Morgunblaðið - 29.05.1990, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1990
Erfiðleikarnir munu
bjarga okkur
eftir Gísla
Sigurbjörnsson
Strætisvagninn var að fara af
stað og um leið og ég kvaddi, sagði
hann: „Erfiðleikarnir munu bjarga
okkur.“ Þessi orð vinar míns, gagn-
merks bónda austan fjalls, verða
mér minnisstæð og hafa orðið um-
hugsunarefni.
Lífsreyndur dugnaðarmaður seg-
ir í einni setningu mikilsverðan
sannleika, sem vert er að gefa
gaum. Erfiðleikar hafa alltaf verið
á ýmsum sviðum hjá okkur. Að vísu
hafa síðustu áratugir verið með
afbrigðum hagstæðir á ýmsan veg
fyrir þjóðina, og er þar eflaust að
finna skýringu á því, sem gerst
hefur. Framtak og dugnaður hafa
gert mikið, en ef erfiðleikarnir
hefðu verið jneiri, héld ég, að betur
hefði farið. Ýmislegt hefur verið svo
einfalt, hefur gengið eins og í sögu,
og við höfum svo mörg gleymt erfið-
leikum og baráttu fyrri ára.
Eldra fólkið, sem sumir nefna
gamalmenni, leiðinlegt orð, sem ég
hélt að hætt væri að nota, man vel
tíma baráttu og erfiðleika, sigra og
ósigra, það lítur yfir farinn veg.
Og það var hann, sem sagði mér,
hvemig þetta fer — erfiðleikarnir
munu bjarga okkur.
Ekki er svo að skilja, að ég haldi,
að einhveijir voða tímar fari í hönd,
enda þótt ég taki undirprð forsætis-
ráðherra, þegar hann sagði, að við
stæðum á vegamótum eða voru það
tímamót, velgengni og vandræða.
Ég held að bóndinn að austan
hafi rétt fýrir sér með kveðju sinni.
Erfiðleikar stæla viljann, auka þrótt
og áræði. Nýjar leiðir, nýtt átak til
framkvæmda, allt er þetta árangur,
þegar snúist er gegn aðsteðjandi
erfiðleikum með karlmennsku,
Gísli Sigurbjörnsson
bjartsýni og dugnaði. Ef til vill verð-
um við um sinn að fara okkur hæg-
ar, verðum að læra að sníða okkur
„Við, sem horfum á
þennan hrunadans og
erum dæmd úr leik
vegna aldurs, getum
aðeins beðið góðan
Guð, að sfjórnendur
þjóðarinnar beri gæfii
til að sameinast um
núll-lausnina, þar er
eina bjargarvonin.“
stakk eftir vexti. Sparnaður og
hagsýni komast aftur til vegs og
virðingar meðaj þjóðarinnar, og þá
fer að rofa til. í stað bölsýni kemur
bjartsýni — í stað úrræðaleysis
kemur kjarkur og nýjar leiðir. Það
er erfitt að þola góða daga, það
höfum við reynt, en erfiðleikarnir
munu bjarga okkur.
Fyrir tuttugu og þremur árum
birtist þessi grein. Síðan hafa orðið
miklra breytingar á högum okkar,
kynslóðabilið er alfarið að gera vart
við sig. Nú er sagt: „Allt er fertug-
um fært.“ Eldra fólkið er ekki talið
með, þótt það hafi enn kosninga-
rétt, og nú eru kosningar í nánd.
íslendingar fengu þá einkunn í
einni af mörgum könnunum að vera
gæfusamasta og ríkasta þjóð heims.
Því miður töldu of margir þetta
sannleika, og þá fór margt úr bönd-
um.
Hvernig málum okkar er háttað
og hvers vegna, verðum við aldrei
sammála um, hér fer allt eftir
pólitík. Og hver ber ábyrgð á,
hvernig komið er, það er hinum að
kenna, ekki mér.
Hér eru það olnbogarnir, sem
öllu skipta, en olnbogabörnin, hvað
með þau? Þeirri spurningu get ég
ekki svarað — og þó. Til þess þarf
sameinaða þjóð, en hvenær verður
það? En þess vegna verður bent á
leið, sem nú er í athugun, lækka
verðlag og margt fleira. Þeir nefna
þetta núll-lausn. Auðvitað eru, að
vanda, ekki allir á einu máli — en
er nokkur önnur leið fær? Það held
ég ekki, og þess vegna er vonandi,
að forráðamenn þjóðar vorrar beri
gæfu til að fara þessa leið. Annars
er mikil hætta á, að allt fari úr
böndum — verkföll go upplausn,
atvinnuleysi og fátækt.
Fyrir nær sextíu árum, 1931-’32,
skall þessi ógæfa yfir þjóðina. Við
erum líka ekki nema nokkur þúsund
talsins, sem muna þá tíma. Matar-
gjafir, mjólk, kol, gömul föt, notaða
skó — reynt var með öllum ráðum
að hjálpa.
Nú eru aðrir tímar, fertugum er
allt fært, er sagt. Fortíðin er
gleymd, hún er afskrifuð. Nú eru
það þeir, tölvur og menntun og
skólar, sem öllu ráða og allt ætla
að gera. Helst skulu allir í háskól-
ann og stúdentsprófið er lykill að
framtíðarstarfinu, núna síðast einn-
ig að hjónabandinu. Þetta er allt
gott og biessað, en einu má ekki
gteyma, 250.000 manna þjóð getur
ekki hagað sér eins og þjóðir, sem
telja milljónir.
„Það verður hún fröken Neyð,
sem bjargar ykkur,“ sagði hann við
mig, maður, sem í áratugi hafði
staðið í fremstu röð í þjóðmálum
Islendinga, en var nú orðinn aldrað-
ur og lúinn, og fyrir nokkrum árum
afskrifaður af þeim flestum. Og
hann hélt áfram: „Þið verðið að
lenda í alvarlegum vandræðum með
atvinnu- og fjármálin. Þessar spila-
borgir, sem þið hafið reist undan-
farna áratugi, en höfðuð ekki ráð
á, þið höfðuð ekki peninga til að
framkvæma nema hluta af þessu
öllu. Þið vilduð fá allt fyrir alla,
helst áttu allir' að fá allt ókeypis.
Ríkið átti að borga með lánum, sem
þarf að endurgreiða, líka vexti, og
nú súpið þið seyðið af óstjórn, van-
stjóm og ofstjórn."
Um þetta allt má endalaust tala
og skrifa, en verður árangurslaust,
að vanda. Við, sem borfum á þenn-
an hrunadans og erum dæmd úr
leik vegna aldurs, getum aðeins
beðið góðan Guð, að stjórnendur
þjóðarinnar beri gæfu til að samein-
ast um núll-lausnina, þar er eina
bjargarvonin.
Höfundur erforstjóri Elli- og
hjúkruniirheimilisins Grundnr.
TOSHIBA
VAl ÞHRRA VANDUmi!
Gerð V39 CD: • Magnari 140 DIN wött •
FM/LW/MW útvarp meö 29 stöðva minni og
sjálfleitara • Tvöfalt kassettutæki með
„Dolby" • Sjálfvirkur reimdrifinn plötuspil-
ari • 5 banda tónjafnari • 3 geisla spilari
með 32 laga minni • „surround sound
system" • 2 þrefaldir hátalarar • 42 liða
fjarstýring og margt fleira.
Verö kr. 93.900
eða kr.
87.300
stgr.
Gerð V29 CD: • Magnari 90 din wött •
FM/LW/MW útvarp meö 29 stöðva minni og
sjálfleitara • Tvöfalt kassettutæki með
„Dolby" • Sjálfvirkur reimdrifinn plötuspil-
ari • 5 banda tónjafnari • 3ja geisla spilari
meö 32 laga minni • „Surround sound
system" • 2 þrefaldir hátalarar • 25 liða
fjarstýring og margt fleira.
Fullt verð kr. ^900
Tilboðsverð kr. 69.200
eða kr.
65.700
stgr.
í tilefni ferminga á næstunni bjóö-
um viö nú 2 nýjustu gerðirnar af
TOSHIBA hljómtækjasamstæöum á
sérstöku tilboösveröi. Ýmsar aörar
gerðir eru að auki fáanlegar með eða
án geislaspilara.
Nýju TOSHIBA hljómtækin hafa
hlotið frábærar viðtökur og einróma
lof fagmanna í erlendum fagtímarit-
um. Betri hljómgæði en nokkur sinni
fyrr, nýtt glæsilegt „professional“
útlit, og hagstætt verð gera þvf
TOSHIBA að vali þeirra vandlátu í
dag!
Gerð SL 3149: • Magnari 40 múslkwött •
FM/LW/MW útvarp með 18 stöðva minni •
Tvöfalt kassettutæki • Hálfsjálfvirkur
reimdrifinn plötuspilari • 3 banda tónjafnari
• 3 geisla spilari meö 32 laga minni •
„surround sound system" • 2 tvöfaldir há-
talarar og margt fleira.
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28 — “2 16995 og 622900
Fullt verö kr. 55.900
Tilboðsverð kr. 49.900
eða kr.
47.400
stgr.
Án geislaspilara kr.
24.600
stgr.