Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLÁÐÍÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
Mexíkansk-
ur hundur
Frumlegt músíkleikhús frá Hollandi
sýnir á Listahátíð um helgina
eftir Egil Helgason
Það er kannski nokkuð djörf
tilraun hjá Listahátíð að bjóða
hingað heim heilum þremur leik-
hópum frá útlöndum, og í ofaná-
lag stórum ballettflokki. Stjórn
Listahátíðar virðist þó ætla að
sleppa með skrekkinn — og gott
betur. Prýðileg aðsókn var að sýn-
ingum Lilla Teatem í íslensku
óperunni. Aðsókn að Kantor tók
svo vel við sér að uppselt var á
tvær síðari sýningar Cricot 2 leik-
hússins. Og Ioks hefur bókstaf-
lega verið slegist um miða á sýn-
ingar Helga Tómassonar og dans-
ara frá San Francisco ballettnum.
Nú er svo von á enn einum leik-
hópnum, líklega þeim sem hefur
hvað léttast og fjörlegast yflr-
bragð. Þetta er Mexíkanskur
hundur, músíkleikhús frá Hol-
landi, sem samanstendur af hópi
leikara, myndlistarmanna, tónlist-
armanna og manna með ríkulegt
hugvit. í leiksýingunni Norður-
bærinn blandast saman rokk-
músík, söngur og leikur, kvik-
myndir, einstæð lýsing og alls
kyns uppátæki í eina frumlega
og sprenghlægilega heild. Að
sögn gagnrýnenda er áhorfandinn
staddur einhvers staðar miðja
vegu milli gamaldags óperu og
nútíma rokktónleika — með við-
komu í heimi teiknimyndasögunn-
ar.
Mexíkanskur hundur er leikhús
sem ekki á sér neinn fastan sama-
stað. Hópurinn flakkar á milli leik-
húsa, og er það í raun þrekvirki
miðað við þá flóknu umgjörð sem
hann býr verkum sínum. A síðustu
árum hefur hópurinn verið á far-
aldsfæti víðs vegar um heiminn
og meðal annars sýnt í Sovétríkj-
unum, Bandaríkjunum, Kanada
og Frakklandi. Hingað kemur svo
hópurinn frá listahátíðinni í Glas-
gow, en í júlí sýnir Mexíkanskur
hundur í Lundúnum.
Gagnrýnendur hafa skrifað að
Norðurbærinn sé grátbroslegt og
dálítið ósvífið ákall gegn heimsku
og þröngsýni. Leikurinn gerist í
nýbyggðu hverfi steinsteypu-
gímalda, sem í raun gætu verið í
hvaða stórborg sem er, austan
tjalds eða vestan. Þama býr hin
ofvemdaða söguhetja Faas, kúg-
aður fangi afskiptasamra og for-
pokaðra foreldra. Faas þessi hefur
í raun ekkert samband við um-
heiminn, nema í gegnum ofurlitla
gluggabora. Úr sínum eigin
glugga horfír hann á aðra glugga,
23 að tölu. En hann elur með sér
stóran draum. Hann vill verða
málari og mitt í allri steinsteyp-
unni dreymir hann um að mála
bændur — vinnulúna bændur.
Nafnið Mexíkanskur hundur
gefur kannski til kynna hvílík ólík-
indalæti leikhúsgestir eiga í
vændum. Á frambýlingsáram
hljóðvarps í Hollandi máttu hlust-
endur búa við annarlegt ýlfur og
spangól sem barst úr viðtækjum.
í daglegu tali gekk þetta tækni-
lega vandamál undir heitinu
„mexíkanskur hundur". Hálfri öld
síðar og Iöngu eftir að mexíkan-
skir hundar sungu sitt síðasta í
„Mexíkanskur hundur
er leikhús sem ekki á
sér neinn fastan sama-
stað. Hópurinn flakkar
á milii leikhúsa, og er
það í raun þrekvirki
miðað við þá flóknu
umgjörð sem hann býr
verkum sínum.“
hollensku útvarpi varð hér til nafn
á leikhúsi. Á tíu ára starfstíma
mun hópurinn líka hafa komist
að því að vestur í Mexíkó eru til
gæflyndar skephur sem einmitt
bera heitið mexíkanskir hundar.
Mexíkanskur hundur er í raun
hálfgert fjölskyldufyrirtæki eða
bræðrabandalag. Aðaldriffjaðrir
hópsins era þrír bræður, Alex,
Marc og Vineent van Warmerd-
am. Alex hlýtur að teljast forsp-
rakkinn, því hann erþeirra fjölhæ-
fastur; leikritahöfundur, sviðs-
hönnuður, leikari og leikstjóri.
Auk þess þykir hann hinn prýði-
legasti listmálari. Marc er leikari,
en líka framkvæmdastjóri hóps-
ins. Vincent semur tónlistina og
spilar á gítar. Að eigin sögn leysa
þeir öll ágreiningsmál í mesta
bróðemi — eða að minnsta kosti
í bróðurlegri togstreitu, sem
líklega er ennþá ftjórri aðferð.
Aðrir meðlimir hópsins era
varla neinir eftirbátar bræðranna.
Leikkonan Loes Luca hefur fengið
nafnbótina „fyndnasta kona í
Hollandi". Leikarinn Aat Celen
er leikstjóri og þar að auki eftirs-
óttur kvikmyndaleikari. Og
Christian Muiser þykir einhver
slyngasti trymbill austan megin
Norðursjávar.
Sýningar Mexíkanska hundsins
í Borgarleikhúsi éra á föstudags-
og laugardagskvöld, og hefjast
kl. 21.30 vegna leikja fyrr um
kvöldið í heimsmeistarakeppninni
í fótbolta. Leikið er á ensku.
Höfundur er blaðafulltrúi
Listaliátíðar.
Starflist-
smiðju sýnt í
Gerðubergi
SÝNING á starfi listsmiðjunnar
„Gagns og gamans“ verður opn-
uð í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi laugardaginn 16.
júní kl. 14.00.
Starf listsmiðjunnar hefur verið
atriði á Listahátíð í Reykjavík 1990
og tuttugu böm á aldrinum sex til
ellefu ára tóku þátt í því að þessu
sinni. Meginviðfangsefni smiðjunn-
ar var hafíð sem umlykur ísland.
Við opnun sýningarinnar verður
fluttur leikþáttur sem bömin hafa
samið og nefnist „í hafsins djúpi“.
Sýningin mun standa í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi til 22.
júní og er öllum opin alla daga frá
kl. 9.00 til 21.00. Aðgangur er
ókeypis.
Riða hefur
ekki fiindist í
kúm hérlendis
RIÐUVEIKI hefúr aldrei orðið
vart í nautgripum hérlendis að
sögn Sigurðar Sigurðarsonar
dýralæknis á Tilraunastöðinni að
Keldum, en eins og fram hefúr
komið hefúr riðu víða orðið vart
í nautgripum á Bretlandi.
Sigurður sagði að talið væri að
riða hefði borist í nautgripi á Bret-
landi úr kjöt- og beinamjöli, sem
unnið var úr sláturúrgangi, og síðan
notað í kjamfóður. Hér á landi hafí
hins vegar verið bannað að nota
sláturúrgang sem riðuhætta stafaði
af við kjamfóðurgerð árið 1978,
þar sem óttast hafí verið að sjúk-
dómurinn gæti borist milli dýrateg-
unda. „Við vonumst til þess að það
hafí orðið til þess að þetta komi
ekki upp hér á landi, en nautgripir
og sauðfé hefur verið í miklu ná-
býli sumsstaðarm, og vissulega er
það ekki hættulaust. Við höfum því
áhuga á að fá heilasýni úr kúm frá
riðubæjum, og eins að frétta af því
ef einhver torkennileg einkenni
þessu lík koma fram í nautgripum."
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
3
*
=>
<