Morgunblaðið - 29.05.1990, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ
VEDSKIFn/AlVlNNUlÍF
ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1990
Rekstur
Betri rekstrarafkoma
Kaupfélags Héraðsbúa
- þrátt fyrir 50 milljóna króna tap
Egilsstöðum.
VERULEGUR bati varð á rekstri
Kaupfélags Héraðsbúa á Egils-
stöðum á árinu 1989. Heildar-
velta fyrirtækisins varð 1966
milljónir og hækkaði á milli ára
um 496 milljónir. Rekstrarhagn-
aður án fjármagnsliða varð 81,3
Greidslumiðlun
Kreditkort hf.
umboðsaðili
fyrirJCB
greiðslukort
KREDITKORT hf. hefúr gerst
umboðsaðili fyrir japanska
greiðslukortafyrirtækið JCB á
Islandi. JCB var stofnað árið
1961 af sex helstu bönkum í Jap-
an. Korthafar eru um 17 milljón-
ir talsins en fyrirtækið er þegar
orðinn Qórði stærsti kortaútgef-
andinn í heiminum. JCB kort
verða ekki gefín út handa íslend-
ingum fyrst um sinn heldur held-
ur takmarkast þjónustan við
korthafa JCB sem fyrst og fremst
eru Japanir. Steftit er að því að
gefa út kort í öðrum löndum inn-
an þriggja ára.
Á íslandi verður einungis völdum
fyrirtækjum gefinn kostur á að taka
við JCB greiðslukortum að því er
segir í frétt frá Kreditkortum. Fyr-
irtækin eru valin með það fyrir
augum að korthafar geti treyst því
að þeir séu að versla við traust fyrir-
tæki. Úttektarmörk eru nokkuð
hærri en hjá öðrum greiðslukorta-
fyrirtækjum eða 80 þúsund hjá
verslunum og 120 þúsund hjá hótel-
um. í fréttinni er á það bent að
ferðalög Japana hafi aukist mikið
á undanförnum árum og von sé á
enn meiri aukningu á næstu árum.
Á síðastliðnu ári voru Japanir um
1% af öllum ferðamönnum sem
hingað komu og hafði fjölgað um
30% frá fyrri árum.
milljónir á móti 27 milljónum
árið áður. Eftir niðurfærslu og
afskrift viðskiptakrafna að upp-
hæð 39,2 milljónum nam tap árs-
ins rúmlega 49,9 milljónum
króna. Eigið fé félagsins um ára-
mót nam alls 216,6 milljónum
skv. efnahagsreikningi. Veltu-
flárhlutfall félagsins var 0,95 í
árslok en 0,99 í ársbyrjun.
Kaupfélag Héraðsbúa rekur fjöl-
þætta starfsemi á Fljótsdalshéraði
og nærliggjandi fjörðum. Af ein-
stökum starfsþáttum var verslunar-
rekstprinn umfangsmestur en þar
nam veltan 840 milljónum. Kaupfé-
lagið rekur verslanir á Egilsstöðum,
Borgarfirði, Seyðisfirði og Reyðar-
firði. Varð afkoma verslananna
betri en árið áður. Þakka forráða-
menn félagsins það einkum betri
ytri aðstæðum, s.s. vaxtalækkun.
Verulegur samdráttur hefur orðið
í sauðfjárslátrun undanfarin ár
vegna mikils niðurskurðar sökum
riðuveiki í sauðfé á félagssvæðinu.
Aukning varð hins vegar í naut-
gripa- og svínaslátrun. Slátrað var
í tveimur sláturhúsum á árinu, á
Egilsstöðum og Fossvöllum en slát-
urhús á Reyðarfirði var úrelt á ár-
inu. Rekstrarafkoma Mjólkursam-
lagsins var nokkru betri en árinu
1989 en árið á undan. Sölusvæði
samlagsins stækkaði og var á
síðasta ári tekið við mjólk frá 5
bændum í Breiðdal. Brauðgerð
gekk hins vegar verr en árið 1988
þrátt fyrir talsverða veltuaukningu.
Kaupfélag Héraðsbúa rekur
frystihús á Borgarfirði og Reyðar-
firði og varð mest veltuaukning í
vinnslu sjávarafla hjá félaginu eða
31,4% að raungildi. Telur Jörundur
Ragnarsson, kaupfélagsstjóri, að
helsti vaxtarbroddur félagsins geti
verið fólginn í fiskvinnslunni ef tak-
ist að afla nægilegs hráefnis og
auka hagkvæmni í rekstrinum.
Á miðju ári 1989 lét Þorsteinn
Sveinsson af starfi kaupfélagsstjóra
fyrir aldurs sakir eftir margra ára
farsælt starf hjá félaginu. Við starfi
hans tók Jörundur Ragnarsson sem
áður var kaupfélagsstjóri á Vopna-
firði.
— Björn
Bensín
kr. 49,20
Skipting útsöluverðs bensíns,
gasolíu og svartolíu í jan. 1990
^ Gasolía k Svartolía
kr. 19,50 kr. 12,30
) /% (\s
f l \ 57,70/-
reifingar- 'v
istnaður
innkaupsverð 2>1% Flutnings- og innkaupajöfnun
Markaðshlutdeild olíufélaganna 1989
Bensín, 125.490 tonn Svartolía. 93.381 tonn
66.051 tonn
Við birtingu forsíðukorts viðskiptablaðsins sl. fimmtudag víxlaðist texti um skiptingu útsöluverðs bensíns. Er
því kortið birt aftur og þá ítarlegar en fyrr.
TOLVUPISTILL
Holberg Másson
Upplýsingahagfræði
Oft hefur vafist fyrir mönnum að
meta hagkvæmi og velja á milli kosta
í tölvuvæðingu. Síðustu ár hafa farið
fram rannsóknir á hvernig hægt sé
að meta arðsemi fjárfestingarkosta
í upplýsingavæðingu og finna nothæf
líkön til að nota sem verkfæri. Fyrstu
niðurstöður úr þessum rnnsóknum
liggja nú fyrir og smíðuð hafa verið
líkön til að styðjast við.
Hér á landi er stödd Marilyn M.
Parker sem er virtur frumkvöðull í
rannsóknum á sviði upplýsingahag-
fræði. Marilyn Parker er verkefnis-
stjóri hjá IBM í rannsóknarmiðstöð
þeirra í Los Angeles, á sviði hagnýtr-
ar upplýsingatækni og mats á fjár-
festingum í tölvuvæðingu fyrirtækja.
í viðtali við Morgunblaðið sagði
Marilyn Parker að „mat á kostum í
fjárfestingu á upplýsingasviði fyrir-
tækja væri mjög svipað og mat á
kostum í ríkis- og þjónustustofnun-
um sem væru ekki með gjald fyrir
þjónustu sína“. Þessi fyrirtæki
fengju oft bein framlög, eða framlög
til starfsemi sinnar sem væru ekki í
beinum tengslum við afurðir eða þá
þjónustu sem þau veittu. Fram að
þessu hafi verið erfitt að meta hag-
kvæmni rekstrarins og kosti í fjár-
festingum, vegna erfiðleika við að
ná taki á hversu skynsamar Jjárfest-
ingar hafa verið. Þetta gerir réttlæt-
ingu á nýfjárfestingum erfiða, þar
sem erfitt er að sýna fram á hag-
kvæmni fyrirhugaðra nýfjárfestinga.
Marilyn Parker hefur unnið
síðustu tvö ár í rannsóknarhóp á
vegum Washington University, sem
hefur komið fram með nýjar kenn-
ingar um hlutverk upplýsingatækn-
innar innan fyrirtækja og gert líkön
sem hjálpa til að meta fl'árfestingar
í upplýsingatækni. September ár
hvert er haldin á vegum Washington
University fl'ölmenn ráðstefna þar
sem kynntar eru niðurstöður rann-
sókna á þessu sviði. Marilyn Parker
sagði: „Það hefur verið litið á tölvu-
væðingu fyrirtækja fram að þessu
sem óhjákvæmilega en dýra fjárfest-
Morgunblaðið/Einar Falur
Marilyn M. Parker
A MARKAÐI
Bjarni Sigtryggsson
Varúð - auglýsing-
ar eru skaðlausar
Það er útbreitt viðhorf að mark-
aðsmenn séu sjónhverfingamenn
nútímans og auglýsingastofur séu
vefstóiar sem spinni lygavef og veiði
hinn saklausa neytanda í net sitt
eins og kónguló. Þegar leitað er skýr-
inga á óförum fórnarlamba hins
hraða og kappsama nútímalífs er
gjarnan fundinn einn syndaselur:
auglýsingamennskan!
Stundum líkjast þessar ásakanir
galdraofsóknum og ekki er þá gert
ráð fyrir því að neytendur séu svo
upplýstir að þeir standist tangarsókn
auglýsendanna. Þar er þó greindar-
og þekkingarstig hins almenna neyt-
anda vanmetið.
Það er þó engu að síður staðreynd
að æ oftar er auglýsingum beitt til
þess að tengja vörur tilteknum lífsstíl
eða hugarfari fremur en um sé að
ræða beina vörulýsingu. En það á
sér líka skýringu, sem aftur á rót
sína að rekja til óska neytandans.
Hvítar tennur
Kaupandi Volvo-Bifreiðár Ies
gjarnan auglýsingar frá Volvo og
sannfærist um það að hann hafi gert
rétt kaup. Hann finnur öryggis-
kenndina streyma um sig og veit að
fjölskylda hans er bundin í rétt belti
í réttum bíl undir stjórn hins rétta
bílstjóra. Þessi þægilega sjálfsefjun
veldur engu tjóni, nema síður sé. Það
auðveldar foreldrum að fá börnin til
að drekka mjólk í stað litaðrar vatns-
blöndu þegar glansandi og allt að
sjálfslýsandi hvítar tennur Grétars
Orvarssonar og Siggu Beinteins birt-
ast á skjánum.
Margt af því sem tengir vörur við
lífsstíll er skaðlaust og veitir neyt-
andanum notalega tilfínningu, þótt
óneitanlega sé sumt æði langsótt,
eíns ■ og það að gulu tyggjói fylgi
sólskin. En þá er það auglýsandans
að meta hvort hann skjóti langt yfir
markið.
Nýjar niðurstöður frá Bretlandi
gefa til kynna að neytendur séu
miklu betur að sér en gagnrýnendur
auglýsingaþjónastunnar telja: Aug-
„Sjálflýsandi
tennur Grétars
°g Siggu Bein-
teins valda
mjólkurþambi
barna...“
lýsingastofan Leo Burnett í Lundún-
um Iét kanna hug og þekkingu neyt-
enda til auglýsinga, en þar í landi
horfir meðalamaðurinn á 200 auglýs-
ingar í sjonvarpi á viku hverri. 50
ijölskyldur fylgdust náið með í þijár
vikur og skráðu niður hvernig þær
horfðu á sjónvarp, og svöruðu síðan
ítarlegum spurningaseðli. Til saman-
burðar voru 30 fagmenn úr greininni
líka látnir gangast undirsamapróf.
Þurfa að hrífa áhorfandann
Það sem vakti einna mesta furðu
úr niðurstöðum könnunarinnar var
hve erfiðlega gengur að ná athygli
fólks með sjónvarpsauglýsingum. Að
meðaltali töldu menn aðeins átta
auglýsingar vera minnisstæðar. Aug-
lýsingafólkið aðeins þijár. Konur
veittu auglýsingum meiri athygli en
karlar. Mesta athygli vöktu þær sem
höfðu gamansama skírskotun til
sjónavarpsþátta og aðrar sem voru
sérstakar og leyndu boðskap sínum.
Óvinsælastar voru þær auglýsingar
þar sem reynt er með skipandi hætti
að segja neytandanum fyrir verkum.
Farðu og kauptu þetta! Beinn og
augljós áróður hittir ekki í mark.
En það kom líka í ljós að almenn-
ingur gerir sér ljósa grein fyrir mark-
miðum auglýsandans og skilur vel
þau vinnubrögð sem viðhöfð eru.
Fólk er ótrúlega vel að sér í faghug-
tökum markaðsfólksins. I útskýring-
um sínum notaði fólkið orð eins og
„markhópar“, „ímynd" og „vitund-
argráða". Það virtist líka gera sér
grein fyrir því hvort boðskapnum var
'beint gegn vörumerki keppinautarins
eða hvort honum var ætlað að byggja
upp nýja vörutegund.
Almennt var fólk betur að sér í
þessum efnum en ýmsir hugðu, og
það skýrir þá mæta vel hversu miklu
vandaðar og hugvitsamlega gerðar
auglýsingar fá áorkað í sölu. Þær
hrífa neytandann og koma boðskapn-
um til skila. Hinar renna inn í órjúf-
anlega samfellu þess efnis sem fer
inn um annað og út um hitt, án við-
- komu í heilafrumunum........
ingu sem best hefði verið að sleppa
við.“ Þetta viðhorf endurspeglar
ókunnugleika á hvernig á að meta
arðsemi ijárfestinga fyrirtækisins á
þessu sviði.
Hún sagði ennfremur, að grunnt-
ölvuvæðingu hjá flestum fyrirtækj-
um væri lokið og nú væri mikilsvert
að nýta möguleika upplýsingatækn-
innar til að hjálpa fyrirtækinu til að
ná markmiðum sínum. Líta yrði á
tölvudeildina annarsvegar sem
rekstrareiningu sem reka yrði á sem
hagkvæmastan hátt og hinsvegar
yrði að líta á tölvudeildina sem þjón-
ustudeild sem legði miklu meira til
fyrirtækisins en það sem væri hægt
að mæla með hefðbundnum aðferð-
um. Nauðsynlegt væri að gera sér
grein fyrir hlutverki og tilgangi upp-
lýsingatækninnar hjá fyrirtækjum,
staðsetningu tölvudeildar í skipulagi
fyrirtækisins. Einnig væri mjög
nauðsynlegt að gera skilgreiningu á
hlutverki og tilgangi tölvudeildar í
ljósi stefnu og markmiðs fyrirtækis-
ins. Nauðsynlegt væri að gera grein
fyrir arðsemi nýrra fjárfestinga í
upplýsingatækni og hvernig slík
verkefni á sviði upplýsingatækni
hjálpa fyrirtækinu í að ná framtíðar-
markmiðum sínum.
Fyrirlestur um
upplýsingahagfræði að
Hótel Inn í dag
Marilyn Parker mun í dag segja
frá reynslu sinni af því að rannsaka
fjölda fyrirtækja og þeim niðurstöð-
um sem liggja fyrir. Hún mun segja
frá nýjustu hugmyndum um mat á
arðsemi í upplýsingatækni og arð-
semislíkani því sem hún hefur tekið
þátt í að hanna. Fyrirlesturinn er á
Hótel Inn, Hvammi, kl. 13-17.
Höfundur starfnr við tölvuráðgjöf.