Morgunblaðið - 29.05.1990, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 29.05.1990, Qupperneq 60
ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. t Úrslit sveitarstjórnakosninganna: Meirihlutaviðræð- ur komnar á skrið Morgunblaoio/Kunar Pór. Horft til fram tíðarinnar Sjá frásögn á Akureyrarsíðu bls. 36 VIÐRÆÐUR um myndun meirihluta í þeim bæjarfélögum þar sem meirihlutinn féll í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag eru að komast á skrið og mjög víða voru fundahöld í gærkveldi. Viðræðurn- ar hafa hvergi skilað niðurstöðu, en gert er ráð fyrir að víða muni það skýrast í dag, hvar sigurvegarar kosninganna bera fyrst niður varðandi meirihlutasamstarf við aðra flokka. Engar formlegar viðræður fóru fram um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar í gær. Full- trúaráð framsóknarfélaganna hittist í gærkvöldi, þar sem nýkjömum full- trúum var falið umboð til að ganga til viðræðna um myndun meirihluta ■gmBK var stofnuð nefnd í því skyni. ulfhildur Rögnvaldsdóttir, efsti maður á lista Framsóknar, vildi ekki tjá sig um hvort fyrst yrði rætt við Sjálfstæðisflokk eða Alþýðubanda- lag, en laust fyrir miðnætti hafði ekki verið haft samband við Sigurð J. Sigurðsson, efsta mann á lista Sjálfstæðisflokksins. Framsóknarflokkurinn hefur oddaaðstöðu í Kópavogi og getur myndað meirihluta með Sjálfstæðis- flokki, sem vann mann í kosningun- um, eða Alþýðuflokki og Alþýðu- >*—bnndalagi, sem töpuðu meirihluta sínum. Oformlegir fundir verða með sjálfstæðismönnum og Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi seinnipartinn í dag og sagði Sigurður Geirdal, odd- viti Framsóknarflokksins, að það myndi ekki skýrast fyrr en eftir það hvert framhaldið yrði. Þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn einnig kannað óformlega möguleika á meirihluta- samstarfi við Alþýðuflokk og þeim möguleika er haldið opnum. A ísafirði hittust efstu menn lista KLM vill millj- ón skammta af smálaxi Fiskeldisstöðin Laxalón hef- ur átt í viðræðum við hollenska flugfélagið KLM um sölu á einni milljón skammta af reyk- soðnum smálaxi. Eru allar líkur á því að íslenskur smálax verði kominn á borð flugfar- þega seinnipartinn í sumar eða haust, að sögn Ólafs Skúlason- ar, framkvæmdastjóra Laxa- lóns. Um er að ræða 16-18 mánaða lax sem er 200 til 300 g að þyngd. Ætlunin er að vinna hann hérlendis og flytja út frosinn. Öll , laxaframleiðsla Laxalóns og meira til mun fara í að uppfylla samninginn ef af honum verður. „Við höfum verið í sambandi við KLM frá því í febrúar síðast- liðnum og sendum þeim sýnishom af laxinum. Þeir hafa lýst yfir áhuga á að kaupa eina milljón skammta af smálaxi, þ.e.a.s. flök. Ef af þessum samningi verður, þýðir það að við fáum aðgang að fleiri flugfélögum. Það myndi koma íslenskum framleiðendum til góða þar sem þetta er gríðar- lega stór markaður. I Evrópu eru framleidd að jafn- aði 140.000 tonn af 200-400 g silungi til almennrar neyslu. Við ætlum okkur inn á þennan mark- að með laxinn og höfum fengið jákvæðar viðtökur. Hvað varðar möguleika íslensku seiðaeldis- stöðvanna á þessum markaði, þá myndi framleiðslugeta þeirra vart ■fara upp fyrir 6.000 tonn og það er of lítið magn til að þætta sé á verðhruni." . Sjálfstæðisflokksins og í-lista Sjálf- stæðs framboðs á óformlegum fundi í gærmorgun, þar sem ræddir voru möguleikar á meirihlutasamstarfi. Það var síðan rætt á fundum hjá listunum í gærdag og seint í gær- kveldi gerði D-listinr, það að úrslita- atriði ef til meirihlutasamstarfs kæmi að starf bæjarstjóra yrði aug- lýst, en því var hafnað af í-lista- mönnum. Skömmu fyrir miðnættið hófst síðan fundur aðila þar sem ráða átti þessu máli til lykta. Alþýðuflokkurinn á Akranesi samþykkti á félagsfundi í gærkveldi að ganga til viðræðna við Framsókn- arflokkinn um meirihlutasamstarf og verður fyrsti fundur aðila seinni- partinn í dag. Alþýðuflokkurinn var í minnihluta á síðasta kjörtímabili og vann fulltrúa af Alþýðubandalag- inu, en Framsóknarflokkurinn, sem var i meirihluta með Alþýðubanda- laginu, hélt sínu. í Keflavík féll meirihluti alþýðu- flokksmanna og hefur Framsóknar- flokkurinn oddaaðstöðu í bænum og getur myndað meirihluta með þeim og sjálfstæðismönnum. Báðir aðilar hafa óskað eftir viðræðum um meiri- hlutasamstarf við Framsókn. í Njarðvíkum féll meirihluti Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks og eru hafnar viðræður á milli Sjálfstæðis- flokks og N-lista, lista félagshyggju- fólks, um meirihlutasamstarf. Framsóknarflokkurinn er ótví- ræður sigurvegari kosninganna á Húsavík. Óformlegar viðræður hafa farið fram milli hans og Sjálfstæðis- flokks um meirihlutasamstarf. Framsóknarflokkurinn er einnig sigurvegari kosninganna á Eskifirði. Þreifingar eru hafnar milli hans og Alþýðubandalags, en báðir flokkarn- ir voru í minnihluta á síðasta kjörtímabili. Stjórn Aflamiðlunar: 1.233 tonn flutt út án leyfís Tel mig- ekki bundinn af útflutningsleyfunum, segir framkvæmdastjóri Gámavina í LJÓS hefur komið að talsvert meira magn af fiski hefúr verið flutt út en Aflamiðlun heftir heimilað. Þannig voru flutt út 925 tonn um- fram heimildir fyrstu átta vikurnar sem Aflamiðlun starfaði. Aðallega var um að ræða ýsu og þorsk, sem selt var i Bretlandi. Af 50 útflutn- ingsaðilum fluttu sex út meira magn en heimilað hafði verið. Snorri Jónsson, frarnkvæmdastjóri Gámavina í Vestmannaeyjum, sem er eitt þeirra fyrirtækja sem flutt hafa út umfram heimildir, segist ekki telja sig bundinn af útflutningsleyfúnum. Þessi aukni útflutningur hafi ekki haft merkjanleg áhrif á verð sem fengist hefði fyrir fiskinn og það sýni að Aflamiðlun hafi úthlutað of litlu magni til útflutnings. í frétt frá Aflamiðlun segir að leitað hafi verið eftir skýringum á þessu hjá viðkomandi aðilum og hafi þær helstar verið að úthlutun hefði verið of lítil, verð hafi verið hátt erlendis en lágt innanlands, erfitt hafi verið að losna við fisk- inn, aðallega ýsu, innanlands og hann jafnvel legið undir skemmdum og mistalning við löndun. „í fram- haldi af þessari athugun og í ljósi viðhorfa þeirra útflutningsaðila sem hafa úthlutanir Aflamiðlunar a<) engu, mun stjórn Aflamiðlunar óska eftir viðræðum við tollayfirvöld um leiðir til að framfylgja lögum um útflutningsleyfi sem hafa verið brotin með grófum hætti,“ segir ennfremur. Þeir sex aðilar sem um ræðir og seldu meira en Aflamiðlun heimilaði á tímabilinu 9. apríl til 11. maí eru, auk Gámavina, Skipaafgreiðsla Vestmannaeyja, Skipaþjónusta Suðurlands, Vísir hf., Hraðfrystihús Breiðdælinga og Kleifar/Sæhamar. Þrír fyrstnefndu aðilarnir eru ura- boðsfyrirtæki sem sjá um útflutning fyrir misjafnlega mikinn fjölda báta og togara. Hraðfrystihús Breiðdæl- inga selur fýrir einn togara, Kleif- ar/Sæhamar fyrir tvo báta og Vísir hf. fyrir um tíu báta. Á fyrrgreindu tímabili var Gáma- vinum úthlutað 320 tonnum til út- flutnings, en þeir seldu 774 eða 454 tonn umfram heimildir. Skipaaf- greiðsla Vestmannaeyja fékk út- hlutað 219 tonnum en seldi 423 eða 204 tonnum meira en heimilað var. Skipaþjónusta Suðurlands fékk út- hlutað 410 tonnum og seldi 729 eða 319 tonnum meira en heimilað var. Vísir hf. fékk úthlutað 36 tonnum, seldi 68 eða 32 tonn umfram heim- ildir. Hraðfrystistöð Breiðdælinga fékk úthlutað 24 tonnum og seldi 62 eða 38 tonnum umfram heimild- ir og Kleifar/Sæhamar fengu út- hlutað 128 tonnum, seldu 314 eða 186 umfram heimildir. Samtals eru þetta 1,233 tonn.umfram.þau 1.137 tonn sem þessum aðilum var heimil- að að selja. Snorri Jónsson sagði að skýring- in á því að Gámavinir hefðu flutt út meiri fisk en þeir hefðu fengið úthlutað leyfum fyrir væri að þeir gætu ekki skemmt hann. Þeir fengu alltof litiu magni úthlutað til út- flutnings og losnuðu ekki við fiskinn innanlands. Þegar hann hefði rætt þetta við einn nefndarmann hefði hann sagst vera fulltrúi fiskvinnsl- unnar og kæmi ekki við hagsmunir útflytjenda. Við slík skilyrði væri ekki hægt að una og eftir það hefði hann ekki talið sig bundinn af út- flutningsleyfunum. Aðspurður sagði Snorri að Gáma- vinir hefðu gert talsvert af því að selja á fiskmarkaðina á suðvestur- horninu, þrátt fyrir ýmsa meinbugi þar á og aukakostnað sem það hefði í för með sér, en það hefði verið minnkað mjög mikið eftir. að verð á þessum mörkuðum hrundi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.