og býður upp á sitt lítið af hveiju, þó án þess að verða háfleyg. Áslaug Dóra Ey- jólfsdóttir dagskrárgerð- armaður Eg horfði á myndina „Beeches“ með Bette Midler og annarri leik konu, sem ég man ekki hvað heitir, en myndin fallar um vinskap tveggja kvenna. Ég er mest fyrir góðar myndir um mannleg málefni, en heldur lítið gefin fyrir spennu- myndir og enn síður hryllingsmynd- ir. Þorbjörn Árnason framkvæmda- stjóri á Sauð- árkróki Þessa dagana er úrval Andrews Loyds Webbers á fóninum hjá mér. Hann er m.a. höfundur Cats og Phantom of the Opera. Ég hlusta aðallega á klassík ef ég sest á ann- að borð niður til þess að hlusta á tónlist. Sigurlaug M. Jónas- dóttir þula Eg er að horfa á „Moonstruck“ með Cher og Nicholas Cage f fimmta sinn. Cher fékk „óskarinn" fyrir leik sinn í myndinni. Myndin gerist í Bandaríkjunum og fjallar um ítalska fjölskyldu. Þessi mynd er í miklu uppáhaldi hjá mér. 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.